Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Page 4
4
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
Fréttir____________________________________________________________
Réttað í máli Vatnsberamanns sem gefin eru að sök 38 milljóna innskattssvik:
Reiknaði sér 29
þúsund á tímann
Kostnaður við vatnsútflutningsfyrirtækið Vatnsberann í Hafnarfirði átti að nema tæpum einum milljarði króna.
Undlrbúningskostnaöur var áætlaður 180 milljónir. Af þeirri upphæð reiknaði sakborningurinn sér laun sem hin
meintu innskattssvik f 111 skipti snúast um. DV-mynd GVA
%
„Varstu þá líka að vinna í fangels-
inu fyrir 29.200 krónur á klukkutím-
ann?“ spurði Guðjón St. Marteinsson
héraðsdómari sakborninginn í svo-
kölluðu Vatnsberamáli í réttarhöld-
um í gær þar sem honum er m.a.
gefiö að sök að hafa útfyllt 111 til-
hæfulausar innskattsskýrslur og
svikið með því út samtals rúmlega
38 milljónir króna af skattayfirvöld-
um á um tveggja ára tímabili - þar
með talið á því timabih þegar hann
sat í fangelsi frá apríl til júní á síð-
asta ári.
Spuming dómarans kom í kjölfar
þess að sakbomingurinn, sem var
framkvæmdastjóri og stjórnarfor-
maöur Vatnsberans, sagðist hafa
reiknað sér laun, 29.200 krónur á tím-
ann í minnst 40 klukkustundir á
viku, sem eini starfsmaður verktaka-
fyrirtækis EBÓ sem sá um samn-
ingagerð og annan erindisrekstur
fyrir Vatnsberann.
Skattayfirvöld greiddu honum
vikulega tékka
Maðurinn fékk að jafnaði greidda
tékka vikulega í um tvö ár sem inn-
skattsgreiðslur eftir að hafa fyllt út
og undirritað viðeigandi skýrslur í
hvert skipti. Þannig sagðist hann
hafa innt vinnu af hendi fyrir Vatns-
berann, fyrirtæki sem í raun var
ekki í neinum rekstri - tímakaupið
reiknaði hann sér 29.200 krónur. Af
þessu greiddu skattayfirvöld honum
innskatt vegna Vatnsberans sem
launagreiðanda þó að launin hafi
ekki verið greidd.
Fram kom við réttarhaldið í gær
að þrátt fyrir að hafa setið í afplánun
vegna fjársvika og annarra afbrota á
vormánuðum síðasta árs hélt hann
áfram að fá greidda tékka frá skatta-
yfirvöldum. Það sem hann þurfti að
gera í afplánuninni var að undirrita
skýrslumar sem síðan fengust
greiddar. Áður en greiðslurnar voru
stöðvaðar höfðu skattayfirvöld greitt
honum innskatt í 111 skipti. Skatt-
rannsóknaryfirvöld fóru í málið,
kærðu manninn til RLR sem síðan
fékk hann úrskurðaðan í farbann frá
og með september til að maðurinn
kæmi sér ekki undan réttarhöldum.
Heildarkostnaður átti að
verða 930 milljónir
Sakbomingurinn upplýsti í dóm-
salnum í gær að Vatnsberinn hefði
verið stofnaður 4. júlí 1994 - mark-
mið fyrirtækisins var aðallega að
undirbúa útflutning á vatni og reisa
verksmiðju. Áætlaður undirbún-
ingskostnaður hefði verið 180 millj-
ónir króna en heildarkostnaður hefði
verið 930 milljónir.
Aöspurður um vinnuna sem fólst í
hinum háu launum sagði ákærði
m.a. að hún hefði falist í undirbún-
ingsvinnu, markaðssetningu, samn-
ingsgerð, útreikningum, þýðingum
og fleira sem tengdist hinum vænt-
anlega vatnsútflutningi.
Gerðir þú samning við
sjálfan þig?
Dómarinn spurði ákærða hvort
hann hefði setiö báðum megin við
borðið þegar hann gerði samning
sem gerður var og undirritaður af
honum - bæði fyrir hönd Vatnsber-
ans og EBÓ sem innti vinnuna af
hendi fyrir Vatnsberann sem inn-
skattsgreiðslurnar vora grundvall-
aöar á. Hann undirritaði því samn-
inginn fyrir hönd beggja aðila.
„Gerðir þú samning við sjálfan
þig?“ spurði Guöjón dómari.
