Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Blaðsíða 51
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
59
Afmæli
Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson málari, Bláhöm-
rum 2, Grafarvogi, verður sjötíu og
fimm ára á mánudaginn, 23.1. nk.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Einarsstöðum
í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu
og ólst þar upp í foreldrahúsum.
Hann stundaði nám við Héraðsskól-
ann á Laugum á unglingsárunum
en fluttí tíl Reykjavíkur um tvítugt
og keyrði þar leigubíl á Litlu bíla-
stöðinni til 1948. Hann flutti síðan
tíl Vancouver í Kanada þar sem
hann stundaði nám í málaraiðn en
meistari hans var íslenskur, Óskar
Sigurðsson. Eftir að Sigurður lauk
náminu stundaði hann húsamálun
í Kanada hjá B.B. Janusson og son
til 1961 er hann kom aftur tíl íslands.
Eftír að Sigurður kom heim settí
hann og þáverandi kona hans, Sig-
ríður Gunnarsdóttir tískufræðing-
ur, á stofn tískuskóla sem þau starf-
ræktu 011964.
Siguröur flutti þá til Akureyrar
þar sem hann var barþjónn á Hótel
KEA í eitt ár og síðan verslunar-
maður hjá JMJ tíl 1969. Þá flutti
Sigurður aftur til Reykjavíkur þar
sem hann starfaði við gestamóttöku
Hótel Sögu í þrjú ár, var verslunar-
maður við Herratí zkuna í þrj ú ár
og starfaði við Sundlaugina í Breið-
holti í þrjú ár. Þá var hann húsvörð-
ur hjá Frjálsri fjölmiölun um skeið
en hefur starfað hjá Bandalagi ís-
lenskra skáta frá 1984.
Sigurður hefur málað myndir í
frístundum sínum.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist 1947 Sigríði
Gunnarsdóttur, f. 26.9.1927, dóttur
Gunnars Sigurðssonar, kaupmanns
í Von, og Margrétar Gunnarsdóttur
húsmóður. Sigurður og Sigríður
slitu samvistum.
Börn Sigurðar og Sigríðar eru
Lilja, f. 28.3.1949, húsmóðir og fyrrv.
frjálsíþróttakona á Akureyri, gift
Óla G. Jóhannssyni listmálara og
eiga þau flögur börn; Jón Gunnar,
f. 11.4.1955, tannsmiður í Reykjavík,
kvæntur Elsu Óskarsdóttur og eiga
þau þrjúbörn.
Sigurður átti tíu alsystkini og einn
hálíbróður en hann á nú tvo albræð-
ur á lífi og þrjár alsystur.
Foreldrar Sigurðar voru Jón Har-
aldsson, f. 6.9.1888, d. 1958, b. á Ein-
arsstöðum í Reykjadal, og k.h., Þóra
Sigfúsdóttir, f. 15.10.1893, d. 1979,
húsfreyja.
Ætt
Meðal fóðursystkina Sigurðar
voru Aðalbjörg, ekkja Magnúsar
Böðvarssonar, hreppstjóra á Laug-
arvatni. Jón var sonur Haralds, odd-
vita á Einarsstöðum, Sigurjónsson-
ar, b. á Einarsstööum, Jónssonar,
b. á Einarsstöðum, Jónssonar,
lamba, b. á Breiðumýri og umboös-
manns konungsjarða. Móðir Har-
alds ar Margrét, systir Kristján, afa
Stefáns Karlssonar handritafræð-
ings. Margrét var dóttir Ingjalds, b.
á Mýri i Bárðardal, Jónssonar, b. á
Mýri, bróður Sigurðar, föður Jóns,
alþingisforseta á Gautlöndum, afa
Haralds Guðmundssonar ráðherra
og langafa Jóns Sigurðssonar,
bankastjóra NIB. Móðir Jóns Har-
aldssonar var Ásrún, systir Kristín-
ar, móður Arnórs Sigurjónssonar
rithöfundar og Halldóru, fyrrv.
skólastýru, móður Kristínar, fyrrv.
alþm. Ásrún var dóttir Jóns, b. á
Rifkelsstöðum, ÓlafssonarogHall-
dóru, systur Einars, alþm. í Nesi.
Þóra var dóttir Sigfúsar, b. á Hall-
dórsstööum í Reykjadal, Jónssonar,
b. og smiðs á Sveinsstöðum, Jóns-
sonar, b. á Skútustöðum, Helgason-
ar, ættfoður Skútustaðaættarinnar,
Ásmunassonar. Móðir Sigfúsar var
Marja, hálfsystir, sammæðra, Þor-
gils gjallandi.
Móðir Þóru var Sigríður, systir
Siguröur Jónsson.
Sigurðar, skálds á Arnarvatni, og
Jóns, alþm. í Múla, fóður Árna,
alþm. frá Múla, fóður Jónasar. rit-
höfundar og fyrrv. alþm., og Jóns
Múla tónskálds. Sigríður var dóttir
Jóns, skálds á Helluvaði, Hinriks-
sonar af Harðabóndaætt. Móðir Sig-
ríöar var Friðrika Helgadóttír, ætt-
föður Skútustaðaættarinnar, Ás-
mundssonar.
Reimar Charlesson
Reimar Charlesson framkvæmda-
stjóri, Glaðheimum 24, Reykjavík,
verður sextugur á morgun.
Starfsferill
Reimar fæddist á Eskifirði og ólst
þar upp. Hann útskrifaðist frá Al-
þýðuskólanum að Eiðum 1950 og frá
framhaldsdeild Samvinnuskólans
1954.
Reimar var bæjargjaldkeri í Vest-
mannaeyjum frá 1954, hóf störf hjá
sjávarafurðadeild SÍS1957 en var
fljótlega sendur til starfa hjá Iceland
Products Inc. þar sem hann m.a.
aðstoðaði við flutning fyrirtækisins
frá New York til Harrisburg.
Reimar kom heim 1961 og ári síðar
tók hann viö starfi deildarstjóra í
Búsáhalda- og verkfæradeild inn-
flutningsdeildar SÍS þar sem hann
starfaði tíl 1980. Á þeim árum tók
hann þátt í norrænu samstarfl sam-
vinnufélaganna og átti sæti í inn-
kaupahópum norrænna og mið-
evrópskra innkaupanefnda sam-
vinnufélaganna fyrir búsáhöld,
verkfæri, sportvörur og leikfóng.
Reimar var framkvæmdastjóri hjá
Bátalóni hf. í Hafnarfirði 1980 og
framkvæmdastjóri hjá Trésmiðj-
unni Víöi hf. 1981 til ársloka 1983
er hann stofnaði sitt eigið fyrirtæki,
Íslensk-skandinavíska hf. Fyrirtæk-
ið flytur inn tilsniðið efni í hús og
sumarbústaði. Auk þess starfrækir
hann systurfyrirtækið RC og Co hf.
sem annast útflutning á sjávaraf-
urðum.
Fjölskylda
Reimar kvæntist 23.4.1975 Björgu
Hjálmarsdóttur, f. 1.6.1933, húsmóð-
ur. Hún er dóttir Hjálmars Vil-
hjálmssonar ráðuneytisstjóra og
Sigrúnar Helgadóttur húsmóður
sem bæði erulátin.
Börn Reimars frá fyrra hjóna-
bandi eru Heiða Björk, f. 29.3.1955,
húsfreyja á Hallbjarnarstöðum í
Skriðdal, gift Magnúsi Karlssyni, b.
þar og eiga þau einn son; Kristín
Helga, f. 14.12.1956, húsmóðirí
Kópavogi, gift Sigurvini Einarssyni
flugmanni og eignuðust þau þrjú
börn en tvö þeirra eru á lffi; Jóhann
Ingi, f. 26.7.1958, verkamaður í
Reykjavík, kvæntur Sigurvinu Hall-
dórsdóttur og eiga þau tvö börn;
Linda Sólveig, f. 23.1.1970, nemi í
Reykjavík.
Börn Bjargar og fósturbörn Reim-
ars eru Sigrún Bergsdóttir, f. 14.10.
1956, flugfreyja í Reykjavík og á hún
tvö börn; Óskar Bergsson, f. 20.9.
