Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.1994, Side 28
36 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 1994 Hætta á éljum Jón Helgason. Hætti áður enfólkfær leið á mér „Ég er búinn að sitja 21 vetur á Alþingi. Það er langur tími og ég tel að nú sé tími kominn til að gefa nýju fólki tækifæri. Ég tel að maður eigi ekki að sitja svo lengi að fólk fái leið á manni eða maður sjálfur leið á staríinu," segir Jón Helgason í DV. Ummæli Munurinn á bankastjóra og sorphreinsunarmanni „Það er þrifalegra aö vera banka- stjóri en t.d. sorphreinsunarmað- ur. Enginn fyndi fyrir því þótt 2 af hverjum 3 bankastjórum fengju pokann sinn. Hvernig 'halda menn aö Reykjavík liti út eftir 3-4 vikur ef enginn fengist til sorphreinsunar? Þó hefur bankastjóri laun 12-15 sorp- hreinsunarmanna, skrifar Hann- es Jónsson í kjallargrein í DV. Ár íjölskyldunnar í tilefhi af ári fjölskyldunnar verður haldin ráðstefna í félags- miðstöðinni Vítanum aö Strand- götu 1, Hafnarfirði, á morgun, laugardaginn 8. október, og hefst hún kl. 10,00 og er áætlað að hún endi um kl. 16.00. Ráðstefnan er öllum opin meðan húsrúm leyflr. Fundir íslensk mannanafnahefð Fyrsti félagsfundur MFÍK í haust verður haldinn að Vatnsstíg 10 á morgun, laugardaginn 8. október, kl. 14.00. Fundarefniö er íslensk mannanafnahefð, mannanafna- lög á íslandi og brey tingar á þeim. Fyrirspumir og umræður. - Félag fráskilinna Félag fráskilinna heldur fund í kvöld kl. 20.30 aö Hverfisgötu 105, Risinu. Nýir félagar velkomnir. Stofnun fyrirtækja Á morgun, laugardaginn 8. okt- óber, verður í Háskólanum kl. 9.00-13.00 kynning á átaki í fræðslu um stofnun fyrirtækja á vegum Endurmenntunarstofh- unar Háskólans, Iðntæknistofn- unar og iðnaðar- og viðskipta- ráðuneytisins. Sér Ingvar Krist- insson verkfræðingur um hana. Kynnt verða námskeiö sem eru í október. Oddastefna Oddafélagið, samtök áhuga- manna um endurreisn fræðaset- urs aö Odda á Rangárvöllum, heldur þriðju Oddastefnu sína í Skógum undir Eyjafjöllum. Hefst ráðstefnan kl. 13.00 á morgun Flutt verða ávörp og erindi og er gert ráð fyrir fyrirspurnum aö loknum erindum. Sagtvar: Flogið er til Lúxembúrgar. Rétt væri: Flogið er til Lúxem- Gætum tunguimar borgar. (Staðurinn heitir Lúxem- borg á íslensku, sbr. t.d. Ham- borg.) I morgun var norðan- og norðaustan- gola á landinu og lítils háttar él norð- anlands og austan, en hefur nú snúist í hæga suðaustanátt eða austanátt og hefur létt til noröaustanlands, en sunnan- og vestanlands verða smásk- úrir eða él. í kvöld og nótt fer aftur að snjóa norðaustanlands en léttir til vestanlands. Veður fer kólnandi í bili. Á höfuðborgarsvæðinu er suðaustan- Veðriðídag gola eða kaldi og hætt við smáskúrum eða éljum í dag Hiti 0 4 stig. Sólarlag í Reykjavík: 18.37 Sólarupprás á morgun: 7.56 Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.47 Árdegisflóð á morgun: 8.57 Hcimild: Almunuk Hnskóluns Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjað 0 Akurnes skýjaö 3 Bergsstadir alskýjað 0 Keíla vikurflugvöllur léttskýjað 1 Kirkjubæjarklaustur léttskýjaö 3 Raufarhöfn snjóél -1 Reykjavík léttskýjað 0 Stórhöfði léttskýjað 3 Bergen þokumóða 10 Helsinki rigning 9 Kaupmannahöfn þokumóða 9 Berlín skýjað 1 Feneyjar léttskýjað 6 Frankfurt skýjað 0 Glasgow súld 12 Hamborg skýjað 8 London mistur 6 Nice rign. á síð. klst. 15 Róm heiðskírt 8 Vín alskýjað 3 Washington skýjað 11 Winnipeg rigning 10 Þrándheimur rign. á síð. klst. 6 Þórður Þórarinsson, formaður Heimdallar: „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á pólitík og byrjaði að mæta á fundi hjá Heimdalli þegar ég var sautján ára gamall. Ég varð fijótt virkur í félagsstarfinu og var kosinn í stjórn 1990, síöan verð ég gjaldkeri árið eftir og varaformaöur 1993,“ segir Þóröur Þórarinsson sem ný- Maður dagsins veriö var kjörinn formaður Heim- dallar. Þórður sagði að mikið starf ætti sér stað innan Heimdallar. „Allt árið um kring er mikil starfsemi 1 gangi. Heimdallur er eitt fjölmenn- asta stjómmálafélag landsins. Sem formaður held ég utan ura alla starfsemina og svara fyrir félagið þegar þess er þörf, til að mynda þegar ályktanír eru gerðar í nafni HeimdaUar. Svo er það hinn al- menni rekstur félagsins sem er aö mestu í höndum formanns og gjald- kera ásamt útgáfu á fréttabréfi okkar, Gjallarhorninu sem gefið er út nokkrum sinnum á ári. Það má því með sanni segja að Heimdallur sé mjög virkur félagsskapur.