Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Qupperneq 11
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1995
11
DV
Meðan einkunnir eru ekki komnar í hús þurfa nemendur að greiða yfirdrátt-
arvexti af námslánum sinum.
Taflr á einkunnaskilum viö Háskólá íslands:
Kosta nemendur
hundruð þúsunda
- forseti lagadeildar einn „prófslugsanna“
Slugs með einkunnaskil í Háskóla
íslands veldur stúdentum miklu fjár-
hagstjóni því meðan einkunnir eru
ekki komnar í hús þurfa þeir að
greiða yfirdráttarvexti af námslán-
um sínum. Gera má ráð fyrir aö í vor
hafi slugsið kostað nemendur hundr-
uð þúsunda króna.
í reglum um starfsemi HÍ er kveðið
á um að kennurum beri að skila ein-
kunnum innan þriggja vikna frá
prófdegi. Fjöldi kennara hundsar
hins vegar þessa reglu, sumir jafnvel
ár eftir ár. Samkvæmt upplýsingum,
sem DV aflaði sér hjá Háskóla ís-
lands, var þessi regla brotin í tæplega
38 prósentum tilfella núna í vor.
Alls voru haldin 432 próf í Háskól-
anum í apríl og maí síðastliðnum. í
einungis 270 tilfellum lágu prófniður-
stöðurnar fyrir innan þriggja vikna
frestsins. í 48 tilfellum voru kennar-
ar meira en viku of seinir að skila
einkunnunum og í 16 tilfellum voru
þeir meira en tveimur vikum of sein-
ir. í fjórum tilfellum voru kennarar
meira en þremur vikum of seinir
með einkunnaskilin.
Einna algengast er aö einkunnaskil
dragist á langinn í lagadeild, eða í 64
prósentum tilvika. í því sambandi
vekur athygli að Þorgeir Örlygsson,
deildarforseti lagadeildar, þverbraut
þriggja vikna regluna og skilaði próf-
einkunnum í eignarrétti fyrst sex
vikum eftir prófdag, þremur vikum
of seint.
Mesti dráttur á einkunnaskilum í
einstöku prófi var námskeið sem
nefnist lífmælingar sem Einar Árna-
son, prófessor í líffræði, hélt. Þar á
bæ fóru einkunnaskil fyrst fram
rúmlega átta vikum eftir prófdag,
rúmlega 5 vikum of seint.
Innan læknadeildar bar einnig
mikið á að kennarar væru seinir með
einkunnir, eða í 46 prósentum til-
fella. Samkvæmt upplýsingum sem
DV aflaði sér á skrifstofu deildarinn-
ar var seinkunin að hluta til vegna
mistaka á skrifstofunni og veikinda
kennara.
Taka ber fram að í einstaka tilfell-
um má rekja tafir á einkunnaskilum
til nemendanna sjálfra sem semja
um skil á verkefnum eftir að próf
hafa farið fram. Á það einkum við
um greinar sem kreíjast verklegra
æfinga. -kaa
A myndinni eru tíu af hrossunum tólf sem voru á fjóröungsmótinu frá Ket-
ilsstöðum á Völlum, en ekki var talið ráðlegt að bæta tveimur stóðhestum
í hópinn. Frá vinstri eru Daníel Jónsson, Guðbjörg Anna Bergsdóttir, Berg-
ur Jónsson, Jón Matthías Bergsson og Guðmundur Þorsteinn Bergsson.
Guðbjörg er hæst dæmdi knapi í barnaflokki og Guðmundur yngsti knapi
mótsins. DV-mynd E.J.
Fjórðungsmótiö á Fomustekkum:
Tólf hross frá sama bæ
Tólf hross verða sýnd frá Ketils-
stöðum á Völlum og var það mesti
fjöldi frá einum bæ á fjóröungsmót-
inu.
