Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 30. JÚNl 1995
3
Fréttir
Héraðsdómur dæmir ríkið til að greiða fórnarlambi læknamistaka bætur:
Bótaskylda vegna mistaka
við brjóstaminnkunaraðgerð
- dæmdar 2,2 milljónir í bætur næstum fjórum árum eftir óhappið
i i
ShellstööÍTi
Héraðsdómur gerði í gær íslenska
ríkinu að greiða tæplega fimmtugri
konu 2,2 milijónir vegna mistaka sem
gerð voru í kjölfar brjóstaminnkun-
araðgerðar á henni.
Konan gekkst undir brjóstaminnk-
unaraðgerö á Landspítalanum í sept-
ember 1991 til að létta á brjóstunum.
Hafði hún haft verki í baki og herð-
um en brjóst hennar voru þung og
misstór. Tekin voru 590 grömm úr
hægra brjósti og 720 grömm úr því
vinstra. Eftir aðgerðina greru sár
konunnar seint og illa og kvartaði
hún undan verkjum. Þá komst drep
í vinstri geirvörtuna og í fltuna und-
ir brjóstinu. Fór svo að hún gekkst
undir aðgerð á ný á St. Jósefsspít-
alanum í Hafnarfirði tveimur mán-
uðum seinna. Áfram kenndi konan
verkja í brjóstum og brjóstkassa og
farið var að bera á þunglyndisein-
kennum, kvíða, tregðu og svefntrufl-
unum.
í október 1994 gekkst konan enn á
ný undir aðgerð, nú í Svíþjóð. Eftir
þá aðgerð er bókað aö sár konunnar
grói vel og ekki séu merki um auka-
kvilla. Við mat sérfræðings á örorku
konunnar kemur fram að auk úthts-
lýta hafi hún verki og eymsli í báðum
brjóstum og skurðörum út frá þeim
og aftur eftir brjóstveggnum beggja
vegna. Þá sé hún með verkjaleiðni
út í handleggi, stundum allt niður í
framhandlegg, og verkjaleiðni aftur
í bak. Frekari lýtaaðgerðir og með-
ferð geti dregið úr einkennum og lýt-
um. I ljósi þessa var konan sögð 15
prósent öryrki.
í niðurstöðu dómsins segir að í ljósi
þess að konunni blæddi mikið og
blóðrauði hennar var lágur, en slíkt
sé til þess fallið að auka hættu á
fylgikvillum, hefði átt að gefa henni
blóð án frekari tafa en ekki síðdegis
daginn eftir aðgerðina eins og gert
var. Eftir aðgerðina var kot, sem er
teygjubindi og veldur einhverjum
þrýstingi, sett utan um sár konunnar
til að minnka hreyfingar brjóstanna.
Kotið var fjarlægt af hjúkrunarfræð-
ingi, að beiðni konunnar, en sett upp
aftur að fyrirmælum læknisins sem
sá um aðgerðina. Telur dómurinn að
það hafi aukið hættu á umfangi vefja-
dauða að hafa utanaðkomandi þrýst-
ing á brjóstin þegar vitað var um
Álverið í Straumsvík:
720 milljóna
króna
hagnaður
Aðalfundur ísals, álversins í
Straumsvík, var haldinn í Sviss í
fyrradag. Þar voru reikningar síð-
asta árs samþykktir. Niöurstaða árs-
uppgjörs er hagnaður upp á 967 millj-
ónir króna fyrir skatt. Framleiðslu-
gjald var um 245 milljónir og nam
því hagnaður eftir skatt um 722 millj-
ónum króna.
Á fundinum var tilkynnt að ríkis-
stjórnin hefði skipað Magnús Ósk-
arsson til áframhaldandi setu í stjórn
ísals. Auk þess var Valdimar K. Jóns-
son prófessor skipaður í stjórn í stað
Ingvars Viktorssonar. Fulltrúar rík-
isstjórnarinnar eru skipaðir til
næsta aðalfundar. Engar aðrar
breytingar urðu á stjórn álversins.
Árið 1994 náðist metframleiðsla í
kerskálum fjórða árið í röð og nam
álframleiðslan alls tæplega 100 þús-
und tonnum. Stefnt er að því að rjúfa
100 þúsund tonna múrinn í ár, að
sögn Rannveigar Rist, upplýsinga-
fulltrúaísals. -bjb
blóðrennslistruflanir. Þessir þættir,
segir í dómnum, leiddu til þess að
drep í vef varð umfangsmeira en
annars hefði orðið.
í ljósi þessa voru konunni dæmdar
bætur fyrir miska og fjártjón í einu
lagi, samtals 2,2 milljónir auk vaxta.
-PP
við Skagabraut
Akranesi
Þú kemur til okkar
hvenær sem er
sólarhringsins, dælir
sjálfur í MX sjálfsala
- og færö
1,20 kr. í afslátt.
?/7\
ÉAlfSAll
fyriv koti ocf soölfi
nýja og glæsilega Shellstöð fyrir
lað
BETRA 3ENSI
Skelegg
samkeppni
Shellstöð