Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1995, Qupperneq 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995
Útlönd
Rúmenía:
flugslysinu
Vélarbilun var orsok mesta
flugslyss í sögu rúmenska flugfé-
lagsins Tarom, þegar Airbus far-
þegavél félagsins fórst með 60
manns rétt eftir flugtak frá Búk-
arest í lok mars. Sérstök rann-
sóknarnefnd hefur komist aö
þeirri niöurstöðu að hægrí hreyf-
ill vélarinnar hafl ekki hægt á sér
rétt eftir flugtakið heldur haldið
áfram að snúast af fullu afli. Þar
sem vinstri hreyfillinn hafði
hægt á sér, eins og hann átti aö
gera, hafi vélin tekið dýíú niður
á við og brotlent á hvolfi. Rann-
sóknarnefhdin útilokar alveg aö
sprengja hafl orsakað slysið.
HvítirBanda-
ríkjamenn telja
Simpsonsekan
Fimm sinnum fleiri hvítir
Bandaríkiamenn en þeldökkir
telja að ruðningshetjan O.J,
Simpson sé sekur um morð á
fyrrum eiginkonu sinni og elsk-
huga hennar. í nýrri könnun
veslra kemur ffam að 49 prósent
hvítra aöspuröra segjast mundu
dæma Simpson sekan um morð-
in. Einungis 11 prósentþeldökkra
Bandaríkiamanna eru á þeirri
skoðun en 56 prósent þeirra telja
aö hann sé saklaus. Meirihluti
þeldökkra Bandaríkjamanna
telja að kynþáttur hafi veriö ráð-
andi þegar ákveðið var aö ákæra
Simpson um morðin.
Spænskur her-
maður myrtiu-
Spænskur hermaður var myrt-
ur í borginni San Sebastian á
Norður-Spáni f gær. Hermaður-
inn var á leið heim í mat þegar
tveir menn þustu út úr kyrrstæð-
um bíl og skutu hann af stuttu
færi. Hermaðurinn lést sam-
stundis. Bíll tilræðismannanna
fannst stuttu síðar skammt frá
moröstaðnum en grunur leikur á
að Aðskilnaðarhreyfing Baska,
ETA, standi á bak viö moröið.
Skæruliðar á vegum ETA hafa
orðið um 800 manns að bana í
meira en tvegga áratuga baráttu
fyrír sjálfstæðu ríki Baska.
Noregur:
Megadansaum
páskana
Nú er ekki lengur bannaö aö
dansa á opinberum stöðum í Nor-
egi um páskana. Ný lög um helgi-
daga, sem norska Stórþingiö
samþykkti í janúar, slaka mjög á
þeim reglum sem áður giltu en
þær fólu í sér klárt bann viö dansi
um helgidagana. Þuiftu veitinga-
menn, eins og hér á landi, aö setja
borð út á dansgólfin til að ekki
yrði dansað.
Mikill þrýstingur var frá hendí
hótel- og veitingahúsaeigenda um
að reglunum um dansbannið yröi
afiétt. Þeir voru orðnir þreyttir á
aðþurfa að banna gestum sinum
aö dansa og reka þá þar að auki
heim á miðnætti fyrir páskadag.
Austurríki:
Þrírlátastíjarð-
Þrír iétust i eldsvoða sem kom
upp við árekstur fimm bíla i ein-
stefnujarögöngum í Austurríki f
gær. Slysið varð í Pláender jarö-
göngunum sem eru 6,7 kílómetra
löng og eru nærri landamærum
Þýskalands. Reykur og eldur
gerði björgunarstarf erfitt. Útlit
er fyrir aö göngin veröi lokuð
næstudaga. Réuter/NTB
Grálúðudeila Kanada og ESB enn óleyst:
Kanadamenn
hóta aðgerðum
- grípa til „viðeigandi ráðstafana“ á morgun
Brian Tobin, sjávarútvegsráð-
herra Kanada, hefur hótað aðgerðum
gegn spænskum togurum á grálúðu-
miðunum á Miklabanka út af Ný-
fundnalandi á miðvikudag ef samn-
ingar hafa ekki náðst milli Kanada
og Evrópusambandsins (ESB) í grá-
lúðudeilunni fyrir þann tíma. 15
spænskir togarar eru nú á miðunum
umdeildu.
