Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 2
2
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
Fréttir
Fyrrum starfsmaður á áfengismeðferðardeild Landspítalans:
I f angelsi fyrir fjársvik
gagnvart sjúklingi
- fékk roskinn mann til að samþykkja veðsetningar fyrir eigin lánum
Héraösdómur Reykjavíkur dæmdi
í gær 49 ára karlmann í 15 mánaöa
fangelsi fyrir fjársvik með því að
hafa fengið sjúkling sem hann hafði
annast til að samþykkja veðsetningu
fasteignar sjúklingsins sem trygging-
ar fyrir greiðslum á fjórum skulda-
bréfum upp á samtals um 2 milljónir
króna.
Málið er sprottið af kæru frá roskn-
um manni sem var sjúklingur á
áfengismeðferðardeild Landspítal-
ans. Þar starfaði sakborningurinn
meðal annars með þeim hætti að
halda með sjúklingum fundi sem
kærandinn sótti. Kynni tókust með
mönnunum og höföu þeir talsverð
samskipti upp frá því.
í dóminum segir m.a. að ákærði
hefði þvi þekkt vel til aðstæðna sjúkl-
ingsins, bæði fjárhagsstöðu og
vandamál vegna áfengissýki hans.
„Ákærða hlaut einnig að vera ljóst
að ... var ekki borgunarmaður
þeirra fjárskuldbindinga, sem lýst er
í þessum köflum ákærunnar," segir
í dóminum.
Sakborningurinn var dæmdur fyr-
ir aö hafa tekið 1,2 milljóna króna
lífeyrissjóöslán, sem var tryggt með
2. veðrétti í íbúð roskna mannsins,
sem eigandinn átti reyndar að fá
helming af til sinna nota, en notfæra
sér nánast alla upphæðina sjálfur.
Maðurinn var auk þess dæmdur
fyrir að hafa gagnvart sjúklingnum
með sviksamlegum hætti veðsett
þrjú skuldabréf að upphæð samtals
ein milljón króna. Sakborningurinn
var atvinnulaus þegar svikin fóru
fram, á tímabilinu október 1992 til
janúar 1993. Hann var enn atvinnu-
laus þegar réttarhöld fóru fram í
málinu. „.Ákærði hefur því með
þessari háttsemi sinni á ólögmætan
hátt hagnýtt sér rangar og/eða óljós-
ar hugmyndir ... sem taldi ákærða
í fastri vinnu,“ sagði í dóminum.
Sakborningurinn hefur áöur hlotið
15 dómsáttir fyrir áfengislagabrot,
umferðarlagabrot, tollalagabrot, lík-
amsárás og íjársvik. Hann hefur
einnig hlotiö 9 refsidóma fyrir skjala-
fals, þjófnaö, nytjastuld, ijárdrátt,
fjársvik, umferðarlagabrot og áfengi-
slagabrot. Hluti af fyrri ferli manns-
ins hafði ítrekunaráhrif við refsiák-
vörðun héraðsdóms í gær.
-Ótt
Halldóra Ósk Hallgrímsdóttir, gjaldkeri Nemendafélags Hvassaleitisskóla, afhenti 50 þúsund krónur í söfnunina
fyrir hönd félags síns. Börnin höföu ætlað aö nota peningana til aö stofna útvarpsstöð en töldu þeim betur varið
i söfnunina. DV-mynd Sveinn
Söfnun handa Súðvíkingum:
Vel á annað hundrað
milljónir höf ðu saf nast
Geysileg þátttaka hefur verið í Þegar DV fór í prentun í gærkvöldi henni lýkur á sunnudagskvöld
söfnun þeirri sem staðið hefur til höfðu vel á annaö hundrað milljónir klukkan 22. Tekiðær við framlögum
styrktar fómarlömbum snjóflóð- safnast. í síma 800 50 50.
anna í Súðavík. Söfnunin hófst á fimmtudag og -rt
DóinMrkian:
Samverustund
björgunarmanna
Landsbjörg og Slysavamafélag
íslands efna til samverustundar
fyrir félaga sína og fjölskyldur
þeirra í Dómkirkjunni á sunnu-
dagskvöld kl. 20. Björgunarsveit-
armenn sem fóm til Vestfjarða
em flestir komnir til baka og
finna hjá sér ríka þörf fyrir að
eiga kyrrðarstund saman.
Samverustundin er ætluð félög-
um Landsbjargar og Slysavarna-
félagsins ásamt Qölskyldum en
allir aðrir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir,
Málverkauppboð
„Ég fékk þessa hugmynd þegar
ég var að mála nóttina eftir að
snjóflóðið féll. Mér fannst eitt-
hvað verða að gera til hjálpar
þessu fólki sem á um sárt að
binda,“ segir Jóhann Eyvinds
myndlistarmaður sem stendur
fyrir myndlistarsýningu og upp-
boði þar sem andvirðið rennur
óskipt til Súðvíkinga.
Jóhann segir að nokkrir hst-
málarar hafi ákveðið að gefo verk
í þessu skyni. Sýningin verður
haldin nk. þriöjudag og miðviku-
dag í Geysishúsinu en Reykjavík-
urborg lánar sai endurgjalds-
laust. -rt
Grindavík:
Færriánatvinnu
Ægir Már Káraaon, DV, Suöumesjuin;
í Grindavík era nú 65 manns á
atvinnuleysisskrá, þar af 55 kon-
ur. Þetta er nærhelmingsfækkun
á skrá frá því á sama tíma í fyrra.
