Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1995, Síða 50
58
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 1995
Afmæli
Ásgeir J. Bjömsson
Ásgeir J. Björnsson kaupmaður,
Hafnargötu 22, Siglufirði, verður
sjötugurámorgun.
Starfsferill
Ásgeir fæddist á Siglufirði og ólst
þar upp. Ungur starfaði hann við
kúabúið að Hóli en 1946 hóf hann
störf hjá nafna sínum og móður-
bróður Jónassyni við Verslunarfé-
lag Sigluíjarðar. Hann flutti með
fjölskyldu sína að Knarrarbergi í
Eyjafirði 1951 og bjó þar til ársins
1955 er hann flutti aftur til Siglu-
fjarðar og hóf störf að nýju hjá
Verslunarfélaginu.
Ásgeir tók við stjórn Verslunarfé-
lagsins 1973 af Þórhalli bróður sín-
um og gegndi því starfi til 1986 er
félaginu var slitið og húseignin seld
Sparisjóöi Siglufjarðar. Sama ár
stofnaði Ásgeir ásamt tveimur sam-
starfskonum sínum úr gamla Versl-
unarfélaginu, þeim Margréti Frið-
riksdóttur og Guðmundu Dýrfjörð,
Verslunarfélagið Ásgeir sem stend-
ur við Lækjargötu á Siglufirði og
starfar hann þar enn.
Ásgeir hefur tekið virkan þátt í
starfsemi Lionshreyfmgarinnar á
Siglufirði.
Fjölskylda
Ásgeir kvæntist 18.7.1946 Sigrúnu
Ásbjarnardóttur, f. 18.10.1927, hús-
móður. Hún er dóttir Ásbjarnar
Árnasonar, b. að Stóradal í Eyja-
firði, og Gunnlaugar Gestsdóttur
húsfreyju.
Börn Ásgeirs og Sigrúnar eru Jón-
ína Gunnlaug (kjördóttir), f. 17.2.
1949, starfsstúlka við leikskólann
Bæjarhól í Garðabæ, gift Magnúsi
Guðbrandssyni, bifvélavirkja og
starfsmanni Gámaþjónustu Reykja-
vikur, og eiga þau fjögur börn;
Gunnar Björn, f. 12.8.1960, trésmið-
ur og lagerstjóri í Steinullarverk-
smiðjunni á Sauðárkróki, kvæntur
Ellen Hrönn Haraldsdóttur, starfs-
stúlku á sjúkrahúsi Sauðárkróks,
og eiga þau tvær dætur; Ásbjöm
Svavar, f. 13.4.1963, sölustjóri Good
Year í Reykjavík, en sambýliskona
hans er Sigríður Sunneva Pálsdóttir
hárgreiðslumeistari; Þóra Ösp, f.
25.5.1967, hjúkrunarfræðingur á
Akureyri, en sambýlismaður henn-
ar er Unnsteinn Ingason háskóla-
nemi.
Börn Jónínu og Magnúsar eru
Guðbrandur, f. 11.9.1967, vélstjóri á
Skagaströnd, en sambýliskona hans
er Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir
og er dóttir þeirra Hiidur Sigrún, f.
27.10.1991; Ásgeir Rúnar, f. 19.5.
1970, vélstjóri á Siglufirði, en sam-
býliskona hans er Hulda Ösk Óm-
arsdóttir og sonur þeirra Arnar
Geir, f. 20.4.1991; Anna Júlía, f. 24.2.
1975, en dóttir hennar er Ásgerður
Rós Guðmundsdóttir, f. 30.9.1993;
Kristinn, f. 26.2.1980.
Dætur Gunnars Björns og Ellenar
Hrannar eru Sigrún Andrea, f. 17.3.
1991 og ElínLilja, f. 17.7.1993.
Systkini Ásgeirs: Þórhallur, f.
19.11.1912, d. 2.7.1992, kaupmaður
á Siglufirði, kvæntur Hólmfríði
Guðmundsdóttur sem einnig er lát-
in en dóttir þeirra er Anna Laufey,
f. 21.11.1944; Svavar, f. 17.2.1914, d.
13.4.1962, kaupmaður í Reykjavík,
kvæntur Valborgu Jónsdóttur og
eru börn þeirra Björn, f. 7.7.1942,
Jónas, f. 2.5.1947, Herdís, f. 2.9.1951,
og Hanna, f. 7.9.1955; Jónas Berg-
steinn, f. 25.10.1916, d. 9.9.1993,
skrifstofu- og vigtarmaður á Siglu-
firði, kvæntur Hrefnu Hermanns-
dóttur og eru börn þeirra Björn, f.
