Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Page 2
2
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1994
Fréttir
Launagreiðslur til Guðjóns Magnússonar árið 1991:
Á áttundu milljón í
laun og dagpeninga
- greiðslur 1 námsleyfi voru langt umfram kjarasamninga lækna
„Ég veit ekki betur en íslenskir
læknar hafi í áratugi sótt framhalds-
menntun sína til annarra landa í
námsleyfum sínum enda næðu þeir
ekki í viðhaldsmenntun sína öðru-
vísi. Ég kannast ekki við að ákvæð-
um samningsins hafi verið framfylgt
neins staðar en ég hefði gaman af að
vita af því ef svo hefur verið. Ákvæði
kjarasamnings eru lágmarksákvæði
og vinnuveitanda og launþega hlýtur
að vera heimilt að komast að öðru
samkomulagi," segir Guðjón Magn-
ússon, skrifstofusfjóri í heilbrigðis-
ráðuneytinu.
í engu samræmi viö kjarasamninga
Ljóst er af ákvæðum í kjarasamn-
ingum lækna að þær launagreiðslur
sem Guðjón Magnússon, skrifstofu-
stjóri í heilbrigðisráðuneytinu, fékk
frá ríkinu meðan hann var í náms-
leyfi árið 1991 eru í engu samræmi
við kjarasamning lækna. í samningi
fastráðinna lækna segir að höfð skuli
hliðsjón af samningi sjúkrahús-
lækna. í þeim samningi segir að ef
sérfræðingur fái laun erlendis skuli
þau kom til frádráttar greiddum
ferða- og dvalarkostnaði og launum.
Eins og fram kom í DV í gær fékk
Guðjón launað námsleyfi í heilbrigð-
isráðuneytinu í 145 daga árið 1991.
Fékk hann greiddar 2,3 milljónir í
ferðadagpeninga frá ríkinu á þeim
tíma. Á sama tima þáði hann laun í
Milljónirnar hans Guðjóns
3.000
Samtals fékk Guðjón Magnússon
7,8 milljónir í laun, dagpeninga-
greiðslur og staðaruppbót
árið 1991.
300
10 mánuði fyrir kennslu og rann-
sóknir við sænskan háskóla, samtals
3 milljónir. Að auki fékk hann um
300 þúsund krónur í staðaruppbót.
Auk þessa var hann í 37 prósenta
stöðu dósents við HÍ og fékk fyrir það
um 400 þúsund krónur en þar var
hann í þriggja mánaöa launuðu leyfi
á árinu. Þá fékk hann tæplega 300
þúsund króna dagpeninga frá Rauða
krossi íslands árið 1991 fyrir ferðalög
sín þar. Segir Guðjón að dagpeninga-
greiðslur ríkisins og Rauöa krossins
hafi ekki skarast á umræddum tíma.
Að viðbættum lágmarkslaunum
skrifstofustjóra hjá ráðuneytinu
reiknast DV til aö launa- og dagpen-
ingagreiðslur til Guðjóns árið 1991
nemi samtals 7,7 milljónum. Rétt er
að geta þess að störf Guðjóns fyrir
Rauða krossinn eru ólaunuð. Állar
innlendar greiðslur eru framreikn-
aðar miðað við gildandi samninga.
Alls fór Guðjón í 8 ferðir héðan og
til Svíþjóðar í námsleyfi sínu og
greiddi ráðuneytið fyrir eina þeirra.
Rauði krossinn greiddi hins vegar
fyrir 5 ferðir frá Svíþjóð til Genfar,
Póllands og Búdapest en þær ferðir
voru famar á vegum samtakanna.
Þögn ráðuneytisstjóra
„Kjarasamningar eru lágmarks-
samningar. Ef greitt er minna en
samningur kveður á um er samning-
urinn brotinn. Kjarasamningur er
ekki brotinn hafi yfirmaður taiið sér
fært aö greiða hærri upphæð en
kveðið er á um í santningnum. Það
kann að vera rangt lagalega eöa sið-
feröislega út frá einhverjum öðrum
leiðbeiningum sem hann ætti að hafa
í starfi sínu og líferni," segir Birgir
Guðjónsson, skrifstofustjóri starfs-
mannaskrifstofu ríkisins.
Páll Sigurösson, ráðuneytisstjóri í
heilbrigðisráðuneytinu, segist vera
vel kunnugur kjarasamningum
lækna en vildi ekki tjá sig um þá stað-
reynd að þær greiöslur sem Guðjón
fékk í námsleyfi sínu væru í engu
samræmi við umræddan kjarasamn-
ing.
Póstbíllinn
fauk út af
Páll Pétuxsson, DV í Vík;
Fyrsta stóra haustlægðin kom upp
að landinu í gærmorgun og fengum
viö Mýrdælingar að kynnast ofstopa
veðri á suðvestan. Póstbíllinn sem
kemur frá Reykjavík á morgnanna
fauk út af þjóðveginum austan við
Reynisfjall í Mýrdal og stórskemmd-
ist. Að sögn bílstjórans Egils Gríms-
sonar tókst bíllinn á loft, og fauk út
fyrir veg og lenti þar á hjólunum og
stakkst síöan með framendann ofan
í skurð.
„Hurðin bílstjóramegin gekk sam-
an eins og harmoníka og ég þakka
öryggisbeltinu það að ég skuli ekki
vera stórslasaður," sagði Egill en
hann slapp ómeiddur úr þessu slysi.
