Dagblaðið Vísir - DV - 30.06.1995, Síða 9
FÖSTUDAGUR 30. JÚNÍ 1995
9
>
>
í
>
)
)
I
Utlönd
Fimm hæða verslunarhús hrundi eins og spilaborg 1 Seoul 1 gærmorgun:
Veikar raddir um hjálp
berast enn úr rústunum
- tala látinna nálgast hundraðið - fúski kennt um hvernig fór
Veikar raddir um hjálp og vatn að
drekka bárust eyrum fjölda björgun-
armanna sem í morgun reyndu að
grafa sig í gegnum rústir fimm hæða
verslunarhúss sem hrundi eins og
spilaborg í Seoul í Suður-Kóreu í
gærmorgun. Tala látinna var farin
að nálgast hundraðið en tala slasaðra
komin yfir 900. Hátt í 30 manns hafði
verið bjargað úr rústunum en 153 var
þá enn saknað eftir slysið.
Hæðir í annarri álmu hússins
hrundu hver ofan á aðra án nokkurs
fyrirvara og hurfu hreinlega ofan í
kjallarann. Björgunarmenn vinna
við afar erfiðar aðstæður. Ekki er
hægt að flytja steypubrot til með
stórvirkum vinnuvélum þar sem
hreyfing getur þá komist á rústirnar
og stefnt lífi þeirra sem þar eru inni-
lokaðir í hættu. Björgunarmenn
vinna að mestu frá kjallara hinnar
álmu hússins, skríða eftir þröngum
göngum innan um steypubrotin og
hlusta eftir lífsmarki, veikburða kalli
eða högghljóðum. Um tíma í gær
þurftu björgunarmenn að hætta
vinnu sinni þar sem hin álma húss-
ins var farin að halla verulega. Sér-
fræðingar sögðu þó enga hættu á að
hún hryndi og hélt björgunarstarfið
því áfrám. Auk hrunhættu ógnuðu
eldar frá brennandi bílum í kjallara
hússins björgunarmönnum.
Byggingareftirlitsmenn höfðu,
skömmu áður en byggingin hrundi,
vakið athygh á umfangsmiklum
Myndin sýnir vel hvernig hæðir verslunarhússins hafa hreinlega horfið ofan í jörðina. Ekkert stendur eftir nema
gaflarnir. Um tíma fór hin álma verslunarhússins að halla en stendur þó enn uppi. Simamynd Reuter
skemmdum í burðarbitum og fúski
og varað stjórn verslunarinnar við.
Hún fundaði en ekkert var aðhafst
utan hvaö skrúfað var fyrir gasið.
Forstjóri verslunarinnar og tveir
yfirmenn eru í yfirheyrslum
hjá lögreglu.
Hrun verslunarhússins er ein
margra hamfara af mannavöldum í
Suður-Kóreu á skömmum tíma. Tvö
borgarhverfi hafa farið á annan end-
ann vegna gassprenginga, brú hefur
hrunið, feijur sokkið auk lestar- og
flugslysa. Himdruð manna hafa látist
íþessumslysum. Reuter
Bændur!
Nýasti Ferguson mætir á svæðið
Við erum á
leiðinni.
Búvélasýningar um allt land.
Föstud. 30.júní
Föstud. 30.júní
Laugard. I.júlí
Laugard. I.júlí
Sunnud. 2.júlí
Mánud. 3.júlí
Mánud. 3.júlí
Þriöjud.. 4.júlí
Borganes Hyrnan 10-14
Símstöðin Brú 18-22 ' •
Blöndós Vélsm.Húnv. 10-14
Varmahlíð Kf. Skagf. 16-20
Akureyri Þórshamar 10-19
Fosshóli 10-13
Húsavík Kf. þingeyinga 14-18
Ásbyrgi 10-13
Þriðjud. 4.júlí Vopnafjörður 17-21
Miðvikud. 5.júlí Egilsstaðir Bílar og tæki 10-19
Fimmtud. 6.júlí Breiðdalsvík 10-14
Fimmtud. 6.júlí Höfn Bílverk 18-22
Föstud. 7.júlí Kirkjubæjarklaustur 10-14
Föstud. 7.júlí Vík Víkurskálinn 18-22
Laugard. 8.júlí Hvolsvöllur Hlíðarenda 10-14
Ingvar Helgason hf.
Véladeild
Sævarhöfða 2
síml 91-674000
SOUD.
SOUDAL
m
HÚSASMIDJAN