Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Page 24
32
Sviðsljós
Chazz Palmintieri:
Loksins a lcið
á toppinn
Chazz Palmintíeri vakti fyrst
verulega athygli í Hollywood þeg-
ar hann skrifaði aldeilis frábært
handrit að frumraun Roberts De
Niros við leikstjórn, Sögu úr
Bronx, handrit sem hann skrifaði
reyndar eftir eigin einleik. Ekki
var tulkun hans á örlagavaldi
aðalpersónunnar, bófanum
Sonny, síöri.
Palmintieri hefur enn á ný sýnt
hvað í honum býr með frarami-
stöðu sinni í Kúlum yfir Bro-
adway, nýjustu mynd Woodys
Allens, þar sem hann ieikur orð-
elskan Ieigumorðingja. Fyrir
þann leik hefur hann verið til-
neíhdur til óskarsverölauna sem
besti karlleikari í aukahlutverki.
Chazz Palmintieri, sem er orð-
inn 43 ára gamall, ólst upp í fjöl-
skrúðugu hverfi í Bronx, al-
ræmdum bæjarhluta New York.
En þótt Chazz sé nú eftirsóttur
leikari og handritshöfundur var
það ekki ailtaf svo. „Ég varö svo
örvæntingarfullur eínn daginn
að ég settist niður á rúmiö mitt
og grét. Ég sagði við sjálfan mig
að ég væri hæfileikaríkur. Þeir
vissu þaö bara ekki enn. Ég fór
út í búö, keypti fimm skrifblokkír
og sagði við sjálfan mig að ég
skyldi skrifa eitthvað sem virki-
lega yrði tekiö eftir. Eftir það
varð umbylting á lífi mínu,“ segir
Chazz Palmintieri.
BOISirmr,
ílfllt
^ÚRVM-teVN
99-1750
VerO 39.90 mín.
ferðavinningar í
hverri viku - þú gætir
átt ævintýri ívændum!
Muniö aö svörin viö spurningunum
er aö finna í ferðabæklingi Úrval
Útsýn „Sumarsól". Bæklinginn getur
þú fengiö hjá feröaskrifstofunni
Úrval Útsýn.
Elizabeth Huriey þiggur aðstoð Leonards Lauders, yfirforstjóra fegurðarfyr-
irtækisins Estee Lauder, við að komast upp á sviðið í New York þegar
verið var að kynna hana sem nýtt aridiit hins fræga fyrirtækis. Símamynd Reuter
Paulina Porizkova, flóttamaður og
fyrirsæta.
Hafnaði James Bond
Tékknesk-sænska sýningarstúlk-
an Paulina Porizkova, sem hefur get-
ið sér gott orð bæði á tískupöllunum
og fyrir framan kvikmyndavélarnar
í Hollywood, afþakkaði nýlega boö
um að leika í mynd um stórnjósnar-
ann James Bond. Þess í stað féllst
hún á að verða veggspjaldastúlka
sænsku verslanakeðjunnar Hennes
og Mauritz.
Launin eru leyndarmál en til að
gefa einhverja hugmynd um þau má
geta þess að henni fannst rúmar tíu
milljónir íslenskra króna fyrir
Bond-myndina vera móðgun við sig.
Humm!
Paulina fetar í fótspor margra fag-
urra stúlkna sem H&M stúlkan,
þeirra á meðal Elle McPherson,
Cindy Crawford og Naomi Campbell.
Svíar telja sig eiga heilmikið í Paul-
inu. Foreldrar hennar flúðu ólguna
heima í Tékkóslóvakíu árið 1968 og
fóru til Svíþjóðar. Þeir þorðu hins
vegar ekki að taka stelpuna með og
varð hún eftir hjá afa og ömmu.
Gyðjan Hurley gerir samning:
Nýtt andlit
Estee Lauder
Breska leikkonan EUzabeth Hur-
ley, sem bresku blöðin kalla ekki
annað en gyðjuna Hurley, hefur ver-
ið vahn nýtt andlit Estee Lauder
fegrunarsmyrsla- og ilmefnafyrir-
tækisins út á við og mun sem slík
koma fram í auglýsingum þess um
heim allan.
Elizabeth er 29 ára gömul og býr
með hjartaknúsaranum, sjarmörin-
um og leikaranum Hugh Grant úr
Fjórum brúðkaupum og jarðarfór.
Þau eiga heimili á Englandi.
Forráðamenn fyrirtækisins voru
búnir að leita logandi ljósi að nýju
andliti í tvö ár og höfðu spáð og spek-
úlerað í fimmtán öðrum konum áður
en Elizabeth varð fyrir valinu.
Fyrst í stað mun leikkonan fagra
auglýsa nýtt ilmvatn sem á að setja
á markað vestanhafs í september í
haust og annars staðar í heiminum
í febrúar 1996.
Elizabeth hefur leikið í ýmsum sjón-
varpsmyndum og þáttaröðum, þar á
meðal þáttunum um lögmanninn
Rumpole í Baiiey og um Morse lögre-
gluforingja sem íslenskir sjónvarpsá-
horfendur kannast mætavel við.
Askrifendur fá 10%
aukaafslátt af
smáauglýsingum DV
Hringdu núna
- síminn er 563-2700
Opið:
Virka daga kl. 9 - 22, laugardaga kl. 9 - 14,
sunnudaga kl. 16 - 22
Athugið! Smáauglýsingar í helgarblað OV
verða að berast fyrir kl. 17 á föstudögum
Debbie
harðánægð
Debbie Reynolds er hæstánægð
með soninn Todd Fisher sem byggði
heilt kvikmyndasafn fyrir mömmu
gömlu. „Hann er eins og pabbi sem
gat gert hvað sem var,“ segir Debbie
en þakkar þó guði fyrir að strákurinn
skuli ekki geta sungið. Safn Debbie
er mikið tækniundur og verður það
formlega opnað gestum þann 1. apríl
næstkomandi.
FÖSTUDAGUR 10. MARS 1995
Trudeau í
Hollywood
Pierre Elliott Trudeau, fyrrum
forsætisráðherra Kanada, var í
eina tíð þekktur áhangandi hins
ljúfa hfs. Hann brá sér tíi Hoily-
wood í vikunni í fyrsta skipti í tíu
ár og sagðist harma mjög að Bar-
bra Streisand skyldi ekki vera í
bænum. Þau voru kærustupar
fyrir ekki margt iöngu.
doktorsgráðu
Talandi um Streisand... Hún
mun á næstunni taka við heið-
ursdoktorsnafnbót við hinn virta
Brandeis-háskóla. Heiðurinn
hlýtur hún fyrir afskipti sín af
mannréttindamálum og framiag
sitt tii listalífsins í Bandaríkjun-
um. Eins og allir vita er hún ákaf-
ur stuöningsmaður Clintons for-
seta.
Ron leiðinlegi
Ronald Reagan, fyrrum forseti
Bandaríkjanna, var heimskur
leiðindapúki og Nancy konan
hans var vitlaus geha með digra
ökkla. Það var ekki neinn and-
stæðingur hjónanna sem sagði
þetta heldur sjálfur Frank Sin-
atra. Shirley MacLaine segir frá
þessu i nýrri minningabók sinni
sem kemur út í apríl.
Slaufar pelsum
Þýska ofurfyrirsætan og sýn-
ingarstúlkan Claudia Schiífer,
kærasta töframannsins Davids
Copperfieids sem fer í gegnum
Kínamúrinn, hefm* undirritað
yfirlýsingu um að hún muni aldr-
ei framar ganga í loðfeldum.
Dýravinir voru að vonum ánægð-
ir og skáluðu í kampavíni.