Akærði tók undir að hafa í raun
verið beggja vegna borðsins en eigin-
kona hans hefði einnig undirritað
samninginn fyrir hönd Vatnsberans.
Varðandi greiðslur Vatnsberans til
ákærða voru lögð fram (fyrir dómi)
óundirrituð skuldabréf - þau áttu að
gjaldfalla árið 1996. Um þetta sagði
sakborningurinn m.a. að aldrei hefði
annað staðið til en að Vatnsberinn
greiddi bréfin - þegar reksturinn
í dómsalnum
Óttar Sveinsson
yrði kominn í fastar skorður. Guðjón
dómari spurði þá hvort maðurinn
hefði ekki allt eins getað látið gjald-
fella bréfin árið 2010 eða jafnvel árið
2050 ef eitthvað hefði farið úrskeiðis.
Því neitaði ákærði.
Ófriður af fjölmiðlunum
Sakbomingurinn sagði að flölm-
iðlaumfjöllun á Stöð 2 og í DV árið
1992 hefði orðið til þess að ýmsir aðil-
ar hefðu dregið sig út úr áformum
um vatnsútflutningsumsvif Vatns-
berans. Þá upplýsti DV m.a. sakar-
feril mannsins. Bergur Guðnason
hefði t.a.m. rift samningi fyrir hönd
fyrirtækis sem hugðis eiga samstarf'
við Vatnsberann og fleiri aöila.
Sakborningurinn sagði í gær að 28
aðilar að honum meðtöldum væru
eigendur Vatnsberans. Varöandi
þetta sagði Jón Snorrason sækjandi:
„Þú talar um „við“. Hveijir eru
„við“. Ákærði sagði þá að eigendur
væra 28. „Nei,“ sagði Jón og benti á
að aðeins tveir aðilar væru skráðir
fyrir fyrirtækinu. Ákærði svaraði
því þá til að þeir skyldu þá „bara
tala um“ hann og eiginkonu hans.
Varðandi 28 menningana sagði
ákærði eitthvað á þá leið að þar hefði
verið um að ræða fjölda áhugasamra
einstaklipga sem vildu ekki bendla
nöfn sín við Vatnsberann fyrr en
honum væri farinn að vaxa fiskur
um hrygg.
Maðurinn er auk ákæru um inn-
skattssvikin ákærður fyrir að hafa
ranglega tilkynnt um hlutafjáraukn-
ingu upp á 60 milljónir króna. Auk
þess era honum gefin að sök fjársvik
með því að hafa lagt fram orlofskröfu
upp á 579 þúsund krónur sem rök
reyndust ekki vera fyrir vegna launa
- þetta var krafa sem yfirvöld
greiddu manninum.
Talning atkvæða í alþingiskosnlngunum í dag:
Alþingiskosnin gamar:
Alþingiskosningamar í dag eru
16. þingkosningamar siðan ís-
land varð lýðveldi. Kosning hefst
um allt land klukkan 9.00 og lýk-
ur klukkan 22.00 í kvöld.
Á kjörskrá víð alþingiskosning-
arnar eru 192.058 manns og hefur
fiölgað um 9.290 manns frá al-
þingiskosningunum 1991, sem er
5,1 prósent. Karlar á kjörskrá eru
95.953 en konur 96.105.
í Reykjavík eru 77.582 á kjör-
skrá, í Reykjanesi 48.560, Vestur-
landi 9.852, Vestfiörðum 6.334,
Norðurlandskjördæmi vestra:
7.202, Norðurlandskjördæmi
eystra 18.983, Austurlandskjör-
dæmi 9.042 og Suðurlandskjör-
dæmi 14.503 á kiörskrá.
Fólk er á kiörskrá í því sveitar-
félagi sem það var skráð í 3 vikum
fyrir kjördag. Ef í Ijós kemur að
einhver hefur fállið út af kjörskrá
getur viðkomandi kært sig inn á
kjörskrá. Stjómmálaflokkamir
aðstoða fólk við slíkt á kjördag.
Kjósendur með lögheimili er- ;
lendis era 6.331 og hefur fiölgað
um rúm 7 prósent frá 1991.
eftirfáadaga
„Víð gefum eigendum hross-
anna einhverja örfáa daga til að
bregðast við - að fiarlægja hross-
in sjálfir og fara að lögum. Að
þeim fima loknum veröur þetta
væntanlega lögreglumál,“ sagöi
Marteinn Valdimarsson, sveitar-
stjóri í Búðardal, um hrossin 1
FremB-Langey á Breiöáfirði þar
sem umhverfisráðherra hefur
bannað dýrahald að vetrarlagi.
