Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.03.1995, Qupperneq 28
■SW’ 36 FÖSTUDAGUR 10. MARS 1995 Hrafn Vestfjörö Friöriksson spyr hvort þeir sem misboðið hafa almenningi með brengiaðri sið- ferðiskennd eigi að taka þátt i hreinsun á heilbrigðiskerfinu. Sérlega txú- verðugur lögbrjótur „En umsækjandinn var svo „trúverðugur" að þeir „lokuðu augunum" fyrir þeirri staðreynd sem þeim mátti vera fulljós að hann átti yfir höfði sér sakamál af hálfu hins opinbera." Hrafn Vestfjörð Friðriksson, fyrrv. yfir- læknir heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneytisins og skólayfirlæknir, um ráðningu tryggingayfirlæknis en sá er fékk stöðuna er sakaður um skatta- lagabroL Skattsvikari standi jafnfætis öðrum „Formaður tryggingaráðs segir í Morgunblaðinu 6. mars sl. að umsækjandinn hafi verið svo trú- verðugur að ráðið hafi ákveðið að „skattsvik hans skyldu ekki Ummæli koma í veg fyrir að hann stæði jafnfætis öðnrni umsækjendum". Sami Hrafn Vestfjörð í Morgunblaðinu um embætti tryggingaryfirlæknis. Hafa misboðið aimenningi með brengluðu siðferði „Það er deginum ljósara að taka þarf til 1 heilbrigðisstjóminni. En hver á að gera þáð? Eiga þeir sem liggja undir grun um meint lög- brot að taka þátt í hreinsuninni? Eiga þeir sem misboðið hafa al- menningi með brengluðu siðferði aö taka þátt í hreinsuninni?" Hrafn Vestfjörð Friðriksson enn og aftur. Stærsti kafbátur heimsins vegur 25 þúsund tonn. Stærsti kafbát- urheimsins Stærstu kafbátar heims eru rússneskir af gerðinni Typhoon. Árið 1980 skýrði NATO frá því aö fyrsta kafbáti af þessari gerð hefði verið hleypt af stokkunum í skipasmíðastöðinni í Severod- vinsk við Hvítahaf og mikil leynd Blessuð veröldin hvOdi yfir. Kafbáturinn vegur 25 þúsund tonn og er 170 metrar á lengd. Hann var á sínum tíma útbúinn tuttugu SS NX 20 flugskeytum sem draga 4800 sjómflur og hver flaug var útbúin 7 kjamaoddum. Síöar varð tfl útgáfa af þessum kafbáti sem var búinn 140 kjama- oddum. nn Má búast við éljrnn I dag er búist við stormi víða á mið- unum. Suðlæg eða breytileg átt verður á Veðrið í dag landinu, gola eða kaldi og dálítil él um landið vestanvert. Síðdegis snýst vindur í vaxandi norðaustanátt og norðanátt austanlands, fyrst sunnan til og í kvöld og nótt verður hvöss norðanátt og slydda um landið aust- anvert en norðankaldi og él norð- vestanlands. Suðvestantil verður áfram breytileg átt, gola eða kaldi og dálítil él. Veður fer hlýnandi austan- lands síðdegis, annars breytist hiti fremur lítið. Á höfuðborgarsvæðinu verður sunnan gola eða kaldi í dag en hæg breytfleg átt í nótt. Skýjað verður og stöku él. Hiti verður frá einu stigi niður í íjögurra stiga frost. Sólarlag í Reykjavik: 19.09 Sólarupprás á morgun: 8.05 Síðdegisflóð í Reykjavik: 24.09 Árdegisflóð á morgun: 0.09 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjað -5 Akurnes skýjað -5 Bergsstaðir alskýjað -3 Bolungarvík snjóélásíð. klst. 0 Kefla víkurflugvöllur hálfskýjað -3 Kirkjubæjarklaustur léttskýjað '~6 Raufarhöfn léttskýjaö -9 Reykjavík léttskýjað -3 Stórhöfði skýjað 0 Helsinki slydda 0 Kaupmannahöfn þoka -1 Stokkhólmur skýjað -2 Þórshöfn rigning 5 Amsterdam léttskýjað 2 Berlin þokuruðn- ingur -2 Feneyjar alskýjað 6 Frankfurt léttskýjað -1 Glasgow rigning 6 Hamborg lágþoku- blettir ' 0 London hálfskýjað 5 LosAngeles skúrásíð. klst. 16 Lúxemborg heiðskírt -2 Ægir Már Kárasan, DV, Suðumesjum: „Við bíðum eftir nikkelsvæöinu sem Bandaríkjamenn hafa ekki skilað enn þá. Við viljum að þeir hreinsi svæðið áður en viö tökum á móti þvi. Þaö er um hundrað mflljón króna kostnaður við það eitt að hreinsa upp olíuna sem er á Maðurdagsins svæðinu," segir Friðrik Georgsson, formaður Byggingamefndar Kefla- víkur, Njarðvíkur og Hafna. Byggingamefndin hefur gengið frá deiliskipulagi fyrir eitt umtal- aðasta svæöi sveitarfélagsins, nikkelsvæðiö svokallaða, sem er við Flugvallarveg. íbúðahverfi