Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Blaðsíða 6
6
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1995
Fréttir
Viðar Karlsson, skipstjóri á Víkingi AK:
Meira magn af loðnu
en við héldum fyrst
nær öll loðnuskipin komin á miðin út af Kolbeinsey
„Okkur sýndist fyrst að ekki væri
um mikiö loðnumagn aö ræða. En
það virðist sem okkur hafi skjátlast
og að um mun meiri loðnu sé að
ræða á miðunum norður af Kolbeins-
ey en við ætluðum. Ég er ekki að
segja að þetta sé neitt ofsamagn en
það lítur ágætlega út. Við erum bún-
ir að fá 850 lestir í tveimur köstum.
Þriðja kastið er nú á síðunni og mér
sýnist það vera best,“ sagði Viöar
Karlsson, skipstjóri á Víkingi AK, í
samtali við DV í gær.
Hann sagði að nær allur loðnu-
veiðiflotinn, um 30 skip, væri kom-
inn á miðin rétt noröur af Kolbeinsey
og að þau væru flest að fá góðan afla
Hann sagði að loðnan væri af réttum
árgangi en að hún væri horuð. Það
væri alveg ljóst að hún heföi ekki
verið í neinu æti að ráði.
„Sjórinn norður af landinu er og
hefur verið óvenjulega kaldur í vor
og sumar. Þess vegna er allt um það
bil tveimur til þremur vikum á eftir
miðað við venjulegt árferði. Því má
gera ráð fyrir að loðnan verði komin
í betra ástand eftir hálfan mánuð eða
svo,“ sagði Viðar.
Hann sagði að auðvelt væri að
komast norðar og austar til loðnu-
leitar en vestur af væri ekkert nema
hafís. Flotinn haföi leitað norðar og
austar en ekkert fundið.
„Menn eru aö vona að loðnan haldi
sig vestur í Grænlandssundi undir
hafisnum sem hylur allt það svæði,“
sagði Viðar.
Það hefur gerst einstaka sinnum á
undanförnum árum að loðnan hefur
ekki fundist en komið svo á miðin
út af Austfjörðum öllum á óvart. Við-
ar sagðist ekki trúaður á að það gerð-
ist núna. Menn hefðu trú á að loðnan
væri á svæðinu vestur af landinu.
Þar væri ekkert hægt að athafna sig
fyrr en hafísinn væri horfinn.
Sútun á fiskroði að heflast á Sauðárkróki:
Sterkasta leður sem
hægt er að búa til
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það er hægt að nota fiskroðið í
allt sem hægt er að nota annað leður
í, s.s. fatnað, húsgögn, skó og margt
fleira," sögðu þeir Gísli Eymarsson
og Karl Bjarnason hjá Sjávarleðri hf.
á Sauðárkróki sem mun innan
skamms hefja sútun á ýmiss konar
fiskroði.
Sjávarleður hf. var stofnað sérstak-
lega um þessa starfsemi en eigendur
þess eru Loðskinn hf„ Sauöárkróks-
bær og íslenska umboðssalan. Nú er
verið að vinna að söfnun hlutafjár
sem verður 35 milljónir króna, og þá
er verið að kaupa tæki erlendis frá
sem nota á við sútunina.
í áætlunum fyrirtækisins er gert
ráð fyrir að súta um 200 þúsund roð
á ári, og fyrst um sinn verður roðið
af hlýra og steinbít. Fleiri fisktegund-
ir eru undir smásjánni, s.s. lax og
þorskur, og þykir roöiö af laxinum
t.d. henta mjög vel til sútunar.
„Fiskroð verður að sútun lokinni
það sterkasta leður sem hægt er að
búa til,“ sögðu þeir Gísli og Karl.
Þeir segja að tilraunaframleiðsla sem
þeir hafa sent frá sér hafi líkaö geysi-
lega vel en úr roðum frá þeim hefur
ýmislegt verið framleitt, s.s. áklæði
á húsgögn, skór og margt fleira.