4.6.1945, Guðrún, f. 25.2.1948, Hall-
Ásgeir J. Björnsson.
dóra Ingunn, f. 2.5.1955, og Her-
mann, f. 27.5.1957; Anna Laufey, f.
1924, dó í barnæsku.
Foreldrar Ásgeirs voru Björn Jón-
asson, f. 23.6.1886, d. 19.2.1966, keyr-
ari og verktaki á Siglufirði, og Guð-
rún Jónasdóttir, f. 20.12.1885, d.
14.10.1954, húsmóðir.
Ásgeir verður að heiman á afmæl-
isdaginn.
Sigurður Eyjólfsson
Sigurður Eyjólfsson, bóndi á
Hvoli í Mýrdalshreppi, er áttræður
ídag.
Starfsferill
Sigurður fæddist á Hvoli og ólst
þar upp í foreldrahúsum við öll
- almennsveitastörf.Hannstundaði
barnaskólanám í Mýrdalnum og
var síðan einn vetur við íþrótta-
skóla Sigurðar Greipssonar í
Haukadal.
Sigurður var margar vertíðir í
Vestmannaeyjum sem ungur mað-
ur en tók síðan við búi foreldra
sinna á Hvoli og hefur verið þar
bóndi síðan.
Fjölskylda
Sigurður kvæntist27.6.1952 Sig-
urbjörgu Guönadóttur, f. 26.7.1925,
húsfreyju. Hún er dóttir Guðna V.
Þorsteinssonar, b. að Skuggabjörg-
um í Dalsmynni í Grýtubakka-
hreppi, og Kristínar Ólafsdóttur.
Börn Sigurðar og Sigurbjargar
eru Arnþrúður, f. 5.3.1954, bóka-
safnsfræðingur í Reykjavík; Krist-
ín Jakobína, f. 2.7.1955, ljósmóðir
og hjúkrunarfraeðingur í Garðabæ,
gift Gunnari R. Ólafssyni og eiga
þau þrjú börn; Eyjólfur, f. 31.8.1956,
bifreiðastjóri í Reykjavík, kvæntur
Ásdísi Gunnarsdóttur og eiga þau
tvö börn; Guðný, f. 20.10.1961, b. á
Hvoli í Mýrdal, gift Magnúsi Vil-
hjálmssyni og eiga þau tvö börn.
Systkini Sigurðar: Anna Rósa, f.
30.5.1905, d. 21.3.1991; Ingveldur,
f. 2.2.1907, d. 22.11.1994; Steinunn,
f. 1.5.1910, d. 21.11.1979; Guðmund-
ur, f. 12.11.1912, búsettur á Hvoli.
Foreldrar Sigurðar voru Eyjólfur
Guðmundsson, f. 31.8.1870, d. 16.10.
1954, bóndi og rithöfundur á Hvoli,
og Arnþrúður Guðjónsdóttir, f.
19.12.1872, d. 3.10.1962, húsfreyja á
Hvoh.
Benedikt Gunnar Sigurðsson
Benedikt Gunnar Sigurðsson, yfir-
vélfræðingur við Búrfellsvirkjun, til
heimilis að Sámsstöðum 9, Gnúp-
verjahreppi í Árnessýslu, verður
fimmtugur á morgun.
Starfsferill
Benedikt Gunnar fæddist í
Reykjavík og ólst þar upp við Reyni-
mehnn. Hann lærði vélvirkjun hjá
vélsmiðjunni Héðni 1961-65, lauk
prófum frá Iðnskólanum í Reykja-
vík 1964, var við nám í Vélskóla ís-
lands 1965-68 og lauk hinu meira
vélstjóraprófi og prófum frá raf-
magnsdeild skólans.
Benedikt Gunnar starfaði í vél-
smiðjunni Héðni 1961-67, hjá Foss-
krafti sf. 1968-69 við niðursetningu
véla Búrfellsvirkjunnar og hjá
Landsvirkjun frá 1969. Hann var
vélfræðingur þar frá 1969 og er yfir-
vélfræðingur Búfellsvirkjunar frá
1981.
Benedikt Gunnar átti heima við
Reynimelinn í Reykjavík þar til
hann og fjölskylda hans fluttu að
Búrfelli í Gnúpveijahreppi. Hann
átti sæti í hreppsnefnd Gnúpverja-
hrepps 1982-94, í sóknamefnd
Stóra-Núpskirkju frá 1988, situr í
stjórn Hitaveitufélags Gnúpverja
frá 1984 og gegnir fjölda annarra
trúnaðarstarfa fyrir sína sveit og
Starfsmannafélag Landsvirkjunar.