1961, húsasmiður í Reykjavík en
sambýliskona hans er Jóhanna
Björnsdóttir kennari og á hann þrjú
börn frá fyrra hjónabandi; Lára
Gyða Bergsdóttir, f. 5.7.1968, starfs-
maður viö Ofnasmiðjuna, gift Níelsi
Hafsteinssyniþjóni.
Systur Reimars eru Erla Charles-
dóttir, húsmóðir á Eskifirði, gift
Reimar Charlesson.
Magnúsi Bjarnasyni, framkvæmda-
stjóra Hraðfrystihúss Eskiflarðar,
og eiga þau þrjú börn; Anna Magnea
Charlesdóttir, húsmóðir í Mos-
fellsbæ, gift Gunnar Hjálmtýssyni,
framkvæmdastjóra Vélsmiðjunnar
Orra í Mosfellsbæ, og eiga þau tvö
börn. 1
Foreldrar Reimars voru Charles
Magnússon, vegaverkstjóri á Eski-
firði, ogHelga Hjartardóttir, hús-
móðiráEskifiröi.
Reimar og Björg taka á mótí gest-
um í félagsheimili lögreglumanna
að Brautarholti 30, milli kl. 16.00 og
18.00 á afmælisdaginn.
Björgvin Pálsson
Björgvin Pálsson, myndasmiður og
klippari við fréttastofu ríkissjón-
varpsins, til heimihs að Álfatúni 25,
Kópavogi, verður fertugur á morg-
un.
Starfsferill
Björgvin fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Kópavogi. Hann sat tvo
vetur í MT en hóf þá störf við frétta-
ljósmyndun á Vísi. Hann starfaði
við Dagblaðið er það var stofnað og
síðan hjá Frjálsu framtaki og SAM-
útgáfunni.
Björgvin lærði síðan offsetljós-
myndun og plötugerð hjá Svans-
prenti og Prentmyndastofunni.
Hann gerðist ljósmyndari ríkissjón-
varpsins og starfaði þar við ljós-
myndun og kvikmyndaframköllun
til 1988 en er nú klippari þar.
Björgvin hefur haldið flölda ljós-
myndasýninga á hinum ýmsu svið-
um ljósmyndunar allt frá 1975.
Þekktustu myndir hans eru unnar
með Gum-Bicromat tækrn en þá
tækni hefur hann sýnt í París,
Mílanó, á nokkrum stöðum í Finn-
landi, í Reykjavík og víöar.
Fjölskylda
Björgvin kvæntist 2.7.1978 Sig-
rúnu Stellu Karlsdóttur, f. 1.2.1954,
skrifstofumanni hjá Heilsuhringn-
um og Samvinnuferðum-Landsýn.
Hún er dóttir Karls Júlíussonar,
sem er látinn, og Guðrúnar Jacob-
sen, rithöfundar í Reykjavík.
Börn Björgvins og Sigrúnar Stellu
eru Júlía Björgvinsdóttir, f. 10.3.
1978; Ásthildur Björgvinsdóttir, f.
4.7.1980, nemi; ElísabetBjörgvins-
dóttir, f. 5.8.1983, nemi; Stefania
Björgvinsdóttir, f. 27.1.1987, nemi.
Dóttir Sigrúnar Stellu frá fyrri sam-
búð erSvavaHelga.
■ Systir Björgvins er Margrét Páls-
dóttir, f. 1.6.1959, húsmóðir á Sel-
tjarnarnesi, gift Sverri Agli Berg-
mann stórkaupmanni og eru börn
þeirra Páll og Sara Margrét.
Foreldrar Björgvins: Páll Þorláks-
Björgvin Pálsson.
son, f. 6.9.1934, d. 28.5.1986, formað-
ur LÍR, og Ásthildur Pétursdóttir,
f. 11.6.1934, fararstjóri og fyrrv.
bæjarfulltrúi í Kópavogi.
Björgvin tekur á mótí gestum í sal
Hamraborgarráösins, Hamraborg
38, við norðurhlið Félagsheimilis
Kópavogs, í dag, laugardaginn 21.1.,
millikl. 17.00 og 19.00.
