Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995 Fréttir Erilsamt en laust við alvarleg útköll hjá lögreglu á nýársnótt: Sjötíu leituðu á slysadeild - flestir vegna áverka eftir slagsmál - einn stunginn með hníf á Hótel íslandi Töluvert var um útköll hjá lög- reglu í Reykjavík vegna ölvunar á nýársnótt. Karlmaður var stunginn með hníf í handlegginn á Hótel ís- landi og fluttur á slysadeild undir morgun en hann reyndist ekki með alvarlega áverka. Þá kom karlmaður með að því er virtist alvarlega höf- uðáverka á miðborgarstöð lögregl- unnar og var hann fluttur á slysa- deild. Niðurstaöa lækna á slysadeild benti hins vegar til þess að áverkar mannsins væru ekki alvarlegir. „Nóttin var annasöm en það kom ekkert meiri háttar upp á. Þetta voru mikið ölvunaráverkar vegna slags- mála. Menn komu hingað nefbrotnir með glóðaraugu og missárir eftir drykkjuskap og slagsmál. Þetta var öllu meira en á venjulegu kvöldi, hingað komu um 70 manns frá mið- nætti og það var líflegt fram á morg- un og mjög þéttskipaður bekkurinn en lítið var um brunaáverka þetta kvöld. Það er svo búinn að vera nokkuð jafn og þéttur straumur hingað í dag. Þetta eru leifamar af nóttinni en menn koma þegar þeir vakna upp líta í spegil og líst ekki á blikuna," sagði Ágúst Kárason, sér- fræðingur í bæklunarlækningum, í samtali við DV í gær. Meðal þeirra sem leituðu aðstoðar á slysadeild í fyrrinótt og fyrrakvöld var stúlka sem hiaut staðbundinn þriðja gráðu bruna eftir að flugeldur hafði að öllum líkindum komist inn undir hálsmál klæða hennar. Stúlk- an var flutt á Landspítaia til meðferð- ar. Samkvæmt upplýsingum á augn- deild Landakotsspítala leitaði enginn þangað í gamlárskvöld. „Þetta var mjög rólegt fram til klukkan 1.30 en þá hófust útköllin og álagið jókst fram eftir morgni. Mér skilst að það sé að finna 100 bókanir frá klukkan 1.30 til 8.30 en þá voru komnir 20 í fangageymsl- ur,“ sagði Jónas Hallsson, aðstoðar- yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni í Reykjavík. Jónas segir nóttina hafa verið ró- lega ef mið er tekið af því að um nýársnótt var að ræða. Þó voru 30 rúðubrot tilkynnt til lögreglu, flest í verslunarmiðstöð við Kleifarsel. Þá var ráðist á brennustjóra í Ártúns- holti þegar hann reyndi að koma í veg fyrir að maður reyndi að kveikja í brennunni fyrir þann tíma sem ætlunin hafði verið að kveikja í henni. Hundaræktarfélag íslands mótmælir hækkandi hundagjöldum: H vetur eigendur til að draga greiðslur „Hundaeigendum er gert að greiða hundagjald en það kom til þegar veitt var undanþága frá hundabanni hér í Reykjavík. Eitt af skilyrðunum þá var að hundaeigendur stæðu sjálfir undir kostnaði við hundaeftirlit og við féllumst á það. Síðan hefur gjald- ið farið síhækkandi og það sýnir sig í reikningum borgarinnar aö hagn- aður er orðinn af þessu eftirliti og þar með viljum við meina að þetta sé orðin skattheimta," segir Guðrún Guðjohnsen, formaður Hundarækt- arfélags íslands. í smáauglýsingu í DV í dag hvetur Hundaræktarfélagiö hundaeigendur til þess að greiða ekki hundagjald ársins 1995 fyrr en á ein- daga, sem er 1. mars, og þá með fyrir- vara um endurkröfu, meðan beðið er niðurstöðu umboðsmanns Alþing- is í kærumáli félagsins vegna hunda- gjaldsins. Guðrún segir aö Hundaræktarfé- lagið vilji einnig láta endurskoða framkvæmd eftirlitsins sem Heil- brigðiseftirlit Reykjavíkur fram- kvæmir. Það megi gera það mun hagkvæmara. Félagið hafi beðið lengi eftir viðræðum við borgina um þau mál og nú sé verið að þrýsta á borgaryfirvöld. Vænta er niöurstöðu frá umboðs- manni í janúar að sögn Guðrúnar. Hundagjald í Reykjavík er nú 9.600 krónur á ári fyrir hundinn. Stuttar fréttir Sigurður Hall, Svala Ólafsdóttir, Ólöf Örvarsdóttir og Ásgeir Geirsson voru mætt, ásamt öðru prúðbúnu fólki, til nýársfagnaðar á veitingastaðnum ömmu Lú í gærkvöldi. Nýársfagnaðir voru haldnir víða í gærkvöldi. - Sjá fleiri myndir frá skemmtunum og samkvæmum helgarinnar á siðu 32. DV-mynd JAK Kona bjargaði karliúrbrenn- andihúsi Miklar skemmdir urðu í íbúð- arhúsi við Kambsveg í Reykjavík eftir aö eldur kviknaði í sólstofu sem áfóst er húsinu laust fyrir klukkan 6 á nýársmorgun. Sól- stofan er byggð við tvö herbergi í húsinu en í öðru þeirra svaf karlmaður. Kona sem