Fjölskylda
Eiginkona Benedikts Gunnars er
Áslaug Þorleifsdóttir, f. 22.5.1943,
húsmóðir og ræstir. Hún er dóttir
Þorleifs Sigurðssonar, trésmiös á
Siglufirði, og Soffiu Davíðsdóttur
húsmóður.
Börn Benedikts Gunnars og Ás-
laugar eru Ásta Sigríður, f. 6.3.1968,
húsmóðir í Reykjavík, gift Bolla
Eyþórssyni og eiga þau tvo syni,
Vigni Þór, f. 12.12.1990, og Benedikt
Arnar, f. 28.7.1993; Sigurður Gunn-
ar, f. 15.6.1971, vélfræðingur, búsett-
ur í foreldrahúsum.
Bræður Benedikts Gunnars eru
Guðni Georg Sigurðsson, f. 18.2.
1941, eðlisfræðingur á Seltjarnar-
nesi, kvæntur Þóra Hallgrímsdóttur
leiðsögumanni og eru börn þeirra
Benedikt Gunnar Sigurðsson.
Þóra, Gunnar og Kjartan; Ingiberg-
ur Sigurðsson, f. 17.5.1947, vörubíl-
stjóri í Reykjavík.
Foreldrar Benedikts Gunnars:
Sigurður Benediktsson, f. 22.9.1908,
d. 4.11.1976, vörubílstjóri í Reykja-
vík, og Sigurásta Guðnadóttir, f.
12.9.1915, húsmóðir.
Benedikt Gunnar er á Kanaríeyj-
um.
Til hamingju með daginn 21. janúar
ara
Friðrika Bjarnadóttir,
Hörgslundi 5, Garðabæ.
80ára
Öli Kristinn Jónsson,
Hrísmóuml, Garðabæ.
Guðjón Óiafsson,
Langholti 16, Keflav.-Njarðv-.Höfn-
um.
Guðjón tekur á móti gestum í golf-
skálanum í Leiru á milli kl. 18 og
21 í dag.
Guðrún Gissurardóttir,
Mávahlíð 21. Reykjavík.
Ástriður Oddbergsdóttir,
Silfurbraut 6, Hornafjaröarbæ.
Haila Sigurðardóttir,
Skúlagötu 80, Reykjavík.
50ára
75ára
Stella Gunnur Sigurðardóttir,
Sólheimum 23, Reykjavík.
70 ára
Soffía Jóhannsdóttir,
Reykjasíðu 16, Akureyri.
Haraldur Sigurðsson,
Byggðavegi lOlf, Akureyri.
MaríaM.Mýrdal,
Mánagötu 7, Reykjavík.
Magnús M. Jónsson,
Kirkjuvegi 10, Keflav.-Njarðv,-
Höfnum.
JóhannaRósa Guðmundsdóttir,
Jörfabakka 12,
Reykjavík.
Jóhanna verö-
ur sjötug þann
24.janúar.
Sambýlismað-
urhennarer
Jónas Stein-
þórsson. Þau
taka á móti gestum í Húnabúð,
Skeifunni 17, frá kl, 16-19 sunnu-
daginn22.janúar.
Kristin Magnúsdóttir,
Bjarkargrund 40, Akranesi.
Björn Ævar Guðmundsson,
Bakkahhð 31, Akureyri.
Garðar Ólason,
Grund, Grímsey.
Alena Friðrikka Anderlova,
Hrefnugötu 8, Reykjavík.
Svala O. Lárusdóttir,
Öldugötu 24, Reykjavik.
Pétur H. Skaftason,
Elliðavöllum 10, Keflav.-Njarðv.-
Höfnum.
Guðmundur Sveinbjömsson,
Bröttugötu 24, Vestmannaeyjum.
40ára
60 ára
Gyifi Þorsteinsson,
Aðalbraut 60, Raufarhöfn.
Guðbjörg Garðarsdóttir,
Heiðarbóh 8c, Keflav.-Njarðv,-
Höfnum.
Svanhvít M. Sigurðardóttir,
Engihjalla25, Kópavogi.
Einar Garðar Hj altason,
Hhðarvegi 15, ísafiröi.
Kristrún Jónsdóttir,
Hvcmneyrarbraut 54, Siglufiröi.
