Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1995, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 14.03.1995, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 1995 15 Útvarp og sjón- varp til sjómanna Alþingi samþykkti nýlega tillögu sem ég flutti ásamt fimm öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins um að fela menntamálaráðherra að láta gera könnun á þeim kostum sem í boði eru tfl að bæta útsending- ar sjónvarps og útvarps til fiskimið- anna kringum landið með hliðsjón af þeirri tækniþróun sem orðið hef- ur á sviði ljósvakamiðlunar. Óviðunandi aðstæður Aðstæður til að ná útsendingum sjónvarps og útvarps á fiskimiðun- um er óviðunandi og víða eru sjó- menn sambandslausir við um- heiminn dögum saman, ekki bara á fjarlægum slóðum, heldur einnig á sumum þeim miöum sem næst liggja landinu. Þetta má glöggt sjá á uppdrætti sem fylgdi tillögu okk- ar. Uppdrátturinn er gerður sam- kvæmt lýsingu Kristjáns Kristjáns- sonar, stýrimanns á loðnuskipinu Kjallaiinn Guðjón Guðmundsson alþingismaður, skipar 2. sæti á lista Sjálfstæð- isflokksins á Vesturlandi „Sanngjarnt er að þessi fjölmenni hópur sjómanna geti fylgst með út- sendingum sjónvarps og hljóðvarps sé þess nokkur kostur." „Víða eru sjómenn sambandslausir við umheiminn dögum saman, ekki bara á Qarlægum slóðum heldur einnig á sumum þeim miðum sem næst liggja landinu.“ Víkingi, en hann hefur fylgst mjög grannt með móttökuskilyrðum um langt árabil. Margt breyst í skýrslu sem menntamálaráðu- neytið gaf út 29. nóvember 1974 er sýndur viðauki við þáverandi dreifikerfi sjónvarps og til hvaða svæða sjónvarpsmerkið næði. Síð- an hefur dreifikerfið verið stækkað en ekki beinst að fiskimiðunum, nema sumum þeim sem næst liggja ströndum landsins. Á síðustu 20 árum hefur margt breyst varðandi möguleika á út- sendingum sjónvarps og hljóð- varps. Tækniþróun á þessu sviði hefur verið mjör ör, gervihnatta- tækni og annarri útsendingar- tækni hefur fleygt fram. Þess vegna leggjum við, flutningsmenn þessar- ar tillögu til að gerð verði könnun á þeim kostum sem í boði eru til að bæta útsendingar sjónvarps og útvarps til fiskimiðanna með hhð- sjón af þeirri tækniþróun sem orðið hefur á sviði ljósvakamiðlunar. Langbylgjusendingar frá Gufuskálum Um síðustu áramót lauk starf- semi loranstöðvarinnar á Gufu- skálum. Var Ríkisútvarpinu boðið mastrið til afnota en tækjabúnaður sem þarf til langbylgjusendinga þaðan kostar u.þ.b. 360 milljónir. Nýlega ákváðu ríkissfjórnin og Ríkisútvarpið að skipta þessum kostnaði á milli sín og kaupa þenn- an búnað. Mikill fengur verður að sending- um úr þessu háa mastri sem kemur í staö Vatnsendamastursins sem féll fyrir nokkrum árum. Sanngirnismál Stór hópur sjómanna er lang- dvölum úti á sjó; farmenn, togara- sjómenn, þeir sem stunda loðnu- og rækjuveiöar, skipveijar á línu- skipum og fleiri. Fjölgun hefur ver- ið mikil í hópnum á allra síðustu árum með breyttu sóknarmynstri flotans, mikifii fjölgun fullvinnslu- skipa og veiða utan fiskveiðilögsög- unnar. Sanngjarnt er að þessi fjölmenni hópur sjómanna geti fylgst með útsendingum sjónvarps og hljóð- varps sé þess nokkur kostur. Þessir menn eru oft sambandslausir við umheiminn dögum saman; heyra ekki í útvarpi, sjá