Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Síða 9
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
9
Fréttir
Þjóðvaki boðar til fyrsta landsfundarins 28. og 29. janúar:
Ijóst að verða hverjir
leiða lista f lokksins
- likur á að Svanfríður Jónasdóttir verði kjörin varaformaður Þjóðvaka
„Landsfundur Þjóðvaka verður
haldinn 28. og 29. janúar. Það verður
því ekki fyrr en eftir það, einhvern
tímann í næsta mánuði, sem fram-
boðslistar samtakanna verða birtir,"
sagði Sigurður Pétursson, einn af
helstu frammámönnum Þjóðvaka, í
samtali við DV.
Það virðist nú komið nokkuð á
hreint hverjir skipa munu efstu sæt-
in á listum flokksins, nema í Austur-
landskjördæmi. Það er auðvitað Jó-
hanna Sigurðardóttir sem verður í
efsta sætinu í Reykjavík. Talið er að
Jón Sæmundur Sigurjónsson, fyrr-
verandi þingmaður Alþýðuflokksins,
verði í öðru eða þriðja sæti listans í
Reykjavík.
A Vesturlandi verður það annað-
hvort Runólfur Ágústsson, kennari
að Bifröst, eða Stefán Garðarsson,
bæjarstjóri í Snæfellsbæ, sem er
stérklega nefndur til sögunnar, sem
leiðir listann.
Á Vestfjörðum er nær öruggt að
Sigurður Pétursson verði í efsta sæt-
inu og á Norðurlandi vestra er búist
við að Sveinn Allan Morthens á
Sauðárkróki, sem sagði sig úr Al-
þýðubandalaginu í vetur, verði í
efsta sætinu.
Þjóðvakamenn í Norðurlandi
eystra eru komnir einna lengst með
aö skipuleggja sig. Þeir hafa þegar
stofnað deild og þar er öruggt að
Svanfríður Jónasdóttir frá Dalvík
skipi efsta sæti hstans í kjördæminu.
Ekki er ljóst hver skipar efsta sæt-
ið í Austurlandskjördæmi. í Suður-
landskjördæmi er Þorstein Hjartar-
son skólastjóri tahnn líklegastur í
efsta sæti hstans. Á Reykjanesi verð-
Norðurland vestra:
Jón efstur
hjá krötum
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Jón F. Hjartarson, skólameistari á
Sauðárkróki, mun skipa efsta sæti á
hsta Alþýðuflokksins á Norðurlandi
vestra í kosningunum til Alþingis í
vor. Þetta mun ákveðið en verður
ekki tilkynnt opinberlega fyrr en um
næstu helgi.
Kristján Möller, bæjarfulltrúi á
Siglufirði, sem var einnig orðaður
við 1. sætið, segist ekki gefa kost á
sér á hstann, hann hafi tilkynnt þá
ákvörðun fyrir skömmu.
Margir sóttu
um vinnu
í kolanum
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum:
„Það kom mér talsvert á óvart hve
margir sóttu um vinnu en ánægju-
legt var það. Fólkið fer í sérstaka
starfsþjálfun og verður ráöið í vinnu
í áfongum," sagði Eggert Kjartans-
son, framkvæmdastjóri fyrirtækis-
ins Suðumes hf. í Keflavík, í samtali
viðDV.
Rúmiega 120 manns sóttu um
vinnu hjá fyrirtækinu sem byrjar
vinnslu á kola um mánaöamótin í
1500 m2 leiguhúsnæði í eigu Stakks-
víkur hf. Flestir sem sóttu um eru á
atvinnuleysisskrá. Fólkið verður
ráðið í áfóngum og munu þar 45-00
manns fá vinnu.
ur það svo Ágúst Einarsson prófess-
or sem verður í efsta sætinu.
A fyrsta landsfundi Þjóðvaka í lok
janúar verður Jóhanna Sigurðar-
dóttir kjörin formaður samtakanna.
Samkvæmt heimildum DV eru mest-
ar líkur á að Svanfríður Jónasdóttir
verði kjörin varaformaður.
■0-
OPEL
Aöeins
Opel Astra
er svo vel búin
öryggisþáttum:
Bílbeltastrekkjarar.
Tvöfaldir
styrktarbitar
í hur&um.
Stillanleg hæ&
bílbelta fyrir
fram- og
aftursæti.
Opib
taugardag
&
sunnudag
kl 14-17
• Hágæða útvarp og segulband meö
6 hátölurum og þjófaörn
• Samlæsingar með þjófavörn
• Vökvastýri og lúxusinnrétting
1400«:, 82ja hestafla vél
• Fáanlegur meb 4ra gíra sjálfskiptingu
og spólvörn
Þaö er ekki tilviljun aö nálœgt því helmingur allra
station bíla sem selst í Evrópu er
Opel Astra station.
Nú um helgina sýnum við þrjár útgáfur Opel Astra station.
Opel Astra Station GL 1,4
Opel Astra Station GLS 1,6
Opel Astra Station GLS 1,7 dísel.
Sýnum allar gerbir Opel Astra um helgina
verb frá kr: 1.135.000.-1
Fossháls 1 110 Reykjavík Sími 634000