Dagblaðið Vísir - DV - 03.07.1995, Page 29
MÁNUDAGUR 3. JÚLÍ 1995
41
Fréttir
Valdimar Sverrisson með fimmta lax sumarsins úr Staöarhólsá í Dölum á
laugardaginn en veiðst hafa tiu laxar og fimm bleikjur síðan áin var opnuð
fyrirhelgi. DV-mynd G.Bender
Elliðaárnar:
Stórganga
ínótt
- laxinn tekur illa
Laxarnir hafa heldur betur komið
í stórstraumnum síðustu daga. í Ell-
iöaánum var allt vitlaust í gærmorg-
un, lax var um allt neðarlega í ánni.
Líklega hefur komið 300 laxa ganga
í nótt, það var lax við lax í fossinum
og 112 laxar fóru í gegnum teljarann.
En laxinn tekur agn veiðimanna ekki
nógu vel þessa dagana í Elliðaánum
enda vatnið lítið í ánni og minkar
um alla á neðarlega.
„Það er ekki von að laxinn taki,
hann er stressaður og fer undan
i maðkinum þegar hann kemur. Það
veiddust ekki nema 5 laxar í morg-
un,“ sagði Júlíus Jónsson í gær við
, Elliðaárnar.
„Það er heilmikið af laxi hérna í
fossinum en hann tekur ekki hjá
okkur flugurnar enn þá. Ætli það séu
ekki 50-60 laxar í fossinum," sagði
Kolbeinn Grímsson en hann kastaði
flugunni grimmt í fossinn.
„Það er lax viö lax hérna á Breið-
unni en þeir taka illa. Það komu yfir
100 laxar í gegnum teljarann í nótt,“
sagði Jón Einarsson en hann reyndi
fluguna eins og Kolbeinn í fossinum.
Það eru komnir rétt 40 laxar i Ell-
iðaánum og hann er 10,5 pund sá
stærsti sem Bjarnfreður Olafsson
veiddi á maðk. Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir borgarstjóri veiddi 7,5
punda lax á maðk í fossinum en það
Ivar borgarstjóradagur og veiddust 9
laxar.
Tvöfölduðu veiðina
í Laxá í Leirársveit
„Veiðin gekk vel hjá okkur í Laxá
. í Leirársveit, við fengum 45 laxa holl-
iö og það voru komnir 45 laxar þegar
við mættum," sagði Haukur Geir
Garðarsson í gær en hann var að
koma úr Laxá í Leirársveit og var
að fara í Vesturdalsá í Vopnafirði til
að opna hana.
„Það var töluvert af laxi að ganga
í strauminn en við fengum þessa laxa
á maðk og flugu í Deiwa-hollinu en
það eru félagar í landsliðinu. Stærsti
laxinn er 15 pund enn þá en ég sá
feiknavænan fisk í Vaðstrengnum,"
sagði Haukur Geir enn fremur.
Laxinn farinn að veiðast
„Þetta er allt að koma hjá okkur,
laxinn er farinn að veiðast, fyrsta
hollið veiddi tvo laxa og fimm bleikj-
ur. Næsta veiddi íjóra laxa og eina
bleikju. Laxarnir sem hafa veiöst eru
allir vænir," sagði Sæmundur Kristj-
ánsson á bökkum Hvolsár og Staðar-
hólsár í Dölum í gær.
„Það eru komnir laxar í báðar árn-
ar og bleikjan er byrjuð að hellast'
inn. í morgun voru 30 rígvænar í
kistunni. Það er gott vatn í ánum og
öll skilyrði fyrir hendi. Veiðimenn
sem voru að í morgun fengu lax á
klukkutíma fresti í Staðarhólsánni,"
sagði Sæmundur í lokin.
Veiddu 8 laxa í Stóru-Laxá
Veiðin er öll að koma til í Stóru-
Laxá í Hreppum en veiðimenn, sem
voru á svæði eitt og tvö á laugardag-
inn, veiddu 8 laxa.
