Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 199--'
M. Benz 200 ’86, ek. 163.000
km, ssk., álf., höfuðpúðar,
toppl. v. 1.430.000, 1670.000.
Subaru Jusly '90, ek. 68.000
km, 4x4, ssk. V. 540.000,
670.000.
Mazda 323 LX ’88, ek. 84.000
km, 3 d„ toppeintak. V.
340.000, 450.000.
VW Golf ’86, ek. 105.000 km.
V. 280.000, 360.000.
Flat Uno ’91, ek. 40.000 km.
V. 360.000, 450.000.
Suzuki Swlft ’88, ek. 93.000
km. V. 280.000, 350.000.
Suzuki Vitara, langur, ’90, ek.
89.000 km. V. 1.250.000,
1.380.000.
M. Benz 250 ’78, ek. 246.000
km. V. 180.000, 250.000.
Cherokee Grartd '86, ek.
130-000 km, rafdr. rúður, leð-
ursœti o.fl. V. 880.000 (gjaf-
verð), 1.230.000.
Ford Econoline '77, uppg.,
eins og nýr. V. 550.000.
BÍ LASALAN
BUK
SKEIFUNNI 8 - SÍMI 68 6477
Bílasalan Blik sf.
Útsala - góðir mola
Toyota 4 runner ’91, ek. 75.000 km.
6 cyl., 35" dekk, loftl., 5,71 hlutföll,
toppl., rafdr. rúður o.fl. V. 1.850.000,
2.400.000.
MMC Pajero ’87, ek. 140.000 km,
V. 820.000, 1.080.000.
MMC L-300 ’91, ek. 63.000 km, rafdr.
rúður, disil, 8 manna. V. 1.500.000,
1.760.000.
Toyota Landcruiser '85, ek. 219.000
km, 35" dekk, dísil. V. 1.150.000,
1.400.000.
Impala Landau 78, ek. 140.000 km,
uppt. vél, nýl. V. 180.000, 260.000.
Legacy st. '90, ek. 100.000 km, rafm.
í rúð., central. V. 1.050.000,
1.250.000.
ÚtLönd____________________________dv
Jón Baldvin Hannibalsson í viðtali við helsta viðskiptablað Noregs:
Þvingum hina til að
taka af stöðu til ESB
- ísland verður fiskveiðistórveldi innan ESB verði sótt um aðild strax
Gisli Kristjánsson, DV, Ósló:
„í komandi kosningabaráttu verða
hinir flokkarnir þvingaðir til að taka
afstöðu til inngöngu í Evrópusam-
bandið. Það er raunhæft að gera ráð
fyrir umsókn frá íslandi þegar eftir
kosningar," segir Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra í
viðtali við Dagens Næringsliv, helsta
viðskiptablaö Noregs, í gær.
Jón heldur því jafnframt fram aö
ísland eigi alla möguleika á að verða
fiskveiðistórveldi innan Evrópusam-
Jón Baldvin Hannibalsson.
bandsins hvað sem Norðmenn gera
í þjóðaratkvæðagreiðslunni á mánu-
daginn. Hafni Norðmenn aðild gæti
komið til þess síðar að þeir verði að
semja við Jón Baldvin Hannibalsson,
fiskveiðikommissar hjá Evrópusam-
bandinu, um nýjan fiskveiðisamn-
ing.
Blaðamaður Dagens Næringshv
sér ástæðu til að taka fram að Jóni
sé sérlega skemmt enda er möguleik-
inn á að ísland veröi á undan Noregi
inn í ESB óspart notaður í hræðsluá-
róðrinum í Noregi.
í viðtalinu segir Jón Baldvin að
hagstæður fiskveiðisamningur við
ESB sé skilyrði þess að sótt verði um
aðild. Hann segirjafnframt að ekkert
mæU gegn því að ísland nái viðun-
andi samningi, í það minnsta verði
að láta á það reyna áður en umsókn
um aðfid er vísaö frá.
Skoðanir Jóns Baldvins voru born-
ar undir Þorstein Pálsson sjávarút-
vegsráðherra og Halldór Asgríms-
son, formann Framsóknarflokksins.
