Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 15
MANUDAGUR 2. JANUAR 1995 15 Væntingar á áramótum Okkur er þaö flestum í blóö borið, sem betur fer, aö horfa björtum augum til nýs árs. Áriö sem kvaddi hafði sínar björtu hliðar en líka dökkar. Okkur sem að stjórnmál- um störfum langar vafalaust öll til þess aö skuggarnir verði færri á nýju ári. Okkur greinir hins vegar á um ráð og aðferðir. Jöfnum lifskjörin Eitt alvarlegasta málið sem viö er að glíma er aö mínum dómi hve tekjuskiptingin í þjóðfélaginu er orðin mikil. Auðæfi hafa á nokkr- um árum safnast á fáar hendur og þjóðarauðurinn streymir til fárra á meðan þeir fátæku verða sífellt fá- tækari. Þessu verður að breyta. Það verður að skipta um ríkisstjórn og stjórnarstefnu. Tækifæri gefst til þess í kosningum í vor og við framsóknarmenn treystum okkur til að leiða nýja ríkisstjórn og gera betur en sú stjórn sem nú er aö syngja sitt síöasta vers. Skuldasöfnun heimilanna verður að stöðva og jafna lífskjörin í land- inu. Fyrirtækjunum hefur hvað eftir annað verið bjargað frá því að stöðvast á undanfornum árum, með sértækum aðgeröum og nú er kominn tími til að rétta smæstu fyrirtækjunum, heimilunum í landinu hjálparhönd. Það er ekki sæmandi að fólk líði skort. Atvinna fyrir alla Þjóðfélagið verður ekki rekið sómasamlega nema atvinnulífiö gangi. Atvinnuleysi er böl sem ráð- ast verður gegn af fullri einurð, þannig að þeir sem vilja og geta eigi kost á vinnu. Fljótvirkasta leið- in til að rétta við atvinnustigið í landinu er að efla þær atvinnu- greinar sem fyrir eru og síðan að huga aö nýbreytni og uppbyggingu. Fólk ífyrirrúmi Við komum hvert öðru við og þess vegna veröur að kappkosta það aö endurreisa það velferðar- þjóðfélag samhjálpar og samvinnu sem beðið hefur mikinn hnekki á síðustu árum. Aldraðir og sjúkir verða að geta búið við félagslegt öryggi. Annað er til vansæmdar. KjaHaiiim Páll Pétursson alþingismaður Við framsóknarmenn göngum til kosninga undir kjörorðinu „Fólk í fyrirrúmi". Stöndum vörð um fullveldið ísland er gott land og gjöfuit. Ef við höfum vit á að stjórna okkur sjálf og með hagsmuni heildarinn- ar fyrir augum þá eigum við að geta starfrækt hér menningarþjóð- félag þar sem jöfnuður og félagslegt öryggi ríkir. Ég legg sérstaka áherslu á að þótt við eigum að efla samskipti viö aðrar þjóðir verðum við að standa dyggan vörð um sjálfstæöi þjóðar- innar og yfirráðarétti yfir auölind- um megum við ekki glata. Þess vegna eru mér mjög andstæðar hugmyndir um að innlima ísland í Evrópusambandið. - Megi árið 1995 færa okkur far- sæld og hamingju. Páll Pétursson „Auðæfi hafa á nokkrum árum safnast á fáar hendur og þjóðarauðurinn streymir til fárra á meðan þeir fátæku verða sífellt fátækari. Þessu verður að breyta. Það verður að skipta um ríkis- stjórn og stjórnarstefnu.“ „.. .yfirráðarétti yfir auðlindum megum við ekki glata“. Óvæntur dómur? I frétt á baksíðu DV fyrir skömmu var íjallað um „óvæntan dóm vegna ákæru í vopnamáli í Héraðsdómi Reykjavíkur". í frétt- inni segir m.a. að dómurinn „hafni að stoð sé í lögum fyrir því að heim- ilt væri að gera upptæka hnífa með lengra blaði en 12 sentímetra. Dóm- urinn taldi að reglugerð í þessum efnunt, sem lögregla og önnur yfir- völd hafa fram að þessu unnið sam- kvæmt, hafi ekki lagastoð. Dómur- inn sakfelldi manninn hins vegar af ákæru um að hafa átt 27 butt- erfly- og fjaðrahnífa, en heimilt væri að banna þá með reglugerð- inni.“ Óskyldir hlutir Hér er í raun um óskylda hluti að ræða; annars vegar verkfæri, sem lagt hefur verið hald á sem vopn, og hins vegar vopn, sem ótví- rætt er bannað aö flytja inn, fram- leiða og eiga hér á landi skv. 34. gr. reglugerðar um skotvopn og skot- færi. Það sem dómarinn er að segja er það að í þessu tilviki hafi ekki verið lagastoð til að gera upptæk verkfæri, sem lögreglan hafði lagt hald á, þ.e. hnifana, enda þótt þeir hafi lengra hnífsblað en 12 cm, en þar með væri ekki sagt að lögreglan hefði ekki haft heimild til að leggja hald á þau, eins og hún gerði. í lögum um skotvopn, sprengiefni og skotelda segir í 3. gr. að dóms- málaráðherra geti ákveðið að Kjal]aiinn Ómar Smári Ármannsson aðstoðaryfirlögregluþjónn ákvæði laganna taki að einhverju leyti til annarra vopna en venju- legra skotvopna, s.s. hnúajárna, örvaboga, högg-, stungu- eða egg- vopna. í 34. gr. reglugerðarinnar er fjallað um þá hluti, sém gera má upptæka til ríkissjóðs, en þar er ekkert minnst á fyrrgreinda hluti. Lögin eru frá 1977, en gild- andi reglugerð er frá 1988. Að öðru leyti, segir