Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 5
—
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995
5
Fréttir
Tveir ákærðir fyrir stórfeMa likamsárás:
Hleyptu raf-
magni í líkama
17 ára pilts
Tveir menn, 22 ára og 29 ára, hafa
verið ákærðir fyrir stórfellda lík-
amsárás með því að hleypa rafmagni
í líkama 17 ára sofandi pilts í sam-
kvæmi og gat ekki gert sér grein fyr-
ir þeirri hættu sem mennimirhöföu
sett hann í. Atburðurinn átti sér stað
í október en máhð fer í dómsmeðferð
innan skamms.
Pilturinn ungi hafði komið ásamt
öðrum í samkvæmi í íbúð í húsi við
Klapparstíg. Hinir tveir ákærðu
menn eru ekki taldir hafa átt neitt
sökótt við piltinn en þegar hann svaf
vöfðu þeir vírendum á rafmagns-
snúru um fmgur annarrar handar
piltsins. Á hinum enda snúrunnar
var kló. Öðrum ákærða er gefið aö
sök að hafa sett klóna tvisvar í sam-
band við raftengil - með því hleypti
hann 220 volta straumi í líkama pilts-
ins sem vegna ástands síns gerði sér
enga grein hvað var að gerast.
Fórnarlambið hlaut brunasár á
tveimiu- fingrum hægri handar, á
lófa og brunablöðrur á fingrum og
lófa. Hann komst til síns heima en á
næstu dögum fékk hann hjartsláttar-
truflanir. Um tvær vikur tók hann
að fá tilfinningu á ný í fmgurna sem
sköðuðust en enn lengri tima tók
hannaðnáséraðfullu. -Ótt
Hjá fyrirtækinu Á. Guðmundsson hf. er rúmgóð og björt matstofa. Það er
einn af plúsunum sem fyrirtækið fær frá Trésmiðafélagi Reykjavíkur.
Trésmiðafélagið:
Veitir Á. Guðmundssyni
hf. viðurkenningu
Trésmiðafélag Reykjavíkur hefur
síðan árið 1985 veitt einu fyrirtæki á
ári viðurkenningu fyrir góðan að-
búnað starfsmanna á vinnustað.
Að þessu sinni varð húsgagnafyrir-
tækið Á. Guðmundsson hf. fyrir val-
inu. Þar starfa 12 manns við fram-
leiðslu og hefur fyrirtækið verið
starfrækt í nær fjóra áratugi.
Fyrirtækið fær þá einkunn frá Tré-
smiðafélaginu að það hafi aldrei slak-
að á við aðbúnað starfsmanna. í fyr-
irtækinu sé rúmgóð og björt mat-
stofa, sér hirslur fyrir hvern starfs-
mann, snyrtileg aðkoma að fyrirtæk-
inu og öll umgengni til fyrirmyndar.
Öll hreinlætisaðstaða er í góðu lagi
og öryggismálum er vel sinnt.
Sendiherrann í London:
Heimkomu frestað
„Af praktískum ástæðum á ég ekki
von á að Helgi Ágústsson, sendiherra
í London, komi heim fyrr en upp úr
20. janúar nk. Fyrr á liðnu ári var
hann beðinn um að vinna að úthafs-
veiðimálum sem eru tímafrek. Fyrir
vikið gat hann ekki sinnt ýmsum
málum í London," segir Róbert
Trausti Árnason, ráðuneytisstjóri í
utanríkisráöuneytinu.
Einhver bið verður á þvi að Jakob
Frímann Magnússon taki við sendi-
ráðinu í London af Helga Ágústssyni
sendiherra. í utanríkisráðuneytinu
er nú beðið eftir skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um fjárreiður menningar-
skrifstofunnar sem Jakob veitir for-
stöðu en aö sögn Róberts Árna eru
engin tengsl á milli þess og seinkun-
ar á heimkomu Helga.
„Ég bíð eftir skýrslu Ríkisendur-
skoðunar enda hlýtur hún að vera
sá grundvöllur sem allar ákvarðanir
byggja á sem tengjast sendiráðinu í
London og starfsmönnum þar,“ segir
RóbertTrausti. -kaa
/ --------------------------------\
Qkuskóli
Islands
Meirapróf
Næsta námskeið til aukinna ökuréttinda hefst
fimmtudaginn 5. jan. Námskeiðið kostar aðeins
95 þús. stgr.
Innritun stendur yfir. Uppl. í síma 68 38 41.
©tastólii íslaoudls
Dugguvogi 2, (GG húsið)
Sími 91-68 38 41
_________________________________/
Frystiskápur CCV-250
Hraðfrystirofi. Mál 143x60x60
VERÐ ÁDUR 69.900
Kæliskápur CDP-280
K. 216 Itr. fr. 64 Itr. Mál 143x60x60
VERÐ ÁÐUR 59.900
Kæliskápur CCB-3210
K. 216 Itr. fr. 64 Itr. 163x60x60
Þvottavél C-836 XT
14 þv. kerfi, 800 og 400 sn. vinda
VERÐ ÁÐUR 59.900
Þvottavél C-825X
14 þv. kerfi, 800 sn. vinda
VERÐ ÁÐUR 53.700
PFAFF
BORGARTÚNI20
SÍMI 626788
Upplýsingar um
umboðsaöila
hjá Gulu línunni
PFAFF EKKIBARA SAUMAVELAR