Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Page 2
2
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1995
Fréttir
Ung kona strauk af geðdeild Landspítalans í flórða sinn:
Maður er alveg varnarlaus
- segir uppeldisfaðir konunnar
„Starfsfólkið getur ekki verið
starf. sínu vaxið fyrst það gerist hvað
eftir annað að fólk, sem á að vera
þarna í gæslu, gengur út án þess aö
neitt sé gert. Þessi uppeldisdóttir mín
var sett þarna inn í nauðungarvistun
enda getur hún verið hættuleg sér
og umhverfi sínu. Maður er þess
vegna alveg varnarlaus þegar hún
virðist geta gengið út hvenær sem
hún vill,“ segir Jóngeir Magnússon
en uppeldisdóttir hans er nú strokin
út af geðdeild Landspítalans í fjórða
sinn.
Konan, sem nú er 28 ára, hefur frá
þrettán ára aldri átt við áfengis- og
fíkniefnavandamál að stríða. Hún
hefur fariö hvaö eftir annað í með-
ferð en engin þeirra hefur borið til-
ætlaðan árangur. Á allra síðustu
árum hefur sigið verulega á ógæfu-
hliðina og að undanförnu hefur hún
ekki þegið meðferð óþvinguð. Sam-
kvæmt læknaskýrslum er hún dóm-
greindarlaus á ástand sitt og með-
ferðarþörf, í „manísku" ástandi og
greinilega sjálfri sér hættuleg, auk
þess sem komið hafa fram einkenni
um geðhvarfasjúkdóm, þunglyndi og
geöhæð.
Jóngeir og móðir stúlkunnar, Guð-
rún PétursdQttir, fóru því fram á að
hún yrði svipt sjálfræði og í kjölfar
þess var konan sett í nauðungarvist-
un á geðdeild Landspítalans. Þar
hefur hún sýnt ofbeldishneigð, haft
hótanir í frammi og ráðist á starfs-
Stuttar fréttir
Vantarmat
Enn er beðið eftir mati á tjóni
sem varö á fiskmjölsverksmiðju
Vestdalsmjöls á Seyðisfirði i snjó-
flóði í vetur er leið. Unnið hefur
verið að lagfæringum á verk-
smiðjunni og vonast er til að
hægt verði að bræða þar loðnu í
haust.
Umferðaröngþveiti
Mikið umferðaröngþveiti
myndaöist við gatnamót Vestur-
landsvegar og Höfðabakka í gær.
Liöin helgi er venjulega næst-
mesta feröahelgi sumarsins. Þeg-
ar fólk tók að streyma til borgar-
innar síðdegis myndaðíst um-
ferðarteppa á gatnamótunum.
„Það er öllum Ijóst sem þekkja til málsins, læknum og öðrum, að hún getur ekki verið í eðlilegri umgengni við
annað fólk. Hún á að vera lokuð inni á geðdeild meðan reynt er að fá úrlausn hennar mála,“ segja hjónin Jóngeir
og Guðrún. Skrifstofustjóri heilbrigðisráðuneytisins segir að ef sjálfræðissvipting standi fyrir dyrum eigi sjúklingur
í nauðungarvistun ekki að geta sloppið út. DV-mynd SIS
Spítalinn á ekki
að vera f angelsi
- segir Jón G. Stefánsson, yfirlæknir á geödeild Landspítalans
„Ef við teljum að það sé nauðsynlegt
að halda fólki inni þá reynum við að
gera þaö en við getum það ekki i öll-
um tilfellum. Við erum í raun ekki
útbúin til þess, hvorki í mannafla né
öörum útbúnaði,11 sagði Jón G. Stef-
ánsson í samtali við DV.
Jón sagði að meginmarkmið deild-
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já _xj
Nel Jtj
r ö d d
FÓLKSINS
904-1600
Má nota íslenska fánann
sem svuntu?
Alllr I »t»fr»na karflnu ma6 tftnvalnlma g»ta nýtt »ér þ»»»« þjftnmtu.
arinnar væri að verða fólki til gagns
og góðs frekar en að halda því inni
en sagði jafnframt að í sumum tilfell-
um gæti það veriö fólki fyrir bestu
að vera lokað inni.
„Við erum meö deildir hérna þar
sem eru læstar dyr en það eru nú
samt ekki öruggar vistarverur ef fólk
má ekki sleppa út. Gluggarnir eru til
dæmis ekki tryggir og ýmislegt fleira
gerir þessar deildir ekki hundrað
prósent öruggar.
í eina tíö var fólk látið klæða sig
úr öllu og síðan sett inn í eins konar
klefa eöa sellur. Það er hins vegar
löngu liðin tíð og við hvorki getum
né viljum fara út í svoleiðis hluti,"
sagði Jón.
Aðspurður sagði Jón að ramm-
gerðara húsnæði eða bætt aðstaða til
þess aö halda fólki inni væri ekki
endilega efst á óskalistanum.
„Slíkur útbúnaður gæti auðveld-
lega komið niður á öðru starfi sem
við erum að vinna sem byggist á því
að allt umhverfi sé manneskjulegt,
hlýlegt og notalegt. Auk þess virðist
ekki skipta máli hversu rammgerðar
svona byggingar eru, fólk er alltaf
að strjúka," sagði Jón. -GMB
NIÐURSTAÐA
L .n
X
iundirmann sinn?