ekki sjónvarp, farsiminn virkar ekki á stórum hafsvæðum og eina sambandið við land er í gegnum talstöð. Von mín er sú að menntamála- ráðherra láti sem fyrst gera þá könnun sem Alþingi fól honum með samþykki tíllögu okkar. Þá kemur í ljós hvaða möguleikar eru til útsendinga sjónvarps og útvarps tíl fiskimiðanna og hvaða kostnað þeir hafa í for með sér. Þegar þær upplýsingar hggja fyrir er það Al- þingis að taka ákvarðanir um framkvæmdir. Guðjón Guðmundsson Afturhvarf til f orneskju I upphafi árs 1994 sendi Félag íslenskra stórkaupmanna kæru í þremur hðum til ESA, Eftírlits- stofnunar EFTA, vegna álagningar vörugjalda hér á landi. í fyrsta lagi telur félagiö vörugjöldin í raun dulbúna tolla, sem brjóti í bága við EES-samninginn, og kom álagning þeirra mörgum mjög á óvart. Einn- ig gerir félagið athugasemdir við þá mismunun sem fram kemur í gjaldfrestí vörugjalda, þar sem heildsölum er gert að greiða gjaldið strax í tolli, en framleiðendur þurfa ekki að gera skil fyrr en að ákveðn- um fresti hðnum eftir að varan er seld. Þriðja athugasemdin varðar 25% hehdsöluálagið sem myndar stofninn tíl álagningar. Fregnir hafa borist af viðbrögð- um ESA við kæru þessari og mun bréf vegna hennar þegar hafa bor- ist íslenskum stjórnvöldum. Næsta stig er hins vegar formleg kvörtun, hhðstæð þeirri sem nú hefur borist vegna áfengiseinkasölunnar, og má vænta slíkrar kvörtunar einhvem næstu daga. ESA mun hafa tekið undir athugasemdir FÍ S við tvo síð- ari hði kærunnar, þ.e. gjaldfrest- inn, sem sé bein mismunun á milli atvinnugreina og því brot á EES- samningnum, og svo gjaldstofninn, sem standist ekki þar sem heild- söluálagning sé mismikil eftír vöruflokkum, og stofninn því ekki raunverulegur. KjaUariiin Stefán S. Guðjónsson framkvæmdastjóri Félags íslenskra stórkaupmanna Hreinn óskapnaður Ljóst er að fyrr eða síöar verða vörugjöld aflögð með öhu. í kjölfar athugasemda ESA, munu hins veg- ar hafa vaknað ýmsar hugmyndir um hvaða leiðir séu færar þar tíl að því kemur. í fjármálaráðuneyt- inu hafa embættismenn smíðað eitt eða fleiri frumvörp um breytingar á vörugjöldum. Þær lausnir sem þar koma fram gefa fuht tilefni til þess að hafa verulegar áhyggjur. I stuttu máli ganga hugmyndim- ar út á einhvers konar bráða- brigðaálagningu í tolh, en að hin raunverulega álagning fari fram á heildsölustígi. Um yrði að ræða svipað kerfi og í virðisaukaskattin- um, þ.e. innskattur/útskattur, með tilheyrandi skýrslu- og pappírs- flóði. Þeir sem þekkja til í vöru- gjaldáfrumskóginum, þar sem m.a. eru 7 mismunandi gjaldflokkar, sjá í hendi sér að þessar hugmyndir eru hreinn óskapnaður. Útkoman yrði gífurleg vinna með tilheyrandi kostnaðarauka. Þar fyrir utan væri veriö að búa til kerfl, sem býður upp á misnotkun óprúttinna aðha sem reglulega skjóta upp kollinum í íslensku viðskiptalífi og veikja stoðir heilbrigðrar samkeppni. Is- lenskir vöruinnflytjendur geta aldrei sætt sig við shkar hugmynd- ir enda eru þær á allan máta óað- gengilegar. Vinsæl fjáröflunarleið Skattar á borð við vömgjöld eru vinsæl fjáröflunarleiö þar sem sýnheiki þeirra er htih sem enginn gagnvart almenningi, öfugt við t.d. virðisaukaskatt. Þó er um að ræða veltuskatta á vömr sem valda um- talsverðri hækkun