Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1994 3 DV Flugleiðavél í hestaflutningum tekin í 17 tíma gíslingu á flugvelli 1 Vilnius: Fréttir Vopnaðir menn vöktuðu vélina - fengu ekki að fara fyrr en greitt var fyrir bensínið með dollaraseðlum Flugleiöavél, sem flutti 63 hesta til Litháens fyrr á árinu, fékk heldur kulda- legar móttökur á flugvellinum í Vilnius í Litháen. Myndin er frá hestaútflutn- ingi. DV-mynd Ægir Már „Aðstæður í Vilnius voru afar frumstæðar og framkoma við okkur var ömuleg. Jafn skjótt og hestarnir höfðu verið fluttir frá borði fór allur mannskapurinn í burtu. Vorum við skildir eftir á flugvelhnum, sjö manns, án nokkurrar aðstoðar. Tveir vopnaðir menn vöktuðu vélina svo við færum hvergi fyrr en búið væri að borga með nýjum og renni- sléttum dollaraseðlum fyrir bensínið sem við keyptum. Þeir harðneituðu að taka við greiðslukorti eins og venja er í shkum tilfellum. Urðum við að dúsa í vélinni í 17 klukku- stundir í miklum kulda, 14 stiga frosti og strekkingi. Vistir voru á þrotum en við fengum hvorki vatn né hey handa þeim níu hestum sem eftir voru í véhnni nema borga stórfé fyrir, auðvitað í dollurum. Eg er að byrja ellefta árið mitt í þessu fylgdar- starfi en hef aldrei lent í öðru eins. Eftir þessa uppákomu var sú ákvörð- un tekin að ekki yrði flogið aftur með hesta til Vilniusar. Ef Litháar kaupa hesta héðan verður flogið með þá annaö, líklega til Danmerkur," sagði Sigurður Jónsson í samtah við DV en hann lenti, ásamt áhöfn Flugleiða- vélar, í óskemmtilegri lífsreynslu á flugvelh við Vilnius í Litháen fyrr á árinu. Sigurður var að fylgja 63 íslenskum hestum sem seldir voru til Litháens. í vélinni voru einnig 9 hestar sem áttu að fara áfram til Belgíu. Var sala hestanna hður í samstarfi ís- lenskra hrossaræktarbúa og hthá- ískra aðila um rekstur ræktunar- stöðvar fyrir íslenska hestinn á bú- garðinum Krasuona í Litháen. Sig- urður, sem er reyndur hestamaður, hefur þann starfa fyrir Flugleiðir að sjá um hesta sem fluttir eru úr landi, koma þeim í vélarnar, sjá til þess að aht sé í lagi á leiðinni og koma þeim úr vélunum á áfangastað. Frumstæð aðstaða Flugleiðavélin lenti á flugvelhnum við Vilnius um hálfsjöleytið á mið- vikudegi. Beið hópur manna eftir hestunum, þar á meðal Jörmundur Ingi Hansen ahsherjargoði, ráðgjafl íslensku aðilanna að ræktunarsam- starfinu í Litháen. Þegar flytja átti hrossin úr flugvéhnni rakst Siguröur á fyrstu hindrunina af mörgum. „Það hafði verið sagt að aðstaða á flugvelLinum væri góð en annað kom á daginn. Þeir höíðu ekki annað en lítinn pahbíl fyrir þrjá hesta. Pallur- inn lyftist láréttur upp en skjólborðin voru ekki nema um 30 sentímetra há og engin hindrun fyrir hestana. Ég harðneitaði að hestarnir yrðu teknir niður á þessum pahi nema gerðar yrðu ráðstafanir. Varö ég að losa sérstakar grindur úr vélinni og binda þær á bílpalhnn svo úr varð eins konar rétt. Eftir að hafa flutt 63 hesta frá borði, þrjá í einu, voru þeir settir um borð í stóra flutningabíla og ekið út í myrkrið." Heimtuðu dollara fyrir besnínið En þó hestamir væru famir frá borði og afskiptum Sigurðar af þeim formlega lokið var ekki öll sagan sögð. Flugstjórinn hafði óskað eftir bensíni á véhna og kom bensínbíll fljótlega að vélinni og dældi á hana. í venjulegum millhandaviöskiptum er greitt fyrir bensín og annað með greiðslukorti sem