Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.1995, Síða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
Sviðsljós
Súpermódelin láta allthanga í ár:
Fögnuðu nýja ár-
inu berbrjósta
Þessar þrjár drottningar í tískuheim-
inum ákváöu að halda upp á nýja
árið með því að sýna örlítið meira
af sér en á síðasta ári. Ekki er þó
vitað hvort þetta er eitthvert nýárs-
heit hjá þeim stúlkunum en ýmsir
spá því hins vegar að meira sjáist í
Talaðu við okkur um
BILARETTINGAR
BÍLASPRAUTUN
HHHgnj
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
VINNIN LAUG/1 (u){ (S GSTÖLUR RDAGINN 14.1.1995
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN VINNINGSHAFA
1.5 al 5 0 1.847.757
o 4af5d ^•Plús K m 160.670
3. 4af 5 64 8.660
4. 3 al 5 2.440 530
Heildarvinningsupphæð: 4.016.537
M 1 BIRT MEÐ FYRIRVARA UM PRENTVILLUR
kroppana á tískusýningum þessa árs.
Carla Bruni, Naomi Campell og
Helena Christensen eru aðalstjörn-
urnar í sérstakri nýársútgáfu
franska tískutímaritsins Photo.
Hin ítalska Carla þykir alveg sér-
staklega falleg. Hún heillaði Mick
gamla Jagger gjörsamlega upp úr
skónum fyrir nokkrum árum og áttu
þau í ástarsambandi sem varð til
þess að Jerry Hall, eiginkona Micks,
stormaði tvisar sinnum út frá hon-
um.
Afturendinn á Helenu er sennilega
sá frægasti í heiminum um þessar
mundir. Hann prýðir nefnilega aug-
lýsingaplaköt fyrir myndina Pret a
Porter sem Robert nokkur Altman
leikstýrir. Bossinn hangir því víða
uppi á vegg og hefur vakið mikið
umtal. Þess hefur meðal annars verið
krafist að plakatið verði bannað.
Helenu er víst nokk sama en það var
einmitt þetta plakat sem varð til þess
að hún var kjörin kynþokkafyllsta
módelið árið 1994.
Naomi átti frekar erfltt ár í fyrra.
Hún reyndi fyrir sér sem söngkona
með afleitum árangri og var jafnvel
talað um að fleiri eintökum af plötu
hennar, Babywoman, hefði verið
skilað en gefm voru út!
Helena Christensen.
Naomi Campell.
TÆKNI
///////////////////////////////
Aukablað um
TÖLVUR
Miðvikudaginn 25. janúar mun aukablað
um tölvur'fylgja DV.
Blaðið verður að vanda fjölbreytt og efnismikið.
í því veður fjallað um flest það er viðkemur
tölvum og tölvunotkun.
Upplýsingar verða I blaðinu um hugbúnað, vélbúnað,
þróun og markaðsmál að ógleymdum
smáfréttunum vinsælu.
Sérstök áhersla verður lögð á umfjöllun um
Internetið og notkun þess á íslandi.
Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni í þlaðið er bent
á að senda upplýsingar til Björns Jóhanns Björnssonar á ritstjórn
DV í síðasta lagi fyrir 19. janúar. Bréfasími ritstjórnar er 563 29 99.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði
vinsamlega hafi samband við Björk Brynjólfsdóttur, auglýsinga-
deild DV, hið fyrsta í síma 563 27 23.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er fimmtu--
dagurinn 19. janúar.
ATH.I Bréfasími okkar er 563 27 27.
DV
Sænska poppsveitin Roxette er á hljómleikaferðalagi um Suður-Afriku þessa
dagana þar sem sveitin nýtur mikilla vinsælda sem eðlilegt er. Marie Fred-
riksson, forsöngkona þeirra frænda okkar, þykir mjög frambærilegur
skemmtikraftur og, eins og sést á mynd þessari sem var tekin á tónleikum
á Ellis Park íþróttaleikvanginum, var hún í miklu stuði. Símamynd Reuter
Cartland
Barbara Cartland, skáldkona
með meiru, á ekki sjö dagana
sæla um þessar mundir. Að venju
var hún í hópi heimsins verst
klæddu kvenna fyrir hjábáruleg-
an útganginn á sér þegar sá listi
var kynntur fyrir stuttu. Og til
að hæta gráu ofan á svart var hún
skömmuð fyrir að malda í móinn
yfir því að skípta ætti einu af stór-
hýsum hennar í fernt til þess að
þar gæti búið „alþýðudót", eins
og hún mun hafa orðað það.
Whoopi ekki
hjá Oskari
Whoopi Goldberg, leikona og
háðfugl, hefur notið mikillar vel-
gengni undanfarin ár og fengið
hvert bíómyndarhlutverkið á
fætur öðru, þó svo að myndirnar
hafi kannski ekki verið upp á
marga fiska. Hún hefur meira að
segja fengið að kynna óskars-
verðlaunin. Ekki þó í þetta sinn.
Þess í stað verður hún kynnir á
‘samkomu sem haldin er til
styrktar rannsóknum á alnæmi.
Jack aftur fúll
Jack Lemmon og Walter Matt-
hau, eitthvert skemmtiiegasta
gamantvíeyki í Hollywoodkvik-
myndum fyrr og síðar, þegar vel
tekst til, það er að segja, hafa fall-
ist á aö leika í framhaldsmynd
um gamlingjana tvo fúlu sem
kitluðu hláturtaugar okkar í
fyrra. Jack segir að þeir vilji endi-
lega að myndin veröi tilbúin til
sýningar um jólaleytið. Það er því
enn nokkur tími til stefnu.
Frank Zappa í
dýrlingatölu
Tónlistarsnillingurinn sálugi,
Frank Zappa, stoínandi og höf-
uðpaur framúrstefnusveitarinn-
ar Mothers of Invention, var tek-
inn í poppdýrlingatölu í New
York fyrir skömmu, svo og Janis
Joplin, Neíl Young og fleiri. Fé-
lagar Franks úr sveitinni léku af
því tilefni fyrir gesti og er ekki
að efa að sælustraumur hefur
fariö um marga.