Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 Merming Dómnefndir vegna Menmngarverðlauna DV hafa verið skipaðar: Munu veita verðlaun í sjö listgreinum Dómnefndir vegna Menningarverð- launa DV, sem afhent verða í 17. skipti 23. febrúar næstkomandi, hafa verið skipaðar. Dómnefndirnar eru sjö og munu þær veita verðlaun í jafn mörgum listgreinum: leiklist, bókmenntum, tónlist, listhönnun, byggingarlist, kvikmyndum og myndlist. Við val í dómnefndir er haft að leið- arljósi aö þær séu skipaðar gangrýn- endum DV í viðkomandi listgrein, fulltrúum listamanna og áhugafólki um listir. Hefur sá háttur verið hafð- ur á í hvert skipti sem Menningar- verðlaunum DV hefur verið úthlutað og á sinn þátt í hve vel hefur tekist um val verðlaunahafa. Er ekki að efa að jafn vel takist nú til um val verð- launahafa. Fimm tilnefningar Nefndirnar hafa flestar þegar hafið störf. Fyrir nefndarmönnum liggur að fara yfir nýliðið ár og velja þá listamenn eða aðifa sem þeim fmnst að hafi skarað fram úr á árinu. Eins og svo oft áöur munu nefndarmenn eiga úr vöndu að ráða við val sitt. En áöur en endanfeg ákvörðun verð- ur tekin mun hver nefnd tilnefna fimm listamenn eða aðila sem koma til greina sem handhafar Menningar- verðlauna DV 1995. Gerð verður grein fyrir tilnefningum nefndanna hér í blaðinu og rökstuðningi þeirra, þ.e. af hverju tilteknir listamenn eða aðilar eru tilnefndir. Hér fer listi yfir skipan dómnefnda um Menningarverðlaun DV í ár: Bókmenntir: Sigríður Albertsdótt- ir, bókmenntafræðingur og gagnrýn- andi DV, Silja Aðalsteinsdóttir, bók- menntafræðingur, rithöfundur og gagnrýnandi DV, og Jón Hallur Stef- ánsson, rithöfundur og þáttagerðar- maður. Kvikmyndir: Hilmar Karlsson, Frá iyrsta fundi dómnefndar sem veita mun Menningarverðlaun DV í bókmenntum. Silja Aóalsteinsdóttir, t.v., ræðir hér við Jón Hall Stefánsson og Sigríði Albertsdóttur um afrek síðasta árs á sviði bókmennta. Það skal tek- ið fram að öll islensk bókmenntaverk sem komu út á nýliðnu ári verða til skoðunar. Bækurnar sem sjást á mynd- inni gefa enga vísbendingu um tilnefningar nefndarinnar. DV-mynd VSJ blaðamaður og kvikmyndagagnrýn- andi DV, Baldur Hjaltason, forstjóri og kvikmyndagagnrýnandi, og Þor- finnur Ómarsson dagskrárgerðar- maður. Leiklist: Auður Eydal, leiklistar- gagnrýnandi DV, Kristján Jóhann Jónsson, rithöfundur og leiklistar- gagnrýnandi, og Þorgeir Þorgeirson rithöfundur. Tónlist: Áskell Másson, tónskáld og tónlistargagnrýnandi DV, Rík- harður Öm Pálsson, tónskáld og tón- listargagnrýnandi, og Bergljót Har- aldsdóttir dagskrárgerðarmaður. Myndlist: Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur, Ólafur Engilbertsson, myndlistargagnrýnandi DV, og Jón Proppé, heimspekingur og myndlist- argagnrýnandi DV. Byggingarlist: Þorgeir Ólafsson, listfræöingur og deildarstjóri í menntamálaráðuneytinu, Valdís Bjarnadóttir arkitekt og Sigurður Halldórsson arkitekt. Listhönnun: Torfi Jóhsson hönn- uður, Eyjólfur Pálsson hönnuður og Guðrún Gunnarsdóttir textíllista- maður. Bókmenntir Sigriður Albertsdóttir. Silja Aðalsteinsdóttir. Jón Hallur Stefánsson. Leiklist Tónlist Hlaupárá kvikmynda- hátíðí Frakklandi Stuttmyndin Hlaupár eftir Önnu Th. Rögnvaldsdóttur var nýlega valin til keppni á Cler- mont-Ferrand kvikmyndahátíð- inni sem fram fer í Frakklandi í lök janúar. Myndin er gerð að frumkvæði Jafnréttisnefndar Reykjavíkurborgar sem efndi til handritasamkeppni fyrir ári. Hún veitti síðan styrk til gerðar Hlaupárs sem fékk fyrstu verð- laun . í samkeppninni. Myndin íjallar um miðaldra konu, Höllu, sem býr ein á bæ í nágrenni Reykjavíkur og væntanlegt stefnumót hennar við gamlan kunningja. í aðalhlutverkum eru Margrét Ákadóttir og Pétur Ein- arsson. Margrét Ákadóttir í hlutverki Sínu í Hlaupári. Akureyri: lOOárafæðing- araf mæli Davíðs Stefánssonar Eitt hundrað ár verða liðin frá fæðingu Davíðs Stefánssonar, skálds frá Fagraskógi, laugardag- inn 21. janúar. í tilefni af því verð- ur margt um að vera á Akureyri þann dag og síöar á árinu. Á af- mælisdaginn verður samkoma í Möðruvallakirkju á vegum Arn- arneshrepps. Þar verður kynning á verkum Daviös, sungið og lesið úr verkum hans og sagt frá skáld- inu. Síðar um daginn verður sýn- ing á verkum Davíös í Amtsbók- Myndlist Byggingarlist Kristján Jóh. Jónsson. Þorgeir Þorgeirson. Áskell Másson. Auður Eydal. Ríkharður Örn Pálsson. Bergljót Haraldsdóttir. Kvikmyndir Listhönnun Aðalsteinn Ingólfsson. Ólafur Engilbertsson. Jón Proppé. Þorgeir Ólafsson. Valdís Bjarnadóttir. Sigurður Halldórsson. Hilmar Karlsson. Þorfinnur Ómarsson. Torfi Jónsson. Eyjólfur Pálsson. Guðrún Gunnarsdóttir. safninu og um kvöldið verður frumfiutt í Samkomuhúsinu dag- skrá Leikfélags Akureyrar Á svörtum fjöðrum - úr Ijóðum Daviðs Stefánssonar. Daginn eftir verður Arnar Jónsson leikari með sérdagskrá um Davíð í Dav- íðshúsi. Fram til sumars eru síð- an ráðgerðar sýningar og kynn- ingar sem tengjast Davíð Stefáns- syni. Nýjarbækur frá Frjálsri fjölmiðlun Frjáls fjölmiðlun hefur gefið út tvær bækur í bókaflokknum um bróður Cadfael, Bláhjálm og IAki ofaukið. Munkurinn Cadfael er spæjari í sérílokki en sögurnar gerast í og við Benediktsmunka- klaustrið í Shrewsbury á Eng- landi á 12. öld. Alls eru komnar út 19 bækur um munkinn Cadfael og hafa hlotið fádæma vinsældir í hinum enskumælandi heimi og jafnframt verið þýddar á nokkur tungumál. í fyrra voru gerðar sjónvarps- kvikmyndir eftir fjórum bók- anna, með Sir Derek Jakobi í hlutverki Cadfaels, og ráðgeröar eru tökur á sex myndum til við- bótar. Þá eru einnig komnar út tvær barna- og unglingabækur í bóka- flokknum Æskuár Indiana Jones, Hringur dauðans og Hefnd múmiunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.