Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995 Vísnaþáttur___ Indriði á Fjalli Indriði Þórkelsson fæddist áriö 1869 í Sýrnesi í Aðaldal í S-Þing. Ólst sveinn upp á Syðra-Fialli í Aðaldal en árið 1896 hóf hann bú- skap á næsta bæ, Ytra-Fjalli, og bjó þar til ársins 1930. Lagði hann um daga sína stund á alþýðleg fræði og þá þingeysk einkum og ættvísi. Safn fróðleiksþátta Indriða kom út í bókinni Milli hafs og heiða er út kom árið 1947. Það herrans ár 1939, er Indriði var sjötugur að aldri, kom út safn kveðskapar hans og heitir það rit Baugabrot. Kveöskap- ariðkan Indriða var afurö tóm- stunda hans og eins og getur um í formála ljóðmæla hans oft til orðin í búgæslu og við annan starfa þar nyrðra. Kveðskapurinn varð því aldrei nema hjábarn búskapar og fræðaiðkana og voru því kviðling- amir kannski hripaðir niður er dæguramstrið var að baki. Víst er það að vér hin fávísu lýö- menni viljum ætíö þekkjast ein- faldan og þægilegan sannleik. Reynist hann þó oft hin argasti villuvegur og kennist oss ekki þó reynslan sýni annað. Svo kveður Indriði: Ærið mörgu er í lýð, um æfina búið að ljúga, en hann reynist ár og síð, óbilandi að trúa. Einhverri blindni hefur sá verið sleginn er fékk aðvörun þessa frá skáldbóndanum: Ef þér heppnast ekki að sjá, að sú bráð er voði, mannvitsfiskur þinn er þá þunnur mjög í roði. Móðir náttura er í senn gjafmild og grimm og urðu feður vorir þess oft vitni. Svo kveður Indriði: Ég er tíðum göngugjarn, gramur hýði þýðu. Eg er víðavangsins bam, vanur blíðu og stríðu. Oft vefjast æskuárin bjartri geislamóðu þegar fram líða stund- ir. Er Indriða efst í hug sólskinið: Þegar æskan átti völd, allt var þá með snilli. Sólskinsmorgnar, sólskinskvöld, sólskin þar á milli. Eitthvað hefur Jón þessi farið villur vegar er Indriði kveður þessa vísu: Lög þótt banni leikinn þann, látum hann í friði. Jón er annars einn sem kann enga mannasiði. Er sá hinn sami var óvenju skuggalegur að líta kvað Indriði: Vinnur dyggur degi tjón, drýgir nætursjóði. Ystu myrkrin ertu, Jón, íklædd holdi og blóði. Nokkuð hefur vegferð þess verið annarleg er Indriði kveður svo um: Vísnaþáttur Valdimar Tómasson Má af Óla sögu sjá, sá hefur lent í flækjum, gegnum heiminn oltið á ýmsum farartækjum. Um misgjöfulan veiðiskap manns nokkurs kveður Indriði: Víst er hann Bjarni veiðinn, þó verði rýrt til bjargar: Drengir tala um dauðan sjó dregur hann ýsur margar. Ekki hefur það verið mikil frægð- arför sem Indriði kvað svo um: Suður og út um sveitir hér, svartur af trúargrómi, ekur Bjöm á sjálfum sér sínum vesældómi. Að lokum er hér hughreysting og áskorun um að æðrast ekki þótt éitthvað bjáti á: Mér finnst oft er þrautir þjá, þulið mjúkt við eyra: „Þetta er eins og ekkert hjá öðm stærra og meira.“ LÁTTU EKKl 0F MIKINN HRAÐA VALDA ÞÉR SKAÐA! Askrifendur DV 10% aukaafslátt af smáauglýsingum vvxvvxv Z7" AUGLYSINGAR Þverholti 11 -105 Réykjavík Sími 563 2700 - Bréfasími 563 2727 Græni síminn: 99-6272 (fyrir landsbyggðina) OPIÐ: Virka daga kl. 9-22 Laugardaga kl. 9-14 Sunnudaga kl. 16-22 Athugið! Smáauglýsingar í helgarblað DV verða að berast fyrir kl. 17 á föstudögum. Matgæðingnr vikuimar_________________ x>v J apönsk veisla „Ég hef haft mjög mikinn áhuga á að kynna mér austurlenska matargerð og legið í kokkabókum. Reyndar á ég eina stóra með austurlenskum réttum sem ég hef notað mikið. Það hefur komið mér á óvart hversu auðvelt er í rauninni að elda þessa rétti,“ segir Guðný Helga Gunnarsdóttir, kennari og matgæðingur vikunnar. Guðný Helga ætlar að bjóða upp á japanska rétti sem vafalaust margir hafa gaman af að prófa. Hún lofar þvi að þetta sé einfalt að gera og mjög ljúf- fengt að borða. „Eg hef boðið gestum upp á þessa rétti við mikla hrifningu, meira að segja fullorðnu fólki sem var hálf- hissa fyrst,“ útskýrir Guðný. Hún segir auðvelt að nálgast allt þaö sem í réttina fer t.d. í Kryddkofanum, Heilsuhúsinu, Pipar og salti eða verslunum Nóatúns. „Það er mjög vinsælt á mínu heimili að hafa austur- lenska rétti,“ segir hún. í forrétt hefur Guðný valið marineraöa smálúðu og í aðalrétt býður hún upp á svínalundir á japanska vísu. Marineruð smálúóa 500 g smálúðuflök eða ýsa salt hálfur bolli ljóst milt vínedik 2 msk. kalt vatn 2 msk. sykur 4 msk. rifnar gulrætur 4 