Þeir hristu báðir höfuðið. Þetta mál
er ekki á dagskrá.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti, Hillary eiginkona hans og dóttirin Chelsea brugðu ekki út af venjunni i gær, fremur
en flestir landar þeirra, og snæddu gómsætan fylltan kalkún á þakkargjöróardaginn. Þann dag reyna fjölskyldur
að hittast og eiga saman góðar stundir. Clinton-fjölskyldan var í sumarhúsi forsetaembættisins. Simamynd Reuter
Þorskveiðar ut-
an kvóta leyf ðar
á kjördaginn
Gisli Kristjánsson, DV, Ósló:
Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, lofaði sjómönnum
í Norður-Noregi því í gær að þeir
mættu veiða svo mikið sem þeim
sýndist af þorski utan kvóta á mánu-
daginn þegar kjósa á um aðild að
Evrópusambandinu.
Sjómenn svöruðu um hæl og sögð-
ust mundu sitja í landi, jafnvel í
ijómablíðu, frekar en að taka ekki
þátt í baráttunni gegn ESB á kjördag-
inn. Jan Henry vfil reyndar ekki
kannast við að hafa ætlað að lokka
sjómenn á haf út. Hann segir að ekki
hti út fyrir að kvóti ársins náist
vegna lélegra gæfta.
Jan Henry T. Olsen, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs.
Þjóðaratkvæðið 1 Noregi:
Bæði já og nei getur
leitt til stjórnarkreppu
GM Kristjánsson, DV, Ósló:
„Gro Harlem situr ekki upp á náð
og miskunn annarra,“ segir Thor-
bjöm Jagland, formaður norska
Verkamannaflokksins, í viðtali við
Arbeiderbladet í morgun. Þar með
hótar flokkurinn stjórnarkreppu í
Noregi verði niðurstaðan já i þjóðar-
atkvæðinu á mánudaginn en stuðn-
ingsflokkar stjórnarinnar á þingi
gera samt alvöru úr hótunum sínum
að fella aðfid að Evrópusambandinu.
Ekki er hægt að rjúfa þing í Noregi
samkvæmt gömlu stjómarskránni
frá 1914 og er því viðbúið að fullkom-
ið upplausnarástand ríki í norskum
stjórnmálum ef Miðflokkurinn og
flokkarnir lengst til vinstri neita að
taka mark á niðurstöðunni á mánu-
daginn.
Hafni meirihluti Norðmanna aðfid
getur þaö einnig leitt til stjórnar-
Gro Harlem Brundtland.
kreppu því enn er allt óvíst um hvort
Gro Harlem kýs að sitja áfram sem.
forsætisráðherra. Hún hefur ekki
kveðið upp úr um hvað hún gerir.
Gro nýtur mjög víðtæks stuðnings
hér í Noregi og viðurkennt aö marg-
ir efasemdarmenn í afstöðunni tfi
ESB gera á endanum bara það sem
Gro vill.
Breska íhaldlö deiJir um ESB-framlög:
Major hótar af sögn
verði hann undir
John Major,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, hefur
hótað að segja
af sér og boða
til kosninga á
mánudag láti
Evrópuand-
stæðingar innan flokks hans,
íhaldsflokksins, sér ekki segjast og
hætti andstöðu sinni við tillögu um
framlag til sjóöa ESB.
Stjómmálaskýrendur töldu lík-
legt að hótunin mundi sefa upp-
reisnarmenn innan flokksins en
nokkrir vom þó staðráðnir í að
beijast áfram þótt það stofnaði lífi
stjórnarinnar í hættu.
Major sagði að hann og samráö-
herrar sínir heíðu ákveðið að
standa og falla með atkvæða-
greiðslunni á mánudag þegar leitað
veröur heimildar um umtalsverða
hækkun á framlagi Breta til ESB.
„Ef stjórnin tapar mundi hún
segja af sér og forsætisráðherrann
mundi biðja drottninguna um að
leysa upp þingið," sagði í yfirlýs-
ingu frá skrifstofu Majors.
Ráðherrar voru ekki seinir á sér
að lýsa yfir stuöningi sínum við
framlagshækkunina til að kveða
niður orðróm um að efasemdar-
menn leyndust innan raða þeirra.
Innanbúðardeilur íhaldsmanna
eru ekki til að bæta ímynd flokks-
ins sem hefur verið mjög svo mifii
tannanna á almenningi vegna
hneykshsmála af ýmsum toga,
kynferðislegs og annars.
„Sjaldan er ein báran stök,“ segir
í leiðara vinstriblaðsins Guardian
ímorgun. Reuter