Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Blaðsíða 28
44 MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995 onn Skarphéðinn Einarsson er ósátt- ur við trúnaðarbrot lögreglu- stjórans í Keflavík. Kostað mig milljón „Brot lögreglustjórans á þagn- arskyldunni er búið að kosta mig milljón og henni ætla ég að ná aftur.“ Skarphéðinn Einarsson f DV. Tæknilega illframkvæman- legt „Þaö er nokkuð ljóst að þessi tillaga sparnaðarnefndar er tæknilega illframkvæmanleg eins og hún kemur fram.“ Árni Guðmundsson, um sparnað í Hafnarfirði, í Tímanum. Eftir iögum „Þetta er í lögum og ég fer eft- ir þeim lögum sem sett eru um þessar stjórnir og ráð sem maður situr í. “ Ummæli Ragnheiður Ásta Jóhannes- dóttir, um fréttamenn og út- varpsráð, í Tímanum. Svona nætur „Það er mjög óvenjulegt að við tökum fjóra fulla við stýrið að- faranótt venjulegs þriðjudags en það koma svona nætur.“ Lárus Ragnarsson, varðstjóri hjá lögreglunni í Kópavogi, í DV. Ekki tryggðir „Mér virðist sem oft skorti mikið á að ferðamenn, einkum íslenskir, hugsi um að tryggja sig.“ Helgi Hallvarðsson skipherra í DV. Tom Watson er hér þungt hugsi yfir pútti en hann hefur þó varla nokkurn tíma þurft að nota 21 högg á eina holu. Slakt skor Flest högg sem þurft hefur til að ljúka einni braut á opna breska meistaramótinu í golfi er Blessuð veröldin 21. Það gerðist hjá ónafngreind- um leikmanni á fyrsta móti sög- unnar, í Prestwick árið 1860. Að- eins einu sinni hefur það gerst að sigurvegari á opna breska mótinu hafi þurft meira en tug högga til að ljúka einni holu. Það var þegar Willie Feme fór eina- holuna á tíu höggum er haldin i Mussfeburgh í Lothian árið 1883. Ainsley frá Ojai i Kalifomíu lék sextándu holu Cherry Hills- vallarins (par 4) á 19 höggum í annarri umferð opna bandaríska meistaramótsins. í Denver í Colorado 10. júní 1938. Flest höggin notaði hann til að slá kúl- una upp úr læk. ,L- Léttskýjað á Suðurlandi í dag verður austan- og norðaust- anátt, víða kaldi þegar kemur fram á daginn en sums staðar stinnings- kaldi austanlands í kvöld. Búast má við dálítilli súld og siðar rigningu á Veðrið í dag Norðaustur- og Austurlandi en ann- ars staðar verður þurrt og allvíða léttskýjað sunnanlands og vestan. Hiti verður 4 til 9 stig en allt að 14 stigum á Suðurlandi þegar best læt- ur. Horfurnarar fyrir höfuðborgar- svæðið eru þær að þar verði austan- og norðaustangola en kaldi síðdegis. Lengst af verður léttskýjað. Hitinn verður á bilinu 10 til 13 stig í dag en 3 til 6 stig í nótt. Sólarlag í Reykjavík: 20.28 Sólarupprás á morgun: 6.26 Síðdegisflóð í Reykjavík: 16.28 Árdegisflóð á morgun: 4.52 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri Akurnes Bergsstaöir Bolungarvík Egilsstaöir Keflavíkurflugvöllur Kirkjubœjarklaustur Raufarhöfn Reykjavík Stórhöföi Bergen Helsinki Kaupmannahöfn Ósló Stokkhólmur Þórshöfn Amsterdam Barcelona Berlín Chicago Feneyjar Frankfurt Glasgow Hamborg London Los Angeles Madrid Malaga Mallorca New York Nice Nuuk Orlando París léttskýjað léttskýjað léttskýjað léttskýjað súld léttskýjað skýjað alskýjað léttskýjað hálfskýjað rigning 12 þokumóða 15 þokuruðn. 14 rign/súld 14 þokumóða 15 skýjað 10 skúr 13 léttskýjað 16 skýjað 12 skýjað 24 þokumóða 14 skýjað 12 skýjað 11 alskýjaö 14 skýjað 13 heiðskírt 23 skýjað 15 léttskýjað 18 hálfskýjað 17 heiðskirt 24 skýjað 16 súld 5 skúr 24 léttskýjað 11 Ingólfur Steinar Margeirsson: Synti hálfa leið til Keflavíkur „Eg var merkilega hress eftir þetta allt saman og það skrítna var að ég synti á betri tíma en í fyrra, ég synti lengra og var betur á mig kominn eftir á. Ætli það bendi ekki til þess að ég sé í sæmilega góðu forrni," sagði Ingólfur Steinar Margeirsson en hann synti 25 km í almenningssundkeppni í Sund- laug Kópavogs um liðna helgi. Steinar tók þátt í sömu keppni í Maður dagsins fyrra og þá synti hann 21 kfló- metra. Hann syndir á hverjum degi, einn kilómetra í senn, og því átti hann ekki von á að geta synt svona langt. „Áður en ég synti í fyrra var ég viss