msk. rifln kínahreðka steinselja til skrauts Sósa 1 tsk. rifin engiferrót 3 msk. japönsk sojasósa 2 msk. milt ljóst vínedik 1 msk. sykur Því sem í sósuna fer er blandað saman og hrært vel saman þar til sykurinn hefur verið leystur upp. Salti er stráð á smálúðuflökin og nuddað vel inn í þau og þau síðan geymd í kæli í að minnsta kosti 3 klst. Þá er saltið skolaö eða þurrkað af. Flökin eru síðan skorin í 4-5 sm lengjur langsum og síðan í þunn- ar sneiðar. Sneiðarnar síðan marineraðar í ediks-, vatns- og sykurblöndunni í 30-60 mínútur. Borið fram á litlum diskum sem forréttur með 1 msk. af gulrótum og hreðkum og skreytt með steinselju. Sósan sett í litl- ar skálar fyrir hvem og einn. Fiskinum er síðan dýft í sósuna áður en hann er borðaður. Gott er einnig að hafa wasabi með sem er mauk úr grænni piparrót sem fæst í duftformi og er hrært upp með vatni. Svínasneiðar 2 svínalundir 4 msk. japönsk soja 4 msk. mirim eða þurrt sérrí Hinhliðm Konur eru flestar sætar - segir Broddi Broddason fréttamaður Ekki hugmynd. Þær eru flestar sætar. Ertu hlynntur eða andvígur rikis- stjórninni? Velviljaður. Hvaða persónu langar þig mest að hitta? Ferdinand. Uppáhaldsleikari: Sir John. Uppáhaldsleikkona: Kristbjörg Kjeld. Uppáhaldssöngvari: Bjöggi. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Jón- as Jónsson frá Hriflu. Uppáhaldssjónvarpsefni: Knatt- spyma og náttúrulífsmyndir. Uppáhaldsmatsölustaður: Að Hrappi (prívathús fyrir norðan). Hvaða bók langar þig mest að lesa? Tvílýsi. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Gufan. Uppáhaldsútvarpsmaður: Bjarni Fel. Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Amóta mikið. Uppáhaldssjónvarpsmaður: Veit ekki. Uppáhaldsfélag í íþróttum? Hesta- mannafélagið Stígandi. Stefnir þú að einhverju sérstöku í framtíðinni? Að vera áfram góði drengurinn, helst betri. Hvað gerðir þú i sumarfríinu? Ég fór norður. Fréttamenn á fréttastofu Út- varpsins hafa haft í nógu að snúast þessa vikuna eins og aðrir íjölm- iðlamenn vegna þeirra hörmulegu frétta sem borist hafa frá Vestfjörð- um. Fréttastofan þarf ekki einungis að sinna landsmönnum með fréttir heldur gegnir hún veigamiklu hlut- verki í almannavörnum og þjón- ustar varðandi veður og færð. Broddi Broddason fréttamaður hefur verið mest áberandi sem fréttalesari enda þykir hann hafa aíbragðsgóða og skýra rödd. Það er Broddi Broddason sem sýnir hina hliðina að þessu sinni: Fullt nafn: Broddi Broddason. Fæðingardagur og ár: 17.10. 1952. Maki: Björg Ellingsen. Börn: Hailveig, 19 ára, og Laufey, 12 ára. Bifreið: Lada, 6 ára. Starf: Fréttamaður. Laun: Eitt hundraö þúsund fyrir 8 tímana. Áhugamál: Veiðiskapur. Hefur þú unnið i happdrætti eða lottói? Nei. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Vera uppi í sveit. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Að vera kurteis við kverúl- anta. Broddi Broddason, fréttamaður Ríkisútvarpsins. DV-mynd GVA Uppáhaldsmatur: Kjöt af öllu tagi. Uppáhaldsdrykkur: Bjór Úr flösku. Hvaða íþróttamaður stendur fremstur í dag að þínu mati? Magn- ús Scheving. Uppáhaldstímarit: Zukunftplan- ung. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan eiginkonuna? Guðný Helga Gunnarsdóttir, kennari og matgæðingur vikunnar. DV-mynd ÞÖK 1-2 hvítlauksrif nýmalaður svartur pipar 1 þeytt egg 1 msk. smátt skorinn vorlaukur eða púrra 1 bolh brauðmylsna, gerð úr mjúku hvítu brauði olía til steikingar sultaður engifer Sósa hálfur bolli japönsk soja '/4 bolli mirin eða þurrt sérrí 3 msk. sykur 1 tsk. rifin engiferrót Svínalundirnar eru skornar í eins og hálfs til tveggja sentímetra þykkar sneiöar, ílattar út með lófunum og marineraðar í leginum í að minnsta kosti 30 mínútur. Þá er þeim velt upp úr eggi og blöndu af vorlauk og brauðmylsnu. Þá eru sneiðarnar látnar standa í kæh- skáp í a.m.k. eina klukkustund. Steikt í olíu á stórri pönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið, síðan sett á smjörpappír og hver sneið skorin í litla bita en reynt að láta lögunina halda sér. Borið fram með hrísgrjón- um, sultuðum engifer, sósu og einnig er gott aö hafa rifnar gulrætur og kínahreðkur með. Guðný Helga ætlar að skora á Þorberg Karlsson verkfræðing að vera næsti matgæðingur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.