„Veiðiskapurinn gekk mjög vel hjá
okkur, við fengum 8 laxa og þetta
voru fiskar frá 10 upp í 17 pund,“
sagði Sigurður Þóroddsson í gær, en
hann var að koma úr Stóru-Laxá í
Hreppum með þeim Jens Ingólfssyni
og Herði Guðjónssyni.
„Við vorum með tvær stangir og
við misstum mikið af fiski. Það var
devon, túbur og spúnn sem gáfu okk-
ur þessa veiði. Flesta fengum við í
Flatastreng, fjóra, svo Skarðsstreng
tvo, einn í Ófærustreng og einn
Kóngsstreng. Sá stærsti veiddist í
Ófærustrengnum, þessi 17 punda.
Það voru hjón á þriðju stönginni og
þau fengu einn lax. Það var töluvert
af fiski að ganga,“ sagði Sigurður í
lokin.
Stóra-Laxá í Hreppum hefur gefið
kringum 35 laxa og veiðimenn, sem
voru á efsta svæðinu fyrir fáum dög-
um, náðu aðeins einum laxi en settu
í fimm. í Hólmahylnum voru 10-12
laxar en þeir tóku grannt.
tímarit fyrir alla
A NÆSTA SÖLUSTAÐ
SÍMA 563 2700
Tilkyririingar
Leikhús
Hússtjórnarskólanum í
Reykjavík slitið
Hússtjórnarskólanum í Reykjavík var
slitiö 27. maí. Skólinn hefur veriö rekinn
þannig undanfarin ár að á haustönn hafa
veriö haldin námskeiö í fatasaumi, mat-
reiöslu, útsaumi og vefnaði. Þessi nám-
skeiö hafa staðið mislengi, frá einum degi
upp í fimm vikur. Á vorönn er rekin
hússtjórnardeild í fimm mánuði og geta
16 nemendur fengið inni á heimavist.
Vegna mikillar aösóknar aö hússtjórnar-
deildinni hefur verið ákveöiö að reka
hana líka á haustönn en námskeiðin
veröa áfram eftir því sem húsrými gefur
tilefni til.
Aktu eins og þú vilt
l&o3'
0«UM EINS OG Mtl
að aórir aki!
)
<&1<B
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
Rokkóperan '
Jesús Kristur
SUPERSTAR
ettir Tim Rice og Andrew
Loyd Webber
Frumsýning töstudaginn 14. júli, örtá sæti
laus, laugardaginn 15/7, sunnud. 16/7.
Forsala aðgöngumiöa hafin.
Mióasalan veröur opinfrá kl. 15-20
alla daga og einnig tekið á móti
miöapöntunum í sima 658-8000 frá
kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Til norske borgere bosatt pá Island
KOMMUNESTYRE- OG
F YLKESTIN GS V ALG 1995
Mandag 11. september 1995 er det kommunestyre- og fylkest-
ingsvalg i Norge. (I enkelte kommuner ogsá 10. september.)
I folge den norske valgloven har norske statsborgere som
har fylt 18 ár, eller som fyller 18 ár senest 31. desember
1995, og som er bosatt utenfor Norge, stemmerett dersom
de noen gang har státt innfort i Folkeregisteret i Norge.
Utenlandsoppholdets varighet er uten betydning nár det
gjelder stemmerett, og det er heller ikke noe krav om at man
má ha bodd i Norge et bestemt antall ár. Personer som har
vært innfort i Folkeregisteret som bosatt i Norge én gang i
lopet av de siste 10 ár for valgdagen, manntallsfores automat-
isk i den kommen i Norge de flyttet fra. Personer som har
mer enn 10 árs registrert utenlandsopphold (f.eks. bodd pá Is-
land fra for 1985), má soke om á bli innfort i manntallet i ut-
flytningskommunen. Slik soknad má være mottatt i valgstyret
i denne kommunen innan 1. august 1995. Soknadsskjema om
innforing i manntallet kan fás i Den norske ambassade i
Reykjavik, generalkonsulatet i Reykjavik, og de norske kons-
ulatene i Akureyri, Isafjördur, Seydisfjördur og Vestmanna-
eyar.
