Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTf 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk. Verð i lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk. / boði almennings Ársfundur Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðs- ins fer fram 1 Madrid þessa dagana. íslendingar sækja þennan fund eins og jafnan áður. í Morgunblaðinu í gær er skýrt frá því að eftirtaldir einstaklingar hafi sótt fund- inn í Madrid: Sighvatur Björgvinsson, iðnaðarráðherra og aðalfuli- trúi íslands í bankaráði Alþjóðabankans, ásamt eigin- konu. Friðrik Sophusson, fiármálaráðherra og varafull- trúi íslands í bainkaráði Alþjóðabankans, ásamt eigin- konu, Birgir ísleifur Gunnarsson, seðlabankastjóri og aðalfulltrúi íslands í ráði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, ásamt eiginkonu, Finnur Sveinbjömsson, skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneyti og varafuiltrúi í ráði Alþjóðagjald- eyrissjóðsins, BolJi Þór Bollason, skrifstofusljóri efna- hagsskrifstofu ijármálaráðuneytis, ásamt eiginkonu, Sig- urgeir Jónsson, forstjóri Lánasýslu ríkisins, ásamt eigin- konu, Bjarni Bragi Jónsson aðstoðarseðlabankastjóri ásamt eiginkonu, Ólafur ísleifsson, forstöðumaður al- þjóðadeildar Seðlabankans, ásamt eiginkonu, Björgvin Vilmundarson, bankastjóri Landsbankans, ásamt eigin- konu, Halldór Guðbjamason bankastjóri Landsbankans, ásamt eiginkonu, Barði Ámason, aðstoðarbankastjóri Landsbankans, Sólon Sigurðsson, bankastjóri Búnaðar- banka, og að lokum Tryggvi Pálsson, bankastjóri íslands- banka, ásamt eiginkonu. Auk framangreindra sitja Madridarfundinn Helga Jónsdóttir, varafulltrúi íslands í stjóm Alþjóðabankans, Jón Sigurðsson, bankastjóri í Norræna fjárfestingar- bankanum, Þorsteinn Þorsteinsson frá sömu stofnun, Þorsteinn Ólafsson, forstjóri Norræna verkefnaútflutn- ingssjóðsins, og Engilbert Guðmundsson frá Norræna þróunarsjóðnum. Ekki er upplýst hvort þeir fimm síðast- töldu em í Madrid með mökum sínum. Ekki hafa fengist nákvæmar upplýsingar hver kostn- aðurinn er vegna íslensku sendinefndarinnar en DV hef- ur giskað á að hann geti numið hátt í íjómm milljónum króna. Er þá gengið út frá því að fargjöld séu greidd undir eiginkonur, fimmtán þúsund greiddar í dagpeninga per dag og hálfir dagpeningar til eiginkvenna ráðherra og bankastjóra. Hótel em þar að auki greidd fyrir ráð- herrahjón og væntanlega gildir sama regla um banka- stjóra og aðra þá sem gegna forstjórastöðum hjá alþjóða- deildum, efnahagsskrifstofum og lánasýslu. Minna má það varla vera. Nú er það í sjálfu sér ekki í frásögur færandi þótt ís- lenskir valdamenn í peningaheiminum leggi land undir fót. Alþjóðabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn em merkilegar stofnanir og sennilega veitir þessum alþjóða- stofnunum ekki af að fá fríða og fjölmenna sveit ís- lenskra fyrirmanna þegar ársfundir era haldnir. Allajafna kemur almenningi það ekki við hvenær menn fara utan eða hvert. Nema að einu leyti. Nema að því leyti að hér er verið að ferðast fyrir almannafé, á kostnað almennings. Ferðalangamir greiða ekki fargjöld úr eigin vasa. Þeir ferðast fyrir peninga sem aðrir leggja til. Þrjátíu manns halda til Spánar á kostnað almennings til að sitja fund. Sendinefnd úr bæjarstjórn Hafnarfiarðar heldur til Kína á kostnað Hafnfirðinga. Læknar í opinber- um störfum fá greitt fyrir námsferðir sem ekki eru farn- ar. Embættismenn á tvöföldum eða margfóldum launum. Var einhver að tala um bmðl? Var einhver að tala um að fjölmiðlar væm komnir á hálan ís með frásögnum sínum af embættisfærslum ráðamanna? Ellert B. Schram Agreiningur og tal á Bandarikjaþingi um aö hætta öryggismálasamvinnu viö Evrópuríkin og láta þau ein um að fást við Júgóslavíu og Rússland yrði dauðadómur yfir NATO, segir m.a. í grein Gunnars. Svikalogn í Bosníu Stríðið á Balkanskaga hefur vik- ið úr fréttum undanfarið fyrir Ha- ítí en þaö táknar ekki að allt sé þar með kyrrum kjörum. Þvert á móti eru þar ískyggilegar horfur. í þetta sinn gætu Króatar blandast inn í máhð aftur meö þeim afleiðingum að ekki verði við neitt ráðið. í næstu viku rennur út sá frestur sem Serbar í Bosníu hafa haft til að samþykkja skiptingu Bosníu milli þeirra og múslíma þannig að þeir fái 49 prósent landsins en múslímar 51. Nær fullvíst er að Serbar hafni þessari tillögu sem Milosevic Serbíuforseti hefur þó