Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 10
10 MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995 Fréttir ísaflörður: Leigði út myndbönd með klámfengnum atriðum Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði: Kveðinn var upp dómur 27. des- ember í Héraðsdómi Vestfjarða í máli ákæruvaldsins gegn eiganda myndbandaleigu á ísafirði. Honum var gefið að sök að hafa um nokkurt skeið fyrir 1. apríl 1993 leigt út 106 myndbönd með klámfengnum atrið- um að meginmyndefni, þar sem lögð var áhersla á að sýna með lostafull- um hætti kynfæri karla og kvenna og fólk í margs konar kynmökum. Ákærða var gert að sæta varðhaldi í 15 daga, en fresta skal fullnustu refsingar og hún niður falla að liðn- um 2 árum frá dómsuppkvaðningu haldi ákærði almennt skilorð. Ákærða var gert að greiða 105 þús. króna sekt til ríkissjóðs innan 4 vikna frá uppkvaðningu dómsins, en sæta ella varðhaldi í 30 daga. Þá voru gerð upptæk 106 klámmyndbönd sem lögregla lagði hald á við rannsókn málsins auk þess sem ákærða var gert að greiöa allan sakarkostnað. „Með afdráttarlausri játningu ákærða fyrir dómi, sem er í samræmi við önnur gögn málsins, telst fram- angreind háttsemi hans sönnuð og þykir hún rétt færð til refsiákvæða í ákæruskjali. Við ákvörðun refsing- ar ber annars vegar að líta til þess, að ákærði er nú öðru sinni sakfelldur fyrir útbreiöslu á klámfengnu mynd- efni í ágóðaskyni, en í maí 1991 gekkst hann undir dómsátt og 50 þús. króna sektargreiðslu fyrir út- leigu á tæplega 300 klámmyndbönd- um. Á hinn bóginn þykir mega hafa hhðsjón af því hve langt er um liöið frá því brot ákæröa komst upp en rannsókn málsins lauk hinn 19. júh 1993 og voru rannsóknargögn þá send til ríkissaksóknara. Verður ekki séð af þeim málsgögnum að ákærði eigi nokkra sök á þeim drætti sem síðan hefur orðið á afgreiðslu máls- ins, aUt fram til þess er ákæra var gefin út á hendur honum,“ segir m.a. í dómi héraðsdóms Vestfjaröa. Dóminn kvað upp Jónas Jóhanns- son héraðsdómari. KENNSLA HEFST STUTTISTRÆTO ÍALLARÁTl 8. janúar 1995 Skírteini afhent í Bolholti 6: laugardaginn 7. janúar kl. 12-19 T /Efingasaiur opinn sjö daga vikunnar Dansráð Islands Tryggir rétta lciðsögn Gleðilegt dansár 1995 Dans er holl og góð hreyfing fyrir alla fjölskylduna JONS PETURS os KORII B0LH0LTI6 REYKJAVIK E MSN Smuguaflinn 1994: Verðmæti 2,4 milljarðar Alls veiddu íslensk skip 35 þúsund tonn af botnfiski í Smugunni og á Svalbarðasvæðinu á árinu. Uppi- staða þess afla er þorskur samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskifélags ís- lands. Áætlað verðmæti þess afla er tæplega 2,4 mfiljarðar króna. íslensk skip veiddu á biUnu 2-3000 tonn af rækju á Flæmska hattinum aðverðmæti450miUjónir. -rt Guðrún Helgadóttir. Finnbogi Björnsson, lengsttil hægri, og fulltrúar félaga sem fengu gjafir. DV-mynd ÆgirMár Hitaveita Suðumesja: Gjaf ir og milljónaaf sláttur vegna af mælis Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Það þótti við hæfi á þessu 20 ára afmæU hitaveitunnar að gefa gjafir. Það sem íbúar Suðumesja gleðjast sennilega mest yfir er 20% lækkun gjaldskrár í desember. Við væntum að það komi fram á orkureikningum sem verða sendir út um áramótin," sagði Finnbogi Bjömsson, stjómar- formaður Hitaveitu Suðurnesja. Hitaveita Suðurnesja átti 20 ára afmæh 31. desember; var stofnuð með lögum sem voru samþykkt á Alþingi 18. desember 1974 og staðfest af forseta íslands 31. des. Fyrirtækið afhenti 28. des. pen- ingagjafir til Þroskahjálpar á Suður- nesjum kr. 500.000. Til björgunar- sveitanna sex á Suðumesjum sem fengu 200 þús. hver deild nema sveit- in Suöurnes sem fékk 400 þús. Fyrr í ár var Sjúkrahúsi Suðumesja færð eymasmásjá að andvirði ein miUj. króna. Þá var ákveðið að gefa 20% afslátt af allri aimennri vatnssölu um hemla í desember. Það þýðir að tekj- ur af vatnssölu veröa 4,8 millj. kr. lægri og heildarlækkun til notenda 5,5 millj. vegna virðisaukaskattsins. DANSSPOR I R Samkvæmisdansar: sígildir og suður-amerískir Gömludansarnir - Tjútt Barnadansar - Stjörnumerki DÍ Allir hópar velkomnir: Börn (yngst 4 ára), unglingar, fullorðnir. Byrjendur, framhald.hóptímar, einkatímar. Seljum hina frábæru Supadance dansskó Leikritið Óvitar eftir Guðrúnu Helgadóttur var frumsýnt í leikhús- inu Nör-Tröndelag Teaterværksted, skammt frá Þrándheimi, miðviku- daginn 28. desember. Leikstjóri sýn- ingarinar er Armulf Haga, einn þekktasti leikstjóri Norðmanna. Leikritið Óvitar var frumsýnt í Þjóð- leikhúsinu 1979 viö miklar vinsældir en um 27.500 manns sáu sýninguna. Verkið var tekið upp aftur tæpum áratug síðar og sáu þá ríflega 20 þús- und manns sýninguna. Þá hefur verið gengið frá samning- um við Nordiska Strakosch Teater- forlaget í Kaupmannahöfn um al- heimsdreifingu á Óvitum, fyrir utan Þýskaland og ísland. Foriagið er eitt hið stærsta á þessu sviði á Norður- löndum og sérhæfir sig í að koma norrænum leikritum á framfæri er- lendis. Vaka-Heigafell hefur tekið við rétti á útgáfu á verkum Guðrúnar Helga- dóttur hér á landi en hún var hjá Iðunni. Á það bæði við um nýjar bækur sem eldri verk. Forlagið mun í vor hefja endurútgáfur á eldri verk- um Guðrúnar og ríður þá á vaðiö með fyrstu bók hennar, Jóni Oddi og Jóni Bjarna, sem uppseld hefur verið lengi. Guðrún Helga- dóttir farin yf ir tilVöku- Helgafells - Óvitar frumsýnt í Noregi INNRITUNI 36645 og 685045 ALLA PAGA kl. 12 - 19 frá 3. janúar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.