Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Blaðsíða 2
2 . LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 Fréttir Frjáls flölmiðlun hf. semur við Skýrr: DV fæst í áskrift á Interneti frá 1. maí - hluti af Upplýsingaheimum Skýrr Samningar voru undirritaðir í gær annars vegar milli Skýrsluvéla ríkis- ins og Reykjavíkurborgar, Skýrr, og Frjálsrar fjölmiðlunar hf. hins vegar um uppsetningu DV á alþjóða tölvu- upplýsingakerfinu Interneti. Frá og með næstu mánaðamótum verður hægt að fá DV í áskrift á Interneti í gegnum Upplýsingaheima Skýrr sem er ný þjónusta innan fyrirtækisins. Upplýsingaheimar munu vista valið efni úr DV og dreifa því um Intemet- ið. Að sögn Jónasar Kristjánssonar, ritstjóra DV, sem undirritaði samn- inginn fyrir hönd Fijálsrar fjölmiðl- unar, gefst notendum Intemets kost- ur á að lesa valið efni blaðsins sam- dægurs auk þess sem DV fæst í áskrift á Internetinu. Einnig veitist aðgangur að fjölbreyttu gagnasafni DV. í gagnasafninu verður m.a. hægt að fá upp á tölvuskjáinn áður birtar fréttir og ættfræðigreinar úr DV. „Þarna verður bæði hægt að glugga í fortíðina í gegnum Internetið sem og blað dagsins," sagði Jónas. „Þetta er stór áfangi fyrir Skýrr og DV og mikilvægt skref í áttina að upplýsingasamfélaginu. Með samn- ingnum geta menn nálgast upplýs- ingar með þeim nýju miðlum sem em í því samfélagi. Viö emm líka mjög ánægðir með að hafa náð samningi við Frjálsa fjölmiðlun sem er stórt og öflugt fyrirtæki á þessu sviði,“ sagði Jón Þór Þórhallsson, forstjóri Skýrr, í samtali við DV. Eins og áður sagði verður DV hluti af Upplýsingaheimum Skýrr. Að auki er stefnt að því að hægt veröi að fá áskrift að ýmsum öðmm upp- lýsingum, s.s. þjóðskrá, fyrirtækja- skrá, ökutækjaskrá, skipaskrá, laga- safni, þinglýsingum og Evrópusam- bandsþýðingum. Yrði þá um að ræða stærsta upplýsingabanka sem völ er á hérlendis. Að sögn Jóns hefur und- irbúningur Upplýsingaheima Skýrr farið fram í samstarfi við nokkra aðila. Um 70 vagnsljórar mótmæla uppsögn „Ég get ekki htið öðmvísi á þetta en sem uppsögn. Sem leigubílstjóri uppfylli ég þær skyldur sem leigu- bíllinn setur mér eða 30 stundir á viku. Það telst ekki nema 70 prósenta starf á almennum markaði. Akstur leigubíla er talið aðalstarf en þaö er ekki bannað að vinna með honum. Þess vegna ætla ég að láta reikna út hugsanlegar skaðabætur og kröfur sem forstjóranum verður sent ef hún harðneitar að ráða mig aftur,“ segir Gunnlaugur Óskarsson, leigubíl- stjóri og fyrrverandi varðstjóri hjá Strætisvögnum Reykjavíkur, SVR. Um 70 af 130 vagnstjórum hjá SVR hafa skrifað undir undirskriftalista til að mótmæla uppsögn Gunnlaugs úr starfi vagnsfjóra og vaktstjóra hjá SVR. Gunnlaugur átti að taka til starfa hjá SVR 1. apríl eftir launa- laust leyfi í fjóra mánuði. Á þessu tímabili hafði hann fengið leyfi til leigubílaaksturs og var gert að velja milli hans og aksturs fyrir SVR. „Það er ekki stefna fyrirtækisins að menn séu samtímis í fullu starfi hjá SVR og öðru aðalstarfi. Það væri ekki skemmtileg afstaða Reykjavík- urborgar þegar fjöldi manna fær enga vinnu aö þá geti aörir setiö að tveimur störfum. Þetta er tilhögun sem hefur gilt hér árum saman og stendur ekki til að breyta henni núna. Þetta var honum vel kunnugt um þegar hann fékk launalaust leyfi í fjóra mánuði til að gera upp hug sinn,“ segir Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR. -GHS Frá undirritun samnings Skýrr og Frjálsrar fjölmiðlunar. Jón Þór Þórhallsson, forstjóri Skýrr, og Jónas Kristjáns- son, ritstjóri DV, munda pennana. Jenný Daviðsdóttir, tölvustjóri DV, fylgist með. DV-mynd GVA Stuttarfréttir Tlllit tekið tíl íslands Tillaga íslands um að sérstakt tillit skuli tekið til rikja sem eru mjög háð sjávarútvegi hefur ver- iö tekin í d'rög aö lokatexta út- hafsveiöiráöstefnu SÞ f New York. RÚV greindi frá þessu. Skilriki nauðsynleg Kjósendum ber að sýna per- sónuskilríki á kjörstað ef eftir því er óskað. ÍS-húsiðtilÁrmannsfells Ármannsfell átti lægste tilboð í byggingu höfuðstöðva íslenskra sjávarafurða í Sigtúni í útboði sl. miðvikudag. Verklok eru áætluð í september nk. Verktakahjá Nató Utanrfkisráðuneytið hefur ósk- að eftir vfijayfirlýsingum frá verktökum sem hafa áhuga á að bjóða í nýtt verk