fengist til að styðja. - Á sama tíma, 15. október, rennur út umboð Breta, Frakka og Rússa að hafa friðargæslulið á vegum Sameinuðu þjóðanna í Króatíu. Samtímis þessu er Bandaríkja- þing að beita sér fyrir því að vopna- sölubanninu á Bosníu verði aflétt. Við þetta bætist að Króatar hafa í hótunum um að fara í stríö við Serba út af Krajinahéraði í Króatíu sem serbneskir íbúar vilja sameina Serbíu sjálfri og serbneska hluta Bosníu. Vopnasölubann Alþjóðlegt vopnasölubann frá 1992 hefur bitnað mest á múslímum í Bosníu þar eð Bosníuserbar hafa haft gnægð vopna frá Milosevic. Nú hefur hann hætt stuöningi við Karadzic til að fá viðskiptabanni aflétt á land sitt og því hefur þegar veriö aflétt aö hluta. Þess ber þó að gæta að sumar mestu vopna- verksmiðjur og vopnabúr Júgó- slavíuhers voru einmitt á núver- andi yfirráðasvæði Bosníuserba og þeir hafa enn næg vopn. Bandaríkjaþing hefur verið mjög fylgjandi því að aflétta banninu Kjallarinn Gunnar Eyþórsson blaðamaður Því veldur aö þeir telja að Serbar muni þá hefja beinan hernað gegn friðargæsluliðum sínum. Því eru yflrmenn friðargæsluliðsins tregir til að beita loftárásum gegn Serb- um en Bandaríkjamenn, sem hafa ekkert herlið í landinu, krefjast meiri hörku. Af þessu er risinn aivarlegur ágreiningur og tal á Bandaríkja- þingi um að réttast væri að Banda- ríkin hætti öryggismálasamvinnu við Evrópuríkin og láti þau ein um að fást við Júgóslavíu og Rússland. Slíkt væri dauðadómur yfir NATO. Króatar Fari svo að Króatar ráðist að Krajina verður alit friðargæslulið kvatt heim frá Króatíu. Hótunin ein um að aflétta vopnasölubann- inu gæti hæglega leitt til þess að „Ný hemaðarátök á sama tíma og umboð Sameinuðu þjóðanna rennur út og Bretar, Frakkar og Rússar hafna algjörlega stefnu Bandaríkjamanna eru ávísun á nýtt og ennþá víðtækara stríð á Balkanskaga.“ gagnvart múslímum og þingið mun líklega samþykkja það á næstu dögum. Öryggisráð sameinuðu þjóðanna er andvígt þar eð Rússar beita neitunarvaldi. Einhliða af- nám bannsins af hálfu Bandaríkja- manna gæti þó komist til fram- kvæmda næsta vor. Þetta hefur valdið alvarlegum klofningi innan NATO, milh Bandaríkjamanna annars vegar og Breta og Frakka hins vegar, sem eru algerlega and- vígir hergagnaaöstoð við Bosníu. Serbar í Bosníu notuðu timann til að sölsa undir sig enn meira land. Ný hemaðarátök á sama tíma og umboð Sameinuðu þjóðanna renn- ur út og Bretar, Frakkar og Rússar hafna algerlega stefnu Bandaríkja- manna eru ávísun á nýtt og ennþá víðtækara stríð á Balkanskaga. Allt þetta gefur ríkulegt tilefni til að fylgjast náið með því sem gerist á hinum póhtíska vettvangi í næstu viku. Gunnar Eyþórsson Skoðanir annarra Framtíðarhagsmunir „Enda þótt ísland hafi ekki enn sótt um aðild að Evrópusambandinu er ljóst að umrædd þróun er okkur og Barentshafssamstarfinu til verulegra bóta. ... Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að þetta séu enn ein rökin fyrir því að okkur sé ekki stætt á öðru en að fylgjast að með öðrum ríkjum Norðurlanda og taka þátt í að móta þær ákvarðanir, sem teknar eru - í Evrópu í málum sem varða framtíðarhagsmuni íslendinga miklu.“ Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisráðh. í Mbl. 6. okt. Hafnfirska veikin „Hún birtist í því að forystumenn í stjórnmálum úr Hafnarfirði vilja ekki axla ábyrgð gerða sinna heldur benda á embættismenn þegar látið er að þvi liggja að þeim hafi orðið á í starfi. Óllum er kunnugt um mál Guðmundar Áma Stefánssonar félagsmála- ráðherra, sem augljóslega - það skýrist alltaf betur og betur - skilur illa eða ekki um hvað ávirðingarn- ar á hann snúast. Annar forystumaður ættarveldis í Hafnarfirði, fyrmm ráðherra, Matthías Mathiesen, ber að þvi er virðist öll einkenni sömu veiki og Guð- mundur Árni.“ Úr forystugrein Viðskiptabl. 5. okt. Heimsviðskipti „Verðmætasköpunin í sjávarútvegi á þessu ári byggir ekki síst á mikilli rækju- og loðnuveiði. Mjög miklar tekjur hafa komið inn í atvinnugreinina vegna frystingar á loðnu sem seld er á Japansmark- að og miklar vonir em bundnar við áframhaldandi sölu þangað.... Það er okkur íslendingum í hag að heimsviðskipti séu frjáls með sjávarafurðir og mynd- in sé ekki skekkt með ríkisstyrkjum. Ríkisstyrkir og tollmúrar í þessari atvinnugrein er það sem kem- ur okkur verst.“ Úr forystugrein Tímans 6. okt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.