Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.1995, Síða 42
LAUGARDAGUR 8. APRÍL 199t
•'p.Jist
* w..
50
Eazy-E lát-
inn úr eyðni
Rapparinn Eazy-E sem var
einn af stoöiendum rappsveitar-
inar Niggers With Attitude léstá
dögunum vestur í Bandaríkjvm-
um aöeins 31 árs aö aldri. Fráfall
hans kom mjög á óvart og sérstak-
lega þau tíðindi aö hann hefði
verið meö alnæmi. Hann greind-
ist óvænt með alnæmi fyrir
nokkrum vikum en enginn bjóst
við að sjúkdómurinn myndi
leggja hann að velli svo skjótt.
Oasis í
samstarf
við George
Martin
Nýja breska stórsveitin Oasis
hefur í hyggju að taka upp sam-
starf við hinn víðkunna upptöku-
stjóra George Martin, sem var
maðurinn á bak við Bítlana á sín-
um tíma. Á síðustu smáskífu Oas-
is með laginu Whatever mátti
heyra gamalkunna strengjatóna
a la Martin og Bítlamir. Við Brit
verðlaunaafhendinguna á dögun-
um voru liðsmenn Oasis ekkert
að fara í launkofa með það að í
raim og veru ætti Martin heiður-
inn af útsetningunni þó hann
hefði ekki komið beint við sögu.
Skömmu síðar hafði Martin sam-
band við Oasis og bauð samstarf.
Frank Black
fallin stjarna
Rokkarinn Black Francis sem
á sínum tima var stórstjama með
hljómsveitinni The Pixies hefur
heldur betur skriplað á skötu síð-
an allt lék í lyndi. Hann byrjaði
á því að snúa nafni sínu við og
tók upp nafiiið Frank Black og
reyndi fyrir sér sem einherji.
Ekki gekk það sem skyldi og nú
berast fregnir af því að hljóm-
plötufyrirtæki hans hafi rift
samningum við hann og látið
hann gossa.
Fun-Da
Mental
aftur til Ind-
lands
Breska hljómsveitin Fun-Da-
Mental er á förum til Indlands og
Pakistan til að vinna að upptök-
um á myndböndum. Þetta er í
sjálfu sér ekki mjög í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir að
hljómsveitin gerði það sama í
fyrra og þá tókst ekki betur til en
svo að hún kom í tveimur hlut-
um heim til Bretlands á ný vegna
ósamkomulags. Þá tóku við rétt-
arhöld vegna deilna um nafnið
Fun-Da-Mental sem lauk með því
að þeir sem töpuðu stofnuðu nýja
hljómsveit sem heitir Detri-
mental.
íil WM
H §
SImíí
mTmSHtl plilf
'j.'l j mm iiö ?
l *
i « » 'J
r \ t ii 1!
i
x
lij| tff|
Ifri ri
1 itJ
I BOÐI
?/ A BYLGJUNNII DAG KL. 16.00
ÍJ «] w *■ L! ■jí VI ÍSIÍI LISTINN XII. 112 f'Z 1T XJ /\ J-v /jp Ö-J S» & I /í Lh !Z <U -'Í i"S. w e -£ » «5 J. o e «5
| ÞESSI VIKA SlÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM 4 ? 4®
|CD 2 4 5 BEUEVE ELTON JOHN
2 1 3 4 1 CAN’T BE WITH YOU CRANBERRIES
© 8 - 2 STRANGE CURRENCIES REM
O) 21 - 2 HAKUNA MATATA JIMMY CLIFF
5 4 2 7 WHEN 1 COME AROUND GREEN DAY
6 5 7 4 TOTAL ECLIPSE OF THE HEART NICKI FRENCH
7 7 11 6 BOXERS MORRISEY
8 3 1 10 DANCING BAREFOT U2
9 6 15 6 1 SAW YOU DANCING YAKI-DA
G5) 14 27 3 OVER MY SHOULDER MIKE & THE MECHANICS
© 16 - 2 BACK FOR GOOD TAKE THAT
12 12 18 5 OPEN YOUR HEART M-PEOPLE
© 37 2 ••• HÁSTÖKK vikunnar •» JULIA SAYS WET WET WET
Jj2L 1 NÝTTÁ LISTA - JEURN ON. TUNE IN. COP OUT FREAK POWER
NÝTT
15 10 10 8 SOMEDAY l'LL BE SATURDAY NIGHT BON JOVI
Gfi) cxm 1 WAKE UP BOO BOO RADLEYS
17 9 5 10 THE BALLAD OF PETER PUMKINHEAD CRASH TEST DUMMIES
©) 27 - 2 YOU'RE NO GOOD ASWAD
© 1 HIGH & DRY RADIOHEAD
m NÝTT 1 1, YOU, WE JET BLACK JOE
21 13 8 6 1 KNOW DIONNE FARRIS
© 24 28 4 AN ANGEL KELLY FAMILIE
23 11 17 4 SHORT DICK MAN 20 FINGERS & GILLETTE
24 15 9 9 NO MORE „1 LOVE YOU'S" ANNIE LENNOX
25 17 19 3 ÞAKKLÆTI SIGRÍÐUR BEINTEINSDÓTTIR
26 19 23 4 CAN'T STOP LOVIN' YOU ' VAN HALEN
© 35 38 3 GET READY THE PROCLAIMERS
