Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1994, Qupperneq 7
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994
7
r _____________________________Fréttir
Ný verkaskipting í yfirkjörstjóm í Hafnarfiröi:
Krata velt úr sæti
stjórnarformanns
- ekkert athugavert, segir Magnús Gunnarsson, formaður bæjarráðs
„Pólitískur meiriMuti hefur engan
rétt til að skipta sér af verkaskipt-
ingu innan yfirkjörstjómar. Yfir-
kjörstjóm vinnur algjörlega sjálf-
stætt og á að vera yfir alla pólitík
hafin. Eg get illa sætt mig við að
pólitískur meirihluti taki sér eitt-
hvert vald sem hann hefur ekki og
reyni að breiða yfir það með leyni-
legri kosningu. Mér finnst þetta
slæmt fordæmi sem nýi meirihlutinn
í Hafnarfirði er að taka upp og held-
ur lítillækkandi fyrir mig þó að ekk-
ert hafi verið fundið aö mínum störf-
um,“ segir Gísli Jónsson, prófessor
og fyrrverandi oddviti yfirkjör-
stjómar í Hafnarfirði.
Ný yfirkjörstjóm kom saman í síð-
ustu viku til að skipta með sér verk-
um. Bæjarritari setti fundinn, byij-
aði að færa fundargerð og dreifði at-
kvæðaseðlum. Ingimundur Einars-
son, formaður barnavemdamefnd-
ar, var kjörinn oddviti yfirkjör-
stjórnar og Jón Auðunn Jónsson rit-
ari i leynilegri kosningu. Gísh Jóns-
son er einnig í yfirkjörstjóm en hann
hefur veriö formaður hennar síðustu
tvö kjörtímabil. Yfirkjörstjóm var
kjörin til eins árs samkvæmt sam-
þykkt bæjarstjómar í staö lögbund-
inna fjögurra ára.
r.Ingimundur Einarsson var kjör-
inn formaður með tveimur atkvæð-
um og ég get ekki séð neitt athuga-
vert við það. Mér finnst ekkert að
þvi að meirihluti sveitarfélagsins
skuh hafa náð kosningu í þessari
nefnd. Gísli Jónsson er þama fyrir
Alþýðuflokkinn, Ingimundur Ein-
arsson fyrir Sjálfstæðisflokkinn og
Jón Auðunn fyrir Alþýðubandalagið.
Það má ahs ekki túlka þetta þannig
að Gísh hafi ekki staðið sig í stykk-
inu. Þetta er ahs ekkert vantraust á
hann,“ segir Magnús Gunnarsson,
formaður bæjarráðs.
„Ég kveð ekki upp úrskurð um
þetta en ef einstaklingur telur sig
hafa verið misrétti beittan á hann
rétt á að kæra hingað og þá vænti
ég þess aö málið verði tekið fyrir,“
segir Guðmundur Ámi Stefánsson
félagsmálaráðherra.
◄^índesif
Heimilistæki
Eldavél
KN 6043 WY
H. 85, b. 60, d. 60, u/yfirhiti
Grill. Snúningsteinn
Verð kr. 51.492,-
48.917,- stgr.
Umboðsmenn um land allt
bræðurnir
ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
RRskÓV, Kringlunni 8-12
Sími 686062
RRskÓr, Skemmuvegi 32
Sími 75777
Fjölbýlishúsið að Skútagili 5-7.
DV-mynd gk
myndbandstæki
VC-A36SM
. 31.900 »
Frábœr tœki á frábœru verði!
VERSLUNIN
"BÆR?
. HVEBFISGÖTU 103 t: SÍMI: 625999
Steypuskemmdir í fjölbýlishúsi á Akureyri:
Steypan of mikið
blönduð vatni
- segir framkvæmdastjóri steypustöðvarinnar
Alvarlegar steypuskemmdir hafa
fundist í fjölbýlishúsi við Skútagh 5-7
á Akureyri. DV skýrði frá því í sum-
ar að grunur væri um að steypan í
húsinu væri gölluö og rannsóknir
hafa nú leitt í ljós að svo er. Steypan
stenst ekki kröfur um veörunarþol,
en um er að ræða hús með 8 íbúðum.
Húsið er byggt á vegum Húsnæðis-
skrifstofu Akureyrar og var steypan
keypt hjá fyrirtækinu Möl og sandi
hf. Hólmsteinn Hólmsteinsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins, segir að
byggð hafi verið þijú sams konar
hús. Steypan í tveimur þeirra hafi
verið í lagi en svo hafi ekki verið í
þriðja húsinu sem byggingarfyrir-
tækið Fjölnir byggði.
„Þama hefur byggingaraðihnn
notað of mikið vatn í steypuna sem
hefur reyndar verið viðvarandi
vandamál. Menn gera þetta vegna
þess að þá er auðveldara að með-
höndla steypuna. Það er grundvall-
arregla að ekki sé notað of mikið
vatn þvi það kemur niður á gæðun-
um og steypan hefur þá minna veðr-
unarþol. Burðarþol þessarar steypu
er hins vegar í góðu lagi og sem bet-
ur fer hefur þetta tilvik orðið mönn-
um víti til vamaðar," segir Hólm-
steinn.
Ákveðiö hefur verið að setja
klæðningu á húsið. Við það sparast
múrverk og málningarvinna en þó
er ljóst að um einhvern viðbótar-
kostnað verður að ræða. Sá kostnað-
ur lendir ekki á kaupendum íbúð-
anna en ekki er ljóst hver ber kostn-
aðinn endanlega.
Magnús Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Fjölnis sf., neitar því
að of mikið vatn hafi verið í steyp-
unni, eftirhtsmaöur hafi verið á
staðnum þegar steypt var og ekki
gert neinar athugasemdir við steyp-
una. Hins vegar sagði Magnús að oft
kæmi upp sú staða að setja þyrfti
vatn í steypu sem kæmi með steypu-
bílunum á byggingarstað, hún væri
oft misjöfn og stundum svo þykk að
erfitt væri að koma henni í mótin án
þess að þynna hana.
Nýkomnir kuldaskór
Svart leður
Stærð: 36-46
Verð kr. 3.990
HAGSYNIR
TAKA SLÁTUR
- verið þá hagsýn alla leið og
kaupiö réttu frystipokana
Leitaðu að
snjókarlinum
í næstu
matvörubúð.
Djúpfrystipokinn
frá okkur er
ómissandi
þykkur
og sterkur
^fæstí
fjórum
stærðum
|þ>- hægt að
merkja
beint á
pokann.
I^DæossCLodss
KROKHALSI6• SIMI 91-671900