“ Þórður var spurður hvort það væri ekki eimiig hlutverk Heim- dallar að veita aðhald í Sjálfstæðis- flokknum: „Við erum oft kallaðir samviska flokksins og erum dug- legir aö minna á þær grundvallar- hugsjónir sem Sjálfstæðisflokkur- inn byggir á þegar okkur finnst menn fara af þeirri leið, enda eru Heimdellingar ungir og heitir og hafa kynnt sér vel þær hugsjónir sem Sjálfstæðisflokkurinn fer eftir. Þórður sagðist ekki vera í námi eins og er: „Ég stundaði heim- speki- og sagnfræðinám í Háskól- anum en hef tekiö mér frí og ætla aöeins að hugleiða málið. Eins og er starfa ég fyrir prófkjör Geirs H. Haarde." Þórður er í sambúð með Mörtu Mariu Ástbjörnsdóttur og eiga þau einn son, Þórarin. Áhuga- mál fyrir utan pólitíkina sagði Þóröur vera ættfræði og skotveiði- mennsku. Myndgátan Sparigrís Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði Kvenna- og karla- blak í kvöld fer fram fyrri viðureign Vals og Kolding í Evrópukeppni meistaraliöa og er leikið í Dan- mörku og hefst leikurmn kl. 20. Valur sem er efst í 1. deildinni í handboltanum hér heima er með sterkt lið og ættu því að eiga góða möguleika á að sigra í þessari tveggja Ieikja viðureign. Fjórir blakleikir veröa í kvöld, tveir kvennaleikir og tveir karla- leikir, hjá körlum keppa KA- Þróttur R. og Þróttur N.-HK. Hjá kvenfólkinu keppa KA-Víkingur og Þróttur N.-HK. Einn leikur er í 2. deild karla í handbolta. Kefl- víkingar taka á móti ÍBV, Skák Meðfylgjandi skákþraut, sem er eftir H. Radecke, er býsna skondin. Hvítur leikur og mátar í fimmta leik: Aðalhlutverkiö er leikið af biskupnum á g8 sem virðist ekki mikill fyrir mann að sjá. Leikir svarts eru allir þvingaðir: 1. Hh6! Rg6 2. Hxg6 fxg6 3. Bh7! g5 4. Bc2! bxc2 5. b4 mát! Jón L. Árnason Bridge Á miðvikudaginn lauk fjögurra kvölda hipp-hopp tvímenningskeppni Bridgefé- lags Reykjavíkur. Bernódus Kristinsson og Georg Sverrisson náðu aö standa uppi sem sigurvegarar eftir harða keppni en í öðru sæti voru ungir og efnilegir spilar- ar, Kjartan Ásmundsson og Kjartan Ingv- arson. Spiluö voru forgefin spil sem gerðui allan samanburð skemmtilegri. Hér er eitt spil sem kom fyrir síöasta miðvikudag og varð mörgum hált í svell- inu í því spili. Suður er með sterka skipt- ingarhendi og í þeim tilfellum þar sem norður opnaði á sterku laufl var erfitt að koma í veg fyrir að suður léti vaöa í alslemmu í grandi. Það var algengur samningur og fór fimm niður þegar spaðaliturinn gaf ekki nema 2 slagi. Margir spilarar hafa í sagnkerfl sínu öflugt vopn sem hefði gefið vel í þessu spili. Þegar spurt er um ása á fjórum gröndum og svarhendi á tvo ása og eyðu í einhverjum lit nota margir þá sagn- venju að stökkva í sex í eyðulitnum. Með þeirri aðferð hefðu sagnir getað gengið svona, norður gjafari og AV á hættu: ♦ D52 ¥ K986 ♦ 92 + 9832 V G4 ♦ ÁK10754 + ÁKD75 ♦ 7 ¥ D10532 ♦ DG83 + G64 ♦ ÁKG1098643 ¥ Á7 ♦ 6 + 10 Norður Austur Suður Vestur 1+ Pass 4 G Pass 64 Pass Pass! Pass Eitt lauf norðurs væri sterkt og suöur vildi gjarnan (í tvímenningi) spila al- slemmu ef norður á tvo ása og a.m.k. eitt spil í spaða því allar líkur eru til þess að norður eigi a.m.k. einn kóng að auki. Þegar norður hefði lýst tveimur ásum og eyðu í spaða með stökki í þann lit er þaö sennilega skynsamlegast að láta þar við sitja. Skipting spilanna er mikil og þess vegna eru meiri líkur til_þess að drottn- ingin komi ekki niður í AK í spaðanum. Að spila 6 spaða gaf einnig mjög góða skor. ísak örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.