Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1995 25 >n urðu islandsmeistarar karla og kvenna boðsmanns Alþjóða þolfimisambandsins konur og Fjölnir mættu til leiks en Magn- landsmeistararnir frá móti Flmieikasam- n sem kepptu þar hundsuðu keppnina í mótinu, sýndi skemmtilega takta en Fjöln- ina, enda eini karlkyns keppandinn. Hann kktari sem snókerspilari! DV-mynd JAK ínótt: tja Spurs ar körfur. Miami leiddi gegn Portland með tveimur stigum þegar 6 mínútur voru eftir en þá settu leikmenn Portland á fullt, skoruðu 10 stig í röð og unnu öruggan sigur. Hvorki gengur né rekur hjá Sacramento og tapið gegn Indiana í nótt var það níunda í síðustu 10 leikjum. Reggie Miller átti skín- andi leik, skoraði 30 stig og átti 8 stoðsend- ingar. Boston Celtics kærir Wall Street Journal Boston Celtics ætlar að kæra dagblaðið Wall Street Journal fyrir grein um Reggie Lewis, leikmann Boston, sem fékk hjartaáfall og lést sumarið 1993. Þar er meðal annars sagt að félagið hafi ekki hlustað á grun um kókaínneyslu hans og vanrækt að fylgjast nægilega vel með heilsu hans eftir fyrra áfallið sem hann varð fyrir þremur mánuðum áður en hann lést. indur þjálfara FH-inga slíkt hið sama enda brotið þess eðlis. Þá brottvísun á Gunnar Beinteinsson stuttu síðar. Það var ég sem þá var fyrri til og rak hann af leikvelli. Einkennileg tilviljun, segir Guð- mundur um allt það sem félagi minn átti að hafa gert undir lokin gegn FH vegna ódrengskapar gegn þeim. Því- líkur þvættingur. Ég hef skýrt hið rétta í málinu. Það er því með ólíkind- um hvað Guðmundur dregur félaga minn niður í skítinn fyrir hluti sem hann hefur ekki gert. Neðar er vart hægt að komast. Nei, Guðmundur. Skýringar á tapi liös þíns fmnur þú ekki í dómgæslu okkar að Varmá. Líttu þér nær. Áhorfendur hafa séð umræddan leik í sjónvarpi og dæmi hver fyrir sig. Vonandi er Guðmundur ein- hverju nær. Það vona ég í það minnsta. Þá er tilgangnum náð. En aðeins þetta að lokum: Megi FH farnast hið besta og forystumönnum þess einnig á komandi árum. Megi handknattleikurinn rísa sem hæst. Stefán Arnaldsson, milliríkjadómari í handknattleik íþróttir Afturelding - Valur (11-11) 15-21 0-1, 1-2, 4-2, 4-4, 6-5, 8-6, 8-8, 8-10, 10-10, (11-11), 11-12,12-12, 12-16,13-18, 14-19, 15-20, 15-21. • Mörk Aftureldingan Jason Ólafsson 5, Ingimundur Helgason 5/2, Gunn- ar Andrésson 4/1, Róbert Sighvatsson 1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 14/1. • Mörk Vals: Ólafur Stefánsson 7/2, Dagur Sigurðs- son 4, Geir Sveinsson 4, Jón Kristjánsson 3, Sveinn Sigfmnsson 1, Finnur Jóhannsson 1, Frosti Guðlaugs- son 1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 14/2. : Brottvísanir: Afturelding 8 mín., Valur 8 mín. Dómarar: Stefán Amaldsson og Rögnvald Erlingsson, góðir. Áhorfendur: 700, fullt hús. Maður leiksins: Ólafur Stefánsson, Val. Valur (11) 21 Þannig skoruðu liðinmörkin Langsk. Gegnumbr. Horn Lína Hraöaupphl. Vftý, Afturelding (ii) 15 n__________________m ----- u Hr Wl Hr Wm K Langsk. Gegnumbr. Horn Lína Hraöauj Valsmenn leika til úrslita um íslandsmeistaratitilinn í