Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1995, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ m* 0%. 0% 0% œm 0mm BLAÐAAFGREIÐSLA OG ÁSKRIFT ER OPIN:
562 «2525 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA.
IRITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700 81 AFGREIÐSLU: 563 2777 KL 6-8lAUGAfiOAGS. OG MANUOAGSMORGNA
l : I
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 2. JANÚAR 1995.
Stykkishólmur:
eftir dansleik
Aðsúgur var gerður að lögreglu í
Stykkishólmi eftir dansleik á hótel-
inu sem haldinn var aðfaranótt
gamlársdags.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
var mikill fjöldi á dansleiknum, hátt
í 300 manns, og þegar líða tók á
kvöldið fór að gæta ófriðar meðal
sumra gestanna. Lögregla skarst í
leikinn og handtók einn óróaseggj-
anna og náðu átökin hámarki eftir
dansleikin þegar 15 til 20 manna hóp-
ur reyndi að ná hinum handtekna,
sem var í haldi í lögreglubíl fyrir
utan hótelið. Spörkuðu menn í lög-
reglubíllinn og börðu þannig aö hann
er dældaður og stórskemmdur eftir
aðfarirnar en þó tókst ekki að frelsa
hinn handtekna.
Þrír lögreglumanna hlutu högg í
átökunum en slösuðust ekki en einn
dyravörður og nokkrir gesta, sem
tannbrotnuðu og hlutu aðra áverka,
voru ekki jafn heppnir og nutu að-
hlynningar í sjúkrahúsi.
Að sögn lögreglu er ljóst að kalla
þarf fjölda manns til yflrheyrslu og
hafa nokkrar líkamsárásar- og þjófn-
aðarkærur þegar borist.. Að sögn
Sveins Inga Lýðssonar varðstjóra
greip eins konar múgæsing um sig
meðal gestanna.
Eldsvoði í Keflavík:
Snarræði íbúa
aðþakkaað
ekkifórverr
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
„Það var fyrst og fremst miklu
snarræði íbúanna að þakka að ekki
fór verr. Ég var stödd á skemmtistað
að fagna nýju ári þegar ég frétti að
kviknað hefði í íbúðinni minni. Ég
hélt fyrst að þetta væri spaug en svo
fór ég heim og varð mikið brugðið. í
íbúðinni voru allar mínar eigur sem
hæglega hefðu getað eyðilagst. Ég er
með vel tryggt, sem betur fer, er það
er ekki langt síðan að ég gerði það.
Nýja árið byijar svo sannarlega ekki
vel,“ segir Kristjana Kristjánsdóttir
en íbúð hennar skemmdist mikið
þegar eldur kom upp í íbúðinni, sem
er í þriggja hæða fjölbýlishúsi í
Keflavík, um klukkan tvö á nýárs-
nótt. Kristjana er einstæð móðir sem
búið hefur í íbúðinni ásamt 11 ára
syni sínum.
íbúðin, sem er þriggja herbergja,
er mikiö skemmd. Snarræði íbúanna
í blokkinni er þakkað það að ekki fór
verr. Þeir brutust inn í íbúðina og
náðu að slökkva eldinn áður en
slökkviliðið kom á vettvang. Talið er
að millistykki sem var í stofunni
hafi gefið sig og orsakað brunann.
LOKI
Það er stórborgarbragur á
Hólminum við hátíðleg tæki-
færi!
Forræðislaus faðir nam bam sitt á brott af sjúkrahúsi:
Lögreglan leitar að
tveimur ungbörnum
-17 ára gömul forræðislaus móðir bamanna 1 felum með þau
LögreglaniReykjavikhefurund- verndarneínd er búin aö hundelta komst að því að barnaverndar- skuldi meðlag upp á nær tvær
anfarna daga leitaö tveggja ung- okkur og hefur beitt fyrir sig lög- nefnd hefði ákveðið að svipta sig milljónir sem leiði til þess að þegar
bama árangurslaust. Móðir bam- reglu. Þetta náði hámarki með og móðurina forræði barnanna. hann fái vinnu fari laun hans í að
anna, sem er 17 ára gömul, er í fel- handtöku minni 30. desember. Það Hann sagði að þau heföu komist greiða niður meðlagsskuldir.