í áætlunum fyrirtækisins er gert
ráð fyrir að veltan á næsta ári nemi
um 54 milljónum króna og starfs-
menn verði 8-10. Þá er gengið út frá
að fyrir hvert kg af roði muni fyrir-
Karl Bjarnason og Gísli Eymarsson með roð af ýmsum tegundum fiska sem
til greina kemur að súta. DV-mynd gk
tækið greiða um 100 krónur til fisk- rokið út og líkað mjög vel, enda höf-
verkunarhúsanna. „Við erum bjart- um við vandað mjög til alls undir-
sýnir, öll tilraunaframleiðslan hefur búnings," sögðu þeir Karl og Gísli.
Nýjarreglurum
afgreiðslu lyfja
Um helgina tóku gildi nýjar
reglur um afgreiðslu lyfia. Þær
gefa sjúklingum kost á að spara
meö því að velja ódýr samheita-
lyf. Samkvæmt reglugerðinni er
lyQafræðingum skylt að kynna
sjúklingum þann möguleika að
velja ódýrara samheitalyf sé það
fyrir hendi.
Greiðslur almannatrygginga í
lyíjakostnaði veröa þannig frá 1.
ágúst næstkomandi að svo kaflað
viömiðunarverð verður tekið
upp. Þaö miðast við smásöluverð
ódýrasta samsvarandi lyfs, að
viðbættum 5 prósentum. Vilji
sjúklingur nota dýrara lyf verður
hann að greiða mismuninn sjálf-
ur.
Þetta kerfi hefur verið tekið upp
á Norðurlöndunum. Reynslan
þar sýnir að lyfjaverö lækkar
fljótlega niður í viðmiðunarverð.
Shellstöðin á Akranesi:
Þakskýlið lekur
Damel Ólaísson, DV, Akraneai:
Gailar hafa komið í Ijós í þak-
skýli hinnar nýju bensínstöðvar
Skeljungs við Skagabraut og hef-
ur orðið vart við mikinn ieka þar
sem bensíniö er afgreitt. Aðalá-
stæðan fyrir lekanum er sú, að
sögn eins starfsmanns Akurs,
sem hefur séð um bygginguna,
aö í útboðslýsingu var ekki gert
ráö fyrir að kítta þyrfti í sam-
skeyti á plötum en mikill halli er
á þakinu.
Starfsmenn Akurs hafa nú kitt-
að í samskeyti og bætt við nöglum
í plötur til að koma í veg fyrir
lekann.
Kvótasvindl:
Því miður koma of mörg
mál upp hér á landi
- segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
„Ég sá þetta bara í fréttum en hef
ekki fengið neitt nánari upplýsingar
um þetta mál. Ef þetta er veiði innan
þeirra landhelgi þá er þetta innanrík-
ismál Norömanna en ef þetta er úr
sameiginlegum stofnum er öðru máli
aö gegna en við íslendingar höfum
nú ekki alveg hreinan skjöld í þeim
efnurn," sagði Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráöherra aðspurður
hvort hann hefði eitthvað kynnt sér
kvótasvindi Norðmanna sem greint
var frá í fréttum DV á dögunum.
Þar eru Norðmenn sakaðir um að
hafa falsað veiðitölur og muni miklu
á tölum um afla og síðan útfluttan
fisk. Þorsteinn var spurður hvort
hann teldi að eitthvað sambærilegt
væri aö gerast hér á landi í kvótamál-
unum.
„Því er að minnsta kosti haldiö
fram af sjómönnum að svindlað sé í
kvótamálunum. Fiskistofa fylgist
stööugt með þessum málum og því
miður kemur hún of oft upp um
menn í þeim efnum," sagði sjávarút-
vegsráðherra.
Hann sagði það vera viðvarandi
verkefni hjá Fiskistofu að fylgjast
með þessu máli. Hann sagðist ekki
þora að segja neitt til um hversu
mikið eða víðtækt kvótasvindlið
væri á íslandi.
Ráðherra var þá spurður hvort ein-
hverjar sérstakar aðgerðir væru í
bígerð gegn kvótasvindli.