Eggert Eggertsson, eigandi
hrossanna, sagði við DV að farið
yrði út í eyju um páska til að
hlynna að hrossunum og að faöir
hans færi til búsetu í eynni í
mai. Þetta sagði sveitarstjórinn
hins vegar „ekki vera nóg“. -Ött
KörfuboltLnn:
Breyting hefur orðið frá áður
auglýstri dagskrá Stöðvar 2 í dag.
Kl. 16 veröur sýndur sjötö leikur-
inn í íslandsmeistarakeppninni í
körfuknattleik sem fram fer 1
Grindavík en þar eigast við
Grindvíkingar og Njarðvíkingar.
Tveir dagskrárliðir falla niður -
kvikmyndin Aðkomumaðurinn
og Uppáhaldsmyndir Martins
Scorsese.
Víðast tölur klukkan 22
- dregst þó eitthvað að þær komi úr Vestflarða- og Austurlandskjördæmum
í öllum kjördæmum er stefnt að
því að hefia talningu atkvæða í dag
á milli klukkan 16.00 og 22.00. Þeir
kjörstjómarmenn um allt land, sem
DV ræddi við í gær, sögðu aö búast
mætti við fyrstu tölum um leiö og
kjördeildum yrði lokað.
Úti á landi eiga menn almennt ekki
von á því að talningu ljúki fyrr en
klukkan 3-4 í nótt. Á Vestfjörðum og
Austfiörðum sennilega eitthvað
seinna.
Reykjavik
Jón G. Tómasson, formaður yfir-
kjörstjómar, sagði að menn yrðu lok-
aöir inni til talningar klukkan 18.30
og fyrstu tölur úr Reykjavík kæmu
strax upp úr klukkan 22.00.
Reykjanes
Bjami Ásgeirsson, formaður yfir-
kjörstjórnar í Reykjaneskjördæmi,
sagöi að menn yrðu lokaðir af til taln-
ingar klukkan 19.00 og fyrstu tölur
ættu að koma klukkan 22.00.
Vesturlandskjördæmi
Gísh Kjartansson, formaður yfir-
kjörsfiómar í Vesturlandskjördæmi,
sagði að þeir myndu hefia talningu
klukkan 20.00 og strax upp úr klukk-
an 22.00 mætti búast við fyrstu tölum.
Vestfjarðakjördæmi
Vestfiarðakjördæmi er erfiðast yf-
irferðar allra kjördæma landsins
enda koma fyrstu kosningatölur það-
an oftast síðast. Björgvin Bjamason,
formaður yfirkjörsfiómar, sagði að
ef allt væri með eðlilegum hætti
væri hægt að hefia talningu strax um
klukkan 22.00. Þess vegna mætti bú-
ast við fyrstu tölum um klukkan
23.00. Ef það ekki tækist mætti allt
eins gera ráð fyrir að fyrstu tölur
kæmu ekki fyrr en milli klukkan 1
og 2 í nótt.
Norðurlandskjördæmi vestra
Halldór Þ. Jónsson, formaður yfir-
kjörsfiómar í Norðurlandi vestra,
sagöi að fyrstu tölur þaðan kæmu
strax klukkan 22.00 ef ekkert óvænt
kæmi upp á. Byrjað yrði að flokka
atkvæöi og telja um klukkan 20.30.
Norðurlandskjördæmi eystra
Freyr Ófeigsson, formaður yfir-
kjörsfiómar í Norðurlandskjördæmi
eystra, sagði að ef allt gengi snurðu-
laust mætti búast við fyrstu tölum
upp úr klukkan 22.00. Byijað yrði aö
flokka kjörseðla og síðan telja klukk-
an 18.00.
Austurlandskjördæmi
Láras Bjamason, formaður yfir-
kjörsfiómar Austfiarðakjördæmis,
sagðist ekki eiga von á að talning
hæfist fyrr en upp úr klukkan 22.00.
Þó gæti hugsast að hún hæfist upp
úr klukkan 21.00 ef útht væri fyrir
að allt gengi samkvæmt áætlun.
Fyrstu tölur kæmu því ekki fyrr en
milli klukkan 23.00 og 24.00.
Suðurlandskjördæmi
Stefán Á. Þórðarson, sem sæti í í
yfirkjörstjóm Suðurlandskjördæm-
is, sagði að klukkan 19.00 yrðu taln-
ingamenn lokaðir inni og strax
klukkan 22.00 mætti búast við fyrstu
tölum.