Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Side 3
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
3
Fréttir
Að elska er að lifa var með söluhæstu j ólabókunum:
Útgefendur höfðu ekki trú á bókinni
Sjórflæðir
upp á tún
íVogunum
Ægir Már Kárason, D V, Suðumesjum:
„Sjórinn flæðir langt upp á
tún hér í Vogunum og oft hefur
frystihúsið veriö í mikillihættu
þegar veður hafa verið slæm
eins og síðustu daga. En við
vonum að það heyri fljótt sög-
unni til með þeirri framkvæmd
sem nú stendur yflr," sagði Jó-
hanna Reynisdóttir, sveitar-
stjóri í Vatnsleysustrandar-
hreppi, I samtali við DV.
Til að breyta þessu ástandi
stendur nú sem hæst yfir vinna
við sjóvarnargaröa í Vogunum.
Veriö er að koma upp öflugum
vamargörðum á svæðið upp frá
höfninni. Þessar framkvæmdir
munu kosta sveitarfélagið þrjár
milljónir króna.
Schwarzk^f
Hárlakk - Froður - Gel
Gœði á góðu
verði -
Fœst í nœstu
verslun
- Gunnari Dal afhentur Davíðspenninn í dag
„Stærstu útgefendur höfðu ekki trú
á bókinni og töldu að hún mundi
ekki seljast. Þess vegna er skemmti-
iegt að sala hennar skyldi ganga
svona vel,“ sagði Hans Kristján
Árnason við DV.
Að elska er aö lifa, bókin þar sem
Hans Kristján Árnason ræðir við
Gunnar Dal, seldist í um 6.200 eintök-
um fyrir jólin. Samkvæmt upplýs-
ingum sem DV hefur aflað er hún
því þriðja söluhæsta bókin í jóla-
bókaflóðinu í ár. Góð sala bókarinn-
ar er athyglisverð þegar haft er í
huga að Hans Kristjáni gekk mjög
illa að sannfæra stærstu útgefendur
um að þeir ættu að gefa bókina út.
Fékk hann afsvar hjá stærstu forlög-
um. Fór svo aö lokum að hann gaf
bókina út á eigin spýtur og sér vart
eftir því.
í DV í gær var fjallað um sölu-
hæstu bækurnar fyrir jólin en vegna
mistaka var bókar Hans Kristjáns
ekki getið. Er beðist velvirðingar á
þeim mistökum.
í umfjöllun DV var byggt á tölum
frá útgefendum og samkvæmt þeim
var bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar
söluhæst, seldist í 11.700 eintökum. í
ööru sæti kom Ómar Ragnarsson
með Fólk og firnindi en hún seldist
í 8.800 eintökum.
Efstur hjá Eymundsson
Til samanburðar við tölur útgef-
enda fékk DV sölulista Eymundsson-
ar og Hagkaups síðustu tvo mánuði
fyrir jól en þessir aðilar eru fyrir-
ferðarmiklir í bóksölunni og óháðir
útgefendum. Efst á sölulista allra
bókaverslana Eymundssonar, sem
miðast við söluna 1.11.-31.12. og skil,
er bók Hans Kristjáns og Gunnars
Dal. Ekki fengust uppgefnar tölur á
bak við hvert sæti en þó fékkst upp-
gefið að bók Hans Kristjáns væri
langt ofan við næstu bók, Snigla-
veisluna. Grandavegur 7 er í þriðja
sæti, Villtir svanir í fjórða, Fólk og
flrnindi í fimmta, Enn fleiri athugan-
ir Berts í sjötta og Bankabókin í sjö-
unda, en hún kom inn á listann þeg-
ar skilum var lokið.
í Hagkaupi var Sniglaveislan sölu-
hæst, seldist 2.367 eintökum að lokn-
um skilum. Enn fleiri athuganir
Berts varð önnur með 1.558 eintaka
sölu, Fólk og firnindi þriðja, seldist
í 1.441 eintaki, Grandavegur 7 fjórða,
seldist í 1.211 eintökum og Að elska
er að lifa fimmta, seldist í 1.186 ein-
tökum.
Félag íslenskra rithöfunda mun í
dag heiðra Gunnar Dal með því að
afhenda honum Davíðspennann við
athöfn í Perlunni. Fær Gunnar
Davíðspennann fyrir áratuga ritstörf
og bókina Að elska er að lifa.
Orka 113 kcal*
Orka 473 kJ*
Prótín 4 g*
Kolvetni 21,4 g*
Fita 2,1 g*
Natríum 314 mg*
Kalíum 105 mg*.
A-vítamín 38% (RDS)
Þíamín 27% (RDS)
- Níasín 27% (RDS)
Kalsíum 5% (RDS)
■f--- D-vítamín 10% (RDS)
B6-vítamín 25% (RDS)
C-vítamín 25% (RDS)
Fólínsýra 25% (RDS)
Cheerios
FÆBUHRINGURINN
Það er samhengi á milli mataræðis og héilsu.
Heilsan er dýrmæt og þess vegna er ætíð skynsamlegt að huga að samsetningu
fæðunnar sem við neytum. Cheerios er ríkt af hollustuefnum og inniheldur
sáralítið af sykri og fitu. 1 hverjum Cheerios „fæðuhring" er að finna bragð af
góðum, trefjaríkum og hollum mat; fyrir fólk á öllum aldri.
w
*1 skammtur eða 30 g.
RDS: Ráðlagður dagskammtur.
ðuT haettir ekki að borða Kollan mat með a j
M^UThæt
Cheerios - einfaldlega hollt!
*