Til hamingju meö daginn 22. janúar
ziYr1 Gnoðarvogi 84, Reykjavík.
Guðlaugur Stefánsson, 50 3T3
Hrafnistu viö Kleppsveg, Reykjavúk. "11 ri
Silfurgötu 43, Stykkishólmsbær. ÖO ara Hinrik L. Hinriksson,
Soffja Jónsdóttir, Álfheiður Skarphéöinsdóttir, Austurbrún 4, Reykjavik. Hæðargötu 3, Keflav.-Njaröv.-Höfnum.
Of| qu— Háaleitisbraut 107, Reykjavík. ÖU ara Kristín Garðarsdóttir,
Grunclargarði 1, Húsavík. Jón Valgeir Otafsson, Auðhjörg Jónsdóttir, Búðarstig lOb, Eyrarbakka. Hólabraut 4a, Hafnarfirði.
yc Dvergabakka 32, Reykjavík. ■ O Öl Heiðar bórðarson,
Lækjarhvammi 4, Dalabyggð. OhjfOiafsdóttir, Ragnar Eiriksson, Hamarstræti 47, Akureyn. Skagfirðingabraut 13, Sauðárkrókí. Auður Sigurjónsdóttir, Grænumörk 5, Selfossi. . _ , 40 ara
'V' Oía Ragna Ósk Ragnarsdóttir,
u . Kikariundi 3, Akureyn. Hjordis Helgadotfar, Jóhannes Pálmi Hinriksson, Smyrlahraum 24, Hafnarfiröi. víðibergi 7, Hafnarfirði. Maria Kristí.n Hermundsdóttir, A.^ur0j'r* . Ekrugötu 2, Öxaríjarðarhreppi. Ástrxður Sigurjónsdóttir, Jóhanna Soffia Óskarsdóttir, Drapuhbð 42, Reykjavik. Hlíöarföalla 14, Kópavogi.
Þórður Ragnarsson, OO ái*a Þórustíg 9, Ketlav.-Njarðv.-Höfnum. OU ara Claude Lebigre,
o u-•• ,, o ... Ægisíðu 109, Reykjavík. Snæbjorn Þ. Snæbjornsson, Rauöahjalla 13, Kópavogi. Nanna Guðmundsdóttir, Huldubraut 29, Kópavogi.
Valdimar Hallur
Sigþórsson
Valdimar Hallur Sigþórsson sjó-
maður, Álfhólsvegi 125, Kópavogi,
verður fertugur á morgun.
Starfsferill
Valdimar fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hann byrjaði til sjós
1970 og var á togurum hjá ÚA á
Akureyri á árunum 1970-75 en flutti
þá til Reykjavíkur og hefur síðan
lengst af verið á togurum frá
Reykjavík.
Fjölskylda
Eiginkona Valdimars er Guðrún
Ósk Sæmundsdóttír, f. 5.5.1955, hús-
móðir. Hún er dóttír Sæmundar
Magnúsar Óskarssonar, f. 6.12.1915,
d. 11.8.1989, og Elínar Guðrúnar
Ingibjargar Ingimundardóttur, f.
16.9.1914, d. 25.10.1984.
Böm Valdimars og Guðrúnar Ósk-
ar eru Sigþór Már Valdimarsson, f.
11.8.1983; Auöur Ösp Valdimars-
dóttir, f. 11.8.1983; Elín Rós Valdi-
marsdóttir, f. 1.9.1993. Fóstursonur
Valdimars er Haraldur Birgir Þor-
kelsson, f. 21.12.1974.
Systkini Valdimars eru Anton
Grétar Sigþórsson, f. 25.2.1952, vél-
Valdimar Hallur Sigþórsson.
virki á Akureyri; Þorbjörg Auður
Sigþórsdóttir, f. 5.2.1959, húsmóðir
á Flateyri; Sigþór Sigþórsson, f. 15.7.
1960, stúdent frá Tækniskólanum á
Akureyri.
Foreldrar Valdimars: Sigþór
Valdimarsson, f. 27.11.1931, d. 3.3.
1977, vélstjóri, og Auður Antons-
dóttir, f. 5.4.1932, verkakona.
Valdimar er að heiman.