Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1994, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1994, Blaðsíða 24
oo 36 Kristján Jóhannsson. Kristján syng- ur með kart- öflu í munni „Ég verð að syngja „pá dansk“ þannig að það er tímabært að finna kartöflu í næsta garði og tálga hana til,“ sagði Kristján Jóhannsson stórtenór í Morgun- blaðinu í gær. Hann mun syngja inn á plötu á næsta ári í tilefni þess að Kaupmannahöfn er menningarborg Evrópu 1996. Ummæli Mun berjast fyrir því að kettirnir deyi úr elli „Þessir kettir munu deyja úr elh, það er á hreinu. Ég mun beij- ast fyrir þeim með öllum tiltæk- um ráðum," sagði Sigrún Huld Pétursdóttir kattaeigandi í DV í gær um ný lög sem banna ketti í fjölbýlishúsum nema allir íbúar samþykki. Kötturinn á tvenns konar andstæðinga „Málið snýst um það að köttur- inn á tvenns konar andstæðinga. Það eru kattahataramir, sem bíða þess í ofvæni aö lögin taki gildi svo þeir geti hafið herferð- ina. Svo eru það þeir sem hafa ofnæmi fyrir köttum og fleiru. Fólk er ahtaf að færast fjær nátt- úrunni, það þohr ekki blóm og það þohr ekki ketti. Maður bara spyr: hvað á að banna næst, kannski frjókornin?" segir Sig- ríður Heiðberg, formaður Katta- vinafélags íslands, vegna nýju laganna. Siðferðileg alitamal 1 stjórnmáium Félag ftjálslyndra jafnaðar- manna efnir til fundar á Hótel Loftleiöum í kvöld kl. 20.30 þar sem umræðuefniö verður „Sið- ferðileg áhtamál i stjórnmálum". Þar verður velt upp spumingum eins og hvort þörf sé fyrir siða- reglur fyrir stjórnmálamenn. Fundir Frummælendur era þeir Vil- hjálmur Ámason heimspeking- ur, Svanur Kristjánsson stjóm- málairæðingur og Agnes Braga- dóttir blaðamaöur. Fundarstjóri er Ágúst Eínarsson prófessor. Fundurinn er öllum opinn. Félagsfundur Kvenfélags Kópavogs Fyrsti félagsfimdur vetrarins hjá Kvenfélagi Kópavogs verður í kvöld og hefst kl. 20.30. Kvenfé- lagið er að hefia 34. starfsár sitt. Á fundinn kemur Hhf Geirsdóttir og fræðir konur um íslenska bún- inginn á ýmsum skeiöum sög- unnar. AUar konur eru velkomn- ar á fundinn. Heyrsthefur: Tuttugufaldur og þijátíufaldur. Gætum timgunnar Rétt væri: tvítugfaldur og þrítug- faldúr. ; Skúrir suðvestanlands f dag er búist við suðvestanátt og víða kalda. Minniháttar skúrir verða á Suðvestur- og Vesturlandi en víöast annars staöar þurrt og léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi, Hiti yf- irleitt á bilinu 7 til 12 stig, hlýjast eystra. Á höfuðborgarsvæðinu verður suðvestan kaldi í dag en sunnan kaldi í nótt. Skúrir verða og hiti á bilinu 7 til 10 stig. Veðrið í dag Sólarlag í Reykjavík: 19.30 Sólarupprás á morgun: 7.12 Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.50 Árdegisflóð á morgun: 8.05 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri rigning 8 Akurnes léttskýjað 6 Bergsstaðir hálfskýjað 6 Keíla víkurflugvöllur skýjað 8 Kirkjubæjarklaustur skýjað 7 Raufarhöfn léttskýjaö 3 Reykjavík úrkomaí grennd 7 Stórhöfði skúr 7 Bergen alskýjað 12 Helsinki alskýjað 10 Kaupmarmahöfn rigning 12 Berlín þokumóða 10 Feneyjar rigning 15 Frankfurt skýjað 9 Glasgow þoka á síð. kls. 8 Hamborg þokumóða 8 London mistur 13 Nice skýjað 17 Róm léttskýjað 21 Vin skýjað 12 Washington alskýjað 19 Winnipeg heiðskirt 5 Þrándheimur rign. á síð. kls. 9 Veðrið kl._______ Viggó Sigurðsson, nýr þjálfari Stjömunnar í handbolta: j • x • •• Byst við jofn- um leikjum „Ég hugsa að deildin veröi jafnari en áður og allir geti unnið aUa. Allra bestu leikmennimir dreifast vel á félögin og það ætti aö leiða af sér jaiha leiki. Það verður líka styttra milh leikja. Það kemur þeim félögum til góða sem eru vel undir- búin og er líka gott fyrir mótið Maður dagsins sjálft,“ segir Viggó Sigurðsson, nýr þjálfari handknattleiksliös Stjöm- unnar í Garðabæ. íslandsmótið