Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ 562*2525 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið- ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700 BLAÐAAFGREIÐSLA 0G ÁSKRIFT ER 0PIN: Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAOA* AFGREIÐSLU: 563 2777 KL. 6-8 LAUGARDAGS-Ofi MANUDAGSMORGNA Frjálst,6háð dagblaö FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995. Gýmis-málið: Vandræða- gangurinn heldur áfram „Nei, við erum ekki búnir að taka ákvörðun um hvort Hinrik Bragason fer í keppnisbann vegna Gýmis- málsins," sagði Guðmundur Jóns- son, formaður Landssambands hestamanna, í morgun. í ljósi þess að keppni á fjórðungs- mótinu á Höfn hefst í dag og Hinrik Bragason er þar skráður til keppni, var Guðmundur spurður hvort þeir ætluðu þá að humma þetta mál fram af sér. „Ja, við höfum svo sem ekki fengiö neitt í hendur frá ríkissaksóknara um málið. Við höfum bara heyrt um þetta. Þetta er því ekki alveg einfalt mál að eiga við.“ Þið hélduð stjórnarfund í fyrra dag um staðsetningu landsmótsins 1998. Var Gýmismálið ekkert rætt þar? „Það bar lítillega á góma, en þá var málið ekki komið á þetta stig, ákær- an kom ekki fyrr en eftir þann fund,“ sagði Guðmundur Jónsson. „Það er ekki búið að birta Hinriki 'ákæruna, það hefur ekki náðst í hann. Á meðan svo er og við höfum heldur ekki fengið að sjá hvað í ákærunni felst getum við ekki tekið ákvörðun í málinu. Við bíðum því eftir að fá að sjá ákæruna. Jú, við gerum okkur grein fyrir því að málið er að skaða okkur erlendis," sagði Jón Albert Sigurbjörnsson. formað- ur Hestaíþróttasambands íslands, í morgun. Landsmóthesta- mannaá Melgerðismelum Stjórn Landssambands hesta- manna hefur ákveðið aö Landsmót hestamanna, sem haldið verður 1998, fari fram á Melgerðismelum í Eyja- firði. Skagfirðingar sóttu einnig um að halda mótið á Vindheimamelum. Valið á Melgerðismelum er skilyrt því að eigendur svæðisins byggi upp fullnægjandi aðstöðu fyrir landsmót hestamanna fyrir 10 milljónir króna. Vélhjólaslys Vélhjólaslys varð fyrir botni Hval- fjarðar í gærkvöld. Minnsta þyrla Landhelgisgæslunnar flutti öku- mann vélhjólsins á slysadeild en ekki ► fengust upplýsingar um líðan hans í morgun. -pp LOKI Magnast nú atvinnuleysið í Firðinum! Getum vel m x x i|||| ||Mj|A - seglr Guðjón A. Kristjánsson og vinnuveitendur eru sáttir Samningar tókust í nótt milli yf- Guðjón A. Kristjánsson, formað- lega ánægður með samningimi irmanna á kaupskipum og vinnu- ur Farmanna- og fiskimannasam- þegar DV ræddi við hann i morgun. veitenda þeirra. Skrifað var undir bandsins, sagðist í samtali við DV „í samnmgnum voru jafnframt samninginn í Karphúsinu um vera nokkuð sáttur við samning- svipaðir skilmálar og í ísal-samn- klukkan hálfQögur eftir tæplega inn. „Það er samið um smálagfær- ingnum. Þar er kveðið á um einn sex klukkustunda fund. Launalið- ingar að auki,“ sagði Guðjón án heildarkjarasamning með sameig- ur samningsins er í takt við ný- þess að vilja fara nánar út í þá inlegri atkvæðagreiðslu sem skipt- gerða samninga við starfsmenn ál- sálma. ir