um með þau en hún og barnsfaðir voru sendír eftir mér tveir lög- að þvi að bamavemdarnefnd heföi „Mérskilstaðéggetiáttyfirhöföi
hennar hafa verið svipt forræði reglubílar og umsátur gert um hús gefið skipun um að barnið sem var mér allt að tveggja ára fangelsis-
þeirratimabúndið.Faðirbarnanna þar sem ég var staddur. Ég var síð- á spítaianum færi þaðan beint á dóm fyrir brot á barnaverndarlög-
nam annað þeirra, sem er aðeins an handtekinn og lokaður inni í vistheimili. um. Þeir mega gera það sem þeir
tveggja mánaða gamalt, á brott af klefa i 8 klukkustundir. Við yfir- Aðalsteinn segir ástæðu þess að viljahvaðmigvaröar,égmunberj-
Barnaspítala Hringsins á Þorláks- heyrslu var farið meö mig eins og barníð léttist þá að móðirin hafi ast þar til yfir lýkur,“ segir Aðal-
messu. Þar var barnið til meðferð- ótíndan glæpamann og tekin af mér hætt að mjólka vegna álags í kring- steinn.
ar þar sem við ungbamaeftirlit mynd og fingraför, segir faðirinn, um aðgerðir barnaverndarnefhdar Barnaverndaryfirvöld og lög-
kom í Ijós að það haföi lést óeðli-. sem heitir Aðalsteinn Jónsson og semstaðiðhafiyfirfráþvískömmu regla vildu ekki tjá sig um málið
lega mikið. Hitt barnið er ársgam- er 34 ára að aldri. eftiraðfyrrabarnþeirrafæddist, þegar DV hafði samband við þau í
alt. Aðalsteinn segist hafa gripiö ttl Hann segir þau hvorugt vera óre- gærkvöld.
„Ég sleppi börnunum aldrei, það þess örþrifaráðs að nema bam sitt glufólk en ástæða vandræða þeirra
er alveg sama hvað á dynur. Barna- á brott af spítalanum eftir að hann sé að langmestu leyti sú að hann
Flugeldursprakkí
Tvíburar
arsins
Fyrstu börn ársins 1995 eru tvíbur-
ar en þeir fæddust klukkan rúmlega
sjö á nýársmorgun á fæðingardeild
Landspítalans. Foreldrarnir heita
Vilborg Arnardóttir og Halldór Már
Þórisson frá Bolungarvík.
Tvíburamir, sem em drengur og
stúlka, fæddust rúmum tveimur
mánuðum fyrir tímann og vom ekki
nema fimm og sex merkur. Voru þau
tekin með keisaraskurði og strax sett
í súrefniskassa. Að sögn foður og
hjúkrunarfólks dafna þau vel og eru
hraust miðað við aðstæður.
sambýli aldraðra
Skemmdir urðu í húsnæði sambýl-
is aldraðra í Stykkishólmi á gamlárs-
kvöld. Flugeldur, sem skotið haföi
verið á loft, braut tvöfalda rúðu á
herbergi eins heimilismanna, aldr-
aðrar konu, og lenti í vegg klæddum
gifsplötu þar sem hann sprakk. Eldur
kviknaði en starfsfólk náöi að
slökkva hann. Slökkviliðið þurfti að
reykræsta húsnæði sambýlisins.
Berglind Gestsdóttir hjúkrunarfræðingur hugar að öðrum tvíburanna, stúlkubarni, sem voru fyrstu börn ársins
1995. Á innfelldu myndinni er Vilborg Arnardóttir, móðir tvíburanna. DV-mynd JAK
Veðriö á morgun:
Rigning fyrir
sunnan og
vestan
Á morgun verður suðaustan-
strekkingur og slydda eða rigning
sunnanlands og vestan en
slydduél norðaustan til. Hitinn
verður 1 til 6 stig en kaldara inn
til landsins. Hlýjast verður á Suð-
urlandi.
Veðrið 1 dag er á bls. 36
kúlulegur
bwlsew
SuAurlandsbraut 10. S. 686480.
L«TT*
alltaf á
Miövikudögnm
í