Dagblaðið Vísir - DV - 22.09.1994, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 22. SEPTEMBER 1994
33
Fréttir
Þörungateppin í Norðurá:
Þetta er ógeðs-
legt að sjá
- segir Sigurður Már Einarsson
„Þetta er ógeðslegt að sjá en við
vitum ekki á þessari stundu hvort
þetta er hættulegur þörungur. Það
eru svæði í Norðurá þakin þessu. En
við skulum vona að þetta fari allt í
næstu stórflóðum og myndist ekki
aftur næsta vor í ánni,“ sagði Sigurð-
ur Már Einarsson, fiskifræðingur í
Borgamesi, í gærkveldi, en í gær-
morgun var farið að kanna þörunga-
teppin sem eru á stórum svæðum í
Norðurá. En Noröurá var aflahæsta
veiðiáijj þetta sumarið með 1626 laxa.
„Við vitum ekki neitt um þetta á
þessari stundu en þetta hefur fundist
í Hvítá og aðeins í Grímsá. Við mun-
um rannsaka þetta næstu daga og
niðurstöður liggja fyrir í vetur. Það
er aðalmálið að halda sönsum eins
og er þangað til niðurstöður liggja
fyrir. Þetta hefur ekki fundist á
hrygningarstööum ennþá."
- Það hefur heyrst að þetta komi frá
erlendum veiðimönnum sem hafa
veitt í veiðiánum í Borgarfirði eins
og í Norðlingafljóti. Er eitthvað til í
því?
„Ég hef heyrt þetta en það hafa
engir þröngunar fundist í Norðhnga-
Norðurá i Borgarfirði er þakin þör-
ungum á stórum svæðum en nýjustu
fréttir í gærdag segja að Norðurá
hafi orðið efsta veiðiáin þetta sum-
arið. Þar veiddust 1626 laxar en
næst kom Þverá með 1610 laxa.
DV-mynd G.Bender
fljótinu. En erum við ekki alltaf að
leita af sökudólgum?" sagði Sigurður
enn fremur.
Kolbeinn Ingólfsson með stærsta laxinn sinn, 14 punda, í gærkvöld úr
Grímsá en hann veiddi 9 laxa á stöngina i lokahollinu. DV-mynd G.Bender
Grímsá í Borgarfirði:
Lokatölur eru
1450 laxar
„Ég veiddi 9 laxa á stöngina í loka-
holhnu og laxarnir hjá mér tóku
ýmsar flugur. En hollið veiddi 24
laxa. Grímsá endaði í 1450 löxum,“
sagði Kolbeinn Ingólfsson sem var
að koma úr síðasta hollinu í Grímsá
í Borgarfiröi í gærdag. Stærsti laxinn
Tilkyimingar
Félag eldri borgara
í Rvík og nágrenni
Bridgekeppni, tvimenningur, í Risinu kl.
13 í dag.
Trúlofun
Fimmtudaginn 21. júlí 1994 opinberuðu
trúlofun sína: Guðrún Ásta Arnadóttir,
Grovikveien 23, 4635 Kristiansand, Nor-
egi og Hilmar Ágúst Hilmarsson, Bakka-
stíg 9A, Reykjavík.
hjá Kolbeini var 14 pund en hann
hefur oft séð þá stærri í ánni og land-
að.
„Það er mikið af laxi í ánni en hann
tók best þegar veðrið breyttist og fór
að hvessa og rigna,“ sagði Kolbeinn
í lokin.
Svartur september
Ferðalangar - Fjallafólk. Svartur sept-
ember verður haldinn í Risinu, Hverfis-
götu 105, laugardaginn 24. september.
Allir velkomnir.
Félagsstarf aldraðra
I Gerðubergi
Kór félagsstarfs aldraðra er að hefja sitt
9. starfsár. Allir 67 ára og eldri velkomn-
ir. Nýir félagar velkomnir. Stjómandi er
Kári Friðriksson. Nánari upplýsingar í
símá 79020.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
SALA ÁSKRIFTARKORTA
STENDUR YFIR TIL 25. SEPT.
Smiðaverkstæðið kl. 20.30
SANNAR SÖGUR AF
SÁLARLÍFISYSTRA
Höfundur: Guðbergur Bergsson
Lelkgerö: Viðar Eggertsson
Leikmynd: Snorri Freyr Hilmarsson
Búningar: Ása Hauksdóttir
Lýsing: Ásmundur Karisson
Leikstjórn: Viðar Eggertsson og Ásdis
Þórhallsdóttir
Leikendur: Guðrún S. Gisladóttir, Ingrid
Jónsdóttir, Þóra Friðriksdóttir, Kristbjörg
Kjeld, Herdis Þorvaldsdóttir, Steinunn
Ólina Þorsteinsdóttir, Jón St. Kristjáns-
son, Valdimar Örn Flygenring, Björn
Karlsson, Höskuldur Eiríksson og Sverrir
Örn Arnarson.