á að rísa þar í framtíðinni en varnarlið- ið hefur ekki skilaö landinu enn þá. Friðrik segist vonast til þess að fá svæðið sem fyrst svo hægt verði Friðrik Georgsson. að heíjast handa viö uppbyggingu. Svæöið komi til með aö verða ákaf- lega skemmtilegt. Gert er ráð fyrir að vegur verði frá Tollvörageymsl- unni í Keflavík sem liggi að Reykja- nesbraut í gegnum nikkelsvæðiö. „Við þessa götu er gert ráð fyrir ýmsum þjónustufyrirtækjum. Þaö er um hálf milljón farþega sem á leið til og frá flugstöðinni árlega. Við ætlum að ná i eitthvað af þess- ari umferð inn á svæðiö," segir Friðrik. Friðrik Georgsson starfar í út- lendingaeftirlitinu hjá Tollgæsl- unni á Keflavíkurflugvelli og hefur gert í mörg ár. Hann er vélvirkja- meistari að mennt og starfaði við það í mörg ár. Eitt helsta áhugamál hans er sund sem hann segjr vera ómissandi. Hann var mikill sund- garpur á sínum yngri árum og keppti mikið. Þá er hann skíðamað- ur, hefur gaman af allri útiveru og er mikið félagsmálatröll. Kona hans er Anna Jónsdóttir og eiga þau fjögur börn. Myndgátan Lausn á gátu nr. 1166: úrslitakeppn- inni í hand- bolta Úrslitakeppnin í handboltanum heldur áfram í kvöld en þá leika KA og Víkingur annan leik sinn. Víkingur sigraði stórt í fyrsta leiknum og því þurfa KA-menn að vinna í kvöld til þess að knýja fram oddaleik sem fram færi á Iþróttir heimavelli Víkinga. Leíkurinn á Akureyri hefst kl. 20. Tveir leikir verða í fyrstu deild karla í körfubolta í kvöld. UBK tekur á móti Leikni og Þór í Þor- lákshöfn fær ÍS í heimsókn. Báðir leikirnir hefjst kl. 20. Skák Enn frá stórmótinu í Linares sem nú stendur yfir. Þessi staða er úr skák Ivant- sjúks, sem hafði svart og átti leik, og Lautiers. Við fyrstu sýn virðist hvítur ekki þurfa að örvænta; hann hótar peð- inu á g4 og jafna þar með liösmuninn. Hvað leikur svartur? Ivantsjúk fann glæsilega vinningsleið með 37. - g5!! 38. Hxg4 Hh4! Ef nú 39. KI3 Hxg4 40. Kxg4 Bxe4 og vinnur; eða 39. Hxh4 gxh4 40. Kf3 h3 og hvítur verður að láta riddarann af hendi til þess að stöðva peðið. Lautier gafst því upp. Jón L. Árnason Bridge A alþjóðlega Forbo-sveitakeppnismótinu, sem spilað var í Hollandi á dögunum, kom þetta spil fyrir í leik ísraelskrar sveitar og hollenskrar. Svo virtist sem ísraelamir hefðu sagt sig einum of hátt upp í laufasamningi vegna góðra baráttu- sagna frá Hollendingunum en ísraelski sagnhafinn sannaði hæfni sína í úrspil- inu. Sagnir gengu þannig, austur gjafari og enginn á hættu: * 9 V Á104 ♦ ÁDG874 + ÁG2 * DG73 V G952 ♦ 10 + 7654 N V A S ♦ Á10865 ♦ K86 ♦ K963 + K Austur 1* Pass 3* P/h Suður Vestur Norður Pass 24 Dobl 3+ Pass 34 Pass Pass 4+ Útspil vesturs var einspilið í tígli og sagn- hafi setti ásinn í blindum. Hann spilaði næst tíguldrottningu og austur setti rétti- lega lítið spil og vestur trompaði. Vestiu- spilaði félaga sinn inn á spaðaás í þriðja slag og austur spilaði þá tígulkóngnum. Sagnhafi trompaði með drottningunni og þegar vestur setti ekki laufkónginn, spil- aði sagnhafi næst laufi á ásinn og felldi kónginn blankan. Gerði vörnin mistök með því að upplýsa sagnhafa um stað- setningu laufkóngsins? Nei, því það er alveg sama hvað vörnin gerir, sagnhafi á að sjá út leguna í laufinu. Ef vestur | hefði til dæmis ekki spilaö spaða heldur hjarta í þriðja slag setur sagnhafi lftið spil, austur fær á kónginn og ef hann spilar aftur tigli segir hann aftur til um staðsetningu kóngsins. Ef vömin reynir hvorugan þennan möguleika er hún á sama hátt að upplýsa um stöðuna. Hver Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði sá sem ekki spilar tígli í von um trompun á næsta örugglega kónginn sjálfúr! Hér er því sú sjaldgæfa staða að vömin getur hreinlega ekki komist hjá því að segja sagnhafa frá þvi að austur á laufkónginn og allir góðir úrspilarar ættu því að finna það að fella hann blankan. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.