Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Page 18
18
MÁNUDAGUR 3. JÚLl 1995
■ ■ Mfc
zz zz sssssa
ií gga
mm mm m mm mm — r ÆKk rMi
NCVVðliA/E
9 0 4 * 1 7 0 0
kr. 39.90 min.
Don't lose contact with the world.
Call 904-1700 and hear the latest in
world news in English or Danish.
h VÆ NEW&./A/E
____________ 9 0 4 * 1 7 0 0
Mandeville
of1 i___tzur^JizoczDr-sj
Hártoppar fyrir
karlmenn og konur
Verið velkomin að sjá nýjustu gerðina.
Hártopparnir eru sniðnir ofan i hárlausa blettinn svo ekki
þarf að raka burtu meira og minna af eigin hári eins og
stóru standardhártopparnir krefjast.
Notað er hár af Evrópumönnum í öllum toppunum frá
Mandeville of London.
Upplýsingar á staðnum
Sérfræðingur frá Mandeville of London, John Clifton,
verður staddur hjá okkur þessa viku.
RAKARASTOFAN KLAPPARSTÍG
sími 551-3010
Til sýnls og sölu
Cherokee Limited, 4,0 lítra vél, árg. 1991,
ekinn 46.000 km, 5 dyra, sjálfskiptur, útv/segulb., leður-
áklæði, silfurgrár, rafm. í rúðum, speglar og læsing, raf-
drifnir stólar, vökva- og veltistýri, álfelgur og fl.
Verð kr. 2.450.000. Ath. skipti á ódýrari.
Ford Explorer XLT, 4,0 lítra vél, árg. 1991,
5 dyra, sjálfskiptur, ekinn 98.000 km, vínrauður/silfur,
rafd. í rúðum, speglar og læsingar, vökva- og veltistýri,
ný dekk, álfelgur, útv/segulb. og fl.
Verð kr. 2.400.000. Ath.I Skipti á ódýrari.
Opið laugardaga
12.00-16.00.
Faxafeni 8 - Sími 515-7000
Merming
Fuglafrúin eftir Riu Eing.
Hvítir hvalir eftir Hartmut Eing.
Goðmögn og
draumveruleiki
- Ria og Hartmut Eing í Hafnarborg
Cuxhaven er vinabær Hafnarfjarðar í Þýskalandi.
Sýning hjónanna Riu og Hartmut Eing er liður í vina-
bæjasamskiptunum og hafa hafnfirskir listamenn sýnt
í Cuxhaven á sambærilegan hátt. Það verður að segj-
ast að sýning þeirra Eing-hjóna kemur skemmtilega á
óvart því Cuxhaven er ekki beinlínis á hvers manns
vörum þegar rætt er um listir. Það er fremur að staður-
inn sé þekktur sem hafnarborg og löndunarstaður ís-
lenskra millilandaskipa. En af myndverkum þeirra
Eing-hjóna að dæma ríkir súrrealískur ævintýraandi
í þessari hafnarborg í Þýskalandi og nú hafa þau hjón
freistað þess að flytja þann anda með sér í hina hafn-
firsku Hafnarborg.
Myndlist
Ólafur J. Engilbertsson
Draumkenndur blær liðins tíma
Ria Eing sýnir í Sverrissal 46 skúlptúra, samsetta
úr fundnum hlutum. Skúlptúrarnir hafa yfirbragö
notaðra og úrsérgenginna muna og er samsetningu
þeirra þannig háttað að minnir helst á ljóðrænar og
draumkenndar samsetningar súrrealistanna. Einkum
koma þeir Gironella og Matta upp í hugann. Ria kann
þá list aö gera málamiðlanir á milli hins fundna hlut-
ar og þess sem innra augað „sér“. Þannig birtist and-
lit á verki nr. 12, Leikleiða, sem þó er málaö þannig á
hlutinn aö svo virðist sem það hafi alltaf verið þar.