Nokkrar skemmdir hafa orðið á
húsum í Vík í þessu veðri og eyði-
lagðist meðal annars lítið gróðurhús,
þakplötur losnuðu á iönaðarhúsnæði
og rúða brotnaði þar. Á tímabili leit
út fyrir aö þak af gömlu sláturhúsi
myndi fjúka af í heilu lagi. Mesti
veðurofsinn af suðvestri stóð yfir í
u.þ.b. 4 tíma og skóf þá sandinn upp
úr fjörunni og yflr þorpið sunnan-
og vestanvert.
Póstbíllinn utan vegar skammt frá Vík. Hann fauk í óveðrinu i gær.
DV-mynd PP, Vik i Mýrdal
Skoski söngvarinn Donovan í viðtali við D V:
Kominn tími á tónleika hér
„Hrafn Gunnlaugsson bauð mér
að taka þátt í Bellman-myndinni fyr-
ir nokkmm mánuöum og mér leist
strax vel á að vera með. Upphaflega
átti að kvikmynda lagið sem ég syng
heima hjá mér á írlandi. En þar sem
ég hef aldrei komið til íslands fannst
mér tilvalið að leggja mitt af mörkum
til myndarinnar hér og halda um leið
tónleika í Reykjavík. Það var kominn
tími á tónleika hér,“ sagði skoski
söngvarinn og lagasmiðurinn Dono-
van við DV.
Donovan heldur tónleika í Þjóð-
leikhúskjallaranum á morgun, einn
með gítarinn sinn, og um leið mun
lag það sem hann syngur í mynd
Hrafns um sænska visnasöngvarann
Bellmann verða tekið upp. Donovan
var ein af stórstjörnum í tónlistar-
heiminum á síðari hluta sjöunda og
fyrri hluta áttunda áratugarins. Lög
eins og Mellow Yellow, Colors og
fleiri gerðu hann frægan um heim
allan. Hin síðari ár hefur hann ekki
verið eins áberandi. Hann býr á ír-
landi en á næsta ári fer hann í tón-
leikaferð um heiminn til aö fylgja
eftir nýrri plötu og sjálfsævisögu.
Hann segir vel koma til greina að
halda tónleika hér í þeirri ferð.
- En fmnst þér þú ekki vera hálf-
gleymdur í dag eftir alla frægðina
hér áður?
„Nei, aUs ekki. Ég hef haft áhrif á
marga unga söngvara sem fara um
með gítarinn sinn og get því litið á
mig sem hluta af tónlistarsögunni,"
sagði Donovan.
BessifráSúðavík:
Öllum undir-
mönnum
sagtupp
agurjón J. Sgurðsson, DV, ísafirðn
Öllum undirmönnum ísfisktog-
arans Bessa ÍS-410 í Súðavík hef-
ur verið sagt upp störfum vegna
skipulagsbreytinga. Togarinn fer
á rækjuveiöar og verður skip-
verjum þá fækkað.
Nú eru 15 skipverjar á Bessa
en þegar rækjuveiðarnai' hefjast
verða þeir mest tíu. Að sögn Ingi-
mars Halldórssonar, fram-
kvæmdastjóra Álftfirðings hf.,
sem gerir út skipið, er gert ráð
fyrir aö flestir skipvérjanna verði
endurráðnir en óhjákvæmilegt
að einliverjir missi vinnuna.
„Það er stefnt að þvi að halda
skipinu á rækju út þetta kvótaár
og við munum skipta á bolfiskk-
vótanum fyrir rækjukvóta. Við
erum að reyna að ná okkur í
rækjukvóta á almennum mark-
aði en það er erfiður markaður.
Það verður um fækkun að ræða
í áhöfh. Viö ætlum að reyna að
hafa menn til skiptanna en auð-
vitað getur það komið til að ein-
hverjum verði að segja upp,“
sagði Ingimar.
Umferðarátak
norðanheiða
Sérstakt umferðarátak lög-
regluyfirvalda á Norðurlandi,
vestan Akureyrar, stendur yfir í
októbermánuði. Þegar hafa 50
ökumenn verið kærðir fyrir ýmis
umferöarlagabrot. Þótt sérstök
áhersla verði lögð á að ökumenn
virði hraðatakmarkanir munu
lögreglumenn fylgjast með að
ökumenn virði almennt umferð-
arlög og sjái til þess að ökutæki
þeirra séu í tilskildu ástandi.
Stuttar fréttir
Ferjuránveikleika
Veikleikar hafa ekki komið
fram í stafnlokum Akraborgar og
Heijólfs. Rannsókn á feijunmn
fór fram eftir að feijan Estonía
sökk á Eystrasalti fyrir skömmu.
Sjónvarpið greindi frá þessu.
Rætt um varnir íslands
Jón Baldvin Hannibalsson
ræddi í gær við aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna um
varnarsamstarfið og yfirtöku ís-
lendinga á þyrlubjörgunarsveit
Varnarliðsins. Sjónvarpiö segir
hóp sérfræðinga fjalla um málið.
Mæltmedafsögn
Jóhanna Sigurðardóttir segir
að í sporum Guömundar Árna
Stefánssonar heföi hún sagt af sér
ráðherraembætti.
Unglingar reykja meira
Reykingar unglinga hafa aukist
á nýjan leijí eftír aö hafa minnkað
í tvo áratugi. Nú reykja um 25%
prósent 16 ára pilta en árið 1990
var hlutfallið 10%.
Aukin bjársala
Sala bjórs hjá ÁTVR jókst um
1,2 milljón lítra fyrstu 9 mánuði
ársins miðað við sama tima í
fyrra. í heild jókst sala áfengra
drykkja um 19 prósent en sala
sterkra drykkja minnkaöi.
Þörf á strangari reglum
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra telur að herða beri reglur
sem gera fyrirtækjum kleift að
kaupa rekstrartap annarra fyrir-
tækja. Sjónvarpið greindi frá.