Frumsýning í kvöld kl. 20.00, uppselt,
sud. 25/9, uppselt, föd. 30/9, uppselt, Id.
1/10.
Stóra sviðið kl. 20.00
VALD ÖRLAGANNA
eftir Giuseppe Verdi
3. sýn. sud. 25/9, uppselt, 4. sýn. þrd.
27/9, uppselt, 5. sýn. föd. 30/9, uppselt,
6. sýn, Id. 8/10, uppselt, 7. sýn., mán.
10/10, uppselt, 8. sýn. mvd. 12/10, uppselt.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
NÆSTA SÝNINGARTÍMABIL. Föd. 25/11,
örfá sæti laus, sud. 27/11, örfá sæti laus.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Á morgun, Id. 24/9, fid. 29/9, sud. 2/10.
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
Ld.1/10, föd.7/10.
Mlðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga frá kl. 13-20 meðan á kortasölu
stendur. Tekið á móti simapöntunum alla
virka daga frá kl. 10.00. -
Græna linan 99 61 60. Bréfsimi 6112 00.
SímM 1200-Greiðslukortaþjónusta.
Verslunin 4 You
Haldin var tískusýning á haust- og vetr-
arfatnaði ’94 og sumarfatnaði ’95 á Loft-
leiðum. Það var Model 79 sem sýndi vand-
aðan og fallegan fatnað frá herrafata-
versluninni 4 You, Laugavegi 51.
Stuðbandið og Garðar
8. starfsár Stuðbandsins og Garðars er
haftð. Hljóðfæraleikarar eru Lárus Ólafs-
son bassi, Garðar Karlsson gítar, Ólafúr
Már Ásgeirsson orgel, Guðmar Marels-
son trommur og Garðar Guðmundsson
söngur. Hljómsveitin tekur að sér að
leika á árshátíðum og þorrablótum. Upp-
lýsingar gefúr Garðar Guðmundsson í
síma 674526.
Silfurlínan
Sími 616262. Síma- og viðvikaþjónusta
fyrir eldri borgara alla virka daga.
Leikhús
Leikfélag Akureyrar
KARAMELLUKVÖRNIN
Gamanleikur með söngvum fyrir
allafjölskylduna!
Frumsýning laugard. 24. sept. kl. 17, fá-
ein sæti laus.
2. sýning sunnud. 25. sept. ki. 14.
3. sýn. laugard. 1. okt. kl. 14.
4. sýn. sunnud. 2. okt. kl. 14.
BARPAR
Tveggja manna kabarettinn sem
sló í gegn á siðasta leikári!
Sýnt í Þorpinu, Höfðahlíð 1
53. sýn. föstud. 30. sept. kl. 20.30.
54. sýn. laugard. 1. okt. kl. 20.30.
TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI!
Kortasala stendur yfir!
AÐGANGSKORT
kosta nú aðeins kr. 3.900 og gilda
á þrjár sýningar:
ÓVÆNT HEIMSÓKN eftir J.B. Pri-
estley
Á SVÖRTUM FJÖÐRUM eftir Davið
Stefánsson og Erling Sigurðarson
ÞAR SEM DJÖFLAEYJAN RÍS eftir
Einar Kárason og Kjartan Ragnars-
son
Frumsýningarkort
fyriralla!
Stórlækkað verð. Við bjóöum
þau nú á kr. 5200.
Kortagestir geta bætt við miða
á KARMELLUKVÖRNINA fyrir
aðeinskr. 1000.
Mlðasala i Samkomuhúsinu er opin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Simi 24073. Simsvari tekur við
miðapöntunum utan afgreiðslutima.
Greiöslukortaþjónusta.
Hefur þú búið í Lúxemborg?
Sögunefnd íslendinga í Lúxemborg er að
vinna að útgáfu bókar um landnám ís-
lendinga í Lúxemborg. Ætlunin er að
hafa ítarlegt manntal í bákinni um alla
þá sem búsettir hafa verið í Lúxemborg
til lengri eða skemmri tíma. Á sínum
tíma voru send út manntalsblöð sem
stuðst hefur verið við. Aðrar heimilidtr
sem hafa verið notaðar eru: Eldri mann-
talsblöð sem til voru í fórum íslendinga-
félagsins, Flugmannatal, Facts about
Cargolux og ýmsar munnlegar heimildir.
Þeir sem vilja vita hvaða upplýsingar um
þá eru fyrirliggjandi og þau ykkar sem
ekki hefur náðst til eða eigiö eftir aö
senda inn manntalseyðublöð, biðjum við
vinsamlegast að hafa samband við ein-
hverja eftirtalinna aðila fyrir 27. sept-
ember nk. íris Þorkelsdóttir, Álfaskeiði
58,220 Hafnarfjörður, sími 51738 (eftir kl.