„Það má segja að um sé að ræða
sérstakar aðgerðir hverju sinni þeg-
ar Fiskistofa fær grunsemdir og tek-
ur á slíkum málum," sagði Þorsteinn.
Sandkom dv
Endurtekning?
Þegarþessar
línurvorurit-
aðarvoruúrslit
leiksung-
mennaliða
Skagamanná:
OgÞprsí 18-liða
úrslitum
Mjólkurbikar-
keppninnarí
knattspyrnu
ekki ijós. Hins
vegarvarljóst
hver yrði móthcrji sigurvegara þess
leiks í 8-liða úrslitum. Sandkomsrit-
ari típpar á sigur Skagamanna á
Þórsurum og samkvæmt þ ví munu
þeir fá Fram í 8-liða úrslitum. Reglur
KSÍ gera það að verkum að Skaga-
memi gætu teflt fram í þeim leik 7
leikmönnum af 11 sem töpuðu fyrir
Fram í 16-liða úrslitum. Ef eitthvað
heitir „replay ‘' í fótbolta þá er það
þetta! Annars tala gárungar um að
þetta sé útpælt hjá Skagamönnum til
að koma tveimur liðum í Evrópu-
keppnina!
Mjólkursýra
Þettabikar-
bullhjáKSÍ
nærengutali.
Efviðgerum
ráðfýrirað
ungraennalið
Þórshafisigrað
Skagamennsl.,
fostudagskvöld
ognorðan-
menn leggi |)á
Framí8-liöa
úrslitumþá
gæti þaö mætt a-liði Þórs í undanúr-
slitum ef „öldungarnir" sigra KR-
inga í 8-líða úrslitum! Svo vitnað sé
í fyrrnefnda gárunga þá hafa þeir
bent á þá snilld Skagamanna að geta
styrkt b-liöið með a-liðinu. Þannig
geti KR-ingar beitt svipaðri taktík og
styrkt a-liðið meö b-liðinu! En að lok-
um skal líka skotið á a-lið Skaga-
manna. Þeir duttu út úr Mjólkurbik-
amum gegn Safamýrarliðinu þ ví þeir
héldu að þetta væri mjólkursýru-
keppni!
Gamall jarð-
fræðingur
Yfiriallt
annað. Eyfirð-
ingarfengual-
deilisaðhorfai
aurinnfyrir
helgiþegar
heljarinnar
aurskriðaféllí
Söivadal. iætta
erauðvitað
ekkimáltilað
gera grínað;
endaurðu
þarna mikil náttúruspjöll en sem bet-
ur fer engin slys á fólki. Það er hreint
með ólíkindum hvað þessi haröi vet-
ur ætlar að hafa lengi áhrif. í tilefhi
af skriðunum tók fréttamaður út-
varps viðtal við jaröfræðing nokk-
urn. Hann hafði farið á vettvang og
kynntséraöstæður. Fréttamaðurinn
spurðijarðfræðinginn hvort hann
hefði einhvern tímann séð aðra eins
hreyfinguájarövegi. Þásagðijarð-
fræðingurinn eitthvað á þessa leið:
„Ég hef ekki séð neitt þessu líkt síöan
fyrir ísöld." Það hlýtur að vera farið
að slá í þennan jaröfraeðing!
Klerkaflækjur
Allterfalliðí
Ijúfalöðhjá
klerkastétt
; iandsins. Þann-
ighefurklerk-
urinnifjang-
holtskirkju,
FIóklKristins-
son.náðsáitum
viðJónStef-
ánsson organ-
ista.m.a.með
þvíaðskerma
orgelið af. Allt gott um það að segja.
Þá hefúr Flóki iörast ummæla sinna
um biskup í fjölmiðlum þannig að
allt er orðið gott á ný, Nánast um
leíð og prestastefnu lauk fór biskup
til Landsíns helga þannig að hann gat
varla skipt um betri vettvang! Á með-
an lætin stóöu yfir samdi óneíhdur
hagyrðingurþessa:
Ef að prestar vildu vinna
sín verk 1 kærleiksanda,
myndu þeir síður flóka finna
og flæktir þannig standa.
Umsjón; Björn Jóhann Björnsson