Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Side 11
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1-995
11
DV
Fréttir
Bæjarstjóri Vesturbyggðar gagnrýnir áskorun Bílddælinga um riftun sameiningarinnar
Astandið á ábyrgð fyrri
sveitarstjórnarmanna
- og atvinnurekenda á staðnum - greinargerðin ekki borin undir þá sem undirrituðu
„Þetta á sér skýringu í því að
starfsmaður Vesturbyggðar sem sagt
var upp störfum fór fyrir þessari
undirskriftasöfnun. Það eru nokkuð
margir sem skrifuðu undir þetta, en
ég vil benda á að greinargerðin sem
fylgir þessu var ekki borin undir
fólkið. Þarna er verið að svíkjast aft-
an að fólki með því að hreyta ein-
hverjum skít, bæði í mig og starfs-
fólk Vesturbyggðar," segir Gísli Ól-
afsson, bæjarstjóri og forseti bæjar-
stjórnar Vesturbyggðar.
í greinargerðinni er gagnrýnt að
staða bæjarstjóra hafi ekki verið
auglýst og hæfur maður ekki verið
ráöinn.
„Ég bendi á að ég er með býsna
langa reynslu sem sveitarstjórnar-
maður og ég er ekki alveg laus við
að hafa einhverja menntun. Ég veit
ekki hvers slags hroki það er sem
kemur þarna fram í þessari greinar-
gerð. Þeir dæma sig sjálfir sem láta
svona lagað fara frá sér. Það er fjöldi
dæma um að kjörnir sveitarstjórnar-
menn hafi farið í það að verða sveit-
arstjórar eða bæjarstjórar. Þetta er
sá háttur sem er viðhafður hérlend-
is. Þessu er einnig háttað svona í
þinginu, þar sem þingmenn verða
ráðherrar," segir Gísh.
„Hið mesta bull og rugl“
Um þá gagnrýni Bílddælinga að
ekki sé búið að leggja fram fjárhagsá-
ætlun og að sveitarfélagið sé mjög
illa sett fjárhagslega segir Gísli:
„Þetta er hiö mesta bull og rugl að
vera að leggjast í slíkan hernað að
halda því fram að íjárhagsáætlun sé
ekki til. Það er ekkert einsdæmi hér
á íslandi hjá sveitarfélögum að fjár-
hagsáætlanir hafi ekki verið sam-
þykktar á þessum tíma. Við höfum
verið í ákveðnum erfiðleikum af
tæknilegum ástæðum þar sem verið
er að skipta um tölvukerfi og það er
verið að sameina sveitarfélög. Það
er ástæðan fyrir því að fjárhagsáætl-
un hefur ekki litið dagsins ljós,“ seg-
ir Gísli.
Hann segir að sú krafa að setja
sveitarfélagið á gjörgæslu ef ekki
verði sameiningarslit sé fráleit.
„Þessi krafa þeirra er gjörsamlega
út í hött. Þetta sveitarfélag á í
ákveðnum flárhagsörðugleikum, en
það er fjöldi sveitarfélaga sem skulda
álíka mikið og meira að segja miklu.
meira en Vesturbyggð. Ef félags-
málaráöuneytið ætlar að taka sér-
staklega á málum þessa sveitarfélags
þá verður það að taka í sína vörslu
nokkur sveitarfélög," segir Gísh.
Hann segir erfiðleika Bílddælinga
nú vera á ábyrgð fyrrverandi sveit-
arstjórnar og þeirra sem stjórnuðu
atvinnufyrirtækjum á staðnum.
Hef skilning á að fólk
vilji sameiningarslit
- segir Magnús Björnsson, bæjarfulltrúi 1 Vesturbyggð
„Það er búið að fara það hla með
okkur hér aö ég hef skhning á því
að fólk vhji slíta þessari samein-
ingu,“ segir Magnús Björnsson, full-
trúi í bæjarstjórn Vesturbyggðar.
Magnús, sem á sæti í minnihluta
bæjarstjórnarinnar, undiritaði ekki
áskorunina um sameiningarslit og
segist vilja gæta þess hlutleysis sem
hægt sé vegna stöðu sinnar.
í áskorun sem Bhddæhngarnir
sendu th félagsmálaráðherra og
þingmanna Vestfjarða og frá var sagt
í DV í gær kemur fram sávilji þeirra
að sameiningunni verði slitið. Þá seg-
ir að ef það sé ekki hægt fari þeir
fram á að félagsmálaráðuneytið sjái
um rekstur bæjarfélagsins til næstu
sveitarstj órnarkosninga.
