Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995
3
Fréttir
Sigríður Hrönn Elíasdóttir, oddviti Súðavíkur:
Gagnrýndi
kerf ið en ekki
persónur
„Ég hef aldrei sagt aö Heiðar hafi
ekki staðiö sig í starfi. Það er ann-
arra aö meta það. Ég er leikmaður
og ekki dómbær á þaö. í vetur var
umgjörðin um starf snjóathugunar-
manns þannig að ekki var eftirlit
með því hvernig starfið var unnið
og óskilgreint hver væri yfirmaður
hans. Þetta hef ég gagnrýnt og þessu
hefur nú verið breytt þannig að þaö
heyrir undir lögreglustjóra. Ég var
að gagnrýna kerfið eins og það var,
ekki Heiðar Guöbrandsson sem snjó-
athugunarmann eða aðra,“ segir Sig-
ríður Hrönn Elíasdóttir, oddviti
Súðavíkurhrepps.
Heiðar Guðbrandsson, hrepps-
nefndarmaður og snjóathugunar-
maður í Súöavík, hefur sent frá sér
yfirlýsingu þar sem hann óskar eftir
því að lausnarbeiðni Sigmundar Sig-
mundssonar, fráfarandi oddvita, og
kjöri nýs oddvita verði frestað þar
tU opinber rannsókn hefur farið fram
á því hvers vegna ekki var unnið
eftir áætlun Almannavarnanefndar
þegar snjóflóð féllu í Súðavík í vetur
en Heiðar hefur haldið því fram.
Þegar lausnarbeiðni fráfarandi
oddvita var samþykkt og Sigríður
Hrönn kjörin oddviti á hreppsnefnd-
arfundi á mánudag gekk Heiðar af
fundi. í yfirlýsingu sinni segir hann
að oddvitinn hafi lýst yfir opinber-
lega að hann hafi ekki staðið sig í
starfi sem snjóathugunarmaður.
„Þessi opinbera rannsókn er í
gangi og því óþarfi að samþykkja til-
lögu um hana. Það var farið fljótlega
fram á rannsókn af Arnmundi Back-
man fyrir hönd Hafsteins Númason-
ar og fleiri og því fannst okkur tíma-
skekkja að koma méö tillögu um það
í ágúst. Rannsóknin var þá búin að
vera marga mánuði í vinnslu. Við
viljum öll að það komi niðurstaða í
þetta mál og höfum alltaf viljað,"
segir Sigríður Hrönn Elíasdóttir,
oddviti Súðavíkurhrepps.
Sigríður Hrönn ákvaö í vor að
hætta sem sveitarstjóri Súðavíkur-
hrepps og fulltrúi í Almannavarna-
nefnd. Hún segist hafa skorað á Heið-
ar að hætta í Almannavarnanefnd
og sem snjóathugunarmaður þar til
niðurstaða fengist í rannsókninni en
það hafi hann ekki gert. Hún hafi
aldrei ætlað sér að taka oddvitastarf-
ið en margt ágætisfólk hafi viljað það
ogþvíhafihúngertþað. -GHS
Konurnar við vinnu í byggðasafninu.
DV-mynd Daniel
Byggðasafnið á Akranesi:
Konur spinna,
kemba og pijóna
Daniel Ólafeson, DV, Akranesi:
Nú er hafið nýstárlegt átaksverk-
efni í Byggðasafninu á Akranesi sem
styrkt er af atvinnuleysistrygginga-
sjóði og unnið í samvinnu við Gallerí
Grástein og Samtök handverkafólks
á Akranesi og nágrenni. Um er að
ræða ullarvinnu eins og hún var á
árum áður.
Að sögn Brynju Þorbjörnsdóttur,
Seiðatalning Hafrannsóknarstofnunnar:
Þorskurinn bragg-
ast á íslandsmiðum
Þorskseiði eru fleiri og sprækari á unar upprennandi þorskar þó stórir
íslandsmiðum nú en verið hefur aö en þeir gætu samt orðið efni í meira
jafnaði síðustu tíu árin. Ekki þykja en meðalárgang þegar tímar líða.
sérfræðingum Hafrannsóknastofn- -GK
atvinnumálafulltrúa Akraness, sýna
tvær konur ullarvinnubrögð sem
fæstir hafa séö. Þriðja konan pijónar
lopapeysur sem eru til sölu. Konurn-
ar eru í gamla Garðahúsinu í byggða-
safninu og það er eins og að hverfa
aftur í aldir að sjá þar alla gömlu
munina. Konurnar sýna á fimmtu-
dögum og föstudögum þegar safnið
er opið.
síðustu dagar
NÚ ER BARA AÐ HRÖKKVA, STÖKKVA, URRA OG
GELTA ÞVÍ ÞEIM FER SENN AÐ LJÚKA
HUNDADÖGUNUM í JAPIS.
Panasonic
: ~ í;L?.7.;.v
BÍLGEISLASPILARAR FRÁ KR. 33.900,-
Panasonic
14" sjónvörp KR. 27.900,-
Panasonic
PANASONIC ÖRBYLGJUOFNAR FRÁ KR. 19.900,-
Panasonic
FERÐATÆKI MEÐ CD FRÁ KR. 16.950,-
Panasonic
FERÐAGEISLASPILARI FRÁ KR. 9.995,-
Panasonic
MYNDBANDSUPPTÖKUVÉLAR FRÁ KR. 59.900,-
allt að 50% afsl
JAPIS
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI SÍMI 562 5200