miklu máli. Það var tekið á versins í Straumsvík, eða launa- „Ég tel að það megi vel við samn- nokkrum starfstengdum þáttum. hækkun upp á um 11,4% að meðal- inginn una út gildistímann. Hann T.d. er núna tekiö tillit til heildar- tali á samningstímanum sem er til er mjög sambærilegur þeim samn- starfstíma stýrimanna hjá sömu áramóta 1996/1997. Verkfaili, sem ingi sem gerður var við undirmenn útgerð, án þess þó að starfsaldur- staðið hefur yfir síðan á mánudag, á kaupskipum,“ sagöi Guðjón. þrepum sé fjölgað eöa þeim breytt. hefur verið frestað til 1. ágúst nk. Þórður Magnússon, fram- Þetta þýðir að það launahlutfall, eða þegar atkvæðagreiðsla hefur kvæmdastjóri flármálasviðs Eim- sem talið var vera á milh báts- fariðframogniðurstaðaliggurfyr- skips, sem sat í forsæti samninga- mannsogþriöjastýrimanns.erlag- ir. nefndar vinnuveitenda, var bæri- færtaðhluta,“sagðiÞórður. -bjb Hestamenn úr Suðursveit og Öræfum á leið á fjórðungsmót á Fornustekkum nálægt Höfn. Þeir sem lengst eru að komnir hafa lagt rúmlega 120 kílómetra að baki. DV-mynd EJ Veðrið á morgun: Bjartviðri eða þokusúld Á morgun er spáð vestan- og norðvestankalda. Þokusúld verð- ur með köflum við norðurströnd- ina en annars bjartviðri. Hiti veröur 6 til 20 stig, svalast á an- nesjum fyrir norðan en hlýjast suðaustan- og austanlands. Veðrið í dag er á bls. 36 Akureyri \ j ■' \ L Veginum um Sölvadal 'yar lokað í gærkvöldi/ Óttást var aö skriður féllu á veginn. DV Aurskriður í Sölvadal: Heyrðum hvininn af fyrri skriðunni „Við vorum inni þegar fyrri skrið- an féll en heyrðum hvininn í henni og fórum út. Það var óskemmtileg lífsreynsla að horfa á þá seinni koma, en hún var 500 til 600 metra breið,“ sagði Egill Þórólfsson, bóndi að Þor- móðsstöðum í Sölvadal. Tvær aurskriður féllu um 100 metra sunnan við bæinn síðdegis í gær. Seinni og stærri skriðan féll yfir litla steinsteypta virkjun en um klukkustund áður höfðu menn verið við vinnu í henni. Virkjunin var ekki sjáanleg í morgun en skriðan hafði einnig fallið yfir fimmtung ræktaðs lands á jörðinni. Egill yfirgaf Þormóðsstaði í gær- kvöld en hann gerir ráð fyrir að tjón- ið nemi hundruðum þúsunda króna, ef ekki milljónum. Veginum um Sölvadal var lokað í gærkvöld af ótta viðaðfleiriskriður. -pp Bæjarsfjóranum sagt upp störf um Ráðningarsamningi Magnúsar Jóns Árnasonar, bæjarstjóra í Hafn- arfirði, var sagt upp af meirihluta bæjarráðs í Hafnarfirði í gær. Upp- sögnin var samþykkt af fulltrúum Alþýðuílokks í ráðinu og Jóhanni G. Bergþórssyni. í vikunni buðu þeir Jóhann og Ell- ert Borgar Þorvaldsson fulltrúum Sjálfstæðisflokksins að koma með sér í meirihlutaviðræður við Alþýðu- flokkinn en því boði var hafnað á miðvikudaginn. í svari Magnúsar Gunnarssonar, oddvita flokksins, segir að Sjálfstæðisflokknum hafi ekki borist formleg ósk frá Alþýðu- flokknum um viðræður. Berist slik ósk fari þær fram undir forystu odd- vita flokksins, enda séu ekki aðrar viðræðurígangiásamatíma. -kaa NSK KÚLULEGUR PomIxpii SuAuríandsbraut 10. S. 686499.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.