Mörg verka Riu eru smágerð og flókin, en sammerkt
með þeim öllum er blær liðins tíma sem birtist líkt
og draumveruleiki. Mörg verkanna minna á leikföng
eða eru byggð á leikföngum. Ævintýri fyrir ungar
stúlkur (nr. 28) er gott dæmi um slíkt verk. Þar birtist
jafnframt sterk malerísk taug listakonunnar. Sú taug
verður þó enn rammari í kaffistofu þar sem eru til
sýnis 15 málverk listakonunnar. Ria Eing hefur afar
sérstaka málunartækni sem minnir á tækni gömlu
flæmsku meistaranna. Þar byggir hún upp flötinn í
mörgum lögum og afraksturinn er í senn alþýðlegt,
fíngert og gamalgróið handverk. Sérstaklega eru
myndir nr. 50, Apynja, og 53, Einmana hús, eftirtektar-
verðar vegna yfirbragðs sem rímar fyllilega viö
draumkennda hluti listakonunnar í Sverrissal.
Þrjú augu og tvö tungl
Hartmut Eing sýnir 31 málverk í aðalsalnum og í
anddyri. Verk hans hafa um margt áþekkan tón og
verk Riu. Bæði viðhafa skrifaðar tölur í verkum sínum
og nokkurs konar útreikning. Einnig er yfirbragðið
draumkennt og næsta goðsagnalegt hjá báðum.
Hartmut er þó talsvert meiri prímitívisti og sverja
verk hans sig nokkuð í ætt við verk Pauls Klee og
mexíkóska málarans Rufmos Tamayo. Líkt og einnig
sér stað í verkum Riu svífur ljóðið hér yfir vötnum.
Sögusviðið er hafnarborgin þar sem hvalir koma á
land. Þeir hafa stundum þrjú eða fleiri augu og þá eru
jafnvel tvö tungl á lofti, annað þeirra sofandi eins og
í Mexíkó. Húsin við höfnina eru há og þar eru fáir
gluggar og engir á neðstu hæðunum. Það býr einhver
óútskýrð ógn yfir sviðinu en glaðværðin og gálgahú-
morinn er ávailt á næsta leiti. Þetta er leiksýning þar
sem fáránleikinn og draumurinn eru í aðalhlutverkum
og hið daglega amstur verður að litríku en þrungnu
baksviði. Hvað þetta varðar eru myndir eins og nr.
9, Jónsmessunótt, 16, Tunglfangarar í haldi, 22, Erfið-
leikar í Visby, og 26, Fiskaleikhús, alveg einstaklega
skemmtileg verk sem hafa tU aö bera ríka stemningu
samhliða innlifun í það ljóðræna í hversdagsleikanum.
Hér er um að ræða einhverja eftirtektarveröustu
sýningu erlendra listamanna hér á landi á síðustu
árum. Sýning þeirra Eing-hjóna í Hafnarborg stendur
til 17. júlí.
Hringiðan
Eðalvagnasýning á Árbæjarsafni
Hin árlega eðalvagnasýning Fornbílaklúbbs íslands var haldin nú um
helgina á Árbæjarsafni. Sýndir voru bílar frá þriðja áratugnum fram til
ársins 1960 og gafst fólki kostur á að skoða gripina, auk þess sem áhuga-
samir gátu spurt aðstandendur sýningarinnar um bílana. DV-mynd VSJ
Að baða sig í ánni
Þeir Ágúst Már Og Þorgrímur
Tjörvi baða sig og hundinn Oliver
reglulega í Bergá í Nesjum þegar
veðrið er gott. Þessi mynd var tekin
þegar hópur hestamanna, sem
sóttu fjórðungsmót Austurlands nú
um helgina, reið að Skógey í
Hornafirði þar sem grillað var og
sungið, enda hestamenn frægir fyr-
irgleðiogglaum. DV-myndEJ