Tobin neitaði því í gærkvöld að
hann væri að setja ESB úrslitakosti
en sagðist verulega vonsvikinn yfir
því að utanríkisráðherrar ESB hefðu
ekki samþykkt drög að samningi sem
lágu fyrir um helgina. Hann sagði
að tveir fundir væru fyrirhugaðir hjá
Evrópusambandinu í dag og einnig
myndi Jean Chretien, forsætisráð-
herra Kanada, boða ráðherra sína á
fund. Ef ekkert hefði heyrst frá Evr-
ópusambandinu á miðvikudag yrði
gripið til viðeigandi ráðstafana á
grálúðumiðunum út af Nýfundna-
landi þar sem spænskir togarar eru
nú staddir.
„Á þeim tímapunkti munum við
gera það sem nauðsynlegt þykir til
að fylgja eftir þeirri stefnu stjórnar-
innar aö tryggja vemdun tegundar-
Brian Tobin, sjávarútvegsráðherra
Kanada, hótar aðgerðum gegn
spænskum togurum á Miklabanka á
miðvikudag hafi Evrópusambandið
þá ekki samþykkt þau drög að
samningi sem fyrir liggja.
Símamynd Reuter
innar,“ sagði Tobin. Hann sagði að
samningar lægju fyrir og aðeins væri
deilt um úthlutun grálúðukvóta milli
landanna. Önnur atriði væru klár og
ekki væri hægt að semja upp á nýtt.
Annaðhvort yrðu þau drög sem
lægju fyrir samþykkt eða ekki.
Kanadamenn hafa fallist á að ESB
og Kanada fái jafn stóra grálúðu-
kvóta á Nýfundnalandsmiðum, eða
um 10 þúsund tonn hvor aðili. Upp-
haflega hafði Norðvestur-Atlants-
hafs fiskveiöistofnunin (NAFO) út-
hlutaö Kanadamönnum fimm sinn-
um meiri kvóta. Hann segir að það
sé hlutverk Evrópusambandsins að
sannfæra Spánverja. Kanadamenn
geti ekki gefið meira eftir. Þeir hafi
verið mjög sveigjanlegir í þessum
samningum.
Tobin segir að þau drög að samn-
ingi sem nú hggi fyrir geti orðið til
þess að vernda og byggja upp sex
aðra stofna á Nýfundnalandsmiðum
sem séu í verulegri útrýmingar-
hættu. Þegar til lengri tíma sé litið
muni Spánverjar græða á því. Haldi
þeir hins vegar áfram stjórnlausum
veiðum muni þeir stuðla að útrým-
ingustofnaásvæðinu. Reuter
Maður þessi heitir Nick Morrison og er Ástrali. Hann hefur eytt síðustu 11 árunum við að safna minjagripum um
fyrstu hvítu landnemana í Ástralíu. Hann býr sjálfur afskekkt nokkurn spöl frá bænum Barcaldine í nítjándu aldar
kofa ásamt kengúrunni sinni „King Wally“. Safn hans þykir merkilegt og margur ferðalangurinn stoppar til að
skoða það á leið sinni á þessar slóðir til að fagna eitt hundruð ára afmæli óopinbers þjóðsöngs Ástrala, Waltz-
ing Mathilda um þessar mundir. Simamynd Reuter
Boulogne 1 Frakklandi:
Franskir sjómenn eyði-
lögðu norska f isksendingu
Á milli 100 og 150 franskir sjómenn
í uppreisnarhug réðust á fimm tengi-
vagna, fulla af norskum laxi, í borg-
inni Boulogne-sur-Mer í gærkvöldi,
tæmdu þá og eyðilögðu fiskinn í
mótmælaskyni. Vöruflutningabflar
voru nýkomnir með laxinn þegar
þetta gerðist. Norsku útflytjendumir
bmgðu á það ráð að senda strax nýja
farma og var von á þeim til Boulogne
strax í morgun.
Þetta er í fyrsta sinn á þessu ári
sem franskir sjómenn ráðast gegn
útflutningsafurðum frá Noregi en
þeir eru frægir fyrir að vera mjög
herskáir. Á síðasta ári máttu norskir
útflytjendur hins vegar þola ýmislegt
frá sjómönnunum og endaði það mál
með því að franska ríkið varð að
borga Norðmönnum bætur fyrir ali-
an skemmda fiskinn.
Franskir sjómenn vilja fá hækkað
lágmarksverð á laxi frá löndum utan
Evrópusambandsins og fengu þá
kröfu sína reyndar fram að hluta í
fyrra eftir átökin en eru enn við sama
heygarðshomið. Átökin í fyrra komu
þó ekki í veg fyrir að 1994 varð metár
í útflutningi á norskum fiskafurðum,
einnig til Frakklands. í Frakklandi
er mikilvægasti markaður Norð-
manna þegar fiskafurðir em annars
vegar.
Franskir sjómenn hafa oft hótað
aðgerðum í ár en ekki hefur orðið
úr þeim fyrr en nú. Franska lögregl-
an hefur lofað að rannsókn árásar-
innar í gær fái forgangsmeðferð og
búist er við að franska ríkið neyðist
enn til að borga Norðmönnum bæt-
ur.
NTB
Stuttar fréttir dv
Siðastavígió aðfalla
Síðasta vigi Tsjetsjena er að
falla í hendur Rússa, flórum mán-
uðum eftir að aðgerðir Rússa
gegn aðskilnaðarsinnum hófust.
Ciæsífrí
Willy Claes,
framkvæmda-
stjóri Nato,
farinn í tveggja
vikna frí, ein-
mitt þegar
þrýstíngur
;ÁéíhlÍ:;;!n:|úÚtUr;
málsins heima í
Belgíu eykst Taismenn
segja fríið ekki tengjast mútumál-
inu á neinn hátt.
Irakar með sýklavopn
Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna
hafna þeirri skýringu íraka að
þeir hafi fiutt inn mikið magn lif-
rænna efna til læknisfræðírann-
sókna. Segja þeir ailt benda til að
efnin verði notuð í sýklahernaði.
ÞrýstinguráTyrki
TyrMr verða fyrir auknum
þiýstingi að hætta aðgerðum sín-
um gegn Kúrdum í noröurhluta
íraks.
Átök á Gaza-svæðinu
Palestínskir lögreglumenn og
múslímskir öfgamenn sMtpust á
skotum á Gaza-svæðinu í uótt,
rétt etir að Arafat hafði boðað
aðgerðir gegn herskáum múslím-
um.
Ramos rekur diplómata
Fidel Ramos,
forseti Filipps-
eyja, hefur rek-
ið níu dipló-
mata úr utan-
ríMsþjónstunni
vegna henging-
ar barafóstr-
unnar í Singa-
pore í siðasta mánuði. Sagði hann
aftökuna slælegri frammistööu
þeirra að kenna.
Litaðaíburtu
Króatar hvetja Sameinuðu
þjóðirnar til að senda friðar-
gæsluliða af afrískum og asiskum
uppruna heim 1 þeirri von að
staða friðargæslusveitanna gagn-
vart uppreisnarsveitum Serba
styrkist.
Chbaq með stjörnunum
Jacques
Chirac, forsta-
frambjóðandi í
FrakMandi
stuðningi með-
al fólks í
skemmtana- og
kvikmynda-
iðn-aðinum
með loforðum um aukin rikis-
framlög sem auka eiga hróður
Frakka á menningarsviðinu.
Rómverskarfomleifar
Fornleifafræðingar í Lúxem-
borg hafa fundiö rómverskar
rústir sem eru þær best varð-
veittu sem fundist hafa í Norður-
Evrópu í 30 ár.
Ringulreiðin í kringum mál
ruðningshetjunanr O.J. Simp-
sons, sem ákærður er fyrir tvö
morð, er talin geta eyðilagt rnála-
rekstim ákæruvaldsins. Því verði
að hraða málinu.
Matwstöðvaður
Líf einnar milljóna Rúanda-
manna í ílóttamannabúðum í Za-
ir er í hættu þar sem Ruanda-
menn hafa stöðvað matvælasend-
ingar á landamærunum,