á vegum Mann- virkjasjóðs NATO hér á landi. Sumaráætíun SAS Sumaráætlun SAS á milli Kaupmannahafnar og Keflavíkur tekur gildi 11. aprfi nk. Fiogiö verður þrisvar í viku fram í sept- ember. SamþykkíhJáBaidri Verkalýðsfélagið Baldur á ísafiröi samþykkti i gær nýgerð- an kjarasamning með 117 at- kvæðum gegn 5. Sjómenn boða veridfall Sjóraannafélag Reykjavíkur hefur boðaö 6 daga verkfall hjá hásetum á farskipum aö kvöldi páskadags. RÚV greindi frá. Margk eiga hlutabréf Ails 31.525 íslendingar eiga hlutabréf en einungis 2.600 borga skatt af þeim. Vísbending greindi frá. -kaa Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aO hringja í síma 99-16-00. 39,90 kr. mínútan. Já jJ Nei _2j r S d d FÓLKSINS 99-16-00 Er ástæða til að kenna í grunnskólum á laugardögum? Allir í stafrmna kerfinu meft tónvalisima geta nýtt sér þessa þjánustu. Fundað með Rússum og Norðmönnum í New York „Við munum hitta fulltrúa Norð- manna og Rússa í dag og þar verður rætt um veiðar í Barentshafi. Við erum daglega í sambandi við þessa menn og það er ágætt samband á milli okkar,“ segir Helgi Ágústson, sendiherra og formaöur íslensku sendinefndarinnar á úthafsveiðiráð- stefnunni 1 New York, við DV í gær. íslendingar hafa mörg vandamál við að glfma varðandi veiðar í úthöf- unum. Stórsókn erlendra sem inn- lendra skipa blasir við á Reykjanes- hrygg. Þá er viðbúið að hart verði sótt að norsk-íslenska síldarstofnin- um. Loks er óleyst deilan um Sval- barðasvæðiö og Smuguna. „Við vonumst til þess að það komi meiri hreyfing á málin en veriö hef- ur,“segirHelgi. -rt Skoðanakönnun DV: fylgisins í Miklar sveiflur hafa verið á fylgi fiokkanna undanfarna daga eins og fram kom í skoöanakönn- un sern DV birti í gær. Þetta á ekki síst við í Reykjavík og á Reykjanesi sem eru stærstu kiör- dæmi landsins. í nýjustu skoðanakönnun DV var staöan í þessum kjördæmum sérstaklega tekin út. Úrtakíð, sem var 1.200 manns á öllu landinu, nægir þó ekki til að gera niður- stöðurnar fyllilega marktækar. Af þeim sem tóku afstöðu í Reykjavík reyndust 12,0 prósent styðja Alþýðuflokkinn, 12,7 pró- sent Framsóknarflokkinn, 43,1 prósent Sjálfstæðisflokkinn, 17,3 prósent Alþýöubandalagið, 4,9 prósent Kveimalistann, 8,5 pró- sent Þjóðvaka og 1,4 prósent Nátt- úrulagaflokkinn. Á Reykjanesi mældist fylgi Al- þýðuflokksins 15,9 prósent, Framsóknarflokksins 21,0 pró- sent, Sjálfstæðisflokksins 38,6 prósent, Alþýöubandalagsins 11,4 prósent, Kvennalistans 3,4 pró- sent og Þjóðvaka 8,5 prósent. Aðr- ir framboðslistar mældust með samtalsl,2prósentafylgi. -kaa varekkibirtur Maður, sem ákærður var fyrir að hafa ekið bíi á Kringlumýrar- braut þann 31. janúar og sviptur ökuréttindum, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjaness í gær á þeitn forsendum aö héraðsdóm- ara, sem svipti hann ökuréttind- um þann 29. desember, láðist að lesa þá niðurstöðu upp viö dóms- uppsögu. Dómarinn i fyrra málinu dæmdi manninn fyrir ýmis brot í desember en aðeins hluti máls- ins sneri að umíerðarlagabrot- um. Mánuði síðar tók lögreglan maiminn fyrir að aka réttinda- laus. Hann neitaöi því enda hefði dómarinn aldrei birt honum þann þátt sem sneri að svipting- unni. Engu að síður var maður- inn ákærður fyrir að aka rétt- indalaus. Til að fá niðurstöðu i málið þurfti dómarinn i síðara málinu að boða dómarann úr fytTa mál- inu fyrir dóm, ákærandann í því máli, veijanda og sakborning. Ekkert þessara vitna gat staðfest að dómarinn hefði lesið upp nið- urstöðuna um ökuleyfissvipting- una við dómsuppsögu í desemb- er. Einnig kom fram að sakbom- ingurimt fékk heldur ekki endur- rit af dóminum í hendur. Að þess- um forsendum gefnum var mað- urinn sýknaður - lögmæt birting um ökuleyfissviptinguna á því efiiraðfarafram. Rannsókn hafln Samkepnisstofiiun hefur hafið rannsókn á verðlagningu, fá- keppni og viðskíptahindrunum I framleiðslu eggja og kjúkiinga héf á landi. Verð á þessum vörum er margfalt hærra hér á landi en í nágrannaríkjunum. Samkvæmt heimildum DV nær rannsóknin einnig til framleíðslu og verðmyndunar á fóðurvöru en hún er einkum í höndum tveggja aðila. Hjá Samkeppnisstofnun vildu menn ekki tjá sig um rann- sóknina í morgun enda værí henniekkilokiö. -kaa
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.