Starfsfólk hjá atvinnumiðlun
bæjarins gerir ráð fyrir að 20
konur fari af skránni um næstu
mánaðamót, fái þá fasta vinnu
hjá lagmetisiðjunni.
Lýsisskipið Massira frá Marokkó:
Neitaði að fara úr höf n á Djúpavogi
Flutningaskipið Massira frá Marr-
okkó hefur lent í miklum ævintýram
og jafnvel hrakningum hér við land
undanfama daga og má segja að sag-
an hafi endurtekið sig frá því í des-
ember þegar skipið strandaði í
Homaíjarðarhöfn og átti einnig í erf-
iðleikum í Bolungarvík. Vignir Júl-
íusson, lóös í Homafirði, segir að
Massira sé gamalt skip. Það hafi
„óskaplega léleg“ og jafnvel úrelt
stjómtæki og skipstjómarmennimir
séu óvanir íslenskum aöstæðum.
Skipið láti varla að stjórn og skip-
stjórinn virðist ekki vanur að sigla
nálægt landi.
„Skipið kom hingaö til að taka lýsi
og fékk lóðs til að fara inn að bryggju.
Þegar skipið átti að fara út fór skip-
stjórinn í kerfi og neitaði að fara þó
að íslenskur skipstjóri, þrælvanur
maður, færi með. Skipstjórinn fékk
að tala út til Marokkó og senda fax
og sagöi við íslenska skipstjórann að
hann mætti ekki taka neina áhættu
því að það væri búiö að selja skipið.
Það endaði með því aö hann fór eftir
að hafa fengiö tilmæli frá umboðs-
manninum í Reykjavík um að fara.
Við urðum að færa togara við bryggj-
una þrem metrum framar og tveir
litlir bátar hjálpuðu honum við að
snúa í renniblíðu," segir Ólafur
Ragnarsson, sveitarstjóri á Djúpa-
vogi.
Eins og fram kom í DV nýlega voru
íjórir björgunarsveitarmenn úr
Gerpi hætt komnir á Norðljaröarflóa
aðfaranótt sunnudags eftir aö hafa
aðstoöað lóðs úr Reykjavík um borð
í flutningaskipið þegar það þurfti að
koma við í Neskaupstað til að taka
lýsi. Veður var vont og „skvetta fór
yfir bátinn", eins og sveitarstjórinn
á Djúpavogi orðaði það. Björgunar-
bátinn fyllti og vélar hans stöövuð-
ust. Massira sinnti ekki neyðarblysi
frá bátnum og hélt til hafs en togar-
inn Skúmur kom björgunarsveitar-
mönnunum til hjálpar.
Von var á Massira til Vestmanna-
eyja síðdegis í gær.
Stuttar fréttir
Vegna minningarathafnar á
ísafirði í dag um látna Súðvíkinga
beinir Davið Oddsson forsætis-
ráðherra þeim tilmælum til opin-
berra stofnana að fánar verði
dregnir í hálfa stöng.
Lánskjaravísitala upp
Seölabankinn hefur reiknað út
nýja lánskjaravísitölu sem gildir
fyrir febrúar. Hún er 3396 stig og
hefur hækkað um 0,32% frá síð-
asta mánuði.
Skátarmeðsamskot
Ráðstefna evrópskra skáta fer
fram í Reykjavík um þessar
mundir. Ráöstefnugestir hafa
ákveðið að efna til samskota í
söfnunina „Samhugur í verki".
Fundað í Múrmansk
Fulltrúar íslenskra og rúss-
neskra stjórnvalda funduðu um
sjávarútvegsmál í Múrmansk í
gær. Niðurstaðan varð að efna til
annars fundar og bjóða Norð-
mönnum á fundinn.
Flugtil Kanada
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra hefur fengið bréf frá kanad-
ískum kollega sinum um nýja
loftferðaáætlun stjórnvalda í
Kanada. Samkvæmt henni er
engin hindran í vegi Flugleiða
fyrir áætlunarflugi milli íslands
og Kanada.
Samningarógiltir
Tveggja ára gamlir samningar
milli sænska Skandia og Gísla
Amar Lárussonar um sölu á
þriöjungs hlut hans vora ógiltir
í gerðardómi í gær. Samkvæmt
RUV er Gísli aftur eigandi að sín-
um gamla hlut og forstjóri fyrir-
tækisins.
Gengnirúrflokknum
Tveir úr forystusveit Alþýðu-
bandalagsmanna í Neskaupstað
eru gengnir úr flokknum vegna
óánægju meö Hjörleif Guttorms-
son.
Fjölskyldan hornreka
Fjölskyldan hefur veriö horn-
reka í þjóöfélaginu að mati Braga
Guðbrandssonar, aðstoöarmanns
félagsmálaráðherra. Þingsálykt-
unartillaga um fjölskyldustefnu
verður lögö fram í þingbyijun.
Sæmdur riddarakrossi
Eyjólfur Martinsson, konsúll i
Vestmannaeyjum, hefur af Dana-
drottningu veriö sæmdur ridd-
arakrossi af i. gráðu
Dannebrogsorðunnar.