Oddný Guðleif Ágústsdóttir,
Brautarlandi 18, Reykjavík.
Gústaf Adolf Hjaltason,
Flúðaseh 16, Reykjavík.
Ástríður Björg Bjarnadóttir,
Ljósheimum 16b, Reykjavík.
Helga Bj örg Sigurðardóttir,
Tjarnarlandi, Bessastaðahreppi.
Emil Ágúst Georgsson,
Vatnsnesvegi 22a, Keflav.-Njarðv,-
Höfnum.
Guðjón Ólafsson
Guðjón Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Ohusamlags Keflavíkur og
nágrennis og Olíustöðvarinnar í
Helguvík hf., til heimilis að Lang-
holti 16, Keflavík, er sextugur í dag.
Starfsferill
Guðjón fæddist í Keflavík og ólst
þar upp. Hann lauk gagnfræðaprófi
frá Héraösskólanum að Skógum og
stundaði síðan nám í verkstjóm og
freðfisksmati hjá Fiskmati ríkisins.
Á unghngsárunum stundaöi
Guðjón sjómennsku og fiskvinnslu.
Hann varð verkstjóri hjá fyrirtæki
föður síns, Fiskverkun Ólafs Lár-
ussonar, 1964. Guðjón stofnaði út-
gerðarfyrirtækið Ólafur S. Lárus-
son hf. ásamt systkinum sínum
1970, og var framkvæmdastjóri til
1980. Þá réðst hann til Olíustöðvar
Keflavíkur þar sem hann hefur
verið framkvæmdastjóri síðan.
Guðjón sat m.a. í stjóm Útvegs-
mannfélags Suðumesja, Vinnuveit-
endafélags Suðumesja, Skipaaf-
greiðslu Suðumesja, í stjórn Olíu-
stöðvar Keflavíkur þar til hann tók
þar við framkvæmdastjóm, situr í
stjóm Ohufélagsins Esso og stjóm
Eignarhaldsfélags Suðumesja hf.
Fjölskylda
Guðjón kvæntist 10.4.1955 Mar-
ínu Guðrúnu Marelsdóttur, f. 29.4.
1936, verslunarmanni. Hún er dótt-
ir Marels Guðmundssonar, frá
Klöpp í Grindavík, og Eiríku
Bjarnadóttur húsmóður en þau eru
bæði látin.
Böm Guðjóns og Marínar era
Bjarni, f. 19.9.1955, vinnuvélstjóri
í Keflavík, kvæntur Margréti
Hreggviðsdóttur húsmóður og eiga
þau tvö böm; Svala Ema, f. 4.2.
1957, nemi og húsmóðir í Keflavík,
gift Jónathan Cutress bankastjóra
og á hún tvö börn; íris Björk, f.
24.1.1964, húsmóðir í Keflavík, gift
Erni Garðarssyni matreiðslumeist-
ara og eiga þau þrjú börn; Eiríka
Guðrún, f. 20.7.1967, húsmóðir í
New York, gift Jóhannesi Thorberg
flugafgreiðslumanni og eiga þau
tvö börn; Særún, f. 11.12.1972, nemi
í Keflavík.
Systkini Guðjóns: Guðrún Katrín
Jónína, f. 9.10.1926, húsmóðir í
Keflavík; Arnbjörn Hans, f. 2.7.
1928, d. 21.3.1931; Jane María, f.
14.11.1929, húsmóðir í Keflavík;
Ambjörn Hans, f. 22.12.1930, skip-
stjóri í Keflavík; Lára Huld, f. 5.2.
1932, d. 9.2.1934; Lárus Hörður, f.
19.4.1936, d. 5.3.1983, vélstjóri í
Keflavík; Ólafur Hafsteinn, f. 7.7.
1937, verkstjóri í Keflavík; Bára
Erna, f. 25.4.1939, húsmóðir í Kefla-
vík; Sigríður Karólína, f. 24.4.1943,
húsmóðir í Keflavík; Særún, f. 4.2.
1946, skrifstofumaður í Keflavík;
Reynir, f. 8.6.1948, viðskiptafræð-
inguríKeflavík.
Foreldrar Guðjóns: Ólafur Sól-
mann Lárusson, f. 28.12.1903, d.
28.7.1974, skipstjóri og útgerðar-
maður í Keflavík, og k.h., Guðrún
Fanney Hannesdóttir, f. 14.5.1907,
húsmóðir.
Guðjón og Marín taka á móti gest-
um í golfskálanum í Leiru, í dag,
laugardaginn 21.1. milli kl. 18.00 og
21.00.