Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 24
32 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995 Hringiðan Áramótabrennur voru víðsvegar um landið á gamlárskvöld eins og vaninn er og í góðviörinu í höfuðborginni var íjölmenni við brennurnar. Meðal þeirra sem brugðu sér á áramótabrennu voru þessar tvær stúlkur, Berglind og Erna, sem voru við brennuna við Leirubakka. DV-mynd JAK í afmæli Heimis Sindrasonar voru dætur hans þrjár að sjálf- sögðu meðal gesta, talið frá vinstri: Kristin, Sigríður og Guð- rún. Heimir Sindrason tannlæknir, sem á árum áður var einnig kunnur tónlistarmaður, varð fimmtugur á aðfangadag. Hann hélt upp á afmæli sitt síðastliðinn föstudag og var margt um mann- inn á heimili hans. Á myndinni er Heimir ásamt eiginkonu sinni, Önnu L. Tryggvadóttur. ísak Harðarson og Oddur Björnsson fengu hvor um sig 400 þúsund króna styrk úr Rithöfundasjóöi Ríkisútvarpsins og voru styrkimir aíhentir á gaml- ársdag. Á myndinni er forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, að heilsa upp á Kötlu ísaksdóttur en bak við hana er faðir hennar, styrkþeginn ísak Harðarson. Til hliðar er Hilmar Oddsson, sem tók við styrknum fyrir hönd föður síns, Odds Björnssonar, og dóttir hans, Hera Hilmarsdóttir. Baka til er Ólafur Oddsson. Meðal gesta við úthlutún úr Rithöfundasjóði Ríkisútvarpsins voru þessir þrír heiðursmenn sem eiga alhr að baki langt starf hjá Ríkisútvarpinu. Talið frá vinstri er Hörður Vilhjálmsson, fjármálastjóri Ríkisútvarpsins, Andrés Björnsson, fyrrverandi útvarpsstjóri, ðg Eyjólfur Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri tæknideildar Ríkisútvarpsins. S. fimmtudaginn 5.janúar, kl. 20.00 Hljómsveitarstjóri: Osmo Vánska Einleikari: Kolbeinn Bjarnason Efnisskrá Edgard Varése: Atli Heimir Sveinsson: Hector Berlioz: Arcan Flautukonsert Symphonie Fantastique B 1 V/ s WIOA ö m s r a n d i J/cmdáy, á/mé'Q>62 &&q)q) hljómsv eit | Það var fjöldi manns sem kom í fertugsafmæli Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur borgarstjóra á gamlársdag, en hún tók á móti gestum í Norræna húsinu. Á myndinni má sjá Ingibjörgu Sólrúnu heilsa Þórhildi Þorleifs- dóttur. Til hhðar við þær eru Stefán Jón Hafstein og Guðrún K. Sigurðar- dóttir. DV-myndirJAK Ræður voru haldnar afmælisbarn- inu til heiðurs og á myndinni er þeim hjónum Ingibjörgu Sólrúnu og Hjörleifi Sveinbjörnssyni greini- lega skemmt. Öllu alvarlegri er Össur Skarphéðinsson umhverfis- ráðherra sem'stendur til hliðar viö þau. Guðrún Ólafsdóttir, dósent í landa- fræði, og Kristín Blöndal myndlist- arkona voru meðal gesta í fertugs- afmæli Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur borgarstjóra í Norræna hús- inu. Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, efndi til heföbundinnar móttöku fyrir embættismenn og fulltrúa erlendra ríkja á Bessastöðum í gær, nýárs- dag, qg var vel mætt. Áttu hinir erlendu fulltrúar góða stund með forsetan- um. Á myndinni er Vigdís Finnbogadóttir að hehsa upp á sendiherra Banda- ríkjanna á íslandi, Parker Borg. DV-mynd JAK Prúöbúnir gestir af ’68-kynslóðinni fjölmenntu á „galakvöld“ á Hótel Sögu í gærkvöld til að fagna nýju ári. í stað vinabanda, gæruvesta og götóttra galla- buxna, eins og tíðkaðist á árum áður, mættu gömlu hipparnir uppábúnir í svörtu og hvítu með gull og gersemar um háls og hendur enda fyrir löngu búnir að taka þjóðfélagið í sátt. í veislunni var fjölmenni og var ekki annað að heyra en árið 1995 legðist vel í fólkiö. Á myndinni eru þau Ámi Möller, bóndi á Þórustöðum í Flóa, Signý Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Listahátíðar í Reykjavík, leirhstarkonan Kogga og Magnús Kjartansson myndhstarmaður. DV-myndJAK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.