Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Page 18
18
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
Dagur í lífl Þórhalls Sigurðssonar, Ladda:
Að koma sér í gottgrín
„Ég rumskaði um níuleytið, leit á
klukkuna og spratt upp. En, nei,
bíddu við, ég mundi allt í einu að
við ætluðum ekki að hittast fyrr
en klukkan ellefu á Spaugstofunni.
Ég lét mig því síga hægt niður á
koddann og stundi. „Er eitthvað
að?“ spurði eiginkonan og tók um
ennið á mér. „Já,“ sagði ég. „Ég
má lúra aðeins lengur."
Venjulega byija morgnarnir á
Spaugstofunni klukkan tíu nema
þennan morgun svo ég dröslaðist
fram úr rúminu um hálftíuleytið
og fékk mér minn venjulega morg-
unverð, eina ristaða brauðsneið
með sinnepi og osti og kaffi með
smámjólk út í. Með þessu góðgæti
las ég Morgunblaðið og reyndi að
finna eitthvað bitastætt fyrir Imba-
kassann. Það var þó ekkert frekar
en venjulega - þetta voru aðallega
fréttir um slys, hungur og vosbúð
eða morð, lítið spaugilegt við það.
Ég kláraði aö lesa blaðið og fór mun
vitrari og fróðari en ég var þegar
ég vaknaði út í bíl og ók sem leið
lá niður í Laugardalslaug. Ég synti
nokkur hundruð metra og var
mættur á Spaugstofuna klukkan
ellefu.
Kjaftasögur
oglygar
Til þess að koma okkur í gang eða
að koma okkur í grínform fáum við
okkur eldsterkt kaffi og segjum
hver öðrum kjaftasögur eða ljúgum
einhveiju krassandi. Fyrr en varir
er grínið farið að flæða út úr okkur
og Guðmundur Ólafsson aðalritari
hefur varla við að festa á blað - það
hreinlega rýkur úr pennanum.
Þannig gekk þetta næstu fjóra
klukkutímana eða til klukkan þijú
en þá þurftu menn að sinna öðrum
málefnum. Aðalritarinn fór heim
að skrifa út hugmyndirnar, ég fór
í smáútréttingar, rukkaði, fór í
bankann og svoleiðis. Síðan fór ég
á fund hjá Hemma Gunn upp í
Sjónvarpi þar sem ég ætlaði nefni-
lega að koma í heimsókn í þáttinn
hans daginn eftir.
Þegar þessu öllu var lokið fór ég
upp á Stöð 2 þar sem ég átti fund
meö vini mínum, Björgvin Hall-
dórssyni stórsöngvara og dag-
skrárstjóra Bylgjunnar, vegna aug-
lýsinga sem ég ætlaði að gera fyrir
skemmtidagskrá sem ber heitið
„Norðan grín og garri“og ég er með
í Sjallanum á Akureyri um helgar.
Kálbögglar
í matinn
Þegar ég var búinn að þessu var
klukkan orðin sex svo ég dreif mig
heim þar sem eiginkonan beið með
þessa líka indælis kálböggla. Eftir
máltíðina lagðist ég stynjandi í sóf-
ann fyrir framan sjónvarpið. Ég
horfði á fréttaþáttinn nítján nítján
til klukkan átta en þá þurfti ég að
taka saman skemmtidótið mitt og
brenna suður í Hafnaríjörð til að
sækja Hjört Howser, undirleikara
minn. Á leiðinni tók ég bensín en
síðan var ferðinni heitið sem leið
DV-mynd GVA
lá suður í Stapa en þar átti ég að
skemmta nemendum úr Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja.
Kvöldskemmtunin tókst vel og ég
komst loksins heim upp úr ellefu.
Þá lögðumst við hjónin marflöt upp
í sófa og settum góða bíómynd í
tækið. Þar með endaði þessi ágæti
dagur, eins og þeir gera flestir, og
annar nýr beið handan miðnættis.
Góða nótt.
Finnur þú finnn breytingar? 304
Ég féll á bílprófinu, Siggi.
Nafn:,
Vinningshafar fyrir þijú hundruðustu og aðra get-
raun reyndust vera:
1. Kolbrún Árnadóttir 2. Guðrún Þóra Guðnadóttir
Mávabraut 9d Fögruhlíð 13
230 Keflavík 735 Eskifjörður
Myndirnar tvær virðast við fyrstu
sýn eins en þegar betur er að gáð
kemur í Ijós að á myndinni til
hægri hefur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm atriöi
skaltu merkja við þau með krossi
á myndinni til hægri og senda
okkur hana ásamt nafni þínu og
heimilisfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sigurveg-
aranna.
1. verðlaun:
Zodiac Sigma 300 sími, aö verðmæti kr.
4.950, fVá Hljómbæ, Hverfisgötu 103,
2. verðlaun:
Urvalsbækur. Bækurnar, sem eru í verð-
laun, heita: Líki ofaukiö og Bláhjálmur
úr bókaflokknum Bróðir Cadfael, aö verð-
mæti kr. 1.790. Bækurnar era gefnar út
af Frjálsri fjölmiölun.
Vinningarnir verða sendii* heim.
Finnur þú fimm breytingar? 304
c/o DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík