Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1995, Blaðsíða 10
10
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995
Spumingin
Lesendur
Ertu búin/n að plana
sumarfriið?
Ragnhildur Ásbjörnsdóttir nemi: Ég
verð að vinna í unglingavinnunni og
ætla líka að passa.
Bjarney ísleifsdóttir skrifstofutækn-
ir: Já, reyndar. Ég ætla að fara til
Spánar í sumarfríinu mínu.
Inga ísleifsdóttir húsmóðir: Já, ég
ætla að fara til Benidorm í sumar.
Guðríður Daníelsdóttir fiskverkandi:
Nei, það er ég ekki búin að gera.
Helgi Friðþjófsson verkamaður: Nei,
snjórinn verður fyrst að hverfa áður
en maður spáir í það.
Guðrún Másdóttir þroskaþjálfi: Ja,
ég ætla að ferðast innanlands í sum-
ar.
Ráðherralausir
Reyknesingar
Sjálfstæðismenn i Reykjanesi eru ráðherralausir í ríkisstjórninni ettir brott-
hvarf Ólafs G. Einarssonar.
B. Björnsson skrifar:
Um úrslit kosninganna má hafa
mörg orð en ekki ætla ég að gera þau
að aöalumræðuefni mínu í þessu
bréfi. Ríkisstjórn Davíðs og Halldórs
er tekin til starfa og full ástæða til
að óska henni velfarnaðar. Sömu
árnaðaróskir hefði ég líka sent öðr-
um ríkisstjórnum. Það er hagur allra
að vel til takist, líka þeirra sem kusu
aðra stjórnmálaflokka í þessum
kosningum. En nóg um það.
Líkt og aðrir landsmenn fylgdist
ég með stjórnarmyndunarviðræðum
flokkanna í gegnum íjölmiðla. Svo
virðist sem tekist hafi að ganga frá
málum á tiltölulega skömmum tíma
og misbrestir sýnast fáir, a.m.k. á
yfirborðinu. Þegar þeirri vinnu allri
var lokið tók við önnur vinna innan
flokkanna sjálfra. Þá var komið að
því að skipa ráðherra til næstu íjög-
urra ára. Að venju var um töluvert
leynimakk að ræða og ég tel næsta
víst að formennirnir hafi haft meira
um málið að segja en þeir viður-
kenndu. Sagt var að þingflokkarnir
greiddu atkvæði og út af fyrir sig er
þaö rétt. Það var hins vegar búið að
leggja línurnar áöur.
Hver var það sem talaði um breyt-
ingar á ráöherraliði Sjálfstæðis-
flokksins? Það var auövitað formað-
urinn sjálfur. Ekki tók Ólafur G. Ein-
arsson sjálfur upp á því að draga sig
í hlé og biðjast undan ráðherradómi.
Og þarna er ég einmitt kominn að
kjarna málsins en hann er sá að sem
kjósandi flokksins í Reykjanesi er ég
hundóánægður með gang mála. Hér
á Sjálfstæðisflokkurinn fimm þing-
menn sem hafa yfir sextán þúsund
atkvæði á bak viö sig og svo fæst
ekki svo mikið sem einn ráðherra-
stóll. Þetta er til hreinnar skammar.
Það er ekkert annað en móðgun við
okkur Reyknesinga að héðan skuli
ekki vera neinn ráðherra. Menn tala
bara um að forseti þingsins sé virð-
ingarstaða. Það er nú meiri virðing-
arstaðan eða hitt þó heldur. Sjáið þið
hvernig fór fyrir þeirri ágætu konu,
Salome Þorkelsdóttur.
Framsóknarmenn í þessu sama
kjördæmi geta líka verið svekktir.
Þrátt fyrir góðan árangur þeirra, en
flokkurinn bætti við sig manni, fengu
þeir ekki heldur ráðherra. Það er út
af fyrir sig hneyksli að í næststærsta
kjördæmi landsins skuli ekki vera
einn einasti ráðherra. Á sama tíma
fá Norðlendingar þrjá ráðherra, ein-
um færri en Reykvíkingar. Það sjá
allir sem það vilja sjá' að þetta gengur
ekki upp. Þetta er hreinasta móögun
við kjósendur.
Þegar litiö er á staðreyndir máls-
ins, sem eru atkvæðin sem komu upp
úr kjörkössunum, blasir ósanngirnin
við. Tökum dæmi: Vel innan við
fimm þúsund sjálfstæðismenn á Suð-
urlandi fá einn ráðherra en yfir 16
þúsund Reyknésingar engan. Nærri
níu þúsund framsóknarmenn í
Reykjanesi fá engan ráðherra en það
fá hins vegar vel innan við þijú þús-
und kollegar þeirra á Vesturlandi.
Pálmi er maðurinn
Jóhanna Jónsdóttir skrifar:
Þótt enn sé rúmt ár eftir af fjórða
kjörtímabili frú Vigdísar Finnboga-
dóttur, forseta íslands, er sannarlega
orðiö tímabært að velta fyrir sér
hugsanlegum eftirmanni hennar.
Það er vissulega ekki sama hver
tekur við þessu mikilvægasta emb-
ætti þjóðarinnar og því nauðsynlegt
að vanda valið. Þjóöinni þarf að gef-
ast tækifæri til að velta fyrir sér öll-
um möguleikum og til þess verður
að fást nægur tími. Ef frú Vigdís kýs
að halda áfram er afar ósennilegt að
einhver frambjóöandi bjóði henni
birginn. Til þess er núverandi forseti
alltof vinsæll. Vigdis hefur líka stað-
ið sig afar vel og það er varla til sá
einstaklingur í þjóðfélaginu sem
drægi þá fullyrðingu í efa.
Lýöræðislegar kosningar munu
skera úr um hver verði næsti forseti
en það er full þörf að skapa umræðu
um frambjóöendur. Uppástungur og
tillögur eru þess vegna af hinu góða
og það er hægt að komast að vilja
almennings furöu íljótt. Þeir áhuga-
sömu um starfiö geta þess vegna
komið af stað orðrómi og fengið fljótt
úr því skorið hvort væ.nlegt er að
taka þátt eða ekki. Um flesta gildir
það þó trúlega að þeir þurfa áskorun-
ar við og er allt gott um það að segja.
Fólk vill ógjarnan trana sér fram.
Þótt enn megi segja aö nægur tími
sé til stefnu en rúmt ár er eftir af
kjörtímabili frú Vigdisár hef ég þegar
gert upp hug minn. Ég er búin að sjá
fyrir þann einstakling sem ég vildi
helst að yrði næsti forseti íslands.
Þessi maður er prestur í Bústaða-
kirkju og heitir Pálmi Matthíasson.
Að mínu áliti er hann rétti einstakl-
ingurinn til að taka við af Vigdísi
þótt ungur sé. Pálmi hefur fyllilega
sýnt það með verkum sínum að hann
er traustsins verður. Ég hygg að þeir
einu sem væru honum mótfallnir í
forsetaframboði væru sóknarbörnin
í Bústaðahverfi. Þau vildu auðvitað
láta prestinn þjóna áfrarn í sókninni
og lái þeim hver sem vill.
Forseti vanvirtur
KT skrifar:
Leitt var aö horfa upp á hvernig
vinstri menn umgengust forseta ís-
lands nú á dögunum.
Eftir að formenn Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks, með 40 þing-
menn af 63 á bak við sig, höfðu gert
ákveðna tillögu til forsetans um
stjórnarmyndun leyfðu forkólfar
^ Aóeins 39,90 mínútari
- eða hringið í síma
* 56Í27Ö0
millíkl. 14 og 16
Formenn vinstri flokkanna sýndu
forsetanum óvirðingu aö mati bréf-
ritara.
væntanlegrar stjómarandstööu sér
að leggja til að forseti fæh Halldóri
Ásgrímssyni aö mynda fjögurra til
fimm flokka vinstri stjórn. Þeir ætl-
uðust til að forseti fæli Halldóri um-
boð til að mynda allt aðra stjóm en
Framsóknarflokkurinn hugðist
standa að.
Hefði forsefi farið að heilræðum
vinstri manna hefði hún orðið að
athlægi. Það hljóta jafnreyndir menn
og formenn vinstri flokkanna að hafa
vitað og því ekkert annað vakað fyr-
ir þeim en að atast í forseta og fram-
sóknarmönnum.