er í vélunum. „Þessir menn vildu ekki sjá neitt kort, heimtuðu splunkunýja og rennislétta dohara. Annars færum við hvergi. Við áttum hins vegar enga seðla. Bað flugstjórinn um að bensínið yrði tekið aftur af véhnni. Þá gerðu þeir sér htið fyrir, óku tank- bílnum í burtu og settu vopnaðan vörð við véhna. Við áttum ekki ann- ars kost en dúsa í véhnni í bmna- gaddi, nánast matarlausir en þó með vatn th að hita kaffi. Það gekk á elds- neytið þar sem ekki var hægt að drepa á vélinni. Það var engin tækni- leg aðstaða á flugvehinum th að gefa vestrænni flugvélategund rafmagn (ground power) th að ræsa hreyfl- ana.“ Sigurður segir að frekar hla hafi farið um mannskapinn í vélinni, enda kalt. Vopnaðir verðir hafi ekk- ert viljað fyrir þá gera. „Við báðum um vatn handa hest- unum en þeir heimtuðu 30 dollara fyrir fótuna. Þegar við báðum um hey kom í ljós að það mundi taka þrjár klukkustundir að ná í það og heimtuð fyrirframgreiðsla. Okkur datt ekki í hug að senda menn út í buskann með peninga sem við sæjum kannski aldrei aftur.“ Talaó við Jón Baldvin og Landsbergis Flugstjórinn fékk einu sinni að fara inn í byggingu á flugvelhnum til að hringja og fékk þá þær upplýsingar aö peningar mundu koma með SAS- vél frá Kaupmannahöfn. Þá var búið að gera mikið veður út af þessu ástandi. Haft var samband við Jón Baldvin Hannibalsson þar sem hann var staddur í Brussel og Landsberg- is, fyrrverandi forseta Lithaéns. Eftir þessa uppákomu segir Sigurður að Jón Baldvin hafi heimtað skýrslu um ferðina. Sigurður segir Jörmund Inga hafa talað um að aðstoða þá í Vilnius en hann hafi horfið með hinum og ekk- ert heyrst í honum aftur. „Miðað við fógur fyrirheit varðandi viðskiptasamband Islands og Lithá- ens og þar sem íslendingar voru fyrstir til að viðurkenna sjálfstæði Litháens hélt maður að við mundum mæta velvhja. En reyndin varð allt önnur," sagði Sigurður. r- m mmm NOTAÐIR BILAR Verðlækkun á nokkrum notuðum bílum um helgina Renault Clio RT 1400 cc ’93, 5 g„ 5 d„ hvítur, ek. 13 þús. km. Verð 920.000 Renault 19 TXE 1700 ’91, 5 g„ 4 d„ hvítur, ek. 68 þús. km. Verð 820.000 Nissan Primera 2000 cc '92, ss„ 4 d„ vínr„ ek. 23 þús. km. Verð 1.390.000 VERÐLÆKKUN Suzuki Switt 1300 ’91, 5 g„ 4 d„ hvítur, ek. 59 þús. km. Verð 590.000 MMC Lancer GLSi 1500 ’91, 5 g„ 5 d„ brúnn, ek. 42 þús. km. Verð 980.000 Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar. Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga 10-14. SlMEa* NOTADIR BIIAR 814060/681200 smxjRi^NusnKAiri’ 12. VERÐLÆKKUN Subaru E 12, vsk-bill, ’90, 5 g„ hvítur, ek. 122 þús. km. Verð 270.000 Lada Samara 1500 '90, 5 g„ 3 d„ grár, ek. 45 þús. km. Verð 290.000 VERÐLÆKKUN Daihatsu Feroza 1600 ’89, 5 g„ 3 d„ ek. 123 þús. km. Verð 670.000 Ford Sierra 1600 ’84, 4 g„ 3 d„ grár, ek. 135 þús. km. Verð 140.000 Toyota Touring 1600 ’91, 5 g„ 5 d„ rauður, ek. 87 þús. km. Verð 1.020.000 VERDLÆKKUN Ford Orion 1600 ’87, ss„ 4 d„ brúnn, ek. 109 þús. km. Verð 290.000 VERÐLÆKKUN Lada Sport '90 4 g„ ek. 50 þús. km. Verð 290.000 Volvo 240 GL 2300 ’87, ss„ 4 d„ hvítur, ek. 122 þús. km. Verð 680.000 Vetrardekk fylgja öllum notuðum Lada-fólksbílum. LADA Hyundai Elantra 1800 ’93, ss„ 4 d„ rauður, ek. 12 þús. km. Verð 1.300.000 VERDLÆKKUN MMC Lancer GLX 1500 '87, ss„ 4 d„ grár, ek. 139 þús. km. Verð 290.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.