Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1994 11 Enn iægra verð - enn meira úrval! Starfsfólk Bakkasels ásamt 17 börnum sem nú hafa þar vist en alls hafa 22 börn pláss á Bakkaseli. DV-mynd Garðar Guðjónsson Akranes: Elsta dagheimilið 30 ára Leikskólinn Bakkasel á Akranesi er orðin þrítugur og var mikið um dýrðir af því tilefni. Forveri leik- skólans, Dagheimilið Vorboðinn, var fyrsta dagheimilið, sem rekið var allt áriö á Akranesi, hóf starf- semi við Akurgerði í ágúst 1964. Að sögn Guðrúnar Bragadóttur leikskólastjóra eru 22 börn á leik- skólanum nú en þau voru einatt mun íleiri á árum áður. Að dag- heimilinu stóðu kvenfélagið, iðnað- armannafélagið, verkaiýðsfélagið, barnaverndarfélagið og slysa- varnafélagið. Þessir aðilar hófu rekstur dagheimihsins Vorboðans í núverandi húsnæði Bakkasels við Akurgerði í ágúst 1964. Aðalgeir Jónasson og Bjarni Ingi Björnsson gerðu sér það til gamans eitt síðdegi að busla i briminu niðri á Langasandi á Akranesi. Ekki var annað að sjá en þeir skemmtu sér konunglega. Sjórinn var að visu iskaid- ur en þeir voru i blautbúningum og létu kuldann sig engu skipta. DV-mynd Garðar Guðjónsson, Akranesi Kassarúm með springdýnu 140x200 Verð áður: 26.880 IUUlJjf. Menning Sviðsljós Vindar hefja sig til f lugs í sumar birtist úrval ljóða sænsks samtímaskálds, rúmir sex tugir ljóða frá hálfrar aldar skeiði 17 bóka, nýjustu ljóðin frá þvi í fyrra. Njörður Njarðvík hefur valið ljóðin, þýtt þau og gefið út, en forlag hans Urta hefur sérhæft sig í þýðingum norrænna ljóða, og m.a. gefið út svo merk skáld sem Edith Södergran, Rolf Jacobsen og Henrik Nordbrandt. Boðskapur Því miður virðist mér þetta nýja ljóðasafn næsta sviplítið og ég kenni því um að hér ber mest á því að settar eru fram sértækar, almennar hugmyndir. Til þess eru svo notuð dæmi af því lagi sem alvanalegast er í ljóðum; fuglar, strönd stöðuvatns, sól og önnur himintungl, svo sem í eftirfarandi ljóði sem er bara myndskreyting á frægum orðum Jesú um fugla him- insins og liljur vaUarins sem lifa áhyggjulaus á augna- bliki hveiju. Naglasúpan er alkunn úr ævintýrinu um að bjargast sem best við það sem maður hefur og vart er hægt að hugsa sér útjaskaðri líkingu um lífið en „leiðina frá fæðingardeildinni í kirkjugarðinn". (bls. 41): Tístandi runni Gráspörinn syrgir ekki hestaskítinn. Hann eyðir ekki tíma í framtíðarrannsóknir, Hann ýfir íjaðrirnar, ólmast, þvaðrar, ræðir vanda líðandi stundar, hoppar grein af grein. Á frostavetri heldur hann naglasúpunni heitri. Ég hef alveg ákveðinn tístandi runna í huga á leiöinni frá fæðingardeildinni í kirkjugarðinn. Þar iðar allt af spörvum. Ef þú þarft að reima að þér skóna, skaltu gera það hérna! Vel veit ég að fólk sem lítið er fyrir ljóð ætlast ein- mitt til þess að þau séu þrungin svona hversdagsspeki Bókmenntir Örn Ólafsson og á einföldu og auðskildu máli. Við því er ekkert að segja nema: Njótið heil, hér er af nógu að taka þótt ekki sé alltaf eins sláandi og í þessu dæmi. Þýðingin Tug frumtexta fann ég til samanburðar við þýðing- ar. Af þeim samanburði virtist mér að oft þýði Njörð- ur nákvæmlega, skv. orðanna hljóðan. Og stundum skilar hann stíl ljóðs líka vel, t.d. í „Bæn fyrir efn- inu“. En hitt er þó of oft, að þýðingin verði á hátíö- legra máh en frumtextinn og þessar lágfleygu hugsan- ir máttu síst við því að færast yfir á stíl hátíðaræðu. Þegar ský dró frá í einu ljóöi verður úr því hvorki meira né minna en að „Himnamir opnuðust" og torg um nótt verður „næturtorg". Verra er þó þegar þýð- andi yrkir inn í Ijóöið nánari skýringar, sem eru alveg óþarfar. Werner Aspengren: Vindar hefja sig til flugs Njörður Njarðvik islenskaði. Urta, Rvík 1994, 72 bls. iGestarúm mm Plasthillur á hjólum Tágahúsgögn 2 sæta sófi, 2 stólar og bprð Verð áður: 23.900 iimib Holtagörðum ■BSkeifunni 13 Reykjan/íkurvegi 72 Norðurtanga Reykjavík Reykjavik Hafnarfirði Akureyri

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.