16. sími 35578). Heimir G. Hansson, Víði-
mel 30, 107 Reykjavík, sími 619327. Þór-
björg Jónsdóttir, 7 Rue Bel Air, 5488
Ehnen, Lúxemborg, sími 90-352-768013,
fax 90-352-769009.
Nýtt hljóðver - Paradís popp-
arans
Stúdió Hvarf er nýtt hljóðver sem hóf
starfsemi sína í sumar. Hljóðveriö er í
skóglendi skammt frá Reykjalundi í Mos-
fellsbæ og er það jafnframt fyrsta hljóð-
verið í Mosfellsbæ. Þar er boðið upp á
fjölmargar nýjungar, m.a. 24 rása staf-
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litla sviðkl. 20.00
ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR)
eftir Jóhann Sigurjónsson
Þriðjud. 20. sept., uppselt.
Miðvikud. 21. sept., uppselt.
Föstud. 23. sept., uppselt.
Laugard. 24. sept., uppselt.
Sunnud. 25. sept., uppselt.
Miðvlkud. 28. sept.
Fimmtud. 29. sept.
Föstud. 30. sept., örfá sæti laus.
Laugard. 1. okt., örfá sæti laus.
Sunnud. 2. okt., örfá sæti laus.
Miðvikud. 5. okt.
Fimmtud. 6. okt., örfá sæti laus.
Föstud. 7. okt., uppselt.
Laugard. 8. okt., uppselt.
Stóra svið kl. 20.
LEYNIMELUR13
eftir Harald Á. Sigurösson, Emil
Thoroddsen og Indriða Waage.
Leikmynd: Jón Þórisson, búningar:
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, lýsing:
Ögmundur Þór Jóhannesson, leik-
stjóri Ásdís Skúladóttir.
Leikarar: Guðlaug E. Ólafsdóttir,
Guðmundur Ólafsson, Guðrún Ás-
mundsdóttir, Hanna Maria Karlsdótt-
ir, Jakob Þór Einarsson, Jón Hjartar-
son, Karl Guðmundsson, Katrín Þor-
kelsdóttir, Magnús Jonsson, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Sigurður Karls-
son, Þórey Sigþórsdóttirog Þröstur
Leó Gunnarsson.
Börn: Eyjólfur Kári Friðþjófsson, Kar-
en Þórhallsdóttir, Kári Ragnarsson,
Tinna Marína Jónsdóttir.
Frumsýnlng i kvöld, uppselt, 2. sýn. á
morgun föstud. 23. sept., örfá sætl laus.
Grá kort gilda 3. sýn. laud. 24. sept., upp-
selt. Rauð kort gilda. 4. sýn. sunnud. 25.
sept., uppselt. Blá kort gilda. 5. sýn.
fimmtud. 29. sept., gul kort gilda, örfá sætl
laus. 6. sýn. föstud. 30. sept., græn kort
gilda, uppselt.
ATH. Sölu aðgangskorta lýkur
um helgina!
6 sýningar aðeins kr.6.400.
Miðasala er opin alla daga ki. 13.00-
20.00 á meðan kortasalan stendur
yfir. Pantanir i sima 680680 alla virka
dagafrákl.10.
Munið gjafakortin, vinsæl
tækifærisgjöf.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarlelkhús
Tjarnarbió
DANSHÖFUNDAKVÖLD
Höf.: Hany Hadaya, Lára
Stefánsdóttir, David Greenall
3. sýn. 23. sept. kl. 20,4. sýn. 24. sept.
kl. 20,5. sýn. 25. sept., sunnud., kl. 15.
Miðasala opnuð kl. 16.00 alla daga nema
sunnudaga kl. 13.00 f sima 610280
eöa 889188
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN
ræna hljóðupptöku (Fostex adat), tölvu-
stýrt hljóðblöndunarborö frá Tascam, tc
5000 digital/analog effectatæki, tsr 24
verðlaunatæki frá digitech, MKH 80
hljóðnema frá Sennheizer og margt
fleira. Rekstraraðili hljóðversins er Ólaf-
ur Ragnarsson. Nánari upplýsingar fást
í síma 666736.
Tapað fundið
Bílnúmeraplata tapaðist
í byrjun september tapaðist bilnúmera-
platan R-78507. Hún tapaðist liklega i Ein-
holti, Skipholti eða á Háaleitisbraut.
Finnandi vinsamlegast hafi samband í
síma 30285.
t
Eiginmaður minn, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi
Jakob Gísli Ágústsson
Lambsbergi, Kirkjuhvammshreppi
lést aðfaranótt þriðjudagsins 20 september.
Jarðarförin verður auglýst siðar.
Aðalbjörg Pétursdóttir
Fjóla Berglind Helgadóttir Margrét Jakobsdóttir
Aðalsteinn Jakobsson Helga Jakobsdóttir
Ágúst Frímann Jakobsson, tengdabörn og barnabörn.