einnig bjó í íbúðinni vaknaði við reykskynj- ara og náði að vekja karlmanninn og flúðu þau út úr húsinu. Biöu þau utandyra eftir aö slökkviliðið kom á vettvang en konan var flutt á slysadeild þar sem hún fékk snert af reykeitrun. Greiðlega gekk að slökkva eld- inn en verulega skemmdir urðu á húsnæðinu sökum sóts og reyks. Grunur leikur á að eldur- inn hafi kviknað út frá skreyt- ingu. Slökkvfliðið var kallað út fjór- um sinnum frá miðnætti til klukkan 5 á nýársmorgun. Eldur kviknaði f dósakúlu við Birkimel, þá kveikti flugeldur í sólskyggni áfóstu verslunarhúsnæöi við Skólavörðustíg, flugeldur braut rúðu í húsakynnum sundlaugar Kópavogs án þess að valda frek- ari skemmdum. Loks var slökkviliöið kallað út aö Sunnu- braut í Kópavogi en kveikt hafði verið í rusli viö eitt húsanna í götunni og náði eldurinn aö læsa sig í kjaHaraherbergi. Húsráð- andi vaknaði og tókst að slökkva eldinn að mestu áður en slökkvil- ið kom á vettvang. Hann fékk hins vegar snert af reykeitrun við verkið og var fluttur á slysadeild. Klukkan 17 á gamlársdag barst svo boð til slökkvfiiðsins um eld í Fellaskóla. Slökkviliðið fór á vettvang en í ljós kom að vatns- leiðsla í uppþvottavél í kennslu- stofu, þar sem kennsla í heimilis- fræðum fer fram, hafði gefið sig og vatn tekiö að leka og lekið nið- ur á næstu hæð fyrir neðan þar sem bókasafn skólans er. Einung- is ein til tvær vikur eru liðnar frá þvi eldvaraakerfi skólans var beinlínutengt slökkvistöð. og má telja víst að tekist hafi að afstýra stórtjóni með því. Konurvinsælastar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var um áramótin kjörin maður ársins á rás tvö. Tæplega 3.000 manns tóku þátt í kjörinu og dreiföust atkvæðin á 100 manns. Jóhanna Sigurðardóttir hafnaði í öðru sætinu og Kristín Á. Guðmunds- dóttir í því þriðja. Fækkun hjá ÍSAL Starfsfólki ÍSAL hefur fækkað um 159 eða 27% á undanfórnum 6 árum. Skv. Fjarðarpóstinum vinna nú 438 manns hjá ÍSAL. HagnaóurhjáSÍF Hagnaður Sölusambands ís- lenskra fiskframleiðenda fyrstu 9 mánuðí ársins nam 90,5 milljón- um króna. Mbl. greindi írá þessu. Takmarkanir afnumdar Frá áramótum er íslendingum heimilt að eiga hvers konar við- skipti með erlendan gjaldeyri án nokkurra takmarkanna. Sjón- varpið greindi frá þessu. Stefnt er að því að vistrými á Droplaugastöðum veröi orðin aö hjúkrunarrýmum um næstu ára- mót. Mbl. greindi frá þessu. Aukiðverðmæti Útflutningsverðmæti loðsút- aðra skinna og húða var 508 millj- ónir fyrstu 8 mánuði síöasta árs og jókst um 52% miðað við sama tíma 1993. Vísbending greindi frá. Getnaðurákirkjujörð Ærin Móra frá Bakka í Vatns- dal eignaðist fyrir helgi tvö gimbrarlömb. Morgunblaðið seg- ir ána hafa haftegglos um versl- unarmannahelgina en hún gekk með tveimur hrútum í landi Und- irfellskirkju í sumar. Áflog á Raufarhöfn Til handalögmála kom á dans- leik á Raufarhöfn á gamlárs- kvöld. Fjöldi manns blandaðist inn í átökin en um síðjr tókst lög- reglunni að stilla til friðar án þessaðtilhandtökukæmi. -kaa Smábam flutt á sjúkrahús í Keflavík: Fékk logandi púðurkúlu í andlitið - maður nefbrotinn þannig að nef lá úti á vanga Tæplega tveggja ára gamall drengur var fluttur í sjúkrahús í Keflavík eftir að hann fékk logandi púðurkúlu í andlitið úr skotblysi við brennu í Njarðvík á gamlárs- kvöld. Drengurinn slasaðist ekki alvar- lega en efri vör og vangi hans bólgnuðu, auk þess sem óbrennt púður fór í auga hans. Samkvæmt upplýsingum lögreglu í Keflavík vildi slysið til með þeim hætti að maður sem hafði verið að skjóta úr blysinu lagði það frá sér þegar hann taldi að það væri búið en ein kúla reyndist eftir í blysinu. Töluvert annríki var hjá lögregl- unni í Keflavík á gamlárskvöld og nýársnótt. Þannig hafði lögreglan afskipti af manni um klukkan 6 um morguninn en ráðist hafði verið á hann og maðurinn nefbrotinn þannig að nefið var úti á vanga, þá var hann talsvert skorinn í andliti. Maðurinn var fluttur í sjúkrahús í Keflavík en þaðan fór hann tfl að- gerðar á Borgarspítala. Ekki hefur tekist að hafa hendur í hári árásar- mannanna en ákveðinn aöili er grunaður. Nokkur útköll urðu vegna heim- ilisófriðar en áramóti fóru friðsam- lega fram hjá lögreglunni í Keflavik að ööru leyti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.