Daníel Jónsson úr Reykjavík og
Bergur Jónsson sáu um sýningu á
níu hrossanna og voru með fimm
hross að auki frá öðrum bæjum en
börn Bergs voru með þrjú hross í
ungknapakeppninni.
Auglýst eftir vitni
Lögreglan á Selfossi auglýsir eftir
vitnum að árekstri tveggja bíla sem
átti sér stað klukkan 16.30 á miðviku-
dag á Kotströnd í Ölfusi. Um er að
ræða fólksbíl og Nissanjeppa sem
rákust saman. A sömu slóðum var
hvít vörubifreið með tengivagn á leið
austur. Er ökumaður hennar eða
aðrir sem telja sig geta gefið upplýs-
ingar um óhappið beðnir að hafa
samband við lögregluna á Selfossi í
síma 482 1154.
Fréttir
Hörð viðbrögð vegna ummæla félagsmálaráðherra í bnmamálastjóradeilunni
Með ólíkindum
hvernig Páll tek-
uráþessumáli
- segir Gísli S. Einarsson, alþingismaður og fulltrúi í félagsmálanefnd Alþingis
„Það er með ólíkindum að Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra, sem
annars er ágætlega greindur maður,
skuli taka þessa afstöðu i deilumál-
unum í kringum brunamálastjóra.
Hann hefur hlaupið illilega á sig í
þessu máli. í skýrslu Ríkisendur-
skoðunar eru talin upp 25 atriði sem
hún telur að séu ekki í lagi hjá hon-
um. Bæði stærri og smærri atriði.
Þar ofan á bætist að félagsmálanefnd
Alþingis hefur verið með samskipti
brunamálastjóra, Bergsveins Gizur-
arsonar og þeirra sem hafa verið að
starfa að forvörnum, til umfjöllunar
í lagaformi í 2 ár. Þess vegna er ekk-
ert eðlilegra en að nefndin taki
skýrslu Ríkisendurskoðunar til um-
fjöllunar. Og ekki síst í ljósi þess að
15 manns, hvorki fleiri né færri, sem
starfa á einhvern hátt við stjórnun
Brunavarðaskólans eða hjá Bruna-
málastofnun,hafa sagt af sér. Ég styð
því Kristínu Ástgeirsdóttur, formann
Gisli S. Einarsson er harðorður í
garð Páls Péturssonar félagsmála-
ráðherra.
félagsmálanefndar Alþingis, full-
komlega í því sem hún er að gera.
Ég tel hana vera að vinna á þann
eina og rétta máta sem félagsmála-
nefnd á að gera og ekki síst í ljósi
þess sem á undan er gengið,“ sagði
Gísli S. Einarsson alþingismaður
vegna ummæla Páls Péturssonar fé-
lagsmálaráðherra í DV í gær.
Páll sagði að meðferð félagsmála-
nefndar á skýrslu Ríkisendurskoð-
unar og yfirheyrslur, sem hann kall-
aði svo, yfir fyrrverandi stjórn
Brunamálastofnunar og fleirum
minnti á amerískan sið viö meðferð
svona mála. Hann sagði nefndina
hafa kallað á Stöð 2 til að mynda
fundinn.
Gísli S. Einarsson segir þetta fjar-
stæðu. Það hafl verið skýrt frá því í
DV að fundur í félagsmálanefnd um
skýrsluna stæði til og því hefðu allir
fjölmiðlar vitað af þessum fundi. Það
hafi enginn verið kallaður til.
„Mér er það þess vegna óskiljanlegt
hvernig Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra lætur í þessu máli,“ sagði
Gísli S. Einarsson.
28" LITASJONVARP
Hágceða Surround
Nicam-Stereo!
• Nicam Stereo
Surround-hljómgæöi
• ísienskt
textavarp
• Super Planar
myndlampi
• og margt fleira...
ALLT ÞETTA
FYRIR AÐEINS
69.800
STGR.
SÍÐUMÚLA 2 - SÍMI 568 9090