© 29 30 4 WHAT HAVE WE GOT TO LOSE HANNE BOEL
29 22 22 5 FOR YOUR LOVE STEVIE WONDER
m NÝTT 1 PERFECT DAY DURAN DURAN
31 20 12 6 YOU GOT IT BONNIE RAITT
© 38 - 2 LUCY'S EYES PAPERMOON
© 36 37 3 WHOOPS NOW JANET JACKSON
(5) 1 ROSALEGA TWEETY
© 40 - 2 LOSTI VINIR VORS OG BLÓMA
36 23 26 6 MURDER INCORPORATED BRUCE SPRINGSTEEN
37 32 - 2 LET IT RAIN EAST 17
© © Ga> 1 LOOK WHAT LOVE HAS DONE PATTY SMYTH
NÝTT NÝTT 1 HERE AND NOW DEL AMITRI
1 YOU ARE EVERYTHING MELANIE WILLIAMS/JOE ROBERTS
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn ersamvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem er framkvæmdaf markaðsdeild DVihverri viku.
Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á islenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
á hverjum laugardegi i DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 16.00 sama dag. Listinn er birtur, að hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski listinn tekur
þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er afRadio Express I Los Angeles. Einnig hefur hann áhrifá Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music & Media sem
errekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV -Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og ívar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backman
og Jóhann Garðar ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel ólafsson
Elvis Costello og hljómsveit
hans The Attractions haífa nýlok-
ið við að gera plötu sem inniheld-
ur nýjar útgáfúr af gamalkunn-
rnn lögum úr ýmsum áttum.
Kojak Variety á gripurinn að
heita og kemur út 17. maL.Inn-
lendir popparar eru farnir að
hugsa sér tO hreyfings fyrir vor-
ið og sumarið sem kemur von-
andi einhvemtíma. Þann 11. apr-
0 næstkomandi kemur safnplat-
an Heyrðu 6 á markaðinn og þann
25. apríl kemur út Evróvisjónlag
Björgvins Halldórssonar en það
heitir Núna. í kjölfarið fylgir svo
plata með öllum þeim Evró-
visjónlögum sem Björgvin hefúr
sungið í gegnum tíöina...
Prince
orðinn
Tora Tora
Maðurinn sem eitt sinn kallaði
sig Prince er í stöðugu stríði við
útgáfufyrirtæki sitt Warners
vegna þess að það vill ekki gefa
plötur hans út jafnharðan og
hann ungar þeim út. Og nú ætl-
ar Warner í mál við kappann
vegna þess að hann kemur fram
á plötu hljómsveitarinnar New
Power Generation og bað ekki
um leyfi! Hann kemur þar fram
undir nafninu Tora Tora sem
hann notaði einnig á dögunum er
hann kom fram í Top Of The
Pops. Talsmenn Tora Tora segja
að þetta sé allt á misskilningi
byggt og að þáttur hans á plöt-
unni sé lítill sem enginn.
-SþS-
Á toppnurn
Óskarsverðlaunahafmn Elton
John komst í fyrsta sæti íslenska
listans með lag sitt Believe en lag-
ið hefur verið 5 vikur á lista.
Elton John fékk óskarinn í síð-
ustu viku fyrir besta frumsamda
lag í kvikmynd, (Lion King), en
það var fýrir lagið Can You Feel
The Love Tonight.
Nytt
Hæsta nýja lagið er Tum on,
Tune in, Cop out með hljómsveit-
inni Freak Power. Svo undarlega
sem það hljóma er um eitt og hálft
ár síðan hljómsveitin gaf lagið út.
Það náði þó ekki alþjóðavinsæld-
um fyrr en gaUabuxnafyrirtækið
Levi’s ákvað að nota það í auglýs-
ingu sinni.
Hástökkið
Hástökk vikimnar er lagið Jul-
ia Says með hljómsveitinni Wet
Wet Wet. Lagið verður á væntan-
legri breiðskífu sveitarinnar sem
aðdáendur bíða eftir með
óþreyju. Á þeirri breiðskífú verö-
ur einnig lagið rómantíska, Love
Is All around, úr myndinni Four
Weddúigs and a Funeral.