Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 20
28
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995
-fyrir unga sem aldna
VERTU VEL VIRKUR í
VETUR OG BJÓDDU
ÖLLU BIRGINN. HJÁ
OKKUR FÆRÐU FÍNT
FORM OG FLOTTAR
LÍNUR FYRIR FÁEINAR
KRÓNUR.
p FULLKOMIN LÍKAMSRÆKT
— JUDO
— JIU-JITSU
— SJÁLFSVÖRN
— LJÓSABEKKIR
— SAUNA
— TAEKWONDO
ÞJÁLFARI: MICHAEL J0RGENSEN, 4. DAN
— ÞREKTÍMAR í HÁDEGINU
— FITUBRENNSLA I HÁDEGINU
— EINKAÞJÁLFUN FYRIR HÁDEGÍ
L- RÁÐGJÖF UM MATARÆÐI
ÞJÁLFARI: ALDA NORÐFJÖRÐ
HEILSURÆKTARBOMBA
..og svo á eftir - Ljós og Sauna
láttu sjá þigsemfyrst
Júdó GYM
E I N H O L T I 6
S : 6 2 7 2 9 5
Horfðu til framtíðar
Hvað endast litmyndimar þínar lengi? Það fer eftir því hvaða ljósmyndapappír er notaður.
Myndir á lélegan pappír geta glatað gæðum á örfáum árum.
Samkvæmt rannsóknum óháðra vísindamanna m.a. við Tækniháskólann í Rochester í
Bandaríkjunum og upplýsingum í bókinni „The Permanence and Care of Color
Photographs" eftir Henry Wilhelm, þá endist FUJICOLOR ljósmyndapappír,
FJÓRUM SINNUM LENGUR, en sá næstbesti.
»
Myndir á FUJICOLOR ljósmyndapappír halda fullum litgæðum með réttri geymslu
íyfirlOO ár.
Tryggðu raunveruleg gæði og endingu myndanna þinna og láttu framkalla myndimar þínar
hjá þessum framköllunarstofum, sem nota aðeins FUJICOLOR
hágæða ljósmyndapappír:
Reykjavík:
Mosfellsbær:
Borgames:
Sauðárkrókur:
Siglufjörður:
Egilsstaðir:
Höfn í Homafirði:
Vestmannaeyjar:
Selfoss:
Garðabær:
Ljósmyndavörur hf„ Skipholti 31
Úlfarsfell, Hagamel 67
Express litmyndir, Suðurlandsbraut 2
Regnbogaframköllun, Síðumúla 34
Bókabúðin Ásfell, Háholti 14
Framköllunarþjónustan, Borgarbraut 11
Ljósmyndaþjónusta Stefáns Pedersen, Aðalgötu
Nýja Bíó, Áðalgötu 30
Myndsrniðjan, Dynskógum 4
Ljósmyndastofa Jóhönnu, Hafnarbraut 25
Fótó ljósmyndaþjónustan, Bárustíg 8
Ljósmyndastofa Suðurlands, Austurvegi 44
Hraðframköllun Garðabæjar, Garðatorgi 1
EDl FUJICOLOR
Langbestu myndgœðin nœstu 100 ár.
X
Y
Y
Y
Y
Y
Y
X
X
Y
Y
X
X
Y
Y
Y
Y
X
Y
X
Y
X
Y
Y
X
Y
Y
X
T
Meiming dv
Edda Björgvinsdóttir og Magnús Ólafsson voru meðal þekktra leikara
sem brugðu sér í ýmis gervi í áramótaskaupi Sjónvarpsins.
Hvað með
húmorinn?
Að venju settist þjóðin við sjónvarpið þegar leið að Áramótaskaupi
RÚV, sem að þessu sinni var undir stjórn Guðnýjar Halldórsdóttur, og
beið eftir því að geta hlegið innilega með þeim sem teknir yröu til léttrar
meðferðar í þættinum.
Það er nefnilega galdurinn viö að semja og setja fram skemmtiefni af
þessari tegund að matreiöa glensið þannig að það sé fyndið fyrir alla og
að „fórnarlömbin“, hver svo sem þau eru, geti hlegið með þjóð sinni.
En að þessu sinni var fátt um fína
drætti i sjálfu handritinu sem var
frekar gleðisnautt og grínið allt að
því rætið stundum. Sum atriðin
voru allsendis ófyndin, eins og til
dæmis lokalagið sem var nærri því
pínlegt á að horfa. Gæjarnir sem
þar var spaugaö með eru einfaldlega miklu hlægilegri sjálfir.
Ekkert var til sparað við úrvinnsluna, sem var oft skemmtileg fyrir
augað og fagmannlega af hendi leyst. Innskotin með kerlingunum tveim-
ur voru ágætur rammi sem myndaði tengingu milli atriða. Þjóðvegahátíð-
in mikla fékk sinn skerf og þar var hægt að koma að skotum á pólitík-
usa, fréttamenn og fyrirfólk. Skemmtanabransinn og auglýsingamennska
fengu sitt og líka ráðherrarnir (sumir), enda er þetta hluti af þeirra til-
veru og lítið varið í það að komast ekki á blað í skaupinu!
Framtíðarhöfundar Skaupsins mega hins vegar gjarna íhuga að safna
í sarpinn skrýtnum og skondnum uppákomum, sem nóg er af á heilu
ári, og gera þeim skil um næstu áramót en gefa dömubindaauglýsingum
frí. Með vængjum eöa ekki, þetta er bara orðið gott.
Þegar upp var staðið voru það frábærir fórðunarmeistarar og eitur-
snjallir leikarar sem stóðu með pálmann í höndunum. Gísli Rúnar Jóns-
son fór á kostum og bætti tómahljóöið í handritinu með því að bregða sér í
í haminn af þjóðkunnum íslendingum, Helga Braga Jónsdóttir var líka
bráðfyndin. Frammistaða þeirra og annarra góðra leikara var ljósi punkt-
urinn í Skaupinu.
En það var þetta með húmorinn. Hann lenti að þessu sinni mestallur
í áramótaþætti Imbakassans á Stöð 2. Þátturinn var samfelldur og bráð-
fyndinn á köflum og frammistaða þeirra félaga, Arnar Árnasonar, Pálma
Gestssonar, Sigurðar Sigurjónssonar og Þórhalls Sigurðssonar (Ladda) í
hlutverkum Spilabræðra og annarra góðkunningja Imbakassans var
lunkulega skemmtileg. Þjóðkunnar persónur lögðu þeim lið og í heild var
þetta hin besta skemmtun, létt og laus við skot úr launsátri.
Imbakassinn kom þannig þægilega á óvart og reyndist þegar upp var
staðið mun betri áramótaskemmtun en Skaupið.
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Leiklist
Auður Eydal
Á NÆSTA SÖLUSTAÐ aaAR AA
EÐA í ÁSKRIFT í SÍMA V|{ b/uU