Um ástæður þessa segja Bhddæl-
ingarnir að fyrir liggi að eitt sveitar-
félaganna, sem áformað var að sam-
einuðust, Tálknafjarðarhreppur,
hafi kosið að standa utan við samein-
inguna. Þá hafi síðar komið í ljós að
fjárhagsstaða Patrekshrepps hafi
verið mun verri en nokkurn í Bíldu-
dalshreppi hafi órað fyrir.
Fólksflótti frá Bíldudal
Atvinnuástand á Bíldudal er mjög
slæmt og hefur verið fólksflótti það-
an. Fasteignir seljast ekki og dæmi
eru um að ekki sé hægt að leigja þær
heldur. Þetta ástand kemur í kjölfar
þess að aðalfyrirtækið á staðnum
hefur hvað eftir annað komist í þrot.
Ofan á þetta ástand bætist að stjórn-
sýslan á staðnum var að mestu færð
til Patreksfjarðar.
„Það er að veröa ár frá því kosið
var og það er ekki sjáanlegt að neitt
sé á döfinni hjá hinv} nýja sveitarfé-
lagi. Það er ekki einu sinn .þúið að
gera fjárhagsáætlun. Fólki óar við
framhaldinu hér og þess vegna skrif-
ar það undir þessa áskorun," segir
Hrafnhildur Þór Jóhannesdóttir á
Bíldudal sem er ein þeirra sem stóðu
að undirskriftasöfnuninni. Hrafn-
hildur segir að fjöldi þeirra sem nú
viija slíta sameiningunni sé meiri en
þeirra sem samþykktu sameining-
una. Þá hafi kosið alls 145 manns og
35 manns verið á móti henni.
-rt
„Patreksfirðingar börðust ekki sér-
staklega fyrir þessari sameiningu
eða reyndu að lokka Bílddælinga inn
í þetta sveitarféiag. Þeim er vel
kunnugt um að ákveðið hefur veriö
að yfirstjórn hafnanna verður stað-
sett á Bíldudal. Þá verður þar þjón-
ustufulltrúi og með þessu er miklu
lengra gengið en gert var ráð fyrir í
sameiningarsamningnum sem sveit-
arstjórnin á Bhdudal undirritaði.
Vandamál Bílddælinga eru fyrst og
fremst fólgin í erfiðu atvinnuástandi
á Bíldudal. Þetta er vandi frá tíð fyrr-
verandi sveitarstjórnar og þeirra
sem þá héldu um taumana í atvinnu-
lífi staðarins," segir Gísli
-rt
GJAFAHANDBÓK
FERMINGAR-
GJAFAHANDBÓK
Miðvikudaginn 22. mars mun hin sívinsæla
FERMINGARGJAFAHANDBÓK fylgja DV.
Hún er hugsuð sem handbók fyrir lesendur sem eru
í leit að fermingargjöfum. Þetta finnst mörgum þægi-
legt nú, á dögum tímaleysis, og af reynslunni þekkj-
um við að handþækur DV hafa verið afar vinsælar.
Skilafrestur auglýsinga er til 13. mars en með tilliti
til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum bent á
að hafa samband við Selmu Rut Magnúsdóttur eða
Ragnar Sigurjónsson, auglýsingadeild DV, hið fyrsta
i síma 563 27 00 svo að unnt reynist að veita öllum
sem besta þjónustu.
ATH.I Bréfasími okkar er 563 27 27.
BílðSðlð Gsrðsrs - Nóatúm 2 - sími 6110 10
" ■“ “■ “"Bílar við allra hæfi - Skiptamöguleikar."“ ■“ ■
Bílasalan Braut - Borgartúni 26 - Sími 617511
MMC Lancer GLXi, 1993, ek. Toyota Corolla GL, 1992, ek.
57 þ„ sjálfsk., toppl. Ath. skipti. 49 þ„ 5 gíra. Fallegur bíll.
MMC Sapporo, 1988, ek. 91 þ„
sjálfsk., m/öllu. Skipti.
Porsche 911, 1977, einn sem Toyota hilux, 1988, ek. 100 þ„
vekur mikla athygli. 36" dekk. Sjón er sögu ríkari.
Ford Explorer Eddi Bauer, ek.
aðeins 44 þús. km, árg. '91.
Galant Dynamit V6 4x4, árg.
'93, ek. 26 þús. km.
Toyota Carina, árg. '93, mjög
fallegur bíll.
Toyota double cab dísil '91
Toyota extra cab, mjög fallegur
bíll á 33" dekkjum.
Nissan Patrol, nýinnfluttur,
rosalega flottur.
MIKIÐ ÚRVAL AF NOTUÐUM OG NÝJUM BÍLUM. VERIÐ VELKOMIN!
FYRSTIR MEÐ LEYFI SAMKV. NÝJUM LÖGUM UM BÍLASALA