Forhándsstemme kan avgis i Den norske ambassade i Reykja-
vik og Det norske konsulatet i Akureyri (tlf. 461 2500) fra
og med 3. juli 1995. Forhándsstemmen má avgis sá tidlig
at den kan ná fram til valgstyret i hjemstedskommunen pr.
post innen 11. september 1995.
Sporsmál vedrorcnde forhándsstemmegivning kan rettes til
Den norske ambassaden.
Kgl. Norsk Ambassade
Fjólugötu 17,101 R. ■ Tlf.: 551 3065 & 551 3175 • Fax: 5529553
Til norskra ríkisborgara sem
búsettir eru á íslandi
SVEITARSTJÓRNAR- OG
FYLKISÞINGKOSNIGNAR 1995
Mánudaginn 11. september 1995 fara fram sveitar- og fylkis-
þingskosningar í Noregi. (í sumum sveitarfélögum fer kosn-
ing einnig fram 10. september.)
Samkvæmt norskum kosningalögum hafa þeir norskir ríkis-
borgarar, sem náð hafa 18 ára aldri, eða verða 18 ára hið
síðasta hinn 31. desember 1995 og búsettir eru erlendis, kosn-
ingarétt hafi þeir einhvern tíma verið skráðir í þjóðskrá í
Noregi.
Tímalengd dvalar erlendis hefur éngin áhrif á kosningarétt-
inn. Þess er heldur ekki krafist, að búseta í Noregi hafi staðið
í tiltekinn árafjölda. Þeir, sem skráðir hafa verið í þjóðskrá
í Noregi með búsetu þar á síðastliðnum 10 árum, færast sjálf-
krafa inn í manntal í því sveitarfélagi í Noregi, sem flutt var
frá.
Þeir Norðmenn, sem átt hafa lögheimili utan Noregs lengur en
10 ár, verða að sækja um að vera skráðir í manntal í því sveitar-
félagi, sem flutt var frá (t.d. þeir, sem búið hafa á íslandi leng-
ur en 10 ár).
Umræddar umsóknir verða að liggja fyrir hjá kjörstjórn við-
komandi sveitarfélags fyrir 1. ágúst 1995.
Umsóknareyðublöð þar að lútandi eru fyrirliggjandi hjá Norska
sendiráððinu í Reykjavík, hjá aðalræðismanni Noregs í
Reykjavík og hjá ræðismönnum Noregs á Akureyri, ísafirði,
Seyðisfirði og í Vestmannaeyjum.
Utankjörstaðarkosning fer aðeins frain í Norska sendiráðinu
í Reykjavík og hjá norsku ræðismannsskrifstofunni á Akur-
eyri (sími 461 2500) frá og með 3. júlí 1995. Utankjörstaðar-
atkvæði verða að hafa borist kjörstjórn í viðkomandi um-
dærrii með pósti í síðasta lagi fyrir 11. september 1995.
Norska sendiráðið í Reykjavík gefur allar nánari upplýsingar
um utankjörstaðaratkvæðagreiðsluna.
Norska sendiráðið
Fjólugötu 17 -101 R. ■ S. 551 3065 & 551 3175 • Fax 552 9553
IH H H
iy?jiiií
DV
904-1700
Verö aðeins 39,90 mín.
_lj Fótbolti
2 Handbolti
3 j Körfubolti
41 Enski boltinn
5[ ítalski boltinn
6 Þýski boltinn
71 Önnur úrslit
8[ NBA-deildin
1\ Vikutilboð
stórmarkaðanna
2 Uppskriftir
jl[ Læknavaktin
2 [ Apótek
3 j Gengi
4Wy
e] gz&y [ £ [&I
1 Dagskrá Sjónvarps
2 [ Dagskrá Stöðvar 2
3 [ Dagskrá rásar 1
4 i Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
■ 5] Myndbandagagnrýni
6 ísl. listinn
-topp 40
7 [ Tónlistargagnrýni
8 j Nýjustu myndböndin
9 [ Gervihnattardagskrá
lj Krár
2 ) Dansstaðir
3 j Leikhús
4 j Leikhúsgagnrýni
51 Bíó
_6J Kvikmyndagagnrýni
6
1 Lottó
2 [ Víkingalottó
3! Getraunir
mmií
aiSVIII
DV
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.