Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Page 27
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ19™
39
Fréttir
Fjölskylduhátíð Ferðafélagsins:
Heilbrigð útivera f ólks á
öllum aldri í Þórsmörk
- álfadans stiginn við Skagfjörðsskála
Á annað hundrað manns sóttu íjöl-
skylduhátíð Ferðafélags íslands í
Þórsmörk um helgina. Með hátíðinni
vill félagið undirstrika þann vilja
sinn að helga Þórsmörkina fólki sem
vill stunda heilbrigöa útiveru en
bægja öðrum frá sem gagngert hafa
komið þangað til drykkju og óláta.
Hátíðin fór fram við Skagfjörðs-
skála í Langadal. Farið var með börn
í auðveldar gönguferðir en aðrir fóru
í leiðangra upp á fjöll í nágrenninu.
Síðdegis á laugardaginn var efnt til
ratleiks í dalnum sem fólst í því að
leita uppi silfursjóð álfa. Um kvöldið
var síðan haldin kvöldvaka þar sem
meðal annars var stiginn allsér-
kennilegur álfadans sem einna helst
líkist svigi á skíðum.
Veðurguðirnir léku á als oddi eftir
að hafa skolað rykið af hátíðargest-
um við komuna á svæðið. Var það
mat aðstandenda og gesta að vel hefði
tekist til við hátíðarhöldin enda allir
staðráðnir í að skemmta sér vel.
Þórsmörkin hefur í fjölda ára verið
einn vinsælasti útivistarstaður
landsmanna og árlega leggja tugþús-
undir manna leið sína þangað. Þarna
í skjóli jöklanna er mikil gróðurvin
og fagrir fjallasalir hvert sem htið
er. Fjöldi stikaðra gönguleiða er um
svæðíð og yfir Krossá er göngubrú
sem tryggir öllum örugga leið yfir
ána.
Auk gönguleiða um sjálfa Mörkina
liggja fjölfarnar gönguleiðir frá
mörkinni, annars vegar yfir Fimm-
vörðuháls að Skógum og hins vegar
um Emstrur, Álftavatn og Hrafn-
tinnusker í Landmannalaugar.
Ferðafélagið hefur reist fjölda skála
á leiðinni milh Þórsmerkur og Land-
mannalauga. Þá býður félagið upp á
ferðir með leiðsögn á þessum leiðum
og hafa slíkar ferðir notið -mikilla
vinsældaáundanfórnumárum. -kaa
A fjölskylduhátið Ferðafélags Islands í Þórsmörk um helgina var slegið á létta strengi á kvöldvöku sem haldin var
á laugardagskvöldið.
Sérleyfisbifreiðar Keflavíkur:
Ný rúta bætist í f lotann
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þegar þessi er kominn í flotann
erum við sennilega með lægsta með-
alaldur bíla hér á landi. Rútan verður
notuð mikið í hópferðir og einnig í
áætlunarferðir. Ég er njög ánægður
me bíhnn. Þetta er mjög vandað hús
og góð innrétting og mjög vel gengið
frá öllu,“ sagði Steindór Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Sérleyfisbifreiða
Keflavíkur.
Fyrirtækið er þessa dagana að taka
í notkun nýja og glæsilega rútu. Und-
irvagninn er frá Benz en húsið frá
Hollandi og er hið fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi. Rútan er búin
flestum þeim þægindum sem menn
geta hugsað sér og þá að sjálfsögðu
með sjónvarpi og myndbandstæki.
Rútan tekur 30 farþega og kostaði
12,5 mhljómr.
Fyrirtækið hefur verið að yngja
upp rútuflota sinn og selt 17 gamlar
rútur á undanfórnum árum og keypt
14 nýjar í staðinn.
Steindór Sigurðsson, framkvæmda-
í Þórsmörk eru margar áhugaverðar gönguleiðir enda mörg fögur fjöll á stjóri Sérleyfisbifreiða Keflavikur, í
svæðinu. Á myndinni eru göngugarpar á leið niður af Réttarfelli. nýjustu rútunni í flota fyrirtækisins.
DV-myndir kaa DV-mynd ÆMK
Parketveisla - lokaútkall!
Eigum enn nokkurt magn af lítið
gölluðu parketi á frábæru verði.
Askur, 2 gerðir, beyki, eik,
5 gerðir. Verð frá 600-2.200 fm.
ÓM búðin
__________Grensásvegi 14, s. 568 1190.
MINA KEYPTI 3\RGQ\R AF
KÖKUKEFLUM í GEGNUM
SMÁAUGLÝSINGAR DV
A'JGLYSINGAR
Opið: Virka daga kl. 9 - 22, Athugið! Smáauglýsingar í helgar-
laugardaga kl. 9-14, blað DV verða að berast fyrir
sunnudaga kl. 16 - 22. kl. 17 á föstudögum
Síminn er 563-2700
Skila árangri!