Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995 13 The Boys, Rúnar og Arnar Hall- dórssynir. DV-mynd S The Boys slá ennígegn í nýlegu blaði Verdens Gang í Noregi er heilsíðugrein um bræð- urna Rúnar og Arnar Halldórs- syni, eða The Boys. Þar segir frá því að þeir séu að gefa út nýja plötu í Noregi með lögum frá sjö- unda áratugnum. Einnig rignir yfir þá aðdáendabréfum frá evr- ópskum ungmennum eftir að þeir komu fram í þekktri hæfileika- keppni í ítalska sjónvarpinu. Þáttinn sáu um 100 milljónir manna og slógu The Boys þar í gegn. Frá Ítalíu fóru þeir með 200 þúsund króna peningaverðlaun í vasanum til Noregs. Eins og aðrir unglingar verða Arnar, 13 ára, og Rúnar, 14 ára, í fríi frá skóla í sumar. í grein Verdens Gang kemur fram að þeir muni á næstu vikum taka þátt í skemmtidagskrá í dýra- garðinum í Kristiansand ásamt þekktum norskum listamönnum. Seyðisfjarðar álOOára afmælinu í tilefni af 100 ára afmæli Seyð- isíjarðarkaupstaðar hefur verið gefin út Húsasaga Seyðisfjarðar- kaupstaðar eftir Þóru Guð- mundsdóttur, arkitekt og veit-' ingamann á Seyðisfirði. Bókin er gefin út á vegum Safnastofnunar Austurlands og bæjarsjóðs Seyð- istjarðar og er í ritröðinni Safn til sögu Seyðisfjarðar. Bókin, sem er 470 blaðsíður, rekur sögu allra gamalla húsa á Seyðisfirði og í henni er fjöldi mynda og korta. Húsasagan er m.a. ætluð skipuiagsyfirvöldum að hafa til hliðsjónar þegar taka þarf ákvarðanir um framtíð ein- stakra húsa. íslensk bókaskrá fyrir 1992 Landsbókasafnið og Háskóla- bókasafnið hafa í fyrsta sinn sam- einast um útgáfu á bókaskrá, í þetta sinn fyrir árið 1992. Skráin er unnið með aðstoð tölvukerfis og fljótlega er von á öðrum skrám fyrirárin 1993 og 1994. -bjb Leikf élagið Theater Ný íslensk rokkópera Leikfélagið Theater er með í undirbúningi sýningu á nýrri ís- lenskri rokkóperu sem nefnist Lindindin. Höfundur er Ingimar Oddsson, Guðjón Sigvaldason er leikstjóri og honum til aðstoðar er Dóra Takefusa. Ingimar samdi jafnframt tónhst við verkið. Danshöfundur er Bryndís Ein- arsdóttir. Alls taka 70 manns þátt í rokkóperunni sem veröur frum- sýnd 1. september nk. í íslensku óperunni. Theater fær 2 milljóna króna styrk frá Reykjavíkurborg gegn því aö það ráöi 28 skólanema eða fólk af atvinnuleysisskrá. -bjb Merming íslandssagan á ensku í Tjarnarbíói: Light Nights í 25. sinn Ferðaleikhúsið Light Nights hefur sýningar sínar þetta sumarið í Tjarn- arbíói nk. mánudagskvöld. Þetta er 25. sumarið sem Light Nights gefur erlendum ferðamönnum kost á að kynnast sögu lands og þjóðar í leik- rænni uppfærslu. Sýningar fara fram á ensku á hverju kvöldi frá 3. júlí til 2. september nk. Sýningargest- ir geta fengið texta á frönsku, þýsku og norsku. Að sögn Kristínar G. Magnús, sem hefur verið forsprakki Light Nigths frá upphafi, hefur leikurum verið fjölgað úr 5 í 11, auk þess sem leik- svið hefur verið stækkað og leik- mynd endurnýjuð. Light Nights-hópurinn flytur eink- um efni byggt á íslendingasögunum, þjóðsögunum, sögulegum viðburð- Makalaus finnskur karlakór Til landsins er kominn 40 manna karlakór frá smábæ í Finnlandi. Kór- inn kemur án maka. Hann heldur fyrst tónleika í Ýdölum annað kvöld með þingeyska karlakórnum Hreimi en Hreimsmenn heimsóttu Finnana í fyrra. Auk tónleikanna mun Hreim- ur bjóða gestum sínum upp á þjóðleg- an mat, s.s. hákarl, brennivín, hangi- kjötoglaufabrauð. -bjb um úr íslandssögunni, auk þess sem flutt er þjóðleg tónlist. Sýningin er í tveimur þáttum og tekur um 2 klukkustundir í flutningi. Á meðan hún stendur er um 300 litskyggnum varpaðátjald. -bjb Frá æfingu Light Nights-leikhópsins i Tjarnarbíói. Fyrsta sýning sumarsins, sem er það 25. sem leikhúsið starfar, verður 3. júli nk. DV-mynd BG //////J Dmumalið Allt sem þú þarft að vita um Draumalið DV í .helgarblaði DV1. júlí júnímánaðar verðlaunaður Glæsileo verðlaun eru í boði fyrir oesiu „þjálfarana“ Stígahæsti þjálfari hvers mánaðar fær 15.000 kr. vöruúttektfrá sportvöruversluninni Spörtu, Laugavegi 49. Stígahæsti þjálfari sumarsins fær að launum utanlandsferð fyrirtvomeð Samvinnuferðum-Landsýn á leik erlendis að verðmæti kr. 90.000 og vöruúttekt að verðmæti kr. 15.000 frá Útilífi, Glæsibæ. Dœumatií IÆÆÆÆÆÆ ú feto í fótspor bróður Cadfaeís? TAKTU ÞÁTT í spennandi leik BÓKANNA og SJÓNVARPSINS Þú getur unnið þér inn helgarferð með heimsókn í Shrewsburyklaustur, heimaslóðir spæjaramunksins vinsæla sem er frægur af bókunum og líka úr sjónvarpi. Það eina sem þú þarft að gera er að leysa eina eða fleiri af fjórum gátum um Bróður Cadfael svörin við gátunum finnur þú í bókunum um Cadfael. Ef þú ieysir allar fjórar gáturnar fjórfaldar þú vinningsmöguleika þína. Gáturnar birtast ein í einu í HELGARBLAÐI DV. I.júlí-gáta 8. júlí-gáta 15. júlí-gáta 22. júlí-gáta Líki ofaukið Bláhjálmur Líkþrái maðurinn Athvarf öreigans ------ ---------------------- - - * mr Glæsileg utanlandsferð í boði Dregið verður úr réttum lausnum og hlýtur einn heppinn sigurvegari glæsilega helgarferð fyrir tvo til Shrewsbury með heimsókn í klaustrið. Flogið verður 25. ágúst með Air Emerald til Luton á Englandi - möguleiki er að fram- lengja dvölina í Englandi eða á Irlandi. AUKAVERÐLAUN! Tíu heppnir þátttakendur verða dregnir úr pottinum og hljóta þeir tíu Urvalsbækur að eigin vali, að heildarverðmæti 8.950 kr. hver pakki. - Skilafrestur er til 9. ágúst. Þú sendir lausnirnar til Urvalsbóka | - merkt Bróðir Cadfael - Þverholti 11 - 105 Reykjavík. Bækurnar um bróður Cadfael fást á næsta sölustað og kosta aðeins S9S kf. °9 enn þá minna á sérstöku tilboði í bókaverslunum. FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. n Thc SJÓNVARPtÐ juÍRgrr EMERALD AIR longra tyrir laogra vorO

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.