Svo er annað einkennilegt. Þegar
stjórnarmyndun hefur staðið fyrir
dyrum hefur forseti ætíð kallað fyrir
sig formann hvers flokks fyrir sig.
En Kvennalistakonum nægir slíkt
ekki. Þær ákveða alltaf að koma
tvær. Kvennalistinn heldur að menn
bjóði sér sjálfir á fund forsetans.
Úrslita-
keppni NBA
Körfuboltaunnandi hringdi:
Þar sem úrslitakeppni NBA-
deildarinnar í körfubolta er að
byija langar mig aö vita hvort
fjölmiðiamir ætli að sinna henni
sérstaklega. Ég óttast að Qöl-
miðlamenn verði uppteknir af
HM í handbolta hér heima. Það
er vissulega stórviðburður en
NBA-keppnin er enn stærri. Svo
verðum við líka aldrei heims-
meistarar í handbolta.
Sérstaklega langar mig að vita
hvernig Stöð 2 ætlar að fjalla um
keppnina. Hvað verða t.d. margir
beinar útsendingar frá úrslita-
keppni NBA?
Áskoruntilríkis-
stjórnarinnar
Kristinn skrifar:
Ég skora á nýja ríkisstjórn að
efna öll fallegu loforðin sem gefin
voru fyrir kosningar, líka að þeir
sem sögðu réttilega „Betra ís-
land“ standi þá við þaö.
Ég skora á rikisstjómina að
lækka skattprósentuna eða
hækka skattleysismörk. Ég skora
á ríkisstjórnina að lækka eftir-
launaaldur í 65 ár. í flestum lönd-
ura er hann 60-65 ár, við erum
hæstir með 67 ár, þannig mætti
líka draga úr atvinnuleysinu en
annar flokkurinn lofaði 12.000
nýjum störfum. Ég skora á ríkis-
stjórnina að leiðrétta það hrika-
lega óréttiæti sem einhleypir eru
beittir en þeir eins og aðrir borga
að sjálfsögðu skatta til þjóðfélags-
ins. Þeir einir fá ekkert til baka,
þetta hlýtur að vera réttlætismál.
Ég skora á rikísstjómina að
stefna að því aö launamismunur-
inn minnki til muna. Það er úti-
lokað fyrir rikisstjórnina að sam-
þykkja að sumir hafi 60 þúsund
kr. á mánuði en aðrir 300-600
þúsund.
Hemmiíbarna-
tímann
Móðir hringdi:
Á mínu heimili eru mikii sárrndi
yfir þvi aö þáttur Hemma Gunn
skuli vera hættur. Við skiljum ekki
af hveiju vinsælu sjónvarpsefni er
kippt út úr dagskránni. Varla er
það kostnaðurinn. Þá mætti nú al-
veg hætta með þessar útsendingar
úr ensku knattspyrnunni til að
spara peninga.
Þrátt fyrir aö þátturinn sé hætt-
ur vona ég að Hemmi verði áfram
í Sjónvarpinu. Mér firmst hann
eiga það skiliö. T.d. mætti láta
Hemma stjóma barnatímanum.
Hann væri alveg kjörinn í það
hlutverk.
Vantarbrosid
B. Guðjónsson skrifar:
Ég óska þjóðinni til hamingju
með nýju ríkisstjómina en ég er
nokkuð sannfærður um að hún á
eftir að vinna gott starf. Sérstak-
lega býð ég Halldór Ásgrímsson
velkominn til starfa. Þar virðist
vera traustur maður á ferðinni.
Hann er þó ekki gallalaus frekar
en aðrir. Löstur Halldórs er sá aö
hann brosir allt of sjaldan. Stjóm-
málamenn eiga ekki bara að vera
brúnaþungir. Þeir þurfa lika aö
hafa húmor. Ég efást ekki um aö
Halldór hefur gott skopskyn. Hann
þarf bara að brosa meira.
Enn áróður
Stína hringdi:
Enn einn „reyklausi dagurinn"
er í nánd og þá hellist yfir mann
áróðurinn um skaðsemi reyk-
inga. Þetta er orðið vægast sagt
þreytandi. Af hveiju í ósköpun-
um má maður nú ekki reykja í
friði? Það er hvort sem er búið
að banna reykingar svo gott sem
alis staðar. Vonandi fer þessari
áróðursherferð aö linna. Það er
nóg komið.