JÁ
31%
.r S d
FÓLKSIN
99-16-00
Heilbrigðisráðuneytið:
Ábyrgðin hlýtur
að vera spítalans
segir Guðjón Magnússon skrifstofustjóri
„Ef það er búið aö svipta mann-
eskju sjálfræði eða slíkt stendur fyrir
dyrum er það algerlega á ábyrgð spít-
alans að viðkomandi sleppi ekki úr
nauðungarvistun. Sýna verður
nauðsynlega aðgæslu þar óg gera það
sem gera þarf til þess að viökomandi
sleppi ekki út.
Ef einstaklingurinn er hins vegar
sjálfráöa er hann í sjálfu sér í fullum
rétti til þess að útskrifa sig þegar
hann vill,“ sagði Guðjón Magnússon,
skrifstofustjóri í heilbrigðisráöu-
neytinu, þegar DV hafði samband við
hann vegna málsins.
Guðjón tók fram að hann þekkti
þetta einstaka mál ekkert og það
væri erfitt að tjá sig um það sérstak-
lega. Hann taldi hins vegar að þetta
ætti að vera hin almenna regla.
„Ef einstaklingur er tekinn inn á
spítalann á þeirri forsendu aö það sé
búið að svipta hann sjálfræði eða það
standi til þá hlýtur ábyrgð spítalans
aö vera mikil ef slíkur einstaklingur
sleppur út. Sérstaklega ef ástæða
sjálfræðissviptingarinnar er sú að
viðkomandi getur verið hættulegur
sjálfum sér eða öðrum,“ sagði Guö-
jón. GMB
fólk. Þegar hún hefur sloppið út hef-
ur hún alltaf fundist fljótlega aftur
og verið lögð inn gegn eigin vilja.
Það var svo í maí síðastliðnum að
hún strauk í fjórða sinn og það eina
sem frést hefur af henni síðan þá er
að lögreglan í sænska bænum Malmö
handtók hana fyrir reiðhjólastuld en
sleppti henni aftur.
„Maður hlýtur að spyrja sig hver
sé ábyrgur. Hjá ráðuneytinu er mér
sagt að geðdeild Landspítalans eigi
að vera örugg vistun en yfirmenn á
spítalanum segja að þetta sé ekki
fangelsi og þvi geti þeir ekki gert
neitt.
Það er engu líkara en yfirmenn á
Landspítalanum séu í aðra röndina
fegnir að losna viö hana, að minnsta
kosti hafa þeir ekkert gert til þess
aö hafa upp á henni. Þegar fólk strýk-
ur úr vistun sem þessari fer lögregl-
an undir venjulegum kringumstæð-
um að huga að viðkomandi, eins og
það er orðaö.
En þar sem hún er komin út úr
landinu er ekkert gert nema yfir-
menn spítalans leggi fram beiðni um
að hennar skuli leitað og þá mun
lögreglan í Svíþjóð væntanlega huga
að henni. Landspítalinn hefur hins
vegar ekki viljað leggja fram slíka
beiðni og þess vegna er hún þarna
úti i löndum, sennilega í mjög slæmu
ástandi, ef hún er þá enn þá hérna
megin hornsins," sagði Jóngeir.
-GMB
Stuttar fréttir
Silfurslagur
Þórarinn Eldjárn rithöfundur
hefur kvartað til umboðsmanns
Alþingis yfir meöferð mennta-
málaráðuneytisins á silfurmál-
inu svonefnda. Hann telur að veg-
ið hafi verið að starfsheiðri fóöur
síns, Kristjáns Eldjárns, fyrrver-
andi þjóðminjavarðar og forseta
íslands.
Nafngreining
Hjónín í Miðhúsum hafa nafn-
greint þá menn sem þau telja
ábyrga fyrir ærumeiðingum í
sinn garð. Þetta eru þeir VO-
hjálmur Örn, fomminjafræðing-
ur á Þjóðminjasafninu, prófessor
Sveinbjörn Rafnsson, sem var
formaður fornleifanefndar, Ólaf-
ur Ásgeirsson, fyrrum formaður
þjóðminjaráðs, og Guðmundur
Magnússon sem var settur for-
stöðumaður Þjóðminjasafnsins
þegar þetta mál kom upp.
Flugfélagakaup
Stefnt er að því að islandsflug
kaupi þriðjung í Flugfélagi Aust-
urlands, með það fyrir augum að
flugfélögin taki upp nána sam-
vinnu. Flugleiðir hf. eiga fimmt-
ung hlutafjár f Flugfélagi Austur-
lands.
Kvikasilfursmengun
Kvikasilfursmengun er meiri í
sjófuglum hér við land en fuglum
annars staöar á norðurslóðum.
Fréttastofa RÚV skýrði frá þess-
um fréttum.
Áifasteinadeilur
Frægur álfasteinn, á móts við
Grafarholt, - rétt utan borgar-
markanna, er enn einu sinni
kominn í fréttirnar vegna vega-
framkvæmda. Færa verður stein-
inn vegna breikkunar Vestur-
landsvegar. Þegar núverandi
vegur var lagöur urðu líka deilur
um álfastein sem þá var færður
til. Steinninn er skráður sem
borgarminjar. Stöð 2 skýrði frá
þessu.