verðlags. Upp- lýsingar starfsmanna ríkisskatt- stjóra um að vörugjöldin séu sá skattur, sem skih sér hvað verst, hljóta hins vegar að koma nokkuð á óvart þar sem stór hlutí þeirra er í dag innheimtur í tolh. Vömgjöld era tímaskekkja, arfur fomeskjunnar, sem ekkert erindi á í dag þegar öh stefnumótun miðar að því að einfalda gjaldtöku, auðvelda samskipti og draga úr viðskipta- hindrunum. Tímabært er að íslenska ríkið aölagi sína gjaldtöku breyttum kröfum og theinki sér vinnubrögð sem auka hagræði og samkeppnis- hæfhi í íslensku viðskiptaumhverfi. Stefán S. Guðjónsson „Vörugjöld eru tímaskekkja, arfur fom- eskjtmnar, sem ekkert erindi á í dag þegar öll stefnumótun miðar að því að einfalda galdtöku, auðvelda samskipti og draga úr viðskiptahindrunum. “ Meðog Takmaricanír á auglýsing- umstjómmálafiokkai kosningabaráttunni Hægt ef viljinn „Eg er þeirrar skoð- unar að það sé ástæða tíl þess að stjómmála- flokkarnir leggi á sig bönd i þess- um efnum. ;_____________ Stjórnmála- fmmk»æmdastt<Sri flokkarnir ; AiÞyaubandaiaas. era styrktír af almannafé og þurfa að ráðstafa þeim peningum skynsamlega. Kostnaður við aug- lýsingar fer vaxandi kosningar eför kosningar og það er náttúr- lega með auglýsingar eins og aöra sjálfvirka útgjaldaaukningu að menn verða að hemja sig í þeim efnum. íslensk stjórnmálabarátta er mikið í fjölmiðlum og sjónvarp, útvarp og dagblöð kynna afstöðu stjómmálaflokkanna talsvert vel. Þetta er miMð efni sem lagt er á almenning og því tilefni tíl að taka þetta rólega og ofgera fólki ekki gjörsamlega. Það getur verið erfitt að búa th reglur um að takmarka auglýs- ingar sem mismuna ekki miðlum. Aö mínu matí kemur th greina samkomulag um að byrja ekki að auglýsa of snemma, vera ekki með auglýsingar íram á kjördag og sleppa leiknum auglýsingum. Það er einnig hægt að takmarka auglýsingar við magn, til dæmis síðufjölda í blöðum. Aht er hægt ef vhji er fyrir hendi.“ Seint að semja „Ég er ekki á móti sam- komulagi um takmarkanir á auglýsing- um. Ég tel að það megi skoöa það að halda viöræð- lýsingatak- araion, frarr*y»mda- markanir áfram þó að það sé svolítið seint því að kosningabaráttan er hafin. Mér sýnist hinir flokkarnir þegar vera komnir meö 10 síöur í aug- lýsingar og það áöur en aðalkosn- ingabaráttan er hafin þannig að ég veit ekki hvernig þeir ætla aö reyna aö takmarka sig. Ég er al- veg th í að semja um auglýsingar ef hinir flokkamir koma th móts við okkur. Menn hafa ólíkar skoðanir á því hvemig þeir vhja reka kosninga- baráttuna og hvaða miðla þeir vhja nota. Við viljum ekki útíloka leiknar auglýsingar í sjónvarpi og eram þeirrar skoðunar að ekki eigi að taka einn fiölmiðh út og einangra hann eða banna. Fram- kvæmdastjórar flokkanna voru að tala um aö takmarka auglýs- ingar við 15-20 siöur í dagblöðum. Við teljum óskynsamlegt að gefa þannig upp við hina flokkana hvað við ætlum að auglýsa marg- ar síður. Aðalatriðið er aö við treystum okkur th að takmarka okkur sjálfir og teljum skynsam- legt að ákveöa sjálfir og óháð öðr- um hvaö viö auglýsum og hvaða aöferöir viö notvun. Við auglýsum ekki meira en aörir. Við notum hefðbundnar kosningaaöferöir en luraum náttúrlega á leyni- vopnum eins og aðrir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.