um að ég kæmist ekki nema 4 5 kílómetra. Það kom mér því nokkuð á óvart þegar ég náði að synda 21 km. Spumingin nú var eiginlega að. athuga hvort ég kæm- Ingólfur Steinar Margeirsson. ist lengra en í fyrra,“ sagði Ingólf- ur. Hann var ellefu tíma á sundi um helgina, án þess að stoppa, og segist hafa hugsað margt á þessum tíma og fái iðulega góöa andlega hvíld á sundinu. Ingólfur Steinar segist nota há- degið til þess að synda og síðan hjóli hann í vinnuna og heim aft- ur. „Ég byrjaði á því að hlaupa eftir vinnu og það fannst mér taka frá mér tíma. Ég fór að auki að finna til í hnjánum og því hef ég alveg snúið mér að hjólinu og sundinu. Ég hef mjög gaman af því að fara í lengri gönguferðir, á fjöll og slikt, og ég hef gaman af að ferðast." Ingólfúr Steinar er tæknifræð- ingm- hjá Fasteignamati ríkisins, hann er kvæntur Ásu Sigríði Árnadóttur og þau eiga fimm böm, Mai-geir, Gísla, Hörpu, Þorbjörgu Elsu og Ingólf Steinar. „Harpa og Ingólfur syntu með mér um helgina og þau og Þorbjörg fara með okkur í ferðalögin. Hin bömin eru flogin úr hreiörinu," sagði sundmaðurinn Ingólfur Steinar Margeirsson. Myndgátan Skíðabrekka Einn leikur í annarri deild Einn leikur verður leikinn í annarri deildinni í knattspymu í kvöld en þá mætast Skallagrím- ur og Þróttur, Reykjavík. Leikið verður í Borgarnesi. Spennan í deildinni snýst nú um það hverjir þurfi að leika í Iþróttir þriðju deildinni að ári. Ljóst er að Stjarnan og Fylkir fara upp í þá fyrstu. í kvöld er landsleikjakvöld í Evrópukeppninni en íslendingar sitja hjá í þessari umferð. Þeir mæta Tyrkjum i næsta leik síðar í haust. Skák Arlegu minningarmóti í Polanica Zdroj um pólska skáksnillinginn Akiba Rubinstein lauk með sigri Búlgarans Topalovs, sem hlaut 7,5 v. af 11 mögulegum. Rússinn Krasenkov kom næstur með 7, Ehvlest fékk 6,5, Húbner 6 og Sosonko og Kaminski 5,5 v. 1 E 1 á 11 Á 1 A 1 JL Jl s S A f\ 4? a ABCDEFGH Hér er staða frá mótinu. Bandaríkja- maðurinn Nick de Firmian hafði hvitt og átti leik gegn Húbner: 18. Rf6+! gxf6 19. exf6 0-0 Svartur er vamarlaus. Eftir 19. - h6 er 20. Db4! sterkt svar. 20. Hg3+! Kh8 21. Dh6 Hg8 22. Hg7 Rf8 og Húbner gaf, án þess að bíða eftir 23. Hxg8+ Kxg8 24. Dg7 mát. Jón L. Árnason Bridge Þrátt fyrir að sveit Sigurðar Vil- hjálmssonar hafi sigrað sveit Lands- bréfa nokkuð örugglega komu spil í leiknum þar sem sveit Landsbréfa hafði betur. Að loknum þremur lotum af fjórum hafði sveit Sigurðar 47 impa forystu og því þurftu spilararnir í sveit Landsbréfa að taka nokkra áhættu til að hafa möguleika á því að brúa bilið. Þetta er spil úr fjórðu lotu leiksins. Sagnir gengu þannig, norður gjafari og allir á hættu: 4 10862 4* DG + K * ÁD8532 * 943 * KDG7 S* K6 * ÁD8 * KG96 N » 108542 ♦ 10752 * 10 Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi. Á5 Á973 ■+ G9643 * 74 Norður Austur Suöur Vestur Sævar Rúnar Jón B. Jakob pass pass 1+ 1G Dobl 2»* Dobl p/h Jón Baldursson ákvað að opna á að- eins 9 punkta í þriðju hendi og Jakob Kristinsson átti vel fyrir grandsögn sinni sem alla jafna sýnir 16-18 punkta jafnskipta hendi. Sævar Þorbjömsson átti fyrir dobli til að sýna hámarks passaða hendi og Rúnar Magnússon flúði eðlilega i 2 hjörtu. Undir venju- legum kringumstæðum hefðu flestir spilarar i suður látið þar við sitja en Jón var í baráttuskapi og doblaði til refsingar. Jakob var bjartsýnn en Rún- ar að sama skapi svartsýnn með punktalausa hendi. Útspil Jóns var laufsjöan og Sævar átti fyrsta slaginn á drottningu. Hann hugsaði sig lengi um og spilaði síðan spaða á ás Jóns og þá kom lítill tígull til baka. Rúnar svinaði eðlilega tíguldrottningunni og Sævar fékk á blankan kónginn. Þá kom laufás sem Rúnar trompaði. Hann spilað strax hjarta, Jón setti ásinn en Sævar gosann. Þá kom tígull og Rúnar setti lítið spfl í blindum en Sævar trompaði með gosa. Síðan fékk Jón lauftrompun, blindum spilað inn og Rúnar komst ekki heim til þess að taka trompniuna af Jóni og spilið fór 500 niður! ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.