Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Side 5
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995
5
af tjöldum
til sýnis
við verslun —
okkar við rj
Eyjaslóð 7 ZU
DD 360 3-4 manna VANGO
kúlutjald með fortjaldi,4.3 kg.
VERÐ: 17.700
IGLU 3 manna kúlutjald.
VERÐ: 6.900 áður 8.900
SOLWAY 3-4 manna kúlutjald
með fortjaldi, 4.3 kg.
DR-8
|4 manna tjald
með fortjaldi,
kantur að neðan.
VERÐ: 14.900
áður 17.700
DT 440 4-5 m. brai
með stóru fortjaldi, 7
VERÐ: 25.800
FULMAR 2-3 manna kúlutjald,
mjög sniðugt, 5.4 kg. VERÐ: 13.700
ARIZONA 4 manna fjölskyldutjald,
himinn með fortjaldi, kantur að neðan.
VERÐ: 28.700
ALASKA 5 manna fjölskyldutjald,
himinn með fortjaldi, kantur að neðan.
VERÐ: 39.900
ROYAL4 manna hústjald, kantur að neðan.
VERÐ: 38.800
slóð 7 Reykjavík s. 511 -2200
TILBOÐ
TILBOÐ
Fréttir
TILBOÐ
NYTT
Páll Pétursson félagsmálaráðherra og Brunamálastofnun:
Skólaskipið er stórglæsilegt, þrí-
mastrað, með 25 segl og er 63 metra
langt.
Tíu krakkar til Þýskalands:
Sigla um á 25
segla skútu
„Okkur hefur verið boðið út með
tíu krakka og ástæðan er fyrst og
fremst sú að auka samskipti Brimar-
hafnar, reyndar Þýskalands alls, og
íslands. Við völdum krakka úr sigl-
ingaklúbbum úr Hafnarfirði, Kópa-
vogi, Reykjavík og frá Akureyri,
krakka sem hafa verið að vinna vel
fyrir klúbbana sína og staðið sig vel.
Ferðin verður eins konar viðurkenn-
ing fyrir vel unnin störf,“ sagði Jak-
ob Frímann Þorsteinsson hjá Hinu
húsinu og fararstjóri í feröinni til
Þýskalands. Jakob sagði ferðina
hugsaða sem skemmtiferð fyrir
krakkana. Heimsóttir yrðu skólar og
sigbngaklúbbar, auk þess sem siglt
yrði um á risaseglskútu. Ferðin hófst
29. júní og komið verður heim 13. júlí.
„Seglskipið var upphaflega vita-
skip en var breytt í skólaskip fyrir
nokkrum árum. Þetta er stórglæsi-
legt 63 metra langt skip sem státar
af 25 seglum og þremur möstrum.
Það verður ekki amalegt fyrir krakk-
ana að fá að sigla á því. “ -S V
„Ég mun leita eftir því við þá aðila,
sem lögum samkvæmt eiga að til-
nefna fólk í stjórn Brunamálastofn-
unar, að fá nýjar tilnefningar. Síðan
mun ég skipa formann hennar þegar
tilnefningarnar liggja fyrir. Þá er ég
með í alvarlegri athugun að flytja
stofnunina út á land. Ég held að fáar
ef nokkur ríkisstofnun sé eins vel til
þess fallin að flytjast út á land og
Brunamálastofnun," sagði Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra uni stöð-
una i þeim átökum sem verið hafa
undanfarið innan stofnunarinnar.
Þau átök leiddu til þess að stjórn
Brunamálastofnunar sagði af sér.
Einnig að Ríkisendurskoðun var
beðin um úttekt og skýrslu um
Brunamálastofnun. Síðastliðinn
mánudag var sú skýrsla tekin fyrir
hjá félagsmálanefnd Alþingis og
gagnrýnir félagsmálaráðherra máls-
meðferð nefndarinnar harðlega.
„Mér koma þessar aðgerðir félags-
málanefndar Alþingis og einkanlega
formanns hennar, Kristínar Ást-
geirsdóttur, á óvart. Ég afhenti
nefndinni skýrslu Ríkisendurskoð-
unar samkvæmt beiðni hennar og taldi
eðlilegt að hún fengi hana sér til fróð-
leiks. Þá tekur formaöurinn sig til og
fer að halda einhverja rannsóknar-
nefnd að amerískum sið og kallar til
Stöð 2 að taka myndir af fundinum.
Þetta er óvanalegt í þingstörfum. Síðan
kaliaði hún til fyrrverandi stjóm
Brunamálastofnunar að ræða málefni
stofnunarinnar. Þetta er stjóm sem
búin er aö segja af sér og er því laus
úr öllum tengslum við stofnunina,"
segir Páll Pétursson.
Páll endurtekur að skýrsla Ríkis-
endurskoðunar sé enginn áfellis-
dómur yfir brunamálastjóra. Það sé
því út í bláinn að halda því fram að
hann hafi fyrirgert stöðu sinni með
því sem þarna er verið að fjalla um.
Hann segist hafa ritað bmnamála-
stjóra bréf og lagt fyrir hann að kippa
í lag því sem Ríkisendurskoðun fann
að. Brunamálastjóri hefur svarað
þessu erindi og skýrir þar frá til
hvaða aðgerða hann hefur gripið eða
muni grípa.
„Ég sætti mig eftir atvikum ágæt-
lega viö þetta svar,“ segir Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra.
PÓSTSENDUM
SAMDÆGURS
Eg mun leita eftir til
nefningu í nýja stjórn
- í alvarlegri skoðun að flytja stofnunina út á land