i handknattleik hófst í gær. Viggó þykir með betri þjálfúrum í handboltanum. Hann hefur þjálf- aö bæði FH og Hauka en tók sér frí frá þjálfun síöastliðna tvo vetur. Hann var meö FH-ingana á árun- um 1986 til 1989 og Hauka frá 1989 til 1992. Viggó Sigurðsson. hefur ekki farið hátt,“ segir Viggó. Hann skipti síðan yfir í Fram en í öðrum aldursflokki gekk hann til liös við Víkinga. Viggó hóf aö leika með Víkingum um 1970 og spilaði með þeim sam- fellt til 1979 en þá fór hann til Barcelona á Spáni. Þar spilaði hann í tvö ár og önnur tvö í Þýska- landi og sneri svo aftur heim til Víkinga. Viggó spilaöi um 100 landsleiki fyrir íslands hönd. Viggó er læröur íþróttakennari og kenndi lengi viö Breiðholtsskóla og Fjölbraut i Breiðholti. Hann hef- ur nú tekið sér frí frá kennslunni og einbeitir sér að rekstri Leik- tækjasalarins Fredda í Hafnar- stræti. Þann stað hefur hann rekið Viggó byijaði að spila handbolta niu ára gamall með Vai. „Það er nú raunar Qölskylduleyndarmál og í 12 ár. Viggó er kvæntur Evu Har- aldsdóttur og eiga þau fiögur börn, Rakel Margréti, Jón Gunnlaug, Harald Stefán og Tómas Aron. Myndgátan Lausngátunr. 1024: Myndgátan hér áö ofan lýsir orðasambandi Valur og HK keppa í handbolt- anum Síðasti leikur fyrstu umferðar í íslandsmóti karla í handknattleik verður í íþróttahúsi Vals að Hhð- arenda í kvöld. Valur og HK íþróttir keppa og hefst leikurinn kl. 20. Önnur umferó handboltans hefst svo strax á sunnudaginn en þá verður leikin heil umferð. Styttra verður milh leikja í vetur en undanfarin ár og er það gert vegna heimsmeistarakeppninnar sem haldin verður hér á landi. Skák Garrí Kasparov sigraði með yfirburð- um á stórmeistaramótinu í Horgen í Sviss, fékk 8,5 v. af 11 mögulegum. Helsti keppinautur hans um sigurlaun- in voru Jusupov og Sírov en Kasparov sá sjálfur um aö halda þeim í hæfilegri fjarlægð. Lítum á lokin á glæsilega skák Kasparovs við Sírov. Kasparov hafði hvítt og átti leik í þessari stöðu: 8 7 6 5 4 3 2 1 ABCDEFGH 32. Dxh7! Hxc4 33^ Dg8+ Kd7 34. Rb6 + Ke7 35. Rxc4 og ekki þarf aö spyrja aö leikslokum. Eftir 35. - Dc5 36. Hal Dd4 37. Ha3 Bcl 38. Re3! gafst Sírov upp. Jón L. Árnason iii Á A A w w & I & & 2ÉP; Bridge Vörnin er yfirleitt talin erfiðasti hluti spilsins og það tekur flesta spilara langan tíma að tileinka sér góða varnartækni. Varnatæknin byggist yfirleitt á því að brjóta niöur varnir andstæðinganna í lit- unum þar sem þeir eru veikastir fyrir, en í sumum tilfellum gilda allt önnur lögmál. Hér er eitt lærdómsríkt varnar- spil. Hætt er við að mörgum myndi yfir- sjást vörnin sem nægir til að hnekkja fjórum hjörtum suðurs. Sagnir gengu þannig, suður gjafari og allir á hættu: ♦ D108 ¥ G7 ♦ 952 + ÁKD107 ♦ 76532 ¥ 654 ♦ G83 + 85 ♦ ÁG9 ¥ ÁD10983 ♦ 74 + G2 Suður Vestur Norður Austur l¥ 2* 3+ Pass 3¥ Pass 4V p/h Vestur byrjar á því að taka slag á tígulás- inn, fær þristinn hjá félaga og spilar síðan kóngnum og drottningunni. Suöur trompar, tekur hjartaás og spilar meira hjarta. Vestur fær slaginn en þar með er spilinu lokið því vömin fær ekki fleiri slagi. Gat vörnin gert betur? Ekki er hægt að ætlast til þess að vestur finni það að spila lágum tígli á gosa austurs til að fá gegnumspil í spaða áður en hjarta- kóngur er upprættur. Hins vegar átti vestur að sjá vömina sem hnekkir spilinu þegar hann var búinn að fá tvo fyrstu slagina á tígul. Til þess að tryggja sér slag á spaðakóng varð sagnhafi að slíta samgang sagnhafa viö lauflitinn. í þeim tilgangi átti hann að spila laufi í þriðja slag. Sagnhafi svínar þá væntanlega hjarta og þá er laufi spilað aftur. Þar með hefur laufliturinn verið eyðilagður fyrir sagnhafa og hann neyðist til þess að taka spaðasvíninguna. ísak Örn Sigurðsson W T/'O ♦ ÁKD106

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.