Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Page 7
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
7
Fréttir
Haukar-Braga 1 Evrópukeppninni í handknattleik:
Ætlum að verja heiðurinn
- segir Einar Þorvarðarson
Haukar þurfa 13 marka sigur
gegn portúgalska liðinu Braga til
að tryggja sér sæti í undanúrslitum
Borgarkeppni Evrópu í handknatt-
leik en liðin leika síðari leik sinn í
keppninni í Hafnarfirði annað
kvöld og hefst leikurinn klukkan 20.
Eins og kunnugt er þá töpuðu
Haukar með 12 marka mun í Portú-
gal um síðustu helgi og því má segja
að Haukarnir þurfi kraftaverk til
að að komast áfram í keppninni.
Leikmenn og forráðamenn Hauka
hafa ekki lagt árar í bát og telja að
með mjög góðum leik og öflugum
stuðningi áhorfenda leynist smá-
von.
„Þessi leikur verður fyrst og
freinst leikur til að reyna að rétt-
læta getu liðsins og verja heiður
félagsins. Við fórum í leikinn til að
vinna og við verðum aö sjá hvað
við getum farið langt með það,“
sagði Einar Þorvarðarson, aðstoð-
arþjálfari Hauka, við DV í gær.
„Við komum jafnvel til með aö
sprengja upp leikinn, fá upp hraða
og gá hvort við getum eitthvað náð
í áttina í þessi 12 mörk. Ég var með
Selfossliðið í fyrra og við töpuðum
með 12 mörkum úti en unnum
heimaleikinn með sama mun og
það eitt sýnir að allt er hægt i
þessu,“ sagði Einar.
Reykj aneskj ördæmi:
Prófkjör
Alþýdu-
flokksins
um helgina
Prófkjör Alþýðuflokksins í Reykja-
neskjördæmi fer fram um helgina.
Þátttakendur í prófkjörinu eru sjö.
Það eru þingmennimir Guðmundur
Árni Stefánsson, Rannveig Guð-
mundsdóttir og Petrína Baldursdótt-
ir. Að auki eru í framboði Gizur Gott-
skálksson læknir, Garðar Smári
Gunnarsson verkstjóri, Hrafnkell
Óskarsson læknir og Elín Soflía
Harðardóttir matreiðslumaður.
Prófkjörið hefst klukkan 13.00 í dag
og stendur til klukkan 18.00. Það
hefst svo að nýju klukkan 10.00 á
morgun, sunnudag, og stendur til
klukkan 20.00. Byrjaö verður að telja
atkvæði klukkan 16.00 á morgun og
er búist við fyrstu tölum upp úr
klukkan 21.00.
Kjörstaðir eru Hlégarður í Mos-
fellsbæ, Hrólfsskálavör 11 á Seltjarn-
arnesi, Félagsheimili Alþýðuflokks-
ins í Kópavogi, Alþýðuhúsið við
Strandgötu í Hafnarfirði, Verkalýðs-
húsið í Grindavík, Stapi í Njarðvík,
Félagsbíó í Keflavík, Verkalýðsfé-
lagshúsið í Sandgerði og Vogagerði
12 í Vogum.
Til þess að kjörseðill sé gildur verð-
ur að kjósa í fjögur efstu sæti fram-
boðslistans með því að setja 1 fyrir
framan nafn þess sem viðkomandi
vill í fyrsta sætið, 2 fyrir framan
nafn þess er hann vill í annað sætið
og svo framvegis. Kjörseðill er ógild-
ur ef kosið er í færri en fjögur efstu
sætin.
Kjarasamningamir:
Eins og allt
sitji fast
- segirformaöurVSFKN
„Það hefur hreinlega ekkert gerst
í þessum málum. Það er eins og allir
séu að bíða eftir því að við í Flóa-
bandalaginu gerum eitthvaö," sagði
Kristján Gunnarsson, formaður
Verkalýðs- og sjómannafélags Kefla-
víkur og nágrennis, þegar DV ræddi
við hann í gær rétt áður en samn-
ingafundur forráðamanna þess og
VSÍ hófst í gær.
Kristján sagði að það stæði allt fast.
Vissulega hefðu menn veriö að tala
saman og verið uppi með einhveijar
þreifmgar en lítið eða ekkert út úr
þeim komið. Hann sagðist undrandi
á hve landssamböndin innan Al-
þýðusambandsins væru róleg og
áhugalaus. Það væri eiginlega bara
verslunarmenn og Flóabandalagið
sem eitthvert lífsmark væri með í
kj arasamningunum
Aktu eins og þu vilt
nð adr
að aorir aki!
OKUM EINS OC MCNN'
UUMFEROAB
RAO
J
Tveir gjalddagar
og engin
sjálfsábyrgð...
...þegar þú ábyrgðartryggir bílinn hjá TM
,J| greiðslur á ábyrgðartryggingum skiptast niður á tvo
gjalddaga á ári, 1. mars og 1. september.
sjálfsábyrgð í ábyrgðartryggingum er engin, óháð
því hver ekur eða hversu mikið er ekið. Sjálfsábyrgð
foreldra er heldur engin ef ökumaður er barn þeirra.
TRYGGINGAMIÐSTOÐIN HF.
- þegar mest á reynir!
o
o
Aðalstræti 6-8,101 Reykjavík, sími 26466.