Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Side 6
6
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
Stuttar fréttir
Utlönd
Gódjólaverslun
Jólaverslunin gekk betur í Sví-
þjóð en kaupmenn höí'ðu gert sér
vonir um.
Rittihugar
Ritt Bjerre-
gaard, fulitrúi
Dana í fram-
kvæmdastjóm
ESB, ætlar á
mánudag að
svara beiðni
danska flár-
málaráðherr-
ans um að hún afsali sér eftir-
launum sínum sem ráðherra.
Armaniiofaður
Tískukóngurinn Armani fékk
mikið lof fyrir búninga sína í
óperunni Cosi fan tutte í konung-
legu bresku óperunni.
Dansbann af numið
Tillaga um að afnema bann við
dansi og skemmtan á páskum og
helgum dögum nýtur mikils
stuðnings í norska þinginu.
Rættumfisk
Norðmenn og ESB ræða gagn-
kvæma fiskveiðikvóta 1 næstu
viku og verður makríllinn mest-
ur ijár í þúfu.
TreystaBalladur
Flestir Frakkar treysta Ballad-
ur forsætisráöherra til að fara
með efnahagsmálin.
, Sættir í Suður-Afríku
Sættir hafa náðst í deilu forseta
og varaforseta Suður-Afríku og
heldur stjórnin því velli.
Bazargan allur
Mehdi Ba^argan, fyrsti forsæt-
isráðherra írans eftir fall keisar:
ans, lést í Sviss í gær, 86 ára.
Prins siasast
Elsti sonur Hollandsdrottning-
ar slasaöist lítillega í umferðar-
slysi á þýskri hraðbraut í gær.
Tíufarast
Tíu manns fórust þegar lítil
einkaþota fórst skömmu eftir
flugtak frá Le Bourget flugvelh í
París í gær.
Páfi fermeðfriði
Jóhannes Páll
páfi kom til Sri
Lankaígærþar
sem búddatrú-
armenn eru í
meirihluta og
ságðist aðeins
vera með frið i
hjarta en
búddatrúarmenn saka hann um
að hafa móðgað trú þeirra.
Minna mannfall
Rússneskur hershöfðingi segir
mannfaR í Tsjetsjeníu minna en
afsé látið. Reuter
Kauphallir:
Hlutabréf hafa
lækkaðíverði og
bensín hækkað
Áhyggjur af verðbólgu í Bretlandi
höfðu þau áhrif á veröbréfamarkaö-
inn í Lundúnum á fimmtudag að
hlutabréf lækkuðu í verði og var
FT-SE 100 3.028,6 þegar kauphöllinni
var lokað á fimmtudagskvöld. Hluta-
bréf lækkuðu einnig í veröi í New
York, Frankfurt, Hong Kong og
Tokyo.
Verö á sykri í Lundúnum hefur
lækkað nokkuð síðustu daga og sama
gildir um kaffi á mörkuðum í
Chicago. Verð á 92 oktana bensíni
hækkaði hins vegar lítillega og hrá-
olía hækkaði einnig í verði meðan
verð á 98 oktana bensíni hélst svo til
óbreytt.
Var í heimsókn hjá foreldrunum þegar jarðskjálftinn varð:
Gingrichsakar
01 barn eftir þrjá
daga í rústunum
- læknar óttast inflúensufaraldur í Kobe vegna kuldans
Yuko Ukon, 33 ára kona, var í
heimsókn hjá foreldrum sínum í
Kobe þegar jarðskjálftinn mikli reið
yfir á mánudagskvöld. Hún var ó-
frísk en í gærmorgun ól hún heil-
brigt stúlkubarn, þremur dögum eft-
ir að henni var bjargað undan húsa-
rústunum.
Yuko var sofandi þegar skjálftinn
varð. Stór kommóða féll yfir hana
og kom í veg fyrir að hún gæti hreyft
sig. Það vildi henni, og barninu sem
hún gekk með, hins vegar til happs
að hún lá á hliðinni þannig að allur
þungi kommóðunnar hvíldi á
mjaðmagrind hennar.
Björgunarsveitarmenn grófu upp
að minnsta kosti sjö manns úr
rústum Kobe í gær, ailt eldri konur
sem höföu verið án matar og vatns
í þrjár frostnætur.
Læknar vöruðu við því í gær að
inflúensufaraldur kynni að koma
upp meðal fórnarlamba jarðskjálft-
ans vegna kuldans sem er í Kobe.
„Við höfum þungar áhyggjur af
inflúensufaraldri, einkum meðal
barnanna. Mörg börn eru þegar
komin með sótthita," sagði Shunichi
Fukuda, talsmaður borgarsjúkra-
hússins í Kobe.
Tomiichi Murayama, forsætisráð-
herra Japans, sætti harðri gagnrýni
á fyrsta degi þingsins. Stjórnarand-
stæðingar sökuðu stjórnvöld um
seinagang í hjálparstarfinu en mörg
hundruð þúsund manns eru heimil-
islaus. Bænastund nægði ekki einu
sinni til að lægja reiðiöldurnar.
En mitt í allri reiðinni og óttanum
berast fréttir sem fylla björgunar-
sveitarmenn -von, eins og björgun
kvennanna sjö.
Þá gaf maður, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, sem svarar fjórtán
milljónum íslenskra króna til hjálp-
arstarfsins. Reuter
Yuko Ukon, 33 ára kona, sem lá föst undir hrundu húsi foreldra sinna í
þrjá daga eftir jarðskjálftann i Kobe, bendir stolt á stúlkubarn sem hún ól
í gærmorgun. Barninu heilsast vel. Símamynd Reuter
demókratana
umsamsæri
Newt
Gingrich, for-
seti fulltrúa-
deildar Banda-
ríkjaþings, sak-
ar demókrata
um að hafa gert
samsæri um að
eyðileggja sig
vegna þess að þeir séu sárir yfir
að hafa misst meirihlutann í
þingdeildinni.
Þingfundur á fimmtudag leyst-
ist upp í hróp og köll, annan dag-
inn i röð, þegar demókratarnir
veittust enn á ný að Gingrich fyr-
ir bókasamning hans við útgáfu-
fyrirtæki Ruperts Murdochs.
Jafnvel hörðustu íhaldsmenn
hafa ráðlagt þingforetanum að
rifta samningnum, sem er talinn
ákaflega ábatasamur, en hann
þráskallast við.
„Ég ætla að skrifa bók, ég tel
mig hafa rétt til þess að skrifa
bók,“ sagði hann.
Nauðganirog
mannátásviði
vaida hneyksian
Breskir leikhúsgagnrýnendur
og gestir ná ekki upp í nefíð á sér
af hneykslan yfir leikriti sem var
frumsýnt á fimmtudagskvöld í
Lundúnum. Það sem fór fyrir
bríóstiö á þeim voru homma-
nauðganir og barnaát og annaö
ofbeldi.
Verkiö heitir Blasted og er sýnt
í litlu tilraunaleikhúsi, Royal
Court, sem hefur áður hneykslað
með uppfærslum sínum.
Stykkið, sem er eftir hina 23 ára
gömlu Söruh Kane, gerist á
subbulegu hóteh og segir frá
dauövona æsiblaöamanni og and-
lega vanheilli kærustu hans.
Kolklikkaður hermaður ræðst
inn til þeirra og þaðan í ffá rekur
hvert oíbeldisatriðið annað.
Færeyska lög-
þingiðkrefst
rannsóknar
Sögur um ástarleiki uppspuni
Ken Stronach, fyrrum tryggur
einkaþjónn Karls Bretaprins, viður-
kenndi í gær að hafa tekið myndir á
heimili Karls á laun en sagði að sög-
ur um ærslafulla ástarleiki ríkisarf-
ans og hjákonu hans, sem birtust í
æsiblaði, væru uppspuni.
Á einni myndanna sést tvíbreitt
rúm Karls og mun mynd af Camillu
Parker-Bowles hjákonu vera á nátt-
borðinu. Stronach verður ávíttur
fyrir tiltækið, að sögn lögfræðings
Karls prins, og dómari hefur úr-
skurðað aö þjóninum sé ekki heimilt
að ræða um starf sitt.
Þjónninn harðneitar að hafa þegið
fé frá News of the World æsiblaðinu
en staðfestir að hann hafi hitt einn
af blaðamönnum þess. Þá segir hann
að blaðamaðurinn hafi ekki haft rétt
eftir sér þar sem meirihluti þess sem
blaðið segir frá, þar á meöal sögur
af ástarleikjum Karls og Camillu úti
undir berum himni, hafi aldrei gerst.
Æsiblaðiö hafði eftir þjóninum á
sínum tima að hann heföi þvegið for-
ug náttfót prinsins eftir aö hann
laumaðist út til að eiga ástarfundi
með frillunni á meðan Díana prins-
essa svaf værum svefni inni á sveit-
arsetri þeirra hjóna.
Karl og Díana hafa nú verið skilin
að borði og sæng í tvö ár. Camilla
og eiginmaður hennar fengu skilnað
á fimmtudag og hefur það kynt undir
vangaveltum manna um að Karl og
Díana fari sömu leið.
Stronach undirritaði þagnareið
þegar hann gekk í þjónustu prinsins.
Ef hann verður rekinn missir hann
1300 þúsund króna árslaun, auk húss
ogbílssemfylgirstarfinu. Reuter
Kauphallir og vöruverð erlendis |
—=
Þingmenn á færeyska lögþing-
inu samþykktu einróma á
fimmtudagskvöld tillögu um að
fram færi opinber rannsókn á því
hvernig bankasamruninn á eyj-
unum 1993 kom tJL í ljós heftir
komiö aö hann muni kosta fær-
eyska skattgreiðendur um það bil
tíu milijarða íslenskra króna.
í tillögunni er færeysku lands-
stjóminni falið að snúa sér til
danskra stjórnvalda til að fá þau
til að hefja rannsóknina svo hægt
verði að ganga úr skugga um
hver beri ábyrgðina.
Poul Nymp Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur, hefur
lýst sig fylgjandi slikri rannsókn.
Reyntaðkoma
Hvala-Watsoní
steininn
Hvalveiði-
fjandinn Paul
Watson kann
aö þurfa að
dúsaí amerísku
fangelsi fyrir
aðgerðir sínar
gegn hvalveið-
umNorðmanna
ef norskir saksóknarar fá ósk
sína um að hann geti afplánað
norska refsidóma í amerísku
fangelsi uppfyllta.
Watson og kærasta hans, Lisa
Distefano, voru dæmd til fiögurra
mánaða fangelsisvistar í fyrra-
sumar fyrir tilraunir til að
sökkva hvalveiðibátnum Nyb-
ræna. Reuter,Ritzau,NTB