handknattleik, annaðhvort gegn Víkingi eða KA sem mætast öðru sinni á Akureyri í kvöld. Jón Kristjánsson og Geir Sveinsson fögnuðu vel í Mosfellsbænum i gærkvöldi. \ DV-mynd Brynjar Gauti Frábær varnarleikur - þegar Valsmenn sigruðu Aftureldingu öðru sinni, nú 15-21 Guðmundur Hilmarsson skrifar: „Valsmenn höfðu yfirburði á flest- um sviðum og eftir þennan leik tel ég þá líklega kandítata sem íslands- meistara. Þeir gerðu út um leikinn með frábærum varnarleik í síðari hálfleik. Hornamenn Aftureldingar skoruðu ekki mark og Valsmenn gátu keyrt á fleiri leikmönnum," sagði Þorbergur Aðalsteinsson landshðsþjálfari við DV eftir sigur Vals á Aftureldingu, 15-21, í Mos- fellsbæ í gærkvöldi. Eftir jafnan fyrri hálfleik, þar sem liðin skiptust á að hafa forystu, sner- ist leikurinn í síðari hálfleik algjör- lega á band Valsmanna. Þeir hrein- lega skelltu í lás og þaö var engu lík- ara en gamla mulningsvélin væri mætt í Mosfellsbæinn. Annan eins varnarleik hefur undkritaöur ekki séð í langan tíma og sóknarleikur Aftureldingar, sem hafði verið skæð- ur í fyrri hálfleik, hrundi eins og spilaborg. Liðið skoraði ekki nema 2 mörk á fyrstu 25 mínútunum og ef vörnin var ekki aö verja skot leik- manna Aftureldingar var það Guð- mundur Hrafnkelsson sem gerði það með glæsibrag. Það var nánast hvergi veikan hlekk að finna í leik Valsmanna. Guðmund- ur hafði hægt um sig í markinu í fyrri hálfleik en í þeim síðari fór hann að verja eins og hann getur best. Ólafur Stefánsson er að koma geysisterkur upp og hann átti snjall- an leik í sókninni ásamt Geir Sveins- syni og Degi Siurðssyni. í vörninni voru Finnur Jóhannsson og Geir Sveinsson sem klettar og Ingi Rafn Jónsson gerði vel að kæfa niður sóknarleik Mosfellinga. Leikmenn Aftureldingar hittu of- jarla sína og hetjulegri og frábærri framgöngu þeirra í vetur er nú lokið. Sóknarleikurinn varð liðinu að falli í þessum leik og sérstaklega varð það slæmt fyrir liðið að Páll Þórólfsson skyldi ekki ná sér á strik í leikjunum tveimur gegn Val. Jason Ólafsson var sterkur í fyrri hálfleik en í þeim síö- ari komst hann ekkert áleiðis frekar en félagar hans. Bergsveinn Berg- sveinsson varði markið af stakri prýði og Róbert Sighvatsson gerði góða hluti. Sama hverjum við mætum „Viö náðum upp klassavörn í síðari hálfleik og Gummi varði eins og ber- serkur og þetta var lykillinn að sigri okkar. Það er stígandi í leik okkar og það býr mikill karakter í liðinu. Mér er sama hverjum við mætum í úrslitunum,“ sagði Ólafur Stefáns- son, stórskytta í hði Vals. Lélegur sóknarleikur „Lélegur sóknarleikur í síðari hálf- leik varð okkur að falh. Við áttum ekkert svar við þessari geysiöflugu vörn. Valur mætir Víkingi í úrshtum og ég get ómögulega spáð fyrir um úrslit. Við getum vel við unað eftir veturinn," sagði línumaðurinn snjalli, Róbert Sighvatsson. NIÐURSTAÐA Ert þú ánægð/ur með frammistöðu dómaranna í úrslitakeppninni í handbolta r ö d d FÓLKSINS 99-16-00 Úrslitakeppni DHL-deildin Haukar-Grindavík íþróttahúsinu v/Strandgötu laugardag kl. 16.30 Afram Haukar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.