í lögunum, „skal fara um eingarupptöku skv. ákvæðum almennra hegningarlaga". í dómi Sakadóms Reykjavíkur í svokölluðu Stóragerðismáli var t.d. gerð krafa í ákæru um upptöku á 9 hnífum, sem fundust hjá sakborn- ingum. Dómarinn segir hins vegar enga heimild að finna í lögum til þess aö gera upptæka hnífa eöa önnur tæki eða vopn enda hafi ekki verið sýnt fram á að hnífar þessir hafi verið ætlaðir til notkunar í glæpsamlegu skyni eöa aö réttarör- yggisins vegna sé nauðsynlegt að gera þá upptæka. „Eins og á stend- ur um þá að öðru leyti þykja ekki vera lagaskilyrði til að gera þá upp- tæka,“ segir í dómsniðurstöðu. Dómur þessi var kveðinn upp 12. des. 1990. Það er því varla hægt aö segja að dómur Héraðsdóms nú hafi verið óvæntur. Það sem kannski er fréttnæmast af þessu öllu er aö ekki skuli vera búið að samræma lögin reglugerð- inni í öll þessi ár. Virða ber niðurstöður í lögum um meðferð opinberra mála segir að lögreglan megi leggja hald á muni ef ætla megi að þeir hafi sönnunargildi í opinberu máli, ef þeirra hafi verið aflað á refsi- verðan hátt eða ætla megi að þeir kunni að verða gerðir upptækir. Það er sem sé eitt að lögregla leggi hald á hluti og annað að þeir verði að lokum gerðir upptækir með dómi. Lögreglan leggur hald á muni, m.a. hnífa, m.a. á þessari forsendu. Hvenær sú staða kemur upp er háð ákveðnu mati, en virða ber niðurstöður dómstólanna enda byggi þeir á þeim lagastoðum sem fyrir hendi eru hverju sinni hvað þá varðar. Ef þetta fer ekki saman er ástæða fyrir hlutaðeigandi aðila að setjast niður og koma í veg fyrir að misræmi skapist í þessum mál- um. Ómar Smári Ármannsson „Það er sem sé eitt að lögregla leggi hald á hluti og annað að þeir verði að lokum gerðir upptækir með dómi. Lög- reglan leggur hald á muni, m.a. hnífa, m.a. á þessari forsendu.“ < Meðog ámóti Aldurstakmark á atvinnubíistjóra Enginspuming „Það má skjpta þessu vandamáli upp í tvo flokka. Ann- ars vegar er það almenni þátturinn sem lýtur að endurmenní- un og öryggis- fræðslu at- ,ramkvæmdaBtKiri. vinnubílstjóra sem er mjög ábótavant. Hins vegar er það vandamáliö sem snýr að því að mönnum fórlast með aldrinum. Ef menn bera saman þær kröfur sem gerðar eru til atvinnuflug- manna og atvinnubílstjóra kem- ur i ljós að flugmennirnir búa við mjög stífar reglur, bæði hvað varöar aldurshámark og reglu- bundið eftirlit. Þeir þurfa að fara í árlega læknisskoðun og reglu- bundið eru þeir sendir til endur- menntunar. Þá mega þeir ekki fljúga sem atvinnuflugmenn eftir ákveðinn aldur. Þessu er þveröf- ugt farið með atvinnubílstjórana sem mega aka fram 1 andlátið. Þá eru engar kröfur gerðar til þeirra varðandi endurmenntun eða læknisskoðun. Þetta er mjög undarlegt í því ljósi að slysatíöni á vegum er miklu meiri en í lofti. Bílstjórinn er alltaf einn á meðan flugmenn í atvinnuflugi eru alltaf tveir. Atvinnubilstjórar bera oft ábyrgð á stórum hópum fólks, við erum að tala um allt að 100 manns. Það fer ekki á milli mála að menn sera eldast eru í flestum tilvikum seinni aö bregðast viö og árvekni þeirra minnkar. Þaö er þvi engin spuming aö þaö ber að setja aldurstakmark á at- vinnubílstjóra." Hæfnispróf Þórir Qaróarsson „Þaö var í tíö Steingríms Sigfússonar sem sam- gönguráð- herra aö þaö var samþykkt á þingi sem ég kaUa ólög. Margir þeirra sem í dag eru komnir um Bjamí Pálmarsson leigubHreiöarstjóri. eða yfir sjötugt eru mjög færir um að aka bílum. Þeir hafa m.a. verið notaðir í ráðherrakeyrslur og við opinberar heimsóknir, sem eru erfiðari varðandi hraðaakst- ur en annar akstur. Haildór Blöndal er mjög vel Uðinn land- búnaðarráöherra í dag. Hann stendur fyrir því að bera fram áframhaldandi bann á menn sem eru yfir sjötugt. Það vantar í þetta frumvarp hans að það gangi það sama yfir bændur því það er Uka ábyrgðarhluti að sjá um búfénað. Ég er ekki á því að bílstjóri sem er í góöu ástandi heUsufarslega sé ekki álitinn fær um að aka bU i Reykjavik eða annars staöar og þá eigi annað við um bónda á sama aldri. Ég er að vonast tU þess að alþingismenn sjái sóma sinn í því að virða atvinnufreisi á íslandi og taki tram fyrir hend- urnar á bUsfjórafélaginu Frama sem kom þessu upphaflega í gegn. Það virðist aUt eiga aö byggjast hér á hindrxmum opinberra aðUa sem ættu ekki að þurfa að vera með þessi afskipti af atvinnu- rekstri. Það á að hafa þetta eins og í Þýskalandi þar sem atvinnu- bíistjórar fara einu sinn á ári eft- ir 68 ára aldur í hæfiúspróf, bæði hvaðvarðarheUsuogakstur. -rt